Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Blaðamannafélagið fundar í hádeginu Stjórn Blaðamannafélags Íslands kemur saman til fundar í hádeginu til að ræða umfjöllun DV um mál manns sem blaðið sagði grunaðan kynferðisofbeldismann en maðurinn svipti sig lífi eftir að blaðið kom út í gær. 11.1.2006 12:07
Segja lítinnn áhuga á olíufélögum Fjármálasérfræðingar segja að lítill áhugi virðist vera á því að kaupa olíufélagið Esso og Skeljungur mun hafa verið falur um hríð, án þess að fjárfestar hafi sýnt áhuga. 11.1.2006 12:00
Essó hækkaði bensín um 2 krónur og dísilolíu um 50 aura Olíufélagið Essó hækkaði bensínlítrann um tvær krónur á miðnætti og hefur þá hækkað bensínið um þrjár krónur og 50 aura frá áramótum. Dísilolían var hækkuð um 50 aura. Á heimasíðu félagsins segir að hækkunina megi rekja til hækkunar á heimsmarkaði. 11.1.2006 11:08
22 gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar í Kópavogi Tuttugu og tveir gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar í Kópavogi fyrir bæjarstjórnarkosningar sem fram fer 4. febrúar næstkomandi. Tveir gefa kost á sér í fyrsta sæti, Guðríður Arnardóttir framhaldsskólakennari og Jón Júlíusson íþróttafulltrúi. 11.1.2006 10:45
Stjórn BÍ kannar hugsanlegan þátt DV í sjálfsvíginu Arna Schram, formaður Blaðamannafélagsins, segir á vefsíðu félagsins að stjórn þess muni kanna hvort eða hvaða þátt DV átti í því að karlmaður á sextugsaldri svipti sig lífi á Ísafirði í gær. 11.1.2006 09:34
Of snemmt að segja hvort loðnustofninn sé hruninn Forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar segir of snemmt að kveða upp úr um það hvort loðnustofninn sé hruninn. Hann hefur engu að síður áhyggjur af því að engin loðna hafi fundist og segir að verulegt magn þurfi að finnast af henni til þess að hægt sé að mæla með veiðum. 11.1.2006 08:00
Nýr kjarasamningur stætóbílstjóra undirritaður Fulltrúar strætóbílstjóra í Reykjavík og Strætó undirrituðu nýjan kjarasamning í gær sem borinn verður undir atkvæði bílstjóranna á næstunni. Samningurinn er sagður á sömu nótum og borgin samdi nýverið um við Starfsmannafélag borgarinnar. 11.1.2006 07:58
Íbúinn kveikti sjálfur í Íbúi í íbúðinni sem eyðilagðist í eldi í fjölbýlishúsi í Lómasölum í Kópavogi í fyrrinótt kveikti sjálfur í. Hann gaf sig fram við lögregluna og játaði verknaðinn án skýringa. Faðir mannsins er skráður eigandi íbúðarinnar. Líklegt má telja að maðurinn verði ákærður bæði fyrir eignaspjöll og að hafa stofnað lífi nágranna í hættu. 11.1.2006 07:13
Tæplega nítjánþúsund manns hafa mótmælt Rúmlega átjánþúsund og sjöhundruð manns hafa undirritað mótmæli gegn ritstjórnarstefnu DV í dag á Deiglunni. Um tíma komust færri að síðunni en vildu og hrundi hún vegna of mikils álags. Síðan verður opin áfram á morgun. 11.1.2006 00:00
Mikill verðmunur á fiski Mikill verðmunur er á fiski milli verslana samkvæmt kverðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði þriðjudaginn 10. janúar síðast liðinn. Mestur er munurinn 111% á heilli hausaðri rauðsprettu sem kostaði frá 375 krónum upp í 790 krónur. Minnstur var munurinn 22% á reyktum ýsuflökum þar sem lægsta verð var 980 krónur en það hæsta var 1198 krónur. Kannað var verð á 27 ferskum fisktegundum í fiskbúðum og stórmörkuðum sem hafa fiskborð í verslunum sínum. Verðið var oftast lægst í FiskbúðinniÁrbjörgu, Hringbraut og í Fiskbúðinni okkar við Smiðjuveg en oftast dýrast í Fiskbúðinni Vör, Höfðabakka. 11.1.2006 00:00
Ríkissaksóknari fær málið á morgun Mál Jónasar Garðarssonar, formanns Sjómannafélags Reykjavíkur, vegna sjóslyssins á Viðeyjarsundi, verður sent til Ríkissaksóknara á morgun. Þar verður tekin ákvörðun um hvort ákært verði í málinu. 10.1.2006 21:14
Síðbúnar þrettándabrennur í kvöld Þrettándanum var fagnað með þremur brennum á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld, en ekki var hægt að kveikja í þeim á föstudaginn var vegna veðurs. Seltirningar kveiktu í brennu á Valhúsahæð og lögðu fjölmargir leið sína þangað þrátt fyrir nokkurn kulda. Safnast var saman við Mýrarhúsaskóla og þaðan gengið fylktu liði undir lúðrablæstri upp á hæðina. 10.1.2006 23:30
Nýr samningur hjá Strætó Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og Strætó bs. hafa skrifað undir nýjan kjarasamning fyrir starfsfólk Strætós. Fram kemur á heimasíðu Strætós að nýi samningurinn sé í öllum meginatriðum sambærilegur og áþekkur samningi Reykjavíkurborgar og starfsmannafélagsins, en aðilar hafa þó litið til sérstöðu starfseminnar og aðlagað samninginn að því. 10.1.2006 22:30
Kærir líklega ekki Sverri Þór Sverrissyni, eða Sveppa eins og hann er betur þekktur, þykir ólíklegt að hann kæri þann sem gaf honum glóðarauga um helgina. Árásarmaðurinn hefur beðið hann afsökunar. 10.1.2006 22:15
Stjórnin kölluð saman Karlmaður á sextugsaldri svipti sig lífi í morgun, eftir að DV birti mynd af honum á forsíðu og bendlaði hann við kynferðislegt ofbeldi gegn ungum piltum. Ásakanirnar gegn honum hafa ekki verið sannaðar og bróðir mannsins segir að DV hafi nánast rekið hann í dauðann. Formaður Blaðamannafélagsins hyggst kalla saman stjórn félagsins af þessu tilefni. 10.1.2006 21:52
Skipan fjölmiðlanefndar í uppnámi Menntamálaráðherra getur ekki skipað fulltrúa allra þingflokka í nýja fjölmiðlanefnd, sem á að semja drög að fjölmiðlalögum. Stjórnarandstaðan á Alþingi hefur sent ráðherra bréf, þar sem þess er krafist að málefni Ríkisútvarpsins verði rædd í nefndinni, en að öðrum kosti hyggst stjórnarandstaðan ekki tilnefna fulltrúa í hana. 10.1.2006 21:45
Ók á ljósastaur Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni og ók á ljósastaur á Hafnavegi, nálægt aðalhliðinu hjá Varnarliðinu á Miðnesheiði snemma kvölds. Lítil sem engin meiðsl urðu á fólki. 10.1.2006 21:44
Kveikt í þrettándabrennum í kvöld Þrettándanum var fagnað með þremur brennum á höfuðborgarsvæðinu í kvöld, en ekki var hægt að kveikja í þeim á föstudaginn var vegna veðurs. 10.1.2006 21:24
Smygluðu milljónum sígarettna Þrír norskir skipstjórar og einn íslenskur hafa játað smygl á nærri tveimur milljónum sígarettna og fleiri þúsundum lítra af áfengi til Noregs. Smyglvarninginn keyptu skipstjórarnir, sem starfa á tveimur norskum fragtskipum, í Hollandi og Þýskalandi. 10.1.2006 21:21
Fékk heillaskeyti frá forsætisráðherra 300 þúsundasti landsmaðurinn kom í heiminn í gær en það var drengur sem á ættir sínar að rekja til Reykjanesbæjar. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og Hallgrímur Snorrason hagstofustjóri heimsóttu foreldrana og drenginn á fæðingardeild Landsspítalans klukkan eitt í dag og afhentu þeim heillaóskaskeyti í beinni útsendingu á NFS. 10.1.2006 20:45
Úthlutað fyrir lok umsóknarfrests Umhverfisráðherra hefur úthlutað Náttúrufræðistofnun 6,6 milljónum króna úr veiðikortasjóði þrátt fyrir að umsóknafrestur um styrki úr sjóðnum sé ekki runninn út. 10.1.2006 20:14
300 milljóna borhola skilar engu Tvær borholur Reykjanesvirkjunar virðast ekki ætla að skila neinni orku en sú dýrari kostaði yfir þrjúhundruð milljónir króna. Engu að síður stefnir í að virkjunin verði gangsett á fullu afli þann 1. maí næstkomandi. 10.1.2006 20:03
Álagningarprósentan lækkar Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti í dag að lækka álagningarprósentu fasteignaskatts á íbúðahúsnæði um 20 prósent, eða úr 0,335 prósentum í 0,27 prósent. Lóðarleiga og vatnsgjald lækka einnig. Þetta verður þó ekki til að álögur lækka heldur hækka þær ekki meira en sem nemur verðlagsþróun. 10.1.2006 19:26
Starfslokasamningur stöðvaði kjarasamning Starfslokasamningur forstjóra FL-group varð til þess að Félag íslenskra atvinnuflugmanna sleit samningaviðræðum við Icelandair um að lækka áhafnakostnað vegna leiguflugs. Flugmönnum þótti í ljósi kringumstæðna ekki við hæfi að halda áfram viðræðum. 10.1.2006 19:12
Nýr framkvæmdastjóri ráðinn áður en sá fyrri var rekinn Framkvæmdastjórn Öryrkjabandalagsins gekk frá ráðningu nýs framkvæmdastjóra í síðustu viku - áður en Arnþóri Helgasyni var sagt upp störfum í gær. Arnþór var varaður við að tjá sig um málið við fjölmiðla og hótað með því að slíkt hefði neikvæð áhrif á starfslokasamning hans. 10.1.2006 18:54
Ker vill selja Esso Ker ætlar að selja Olíufélagið hf. Helstu ástæður þessa eru að sögn Ólafs Ólafssonar, stjórnarformanns Olíufélagsins, að efnahagsástandið sé hagstætt og margir hafi getu til að kaupa félagið, en ekki síður að eigendur Kers hafi hug á að auka fjárfestingar sínar erlendis. 10.1.2006 18:44
Græddi 25 milljónir á sólarhring Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka, keypti í gær hlutabréf í bankanum fyrir tæpan milljarð króna. Bjarni keypti bréfin í gær á genginu 18,6 en nú síðdegis var skráð gengi þeirra 19,1. Það þýðir að bara á þessum eina skammti hefur Bjarni hagnast um 25 milljónir króna á einum sólarhring. 10.1.2006 18:39
Svipti sig lífi eftir ásakanir um kynferðisbrot Karlmaður á sextugsaldri svipti sig lífi í morgun, eftir að DV birti mynd af honum á forsíðu og bendlaði hann við kynferðislegt ofbeldi gegn ungum piltum. 10.1.2006 18:30
Gestkvæmt hjá nýbura Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og Hallgrímur Snorrason hagstofustjóri voru ekki einu ráðamennirnir sem heimsóttu son Erlu Maríu Andrésdóttur og Haraldar Arnarsonar sem varð 300 þúsundasti landsmaðurinn í dag. Það gerði líka Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ - heimabæ drengsins, og hann kom færandi gjafir. 10.1.2006 17:45
Ók á 132 kílómetra hraða Tveir voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar í Reykjanesbæ í morgun. Sá sem hraðar ók var á 132 kílómetra hraða þar sem er 90 kílómetra hámarkshraði en hinn á 116 kílómetra hraða, einnig á vegi þar sem má hraðast aka á 90 kílómetra hraða. 10.1.2006 17:43
Svipti sig lífi eftir umfjöllun DV Karlmaður á sextugsaldri svipti sig lífi í morgun, eftir að DV birti mynd af honum á forsíðu og bendlaði hann við kynferðislegt ofbeldi gegn ungum piltum. Ásakanirnar gegn honum hafa ekki verið sannaðar og bróðir mannsins segir að DV hafi nánast rekið hann í dauðann. Nánar verður sagt frá þessu í fréttum NFS klukkan hálf sjö. 10.1.2006 17:34
Átján umferðaróhöpp í dag Fjórtán umferðaróhöpp og eitt umferðarslys hafa verið tilkynnt til lögreglunnar í Reykjavík frá því á hádegi í dag og alls átján frá því í morgun. Meiðslin í eina umferðarslysinu voru minniháttar en annars hefur þetta verið meiðslalaust. 10.1.2006 17:24
Bjarni eykur hlut sinn Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka, hefur keypt 50 milljón hluti í Íslandsbanka. Verð hlutabréfanna er 930 milljónir króna. Hlutur Bjarna í félaginu er nú um 0,93%. 10.1.2006 16:55
Framleiða snjó á fullu Starfsmenn skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli hafa unnið að því hörðum höndum í dag að undirbúa opnun svæðisins á morgun. Snjóframleiðsluvélar hafa verið í notkun með hléum frá því um helgina og blása nú allar úr sér snjó. 10.1.2006 16:51
Herjólfur sigldi á í höfninni Vestmannaeyjaferjan Herjólfur sigldi á landgönguranann í Þorlákshöfn þegar hún kom að landi eftir siglingu frá Vestmannaeyjum í dag. Raninn skemmdust nokkuð en litlar sem engar skemmdir urðu á skipinu. 10.1.2006 16:32
Handtekinn eftir bruna í Lómasölum Eigandi íbúðarinnar við Lómasali í Kópavogi, þar sem eldur kom upp í gær, hefur verið handtekinn grunaður um að hafa sett eld að íbúðinni. 10.1.2006 15:58
Framleiðslumet á Dalvík Landvinnsla Samherja á Dalvík framleiddi meiri sjávarafurðir á síðasta ári en nokkru sinni fyrr á þeim sex árum sem liðin eru síðan Samherji yfirtók starfsemina. Um 10.600 tonn voru unnin í landvinnslunni í fyrra og er það níu prósenta aukning frá árinu áður þegar framleiðslan nam 9.600 tonnum. 10.1.2006 15:50
Vilja fjármagna Sundabraut með öðrum Hafnarstjórn Faxaflóahafna vill hefja viðræður við ríkið um að taka þátt í fjármögnun Sundabrautar og stækkun Hvalfjarðarganga. Stjórnin hefur falið Árna Þór Sigurðssyni, formanni hennar, og Gísla Gíslasyni hafnarstjóra að óska eftir viðræðum við stjórnvöld. 10.1.2006 15:30
Ákvörðun um matsmenn frestað Héraðsdómur Reykjavíkur frestaði nú síðdegis ákvörðun um hvort hlutlausir matsmenn verði kallaðir til í Baugsmálinu. Sigurður Tómas Magnússon, settur ríkissaksóknari, óskaði eftir að hlutlausir sérfræðingar yrðu fengnir til að leggja mat á gögnin sem lögð hafa verið fram. 10.1.2006 15:20
Þrjár brennur á höfuðborgarsvæðinu klukkan sex Kveikt verður í þremur þrettándabrennum á höfuðborgarsvæðinu klukkan sex í dag, en eins og kunnugt er þurfti að fresta öllum brennum á svæðinu á föstudaginn var vegna veðurs. Kveikt verður í brennum á Valhúsahæð á Seltjarnarnesi, á bökkunum við Gestshús á Álftanesi og við Reynisvatn á móts við Sæmundarsel. 10.1.2006 15:10
Tveir viðurkenna fíkniefnasölu Lögreglan á Ísafirði hefur sleppt tveimur mönnum úr haldi sem grunaðir eru um hasssölu. Mennirnir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald síðasta föstudag sem átti að renna út síðdegis í dag en málið telst nú upplýst. Öðrum manninum var sleppt í gærkvöldi en hinum í morgun. Þeir hafa játað að dreifa kannabisefnum á norðanverðum Vestfjörðum. 10.1.2006 14:52
Vatnsleysustrandarhreppur verður Sveitarfélagið Vogar Félagsmálaráðuneytið hefur staðfest ákvörðun hreppsnefndar Vatnsleysustrandarhrepps um breytingu á nafni sveitarfélagsins í Sveitarfélagið Vogar. Þetta kemur fram á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga. 10.1.2006 14:47
Framsóknarmenn heimsækja starfsfólk Starfsmenn fjölda fyrirtækja, stofnana og samtaka á höfuðborgarsvæðinu mega eiga von á heimsókn þingmanna Framsóknarflokksins í vikunni. Tilgangur heimsóknanna er að kynna sér starfsemi fyrirtækjanna og heyra skoðanir stjórnenda og starfsfólks á stjórnmálalífinu. 10.1.2006 14:44
Höllin farin á hausinn Félagið, sem á og rekur veislu- og ráðstefnuhúsið Höllina í Vestmannaeyjum,er gjaldþrota og nemur þrotið að minnstakosti hundrað milljónum króna. 10.1.2006 13:45
Foreldrum 300 þúsundasta Íslendingsins afhent heillaóskaskeyti Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og Hallgrímur Snorrason hagstofustjóri heimsóttu 300 þúsundasta Íslendinginn, dreng sem á ættir sínar að rekja til Reykjanesbæjar, og foreldra hans á fæðingardeild Landsspítala - Háskólasjúkrahúss klukkan eitt í dag og afhentu þeim heillaóskaskeyti í beinni útsendingu á NFS. 10.1.2006 13:38