Fleiri fréttir

Heilsa hf. innkallar Liðaktin úr verslunum

Heilsa hf hefur innkallað Liðaktin úr verslunum tímabundið vegna vísbendinga um framleiðslugalla. En við skoðun á einni sendingu af Liðaktini hefur komið fram vísbendingar um að ekki sé tilskilið magn af Glucosamin HCL og Chondroitin Sulfat í töflunum miðað við þær upplýsingar sem framleiðandi gefur upp.

Skeljungur hækkar líka

Skeljungur hækkaði fyrir stundu verð á bensíni, dísilolíu og gasolíu um þrjár krónur og þrjátíu aura lítrann. Olíufélagið Esso hækkaði verð hjá sér um það sama í morgun.

Enn lækkun í Kauphöllinni og á krónunni

Hlutabréfaverð í Kauphöllinni hélt áfram að lækka í morgun og hið sama á við um gengi íslensku krónunnar, sem hefur lækkað um tæplega tvö prósent það sem af er degi. Gengi Bandaríkjadals er nú 77 krónur og 54 aurar, ef miðað er við miðgengi Seðlabankans. Evran er kostar nú tæpar 96 íslenskar krónur samkvæmt sama viðmiði.

6.000 farþegar með Flugfélagi Íslands

Um sex þúsund farþegar ferðuðust með Flugfélagi Íslands um Páskana. Flugbókanir fara rólega af stað eftir Páskana en nokkur áhugi er fyrir ferðum til Grænlands.

Alþjóðlegir hestadagar í Skagafirði

Alþjóðlegir hestadagar í Skagafirði hefjast á morgun sumardaginn fyrsta með reiðkennslusýningu Hólaskóla. Þessi hátíð er haldin ár hvert og dregur að sér mikið af áhorfendum innlendum sem erlendum. Boðið verður uppá fræðsluerindi, kynbótasýningar, töltkeppni og svo er markaðsdagur í Reiðhöllinni Svaðastöðum. Hestadagarnir standa yfir dagana 20 – 23 apríl.

Sláturhús Hellu hf. kaupir 50% hlut í Betra landi ehf.

Sláturhús Hellu hf. hefur keypt 50% hlut í Betra landi ehf. en gengið var frá kaupsamningu um Páskana. Fyrirtækin höfðu áður þróað með sér samstarf sem leiddi til þess að Sláturhúsið Hellu hf. ákvað að gerast hluthafi að Betra landi ehf.

Greiðfært á Suður- og Vesturlandi

Greiðfært er á þjóðvegum á Suður- og Vesturlandi. Hálkublettir eru víða á Vestfjörðum og snjóþekja er á Steingrímsfjarðarheiði. Þá eru einnig hálkublettir víða á Norðurlandi og snjóþekja á Öxnadalsheiði og Lágheiði. Hálka er víða á Austurlandi.

Lækka leikskólagjöld um 20%

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar ákvað í gær að lækka leikskólagjöld í leikskólum bæjarins um 20 prósent. Lækkunin tekur gildi 1. maí næstkomandi.

Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn tapa fylgi á Akureyri

Meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar á Akureyri er fallinn samkvæmt skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hefur gert fyrir NFS. Sjálfstæðismenn halda sínu fylgi, mælast með 36,5% fylgi, en Framsóknarflokkurinn tapar hins vegar rúmum þriðjungi af fylgi sínu.

Lundinn kominn til Eyja

Lundinn er kominn til Vestmannaeyja en fjórum dögum seinna en í fyrra. Fréttavefurinn Suðurland.is greinir frá því að sést hafi til lunda í Heimaey síðdegis í gær. Stífar norðanáttir og hár loftþrýstingur tafði lundann á för sinni en hann kemur yfirleitt til Eyja á milli tíunda og tuttugasta apríl hvert ár.

Bíti á jaxlinn, bölvi í hljóði og beiti oddinum fast

Guðni Ágústsson, varafomaður Framsóknarflokksins, segir skoðanakannanir sýna grafalvarlega stöðu flokksins, en nú síðast í kvöld sýndi skoðanakönnun á Akureyri að flokkurinn myndi tapa tveimur af þremur bæjarfulltrúum sínum þar ef kosið yrði nú. Hann hvetur framsóknarmenn til að bíta á jaxlinn, bölva í hljóði og beita oddinum fast næstu vikur.

Leikskólagjöld lækkuð í Hafnarfirði

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar ákvað í dag að lækka leikskólagjöld í leikskólum bæjarins um um það bil 20 prósent. Lækkunin tekur gildi frá 1. maí næstkomandi. Fram kemur í tilkynningu frá bænum að dvalarkostnaður fyrir hvert barn á almennum gjöldum lækki um ríflega 70 þúsund krónur miðað við 11 mánuði ári.

Ríkið lækki álögur á bensíni

Neytendasamtökin vilja að ríkið lækki álögur sínar á bensín og olíu en hækkun bensínsverði að undaförnu þýðir í það minnsta 660 milljóna króna aukningu á virðisaukaskattstekjum af eldsneyti. Á heimasíðu Neytendasamtakanna krefjast samtökin þess að ríkið lækki álögur sínar á eldsneyti en þær eru hærri en almennt gerist í löndunum í kringum okkur.

Framkvæmdum við Sundabraut sjálfhætt eða ekki

Ummæli Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, oddvita Sjálfstæðismanna í Reykjavík, um Sundabrautina eru óábyrg og kaldar kveðjur til Reykvíkinga að mati Framsóknar og Samfylkingar. Vilhjálmur segist aðeins hafa verið að greina frá staðreyndum málsins.

Meirihlutinn á Akureyri fallinn skv. skoðanakönnun

Meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar á Akureyri er fallinn samkvæmt skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hefur gert fyrir NFS. Sjálfstæðismenn halda sínu fylgi en Framsóknarflokkurinn tapar hins vegar rúmum þriðjungi af fylgi sínu.

Ungt fólk bjartsýnt á framtíðina

Ungt fólk á Íslandi er upp til hópa bjartsýnt á framtíðarhorfur sínar í heimi hnattvæðingar og alþjóðlegrar samkeppni, ef marka má niðurstöður könnunar sem Samtök atvinnulífsins létu gera á dögunum. Liðlega átta af hverjum tíu hugnast betur að starfa hjá einkafyrirtæki en hinu opinbera og þá eru jeppar og einkaþotur þau farartæki sem ungmennum hugnast einna best.

Vill fíkniefnahund og gegnumlýsingartæki

Forstöðumaður Litla-Hrauns segir vonlaust fyrir fangaverði að koma í veg fyrir að fíkniefni komist inn í fangelsið. Hann vill fá gegnumlýsingartæki og fíkniefnahund.

Hafa náð meira af amfetamíni nú en allt árið í fyrra

Lögregla hefur, það sem af er ársins, lagt hald á meira magn af amfetamíni heldur en allt árið í fyrra. Einn Íslendinganna þriggja, sem úrskurðaðir voru í gæsluvarðhald á föstudaginn langa vegna umfangsmikils fíkniefnamáls, kom líka við sögu í stóru fíkniefnamáli árið 2004 en var ekki ákærður.

Skúli skipaður sóknarprestur í Keflavík

Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, hefur skipað séra Skúla Sigurð Ólafsson í embætti sóknarprests í Keflavíkurprestakalli. Biskup Íslands mælti með Skúla eftir að valnefnd prestakallsins klofnaði í málinu. Hópur sóknarbarna stóð í síðustu viku fyrir undirskriftasöfnun þar sem þess var krafist að dómsmálaráðherra skipaði séra Sigfús B. Ingvarsson í embættið.

Bresku hermannatjaldi slegið upp í Nauthólsvík

Listinni eru engin takmörk sett og það á einnig við um staðsetningu. Breskt hermannatjald er að rísa í Nauthólsvík en það mun hýsa nýja leiksýningu sem frumsýnd verður bráðlega.

Tveggja prósenta lækkun úrvalsvísitölu

Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um rúm tvö prósent í dag. Mest varð lækkunin á hlutabréfum í FL Group, tæp fimm prósent. Hlutabréf í Landsbankanum lækkuðu næst mest, eða um rúm fjögur prósent.

Hægt að tapa á að kaupa ódýrari orku

Fólk getur tapað peningum á því að færa viðskipti sín frá einu raforkufyrirtæki til annars þrátt fyrir að fyrirtækið sem fólk flytur sig til rukki lægra verð fyrir orkuna.

Fannst látinn

Ungi maðurinn, sem lögreglan á Selfossi lýsti eftir í morgunn fannst látinn fyrr í dag. Mannsins hafði verið saknað frá því gærnótt. Lát hans bar ekki að með saknæmum hætti.

Mikil vonbrigði með samningafundinn

Fyrsti samningafundur milli samninganefnda Eflingar og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu olli forsvarsmönnum ófaglærðra starfsmanna á dvalar- og hjúkrunarheimilin miklum vonbrigðum. Fundinum lauk um klukkan fjögur. Álfheiður Bjarnadóttir, talskona ófaglærðra, segir að samninganefnd Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu hafi ekki haft neitt nýtt fram að færa.

Borgarafundur á Akureyri á NFS

Í kvöld stendur NFS fyrir borgarafundi í beinni útsendingu frá Akureyri. Í þættinum verða birt úrslit nýrrar skoðanakönnunar NFS um fylgi framboða til bæjarstjórnar Akureyrar í kosningunum í vor. Þetta er þriðji borgarafundurinn sem NFS stendur fyrir, en áður hafa verið fundir á Akranesi og í Árborg.

Stefna í fremstu röð í fiskeldi

Samherji ætlar sér að verða í fremstu röð í lúðueldi og þorskeldi og setur stefnuna á að ná meira en helmings markaðshlutdeild í eldisbleikju. Þessu greindi forstjóri Samherja frá þegar tilkynnt var um stuðning stjórnvalda við fiskeldi í dag.

TF-Sif á leið til Noregs

Björgunarþyrlan TF-Sif er nú á leið til Stavanger í Noregi þar sem vélin fer í skoðun og endurbætur. Ráðgert er að fullgilda ýmsan búnað í vélinni og betrumbæta. Endurbætur verða á fjarskipta- og tölvubúnaði þyrlunnar og þá verður aðstaða fyrir áhöfn einnig bætt.

Vonast til að leysa kjaradeiluna sem fyrst

Samninganefndir Eflingar og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu sitja nú á fundi í húsakynnum Eflingar, vegna kjarabaráttu starfsfólks á dvalar- og hjúkrunarheimilum. Þetta er fyrsti formlegi samningafundurinn en ekki er talið að boðið verði upp á tilteknar launahækkanir á fundinum. Vonir standa þó til að kjaradeila ófaglærðra leysist áður en til aðgerða kemur í næstu viku.

Segja heimastjórn Palestínumanna bera ábyrgðina

Ísraelar segja heimastjórn Palestínumanna, undir forystu Hamas-samtakanna, bera ábyrgð á sjálfsvígsárás sem varð níu manns að bana í Tel Aviv í gær. Herforingjar vilja svara með árás á heimastjórnarsvæðið. Hamas-liðar hafa ekki viljað fordæma árásina í gær og segja hana réttmæta sjálfsvörn.

Öll heimili fá 1000 kr. til bókakaupa

Vika bókarinnar hefst á morgun. Að því tilefni hleypir Félag íslenskra bókaútgefenda í félagi við bóksala og Glitni af stokkunum átakinu Þjóðargjöfin þar sem öll íslensk heimili fá senda ávísun að andvirði 1.000 krónur til bókakaupa.

Nokkur afskipti af samkvæmum í heimahúsum

Nokkuð bar á samkvæmum í heimahúsum í umdæmi lögreglunnar á Álftanesi, í Garðabæ og Hafnarfirði um Páskahelgina og þurfti lögreglan að hafa afskipti af nokkrum þeirra vegna hávaða. Sjö umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu og alls voru 77 ökumenn stöðvaðir fyrir of hraðann akstur.

Landhelgisgæslan leigir tvær þyrlur

Ríkisstjórnin samþykkti tillögu Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra í morgun um að leigja tvær sambærilegar þyrlur til Landhelgisgæslunnar og hún hefur nú til umráða. Í tilkynningu frá dómsmálaráðherra segir að starfsfólki Landhelgisgæslunnar verði fjölgað þannig að unnt verði að reka fleiri þyrlur og halda úti tveimur þyrluvöktum allan sólarhringinn.

Framsókn furðar sig á ummælum um Sundabraut

Framsóknarflokkurinn í Reykjavík lýsir furðu sinni á ummælum oddvita Sjálfstæðisflokksins í borginni í Fréttablaðinu í dag um að framkvæmdum við Sundabraut sé sjálfhætt í bili vegna stöðu efnahagsmála.

Hesta og gæludýrakeppni hjá Íshestum á sumardaginn fyrsta

Íshestar standa fyrir hesta og gæludýrakeppni sumardaginn fyrsta í höfuðstöðvum Íshesta í Hafnafirði. Framkvæmd á skemmti- og hátíðardagskrá þennan dag er í höndum Önnu Marínar Kristjánsdóttur fagmanns á sviði hunda og hesta. Dagskráin er með nokkuð hefðbundnu sniði eins og fyrri ár, þ.e.fjölbreytt fjölskyldudagskrá þar sem ýmislegt er í boði, en gaman er að segja frá því að í fyrsta skipti á Íslandi verður haldinn almenn gæludýrakeppni.

Ríkisstjórnin grípur ekki til aðgerða gegn verðbólgunni

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir ríkisstjórnina ekki ætla að grípa til sértækra aðgerða gegn verðbólgu. Þetta sagði hann í samtali við fjölmiðla eftir ríkisstjórnarfund í morgun. Hann sagðist eiga von á því að verðbólguskotið gangi fljótt yfir.

Skýlaus krafa að hækka lægstu launin

Launahækkun til handa þeim lægstlaunuðu verður að vera skýlaus krafa við endurskoðun kjarasamninga í haust segir formaður Verkalýðsfélags Akraness. Hann segir fólkið á lægstu laununum hafa setið illilega eftir í launaþróun síðustu ára.

Ekki talið að boðið verði upp á launahækkanir

Fyrsti formlegi samningafundurinn milli Eflingar og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu vegna starfsfólks á dvalar- og hjúkrunarheimilum, verður í dag. Ekki er talið að boðið verði upp á tilteknar launahækkanir á fundinum en vonir standa þó til að kjaradeila ófaglærðra leysist áður en til aðgerða kemur í næstu viku.

Úrvalsvísitalan lækkar um tvö prósent

Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hefur lækkað um tvö prósent í viðskiptum í morgun. Hlutabréf í Landsbankanum hafa lækkað mest um rúm fjögur prósent. Næst mest er lækkunin á hlutabréfum í FL Group sem hafa lækkað um tæp fjögur prósent í morgun.

Og Vodafone tekur í notkun „EDGE-tækni"

Og Vodafone hefur tekið í notkun svokallaða EDGE-tækni sem gerir viðskiptavinum í farsímaþjónustu fyrirtækisins mögulegt að nota símtæki sín með fjölbreyttari og hraðvirkari hætti en áður.

Fiskaflinn helmingi minni en í fyrra

Afli íslenskra fiskiskipa fyrstu þrjá mánuði ársins er aðeins rétt rúmlega helmingur þess sem hann var á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs. Mestu munar um að loðnuveiði er mun minni í ár en í fyrra.

Sjá næstu 50 fréttir