Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Spölur kemur líklega að framkvæmdum við Sundabraut Líklegt má telja að Spölur komi að framkvæmdum við Sundabraut. Þó hefur ekki verið rætt hvort það snúi einnig að fjármögnun verkefnisins. 12.1.2006 13:30
Búist við átökum hjá ÖBÍ Búist er við átökum á fundi aðalstjórnar Öryrkjabandalagsins nú síðdegis vegna starfsloka framkvæmdastjórans. Arnþór Helgason hefur ráðið sér lögfræðinginn Gunnar Guðmundsson til að aðstoða sig við eftirmál vegna starfsloka sinna hjá Öryrkjabandalaginu. 12.1.2006 12:53
Íslensk skúta á Skipper's d'Islande Áhöfnin á seglskútunni Besta hefur skráð sig í alþjóðlegu siglingakeppnina Skippers d'Islande. Áhöfnin vann Íslandsbikarinn síðast liðið sumar, vann Reykjavíkurmeistaramótið og varð Íslandsmeistari í siglingum. 12.1.2006 12:00
Vísitala neysluverðs hækkar Vísitala neysluverðs hækkar um 0,32 prósent frá fyrra mánuði samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Hækkun á húsnæðisverði og ýmsum liðum, tengdum húsnæði, eins og meðalvöxtum og lóðaleigu, vegur hvað þyngst í hækkuninni auk hækkunar á bensínverði. Vetrarútsölur og lækkun leikskólagjalda ná að slá aðeins á hækkunina. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um hálft prósent, sem jafngildir rétt liðlega tveggja prósenta verðbólgu á ári. 12.1.2006 10:30
Víða ófært Klukkan tíu var víða ófært eða illfært á vegum landsins. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að ófært sé fyrir fólksbíla um Holtavörðuheiði, Fróðárheiði og um Klettaháls. Þá er þungfært um Breiðdalsheiði, Ennishálsi og og ófært um Eyrarfjall. . 12.1.2006 10:12
40 grömm af hassi fundust í bíl og íbúð manns Lögreglan í Kópavogi handtók mann í nótt eftir að talsvert af fíkniefnum fundust í bíl hans og er hann grunaður um að hafa ætlað að selja efnin. Í framhaldinu var gerð húsleit heima hjá honum og fundust samtals rösklega 40 grömm af hassi. 12.1.2006 09:45
111% verðmunur á rauðsprettu Mikill verðmunur er á fiski milli verslana samkvæmt verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði síðastliðinn þriðjudag. Mestur er munurinn 111% á heilli hausaðri rauðsprettu sem kostaði frá 375 krónum upp í 790 krónur. 12.1.2006 09:26
Enginn fíkniefnaneytandi greindist með HIV-smit Enginn fíkniefnaneytandi var í hópi þeirra átta sem greindust með HIV-smit á Íslandi á síðasta ári. Þetta kemur fram í Farsóttafréttum sóttvarnalæknis. 12.1.2006 09:24
4 mánuðir skilorðsbundnir fyrir vörslu barnakláms Karlmaður á þrítugsaldri var í gær dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa tæplega 800 ljósmyndir af barnaklámi og 60 hreyfimyndir með samskonar efni í fórum sínum, og að veita öðrum aðgang að því. 12.1.2006 09:19
Íslendingar láta ekki fuglaflensu trufla fyrirhugaðar sólarlandaferðir Á sama tíma og fréttir berast af fuglaflensutilfellum í mönnum í Tyrklandi er ekkert lát á bókunum hér á Íslandi á sólarlandaferðum til Tyrklands í sumar. 12.1.2006 09:00
Fyrirtæki í eigu Baugs byggir 200 orlofshús í Tyrklandi Danska fasteignafyrirtækið Keops, sem Baugur eignaðist þriðjungs hlut í nýverið, er að ráðast í byggingu tvö hundruð orlofshúsa í Istanbúl í Tyrklandi. Það ætlar auk þess að reisa þar nýjar höfuðstöðvar félagsins. 12.1.2006 08:39
Orkuveitan gerir samning við sjónvarpsfyrirtækið Bonnie og Fast TV Orkuveita Reykjavíkur hefur gert samning við evrópska sjónvarpsfyrirtækið Bonnie og íslenska kvikmyndaleyfishafann SAM um að sjónvarpsstöðvar Fast TV verði aðgengilegar heimilum sem tengd eru ljósleiðarakerfi Orkuveitunnar. 12.1.2006 07:45
Réðst með hnífi á fólk í bænahúsi Átta manns særðust, þar af fjórir alvarlega, þegar maður réðst að fólki með hnífi þegar skammt var liðið á kvöldbænir í bænahúsi gyðinga í miðborg Moskvu í gær. Utanríkisráðuneyti Rússlands fordæmdi árásina, sagði hana ögrun og eina tilgang hennar að efna til kynþáttahaturs. 12.1.2006 07:44
Færeyska lögreglan rannsakar meint landhelgisbrot í íslenskri lögsögu Lögreglan í Þórshöfn í Færeyjum rannsakar nú meint landhelgisbrot togara frá Færeyjum í íslenskri efnahagslögsögu fyrir tæpri viku. Þá flaug flugvél Landhelgisgæslunnar yfir togarann að veiðum Íslandsmegin við miðlínuna á milli Færeyja og Íslands og reyndi án árangurs að ná sambandi við skipstjórann. 12.1.2006 07:35
Heildarafli minnkar um 61 þúsund tonn milli ára Heildarafli ársins 2005 var 1.667.287 tonn samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskistofu. Það er 61 þúsund tonnum minni afli en árið áður. 157 þúsund tonnum minni kolmunnaafli skýrir þennan samdrátt segir í tilkynningu frá Fiskistofu. 11.1.2006 16:08
Björgúlfur vildi hætta útgáfu DV skömmu fyrir jól Mikil umræða hefur spunnist um fréttaflutning DV síðasta sólarhring eftir að maður á Ísafirði svipti sig lífi, í kjölfar myndbirtingar og ásakana á hendur honum í blaðinu. Hörð gagnrýni á DV er þó ekki ný af nálinni, þótt sviptingarnar hafi ekki alltaf komist upp á yfirborðið. Blaðið er hluti fjölmiðlasamsteypunnar 365, eins og Fréttablaðið, Stöð 2 og NFS. Allt er þetta í eigu móðurfélagsins Dagsbrúnar, þar sem Baugur ræður mestu, en Landsbankinn á líka lítinn hlut í Dagsbrún. 11.1.2006 23:03
Mikið annríki hjá Hafnafjarðarlögreglu Óvenju mörg umferðaróhöpp hafa orðið í umdæmi Hafnarfjarðarlögreglu. Flest þeirra má rekja til óvarkárni en mjög hált hefur verið þar í allan dag. Engin meiðsl hafa verið á fólki en lögreglan vill minna fólk á að fara varlega. 11.1.2006 23:01
Bróðir mannsins sem svipti sig lífi óhress með eigendurna Bróðir mannsins, sem svipti sig lífi vegna umfjöllunar DV um að hann væri sakaður um kynferðisbrot, telur að eigendurnir ættu að geta varið peningum sínum betur en í útgáfu á blaðinu. 11.1.2006 22:29
Sandra Bullock vinsælust og Angelina Jolie ólétt Það er alltaf eitthvað um að vera í heimi ríka og fræga fólksins. Í dag voru verðlaun englafólksins eða Los Angeles People's Choise award voru afhent og gleðifréttir af ofurparinu Angelinu Jolie og Brad Pit voru ofarlega á baugi. 11.1.2006 22:22
Ráðherrar Likud-flokksins segja af sér Ráðherrar Likud-flokksins í Ísrael hafa ákveðið að segja af sér á morgun. Leiðtogi flokksins, Benjamin Netanyah, segir að til hefði staðið að ganga úr stjórnarsamstarfinu í síðustu viku en ákveðið hefði verið að fresta því vegna veikina Ariel Sharons forsætisráðherra landsins. 11.1.2006 21:30
Kanínur alls engin plága Kanínur eru alls engin plága nema í lundabyggð segir formaður Skotveiðifélagsins. Hann telur upplagt fyrir bændur í ferðaþjónustu að koma upp stofni sem megi veiða enda sé kanínan skemmtileg bráð og dýrindismatur, maríneruð í rauðvíni. 11.1.2006 20:50
Pílagrímar grýta steinvegginar í Mína Pílagrímatími múslíma stendur sem hæst og í dag grýttu tugþúsundir trúaðra steinveggina í Mína, skammt utan við Mekka í Sádi-Arabíu. Ríflega tvær og hálf milljón múslíma hafa lagt leið sína til hinnar helgu borgar núna um hadsj-tímann. Al-Jamarat-veggirnir eru tákn djöfulsins og trúa pílagrímarnir því að þeir fái syndaaflausn með grjótkastinu. Margir rökuðu af sér hárið að því loknu til marks um að þeir hefðu farið í pílagrímsför, en í slíka ferð verður hver múslími að fara að minnsta kosti einu sinni á ævinni. 11.1.2006 20:46
Vinsældir Kadima-flokksins aukast Vinsældir Kadima-flokksins hafa aukist eftir að Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, fékk heilablóðfall. Skoðanakönnun dagblaðsins Haaretz sýnir að Kadima, undir stjórn Ehuds Olmerts, fengi fjörutíu og fjögur sæti á ísraelska þinginu Knesset væri kosið nú. Bæði Likud-bandalagið og Verkamannaflokkurinn eru rétt hálfdrættingar á við Kadima. Enn er verið að vekja Sharon úr dáinu, en læknar segja hann úr lífshættu. 11.1.2006 20:45
Náttúrufræðistofnun fær styrk Skrifstofustjóri umhverfisráðuneytisins segir að framvegis fái Náttúrfræðistofnun styrk úr veiðikortasjóði með sama hætti og aðrir. Stofnunin fékk greitt úr sjóðnum í lok síðasta árs þótt umsóknafrestur sé ekki útrunninn - og renni ekki út fyrr en um miðjan febrúar. 11.1.2006 20:40
Þrotabú Slippstöðvarinnar eiit hið stærsta Kröfur í þrotabú Slippstöðvarinnar á Akureyri nema rúmum einum komma fjórum milljörðum króna. Gjaldþrotið er eitt hið stærsta í sögu Akureyrar og segir skiptastjóri eignir hrökkva skammt á móti kröfum. 11.1.2006 20:36
Bókun stjórnar Lögmannafélags Íslands Stjórn Lögmannafélags Íslands hefur sent frá sér bókun frá fundi stjórnarinnar í dag vegna fréttaflutnings um aðgengi Fjármálaeftirlitsins að bankareikningum lögmanna. Hún er svohljóðandi: 11.1.2006 20:11
Fuglaflensa að verða landlæg í Tyrklandi? Fuglaflensa getur orðið landlæg í Tyrklandi og breiðst út til nágrannaríkjanna að mati Sameinuðu þjóðanna. Rússneski þjóðernissinninn Vladímír Sírínovskí vill að herinn skjóti farfugla frá Tyrklandi. 11.1.2006 20:04
Undirskriftalistar til að mótmæla ritstjórn DV Mál málanna í dag hefur verið umfjöllun DV um grunaðan kynferðisbrotamann, sem svipti sig lífi eftir að blaðið hafði samband við hann. Lögreglan á Ísafirði hefur ekki ákveðið hvort rannsókn á meintu kynferðislegu ofbeldi hans gegn tveimur unglingspiltum verði haldið áfram, þótt hann sé látinn. Lögmenn segja rannsókninni þó sjálfhætt samkvæmt íslenskum réttarreglum. 11.1.2006 20:00
Efnafræðingur sem fann upp LSD 100 ára Albert Hofmann er 100 ára í dag. Hofmann sem er þekktastur fyrir að hafa fundið upp ofskynjunarlyfið LSD seint á fjórða áratugnum, hélt upp á afmælið sitt í dag og sagði við það tækifæri að veislan hefði verið yndisleg og hefði víkkað sjóndeildarhring sinn þrátt fyrir að hann væri ekki á LSD. 11.1.2006 18:02
Hluthafalisti Íslandsbanka eftir viðskipti undanfarinna daga Íslandsbanki hefur birt áætlaðan hluthafalista eftir undangengin viðskipti og hlutfjárhækkun síðustu daga. Frágangi útboðs lýkur í næstu viku og þá verður nýr hluthafalisti gefinn út. Þess ber að geta að hlutur Þáttar/Milestone er skv. tilkynningu á Kauphöll um viðskipti innherja og telur því með framvirka samninga. Hlutur Íslandsbanka er að frádregnum framvirkum samningum. 11.1.2006 17:46
Fyrsta kvenkyns árekstrardúkkan Svíar eru hanna dúkku sem líkist kvenmanni til að nota í árekstrarprófum. Fram að þessu hafa allar dúkkur sem notaður hafa verið í slíkum prófum verið í karlmannsmynd eða barnsmynd og því hafa niðurstöður slíkra prófa ekki getað sagt til um hvaða áhrif árekstrar hafa á kvenlíkama. 11.1.2006 17:36
Landspítalinn skaðabótaskyldur gagnvart konu Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag að Landspítalinn væri skaðabótaskyldur gagnvart fimmtugri konu vegna læknismeðferðar hjá spítalanum. 11.1.2006 17:28
KLH rannsóknastofa öðlast faggildingu Klínísk lífefnafræðistofa Holtasmára, eða KLH hefur tekið við vottorði frá SWEDAC, faggildingarstofnun Svíþjóðar, því til staðfestingar að algengustu mælingar KLH væru faggildar. KLH er fyrsta íslenska rannsóknastofa á heilbrigðissviði sem öðlast faggildingu. 11.1.2006 17:04
Þrettán þúsund undirskriftir hafa safnast Um þrettánd þúsund manns hafa skráð nafn sitt í undirskriftasöfnun á vegum ungliðafylkinga stjórnmálaflokkanna og nokkurra annarra aðila þar sem skorað á blaðamenn og ritstjóra DV að endurskoða ritstjórnarstefnu sína. 11.1.2006 16:51
Arnaldur Indriðason á útlánamet bókasafnanna síðasta ár Enginn slær Arnaldi Indriðasyni við í útlánum hjá bókasöfnum landsins. Hann er efstur líkt og undanfarin ár samkvæmt útlánatölum frá Landskerfi bókasafna. Landskerfi bókasafna hefur tekið saman lista yfir þær bækur sem mest voru lánaðar út í bókasafnskerfinu Gegni á síðastliðnu ári. Í ljós kom að Arnaldur Indriðason á 7 útlánahæstu titlunum í flokki íslenskra skáldsagna. 11.1.2006 16:12
Formenn þingflokka hvetja til endurskoðunar á ritstjórnarstefnu DV Formenn þingflokka á Alþingi taka undir ályktun ungliðahreyfinga stjórnmálaflokkanna þar sem því er beint til ritstjórnar DV að endurskoða ritstjórnarstefnu sína. Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu frá formönnunum. 11.1.2006 15:45
Færeyskur togari staðinn að ólöglegum veiðum Áhöfn Sýnar, flugvélar Landhelgisgæslunnar, stóð færeyskan togara að meintum ólöglegum veiðum í íslensku efnahagslögsögunni í lok síðustu viku. Togarinn var gripinn rétt innan við miðlínuna milli Íslands og Færeyja en deilur hafa staðið um legu hennar. 11.1.2006 15:30
Vörubíl ekið aftan á annan vörubíl á Krísuvíkurvegi Vörubíl var ekið aftan á annan vörubíl á Krísuvíkurvegi upp við Vatnsskarð á fjórða tímanum. Lögregla og sjúkrabíll eru á vettvangi en samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Hafnarfirði eru ökumenn vörubílanna ekki alvarlega slasaðir og þykja hafa sloppið mjög vel. Vörubílinn sem ekið var aftan á hinn er mikið skemmdur en ekki er talið að tafir verið á umferð um Krísuvíkurveg af þessum sökum. 11.1.2006 15:30
Ótækt að DV starfi ekki eftir siðareglum Blaðamannafélagsins. Blaðamannafélag Íslands harmar þann atburð sem leitt hefur til umræðu um vinnubrögð og ritstjórnarstefnu DV. Þetta segir í álytkun frá stjórninni og jafnframt leggur stjórnin leggur áherslu á það að í siðareglum Blaðamannafélagsins stendur að blaðamenn skuli sýna fyllstu tilitsemi í vandasömum málum, forðast allt sem valdið geti saklausu fólki eða fólki sem á um sárt að binda óþarfa sársauka eða vanvirðu. 11.1.2006 15:12
Vill lögfestingu rammaáætlunar um virkjanaframkvæmdir Kristinn H. Gunnarsson, fulltrúi Framsóknarflokks í umhverfisnefnd Alþingis, segist reiðubúinn að beita sér fyrir lögfestingu rammaáætlunar um virkjanaframkvæmdir hér á landi. Þá líst honum ekki á að ráðast í gerð fjögurra stórra álvera á næstu sjö árum eins og rætt hefur verið um að gera 11.1.2006 15:00
Landsbjörg sjósetur tvö ný björgunarskip Slysavarnafélagið Landsbjörg sjósetti í gær tvö ný ARUN-björgunarskip sem félagið festi kaup á frá breska sjóbjörgunarfélaginu RNLI. Munu þau koma í stað eldri skipa á Vopnafirði og Siglufirði. Skipin eru 18 ára gömul en voru endurbyggð fyrir um 3 árum og eru því nánast eins og ný. 11.1.2006 14:30
Mál DV rætt á stjórnarfundi Dagsbrúnar á föstudag Stjórn Dagsbrúnar, móðurfélags 365 miðla sem gefa út DV, mun ræða þá umfjöllun sem átt hefur sér stað um frétt DV á áður boðuðum stjórnarfundi á föstudag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þórdísi Sigurðardóttur, stjórnarformanni Dagsbrúnar. 11.1.2006 14:07
Spá áframhaldandi hækkun Úrvalsvísitölunnar Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands heldur áfram að hækka á árinu 2006 og mun hækka um 20% á árinu að mati greiningadeildar Íslandsbanka. 11.1.2006 13:56
Aukin framlög til þróunaraðstoðar Framlög úr ríkissjóði til þróunaraðstoðar verða aukin jafnt og þétt næstu ár. Þetta kemur fram kemur í ársskýrslu Þróunarsamvinnustofnunar Íslands fyrir árið 2004. 11.1.2006 13:45
Skorað á fulltrúa á Launamálaráðstefnu Samflot bæjarstarfsmannafélaga skorar á fulltrúa á Launamálaráðstefnu sveitarfélaga sem haldin verður þann 20. janúar næstkomandi að tryggja að sambærileg og jafnverðmæt störf verði launuð á sama hátt, óháð kynferði eða búsetu þess er starfinu gegnir. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á fundi formanna samflotsfélaganna í gær. 11.1.2006 13:30