Fleiri fréttir

Samkomulag um vatnalagafrumvarp

Samkomulag náðist um afgreiðslu vatnalagafrumvarps iðnaðarráðherra skömmu fyrir miðnætti í gærkvöld. Þá höfðu samningafundir stjórnar og stjórnarandstöðu staðið yfir klukkutímunum saman. Samkomulagið felur í sér að stjórnarandstæðingar hætta málþófi gegn því að lögin taka ekki gildi fyrr en haustið 2007.

Dómur kveðinn upp í Baugsmáli um miðjan dag

Dómur verður kveðinn upp í Baugsmálinu klukkan korter í þrjú í dag. Um er að ræða átta ákæruliði um brot sem vógu ekki þungt í meintu heildarbroti 40 ákæruliða.

Ofsaakstur á Sæbraut í nótt

Lögreglan í Reykjavík stöðvaði ökumann á tæplega 150 kílómetra hraða á Sæbraut í nótt þar sem hámarkshraði er 6o kílómetrar, þannig að hann var á umþaðbil 90 kílómetra hraða umfarm löglegan hámarkshraða. Auk þess kom í ljós að hann hafði áður verið sviftur ökuréttindum og var því próflaus. Hann var einn í bílnum og ódrukkinn

Pólitísk hryðjuverkastarfsemi

Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna harmar og hafnar hugmyndum Kristins H. Gunnarssonar í þá veru að huga að sameiningu Framsóknarflokks og Samfylkingar og líkir hugmyndinni við pólitíska hryðjuverkastarfssemi. Í ályktun sambandsins frá í gærkvöldi, segir að stanslausar árásir Kristins á eigin flokksfélaga og málefnastarf séu fyrir margt löngu komnar út fyrir öll velsæmismörk og ekki verði sérstök eftirsjá af Kristni þótt hann hverfi úr félagaskrá Framsóknarflokksins.

Rændu í það minnsta níu útlendingum

Vopnaðir Palestínumenn rændu að minnsta kosti níu útlendingum á götu í Jenín á Vesturbakkanum í gær vegna umsáturs Ísraelsmanna. Nokkrum hefur verið sleppt en þó er enn í haldi bandarískur háskólaprófessor og segja Palestínumennirnir hann verða drepinn, verði Ahmed Saadat og fylgismönnum hans gert mein.

Fór sjálfur á slysadeild

Umferðaróhapp varð á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Laugavegs á fjórða tímanum í dag. Ökumaður annars bílsins kenndi eymsla í baki og hálsi og fór sjálfur á slysadeild til rannsókna. Fleiri sakaði ekki.

Reynt að höggva á hnútinn

Forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna gengu rétt fyrir kl. 22 í kvöld inn á skrifstofu forseta Alþingis þar sem gerð er tilraun til að leysa þann hnút sem kominn er á umræður um vatnalagafrumvarp iðnaðarráðherra. Stöðugir fundir hafa staðið yfir í Alþingishúsinu í kvöld.

Ný reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla

Sjávarútvegsráðuneytið gaf í dag út reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla. Í reglugerðinni eru margvísleg nýmæli sem miða fyrst og fremst að því að fella vigtunina betur að vinnslu og viðskiptaferlum í atvinnugreininni.

Baugsdómur á morgun

Dómur verður kveðinn upp í átta ákæruliðum í Baugsmálinu á morgun. Dómsniðurstaðan kann að hafa áhrif á ákvörðun um það hvort ákært verði að nýju í veigamestu ákæruliðunum þrjátíu og tveimur sem vísað var frá dómi.

70 börn á gjörgæsluna árlega

Um sjötíu börn þarf að flytja, ár hvert, af Barnaspítalanum á gjörgæslu, sem er í næsta húsi. Hágæsluherbergi var ekki á forgangslista spítalans, enda talið brýnna að bæta við tækjum og fullmanna stöður fyrir almenna þjónustu.

Óeðlileg fréttamennska sögð hafa lækkað hlutabréfaverð

Framkvæmdastjóri VBS Fjárfestingarbanka segir að neikvæð umræða fjölmiðla sé aðalástæða niðursveiflu hlutabréfa síðustu daga. Hann sakar Morgunblaðið sérstaklega um að hampa neikvæðustu umsögnum erlendra matsfyrirtækja umfram það sem eðlilegt geti talist.

Nýr sendiherra Íslands gagnvart Slóveníu

Kristinn F. Árnason, sendiherra, afhenti í dag Janez Drnovsek, forseta Slóveníu, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands gagnvart Slóveníu, með aðsetur í Genf. Athöfnin fór fram í forsetahöllinni í Ljubljana, höfuðborg landsins.

Líffæragjafir komi fram í ökuskírteinum

Þingmál um að upplýsingar um líffæragjafir komi fram í ökuskírteinum einstaklinga hefur verið lagt fram á Alþingi. Fyrsti flutningsmaður er Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar.

Íþróttavætt Ísland

Allir eiga að hreyfa sig, í stórátaki stjórnvalda, félagasamtaka og atvinnulífs. Menntamálaráðherra kynnti sérstaka íþróttastefnu fyrir Ísland, með pompi og prakt, í Kópavogi í dag.

Krónan réttir sig lítillega af

Krónan rétti sig lítillega af í dag, í gríðarmiklum viðskiptum. Alþýðusambandið hvetur neytendur til að vera á tánum og veita kaupmönnum aðhald svo hækkandi gengi fari ekki beint út í verðlag.

Hart deilt um aðkomu UMFÍ að umsögn

Formaður Ungmennafélags Íslands, segir samtökin ekki hafa samþykkt sameiginlega umsögn nokkurra félagasamtaka um andstöðu við ný vatnalög þrátt fyrir að nafn þeirra sé á umsögninni. Þingmaður Samfylkingar spurði hvaða Framsóknarmaður hefði skammað formanninn til að hann skipti um skoðun.

Undirskriftasöfnun vegna hágæsluherbergis

Búið er að hrinda af stað undirskriftasöfnun á netinu vegna hágæsluherbergis á Barnaspítala Hringsins. Þar sem því er beint til stjórnvalda að hágæsluherbergi eigi skilyrðislaust að vera sett upp þegar í stað.

Veik álft við Lækinn í Hafnarfirði

Veik álft var aflífuð í dag, en hún sást veikburða við Lækinn í Hafnarfirði, að sögn Gunnars Ö. Guðmundssonar héraðsdýralæknis í Gullbringu og Kjósarumdæmis er ekki talin ástæða til að grípa til aðgerða útaf þessu. Fuglar deyja af eðlilegum örsökum á hverju ári og þetta er eitt af þeim tilvikum.

65 milljónir til Vestfjarða

Húsafriðunarnefnd hefur úthlutað styrkjum fyrir árið 2006 og fara rúmar 65 milljónir króna til Vestfjarða. Í frétt á fréttavefnum Bæjarins besta kemur fram að tíu kirkjur á Vestfjörðum fái styrk en hæsta styrkinn, fjórar milljónir króna, fær Þingeyrarkirkja við Dýrafjörð.

Liggur enn á gjörgæslu eftir vinnuslys í Garðabæ

Maður sem féll af húsþaki við vinnu sína í Garðabæ í lok febrúar liggur enn þungt haldinn á gjörgæsludeild Landsspítala - háskólasjúkrahúss og er honum haldið sofandi í öndunarvél. Maðurinn hlaut mikla áverka á brjóstholi við fallið sem voru um fimm metrar. Líða hans er eftir atvikum góð, að sögn vakthafandi læknis.

Leggur til að upplýsingar um líffæragjöf komi fram á ökuskírteini

Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram á Alþingi þingsályktunartillögu um að upplýsingar um líffæragjafir komi fram í ökuskírteinum einstaklinga. Hann leggur til að farin verði sú leið að notast við upplýsingar á ökuskírteinum líkt og gert sé í Bandaríkjunum, en látnir ökumenn koma oft til greina sem líffæragjafar.

Sparisjóður Vestfjarða fagnar 110 ára afmæli

Sparisjóður Vestfjarða fagnar 110 ára afmæli í dag. Sparisjóðurinn var stofnaður árið 1896 og hét þá Sparisjóður Vestur Ísafjarðarsýslu en nafninu var síðar breytt í Sparisjóð Þingeyrarhrepps.

Leiðir til hærri vaxta og verri þjónustu

Breyting Íbúðalánasjóðs í heildsölubanka fyrir viðskiptabankana getur leitt til þess að vextir íbúðalána hækka og þjónusta við lántakendur minnkar, segir Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.

Gunnar Einarsson bæjarstjóraefni sjálfstæðismanna í Garðabæ

Gunnar Einarsson verður bæjarstjóraefni sjálfstæðismanna í Garðabæ við bæjarstjórnarkosningarnar í vor. Ítilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum í Garðabæ segir að Gunnar sé starfandi bæjarstjóri í Garðabæ en hann tók við embættinu fyrir tæpu ári þegar Ásdís Halla Bragadóttir lét af störfum.

Glitnismótið í hraðskák hefst á morgun

Á morgun hefst Glitnismótið í hraðskák í Ráðhúsinu í Reykjavík. Meðal þátttakenda á mótinu eru Judit Polgar og Vishy Anand og er mótið er haldið í minningu um Harald Blöndal sem hefði orðið sextugur á þessu ári. Bakhjarl mótsins er Glitnir en undiriritun samnings þess efnis fór fram í húsnæði Gltinis í morgun

Hlutur Fons í Plastprenti í sölumeðferð

Tæplega 62% hlutur Fons Eignarhaldsfélags í Plastprenti er nú í sölumeðferð hjá MP Fjárfestingarbanka hf. Fons eignarhaldsfélag, sem er í eigu þeirra Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, er alþjóðlegt fjárfestingafélag sem sérhæfir sig í fjárfestingum í fyrirtækjum með mikla framtíðarmöguleika til vaxtar og hagræðingar.

Enn einn kvöldfundurinn um vatnalög

Umræður um vatnalagafrumvarp ríkisstjórnarinnar halda áfram á Alþingi í dag, eftir enn einn kvöldfundinn í gær, þar sem aðeins örfáir þingmenn komust í ræðustól. Ekki er útlit fyrir að umræðu um málið ljúki á næstunni. Við upphaf umræðunnar í gærkvöldi gagnrýndi stjórnarandstaðan fundarstörf forseta og krafðist þess að skipulagi væri komið á þingstörf svo þingmenn gætu skipulagt tíma sinn í samræmi við það.

Kanna þarf áhrif á fuglalíf vegna efnistöku úr Ingólfsfjalli

Kanna þarf betur hvaða áhrif efnistaka úr Ingólfsfjalli hafi á fuglalíf, könnun á þessum þætti er á engan hátt fullnægjandi, segir í svari stjórnar Landverndar um frummatsskýrslu sem Fossvélar sendu frá sér í janúar um efnistöku úr fjallinu.

Áhrif áliðnaðarins á alþjóðlegar skuldbindingar Íslands

Náttúruverndarsamtök Íslands hafa aflað sér lögfræðiálits um hverjar skuldbindingar Íslands séu gagnvart Kyoto-bókuninni og Rammasamningi Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar. Lögfræðiálitið var unnið af Dr Roda Verheyen hjá lögmannsstofu Gunther, Heidel, Wollenteit og Hack í Hamburg.

Krónan og úrvalsvísitalan tóku við sér í morgun

Bæði krónan og úrvalsvísitalan tóku við sér í morgun og hækkuðu á ný eftir að markaðsvirði þriggja stóru bankanna hér á landi hafði rýrnað um tæpa tvö hundruð milljarða króna á þremur vikum.

Alvarlega slösuð eftir bílslys á Sæbraut

Líðan konunnar sem slasaðist í bílslysi á Sæbraut í gærmorgun er stöðug en hún slasaðist mjög alvarlega, er hún enn á gjörgæsludeild Landsspítala Háskólasjúkrahúss.

Hannes Hlífar Stefánsson efstur Íslendinga

Alþjólega Reykjavíkurskákmótinu lýkur í dag en efstir fyrir síðustu umferð með sex og hálfan vinning eru norski undradrengurinn Magnus Carlsen, Armeninn Gabriel Sargissian og Indverjinn Pentala Harikrishna.

Ók of hratt með kerru í eftirdragi

Ökumaður, sem lögreglan í Vík í Mýrdal tók nýverið fyrir að aka á hundrað tuttugu og þriggja kílómetra hraða, eða rösklega 40 kílómetrum yfir leyfilegum hámarkshraða, reyndist líka vera með kerru í eftirdragi. Kerrur eru afar mismunandi vel búnar, en hvað sem þær eru vel úr garði gerðar vill lögreglan benda fólki á að þær eru ekki ætlaðar til hraðaksturs.

Tveggja mánaða skilorðsbundinn dómur

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt rúmlega tvítugan mann í tveggja mánaða skiloðrsbundið fangelsi og til að greiða rúmlega hundrað þúsund krónur í skaðabætur fyrir líkamárás á skemmtistaðnum Nelly's í nóvember 2004 en meintur vitorðsmaður hans í málinu var sýknaður.

Afli íslenskra fiskiskipa dregst saman

Afli íslenskra fiskiskipa hefur dregist saman um tæplega fjörutíu prósent á yfirstandandi fiskveiðiári miðað við síðasta ár. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Fiskistofu í tilefni þess að í lok febrúar var fiskveiðiárið hálfnað.

Eldur í mjölgeymi

Eldur kviknaði í mjölgeymi við fiskimjölsverksmiðjuna í Helguvík á níunda tímanum í gærkvöldi og var slökkvilið kallað á vettvang. Eldurinn náði ekki útbreiðslu og gekk greiðlega að slökkva hann. Ekki liggur fyrir hversu mikið tjón hlaust af honum en talið er að eldsupptök megi rekja til ofhitnunar á mjöli.

Eitt stærsta fíkniefnamál á Litla Hrauni

Lögreglan á Selfossi rannsakar nú eitt stærsta fíkniefnamál, sem upp hefur komið í fangelsinu á Litla Hrauni. Við leit á fanga, sem hafði fengið dags leyfi um helgina, fundust hundrað grömm af hassi og nokkrir tugir gramma af amfetamíni þegar hann kom aftur í fangelsið. Hann var strax settur í einangrunarvist og verið er að rannsaka hvort hann hafi átt vitorðsmenn innan veggja fangelsisins.

Féll af snjóbretti og missti meðvitund

Ungur drengur missti meðvitund þegar hann féll af snjóbretti í Bláfjöllum í gærkvöld. Þegar var kallað á sjúkrabíl, en þegar hann og lögregla komu á vettvang hafði drengurinn rankað við sér. Engu að síður var hann fluttur á Slysadeild til rannsóknar og reyndist hann óbrotinn.

Borgarbúar borga fyrir lagningu ljósleiðara á Seltjarnarnesi

Lagning ljósleiðara í mörgum hverfum Reykjavíkur hefur setið á hakanum á sama tíma og borgarbúar eru látnir standa undir kostnaði við ljósleiðaravæðingu í öðrum sveitarfélögum. Þessu heldur Félag sjálfstæðismanna í Vestur- og miðbæ fram og vandar borgaryfirvöldum ekki kveðjurnar.

Markaðsvirði rýrnað um 200 milljarða

Markaðsvirði þriggja stóru bankanna hér á landi hefur rýrnað um tæpa tvö hundruð milljarða króna á þremur vikum eftir að Fitch Ratings gaf út skýrslu sína um íslenskt efnahagslíf. Þá vekur Morgan Stanley athygli á mikilli hlutabréfaeign bankanna og að íslensku bréfin hafi hækkað um 60 til 75 prósent á einu ári. Ef sú hækkun íslensku bréfanna gengi verulega til baka, eða um 50 prósent, myndi eign bankanna í þeim rýrna um samtals 48 milljarða króna.

Atvinnuleysi 1,6% í febrúar

Atvinnuleysi á landinu mældist 1,6% í síðasta mánuði en var 2,8% á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í tölum sem Vinnumálastofnun birti á vefsíðu sinni í dag. Í ár voru skráðir hátt í 47 þúsund atvinnuleysisdagar á öllu landinu í febrúar sem jafngildir því að rúmlega 2300 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá.

Sjá næstu 50 fréttir