Innlent

Vel á fimmta þúsund kosið í prófkjöri samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi

Vel á fimmta þúsund manns voru búnir að kjósa kl. 17 í opnu prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.

Þegar utankjörfundaratkvæðagreiðslu lauk kl. 20:00 föstudagskvöldið 3.

nóvember voru 626 búnir að kjósa utankjörfundar og kl. 17:00  voru

búnir að kjósa til viðbótar 3620, alls 4246.

Sérstök athygli er vakin á því að kjörstaðir loka kl. 18. Prófkjörið

er opið öllum kosningabærum mönnum í Suðurkjördæmi, þ.e. þeim sem eru orðnir 18 ára og hafa íslenskan ríkisborgararétt.

Talið verður á sunnudeginum á Hótel Selfossi, fyrstu tölu ættu að

liggja fyrir um kl. 18:00 á sunnudeginum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×