Innlent

Annir í embætti

Öfugt við svo marga sem nú eru í sumarleyfum frá vinnu og liggja með tærnar upp í loft þeysist Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, á milli landa og landshluta í opinberum erindagjörðum.

Á mánudag í síðustu viku var hann í Boston og hélt þar ræðu á alþjóðlegu þingi Lionsmanna. Daginn eftir var hann kominn til Íslands til að taka á móti fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Daginn þar á eftir ræddi hann meðal annars við Bjarna Tryggvason geimfara og á fimmtudag hófst opinber heimsókn Grikklandsforseta hingað til lands og stóð hún fram á föstudag. Á laugardag var Ólafur Ragnar kominn til Siglufjarðar til að opna Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar og nú er hann aftur kominn til Bandaríkjanna til að borða með Bandaríkjaforseta.

Oft í Bandaríkjunum

Annars eru Bandaríkin tíður viðkomustaður forseta Íslands. Á þessu ári eru heimsóknir hans þangað orðnar tvær og árið aðeins rétt rúmlega hálfnað. Á síðasta ári fór Ólafur Ragnar fimm sinnum til Bandaríkjanna í opinberum erindagjörðum en árið þar áður voru heimsóknirnar tvær. Árin 2003 og 2 fór hann þrívegis hvort ár til Bandaríkjanna, einu sinni 2001 en tvisvar árið 2000.

Bannað að reykja

Frá og með 1. október verða reykingar alfarið bannaðar á sjúkrahúsinu á Akureyri – sem raunar heitir Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Starfsfólki hefur verið meinað að reykja á spítalanum í áratug og nú á að ganga skrefi lengra og taka fyrir reykingar sjúklinga sem fram til þessa hafa mátt reykja í þar til gerðum herbergjum. Ekki er nóg með að bannað verði að reykja innan veggja spítalans heldur nær reykingabannið einnig til lóðar hans. Sjúklingum á Landspítalanum – sem raunar heitir Landspítali - háskólasjúkrahús – er heimilt að reykja í sérstökum herbergjum en líkt og nyrðra eru reykingar starfsfólks bannaðar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×