Innlent

Tæplega 1900 hafa kosið í prófkjöri Samfylkingar í Suðurkjördæmi

Alls voru 1870 búnir að kjósa kl. 13. í opnu prófkjöri Samfylkingarinnar í

Suðurkjördæmi.

Þegar utankjörfundaratkvæðagreiðslu lauk kl. 20:00 föstudagskvöldið 3.

nóvember voru 626 búnir að kjósa utankjörfundar og kl. 13:00 voru

1244 búnir að kjósa til viðbótar, alls 1870.

Sérstök athygli er vakin á því að kjörstaðir loka kl. 18. Prófkjörið

er opið öllum kosningabærum mönnum í Suðurkjördæmi, þ.e. þeim sem eru

orðnir 18 ára og hafa íslenskan ríkisborgararétt.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×