Fleiri fréttir

Um 100 brot gegn börnum tilkynnt á þremur mánuðum

Nær 100 tilkynningar um brot gegn börnum hafa borist til Neyðarlínunnar, 112, á tæplega þremur síðustu mánuðum. Einkum er um að ræða vanrækslu og ofbeldisbrot. Í sumum tilvikum hringja börnin sjálf. Neyðarlínan hefur kallað út lögreglu, sjúkrabifreið og lækni í einstökum tilvikum.

Handtekinn í Kringlunni

Átján ára unglingur var handtekinn í Kringlunni seinnipartinn í gær (föstudag) þar sem hann fór um veifandi loftskammbyssu. Hann hafði einnig skotið stúlku í fótinn með plastkúlu. Hann var yfirheyrður og honum gert grein fyrir alvarleika málsins en lögreglan í Reykjavík segir að þar sé ekki tekið á því af neinni lindkind séu menn með einhverskonar skotvopn eða eftirlíkingar af slíku á almannafæri.

Brotið gegn þeim sem aðhyllast lífsskoðunarfélög

Stórlega er brotið gegn þeim sem aðhyllast lífsskoðunarfélög í landinu, segir Sigurður Hólm Gunnarsson, talsmaður Siðmenntar sem vill fá sömu réttarstöðu og trúfélög líkt og gerist í Noregi. Lífsskoðunarfélög eru félagsskapur sem veita þá félagslegu þjónustu sem trúfélög veita, til að mynda borgaralegar fermingar og giftingar, en án trúarbragða.

Segir stöðu Íbúðalánasjóðs sterka

Íbúðalánasjóður stendur styrkum fótum og fær hæstu einkunn hjá alþjóðlegum matsfyrirtækjum. Þetta segir Guðmundur Bjarnason framkvæmdastjóri sjóðsins.

Sluppu með skrekkinn

Mildi þykir að engan skyldi saka þegar bíll keyrði út af og valt ofaní vatnsfylltan skurð í Gaulverjabæjarhreppi í nótt.

Hart tekist á um fjárlög næsta árs á Alþingi

Stjórnarliðar hrósuðu sér af meiri fjárlagaafgangi en flestar Evrópuþjóðir gætu státað af meðan stjórnarandstæðingar sögðu væntanleg fjárlög þýða útgjaldaþenslu og aukið misrétti í samfélaginu.

Mikil svifryksmengun í Reykjavík undanfarna daga

Svifryk hefur mælst allt að tífalt meira síðustu daga en á meðal degi. Þegar veður er þurrt og stillt eykst rykmengunun verulega við helstu umferðaræðar í Reykjavík. Fólk sem er viðkvæmt í öndunarfærum getur fundið fyrir svifrykinu þegar umferð er sem mest og þar með svifrykið.

Hannes verst bótakröfu Jóns Ólafssonar

Hannes Hólmsteinn Gissurarson segist aldrei hafa kallað Jón Ólafsson dópsala eða skattsvikara. Hann hafi aðeins bent á að aðrir hafi gert það og þess vegna eigi ekki að dæma sig fyrir meiðyrði.

Stórt nýtt hverfi í Mosfellsbæ

Þúsund íbúða hverfi mun rísa innan tíðar undir hlíðum Helgafells í Mosfellsbæ. Ljúka á vinnu við fyrsta áfanga deiliskipulags í mars á næsta ári. Bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ og landeigendur undirrituðu viljayfirlýsingu um uppbyggingu hverfisins í dag.

Verða að endurgreiða ríkisaðstoð

EFTA-dómstóllinn segir að stjórnvöld verði að endurgreiða ólögmæta ríkisaðstoð sem var veitt erlendum fyrirtækjum sem fluttu starfsemi sína hingað til lands.

Undrast seinagang fjármálaráðherra

Stjórnarandstæðingar undrast seinagang fjármálaráðherra í hagsmunagæslu vegna samráðs olíufélaganna en ráðherrann segir að vanda verði undirbúning, verði niðurstaðan sú að mál verði höfðað.

Bíll valt í Dalsá í Víðidal

Bílvelta varð við Dalsá í Víðidal í dag. Fjórir voru í bílnum en enginn slasaðist. Ökumaður missti stjórn á bíl sínum í hálku og endaði bíllinn í Dalsá en ökumanður og farþegar komust út úr bílnum að sjálfsdáðum.

Keyrði útaf veginum til að forðast árekstur

Bíll fór útaf Reykjanesbraut, skammt austan við gatnamót Vogavegar, áttunda tímanum í morgun. Ökumaðurinn var að taka framúr bifreið en sá þá hvar ljóslítill bíll kom á móti.

Stílkeppni Samfés haldin á morgun

Rusl er þema stílkeppni Samfés sem haldin verður á morgun. Þetta er í fimmta sinn sem keppnin er haldin en keppt er í fatahönnun, hárgreiðslu og förðun.

Ósáttir við breytingar á umdæmum

Akurnesingar eru ósáttir við hugmyndir um að færa lögregluembætti bæjarins undir lögregluna í Borgarnesi. Guðmundur Páll Jónsson bæjarstjóri segist segist afar undrandi á hugmyndunum, lögreglan á Akranesi sé sú fjölmennasta á Vesturlandi og sú eina með sólarhringsvakt. Hann óttast að þjónusta lögreglunnar skerðist verði af breytingunni.

Fimm hafsvæði friðuð fyrir veiðum

Fimm hafsvæði fyrir Suðurlandi verða friðuð fyrir öllum veiðum nema uppsjávarveiðum í hringnót og flottroll. Sjávarútvegsráðherra tilkynnti um þessa ákvörðun á þingi Farmanna og fiskimannasambandsins í dag.

Lögsókn úr launsátri

Hannes Hólmsteinn Gissurarson hélt nú klukkan tvö blaðamannafund undir yfirskriftinni „Lögsókn úr launsátri", þar sem hann kynnti greinargerð sína vegna meiðyrðadóms sem féll yfir honum í Bretlandi vegna ummæla um athafnamanninn Jón Ólafsson. Á fundinum rakti Hannes hvers vegna hann teldi að bresk lögsaga gilti ekki um ummælin sem hann var dæmdur fyrir auk þess sem hann varði ummælin og sagði þau bæði sönn og eðlileg í því samhengi sem þau voru sett fram í.

Varnarliðið segir fimm upp

Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli segir fimm íslenskum starfsmönnum upp störfum frá og með næstu mánaðamótum að því er fréttavefur Víkurfrétta greinir frá. Í það minnsta fjórar konur eru í hópi þeirra sem verður sagt upp og flestar í stjórnunarstöðum.

Hannes skilar inn greinargerð

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor, hefur skilað Héraðsdómi Reykjavíkur greinargerð til að fá því hnekkt að hann þurfi að greiða Jóni Ólafssyni, athafnamanni, bætur vegna meiðyrðadóms í Englandi.

Íhuga nýtt framboð í Eyjum

Nýtt framboð gæti bæst í flóruna í Vestmannaeyjum fyrir bæjarstjórnarkosningar næsta vor. Fréttavefurinn Eyjar.net greinir frá því að um tíu manns hafi komið saman til fundar í gær til að ræða framtíðarsýn Vestmannaeyja og hugsanlegt framboð við næstu bæjarstjórnarkosningar.

Allar tillögur meirihlutans samþykktar

Þingmenn samþykktu allar breytingartillögur meirihluta fjárlaganefndar við fjárlagafrumvarp næsta árs á þingfundi í dag en öllum tillögum stjórnarandstöðunnar var hafnað. Eins og fjárlagafrumvarpið lítur út núna verður nær tuttugu milljarða króna afgangur á rekstri ríkissjóðs á næsta ári.

Vilja aðgerðir vegna olíusamráðs

Árni Mathiesen fjármálaráðherra var borinn þungum sökum við upphaf þingfundar í dag þegar hver stjórnarandstæðingurinn á fætur öðrum fór í ræðustól og gagnrýndi hann fyrir að vera ekki búinn að taka ákvörðun um málshöfðun á hendur olíufélögunum fyrir samráð þeirra. Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingar, hóf umræðuna.

Utanríkisráðherra lofar auknum fjárveitingum

Heilsa kvenna, heilsa mannkyns. Stöðvum ofbeldið er yfirskrift alþjóðlegs sextán daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi sem hófst í morgun. Átakið fór vel af stað því Geir H. Haarde, utanríkisráðherra ávarpaði morgunfund skipuleggjenda átaksins og lofaði auknum fjármunum til Unifem.

Lægri skilnaðartíðni hjá hátt launuðum

Uppskriftin að góðu hjónabandi virðist liggja í launaumslaginu í Danaveldi. Nýlegar tölur frá dönsku hagstofunni sýna að skilnaðartíðni er lægst hjá þeim hæst launuðu. En einnig aukast líkurnar á skilnaði búi fólk annað hvort í Kaupmannahöfn eða Fredriksberg. Danska hjónabandstölfræðin sýnir að áhættan á skilnaði er mest á fimmta ári hjónabandsins. Einnig kemur fram að hjónabönd fólks sem vinnur í veitingageiranum hafa stystan líftíma.

Samkeppniseftirlitið skoði lyfjamarkaðinn

Það að tvö fyrirtæki stjórni 85% prósentum af smásölumarkaði lyfja og vísbendingar hafa komið fram um ólögmæta skiptingu á markaðnum gefur ástæðu til að hvetja Samkeppniseftirlitið til að hefja skoðun á þessu segir Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingar, í pistli á heimasíðu sinni.

Segir 50 milljónum kastað á glæ

"Önnur eins vitleysa hefur ekki verið viðhöfð held ég frá því að Bakkabræður reyndu að bera ljósið inn í baðstofuna í trogi," segir Snæbjörn Árnason, rækjusjómaður á Bíldudal, um verkefni Hafrannsóknarstofnunar í Arnarfirði.

Gagnrýnir Valgerði fyrir aðgerðaleysi

Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknar, gagnrýnir Valgerði Sverrisdóttur, iðnaðarráðherra og flokkssystur sína, harðlega fyrir aðgerðaleysi í málefnum Byggðastofnunar. Hann segir að ljóst hafi verið um síðustu áramót að stofnunin kynni að þurfa að hætta lánveitingum á árinu vegna lakrar eiginfjárstöðu en að iðnaðarráðherra hafi ekkert gert.

Fangar nota tímann vel

Fangelsismálastofnun og ABC Barnahjálp hafa hrundið af stað tilraunaverkefni fyrir komandi jól sem felst í því að fangar í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg og í fangelsinu á Akureyri pakka inn jólakortum.

Lítt kristilegt hugarfar Þjóðkirkjunnar

Það ber ekki vott um kristilegt hugarfar kirkjunnar manna að Þjóðkirkjan sé ekki reiðubúin að gefa saman samkynhneigð pör segir Ásta R. Jóhannesdóttir, þingmaður Samfylkingar, í pistli á heimasíðu sinni.

Veiðileyfi hækkar um 137 prósent

Veiðileyfi á silunga­svæðinu í Víðidalsá í Húnaþingi hækka nú um 137 prósent á milli ára. Á þessu ári greiddu silungsveiðimenn 10.500 krónur fyrir daginn en koma til með að þurfa að greiða 24.900 fyrir veiðidaginn næsta sumar.

Átak gegn kynbundnu ofbeldi hefst í dag

Alþjóðlegt sextán daga átak gegn kynbundnu ofbeldi hefst í dag. Þáttökulönd eru eitt hundrað og þrjátíu með um sautjánhundruð félagasamtökum innan sinna vébanda. Á þriðja tug íslenskra samtaka og stofnana standa að átakinu sem stendur til tíunda desember. Unifem á Íslandi og Kvennaathvarfið hafa forgöngu um verkefnið í ár. Dagskráin er með margvíslegu sniði og samanstendur af fundahöldum, sýningum og ýmis konar uppákomum. Yfirskrift átaksins í ár er Heilsa kvenna, heilsa mannkyns. Stöðvum ofbeldið.

Lánsöm að vera á lífi

Maður var dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi fyrir árás á fyrrverandi sambýliskonu með felgulykli. Hún var hætt komin. Börn þeirra voru á staðnum.

Sjómenn hafa varað við ­ódýru erlendu vinnuafli

Birgir Hólm Björgvinsson hjá Sjómannafélagi Reykjavíkur kallar eftir öflugri kjarabaráttu og gagnrýnir Alþýðusambandið. Fyrir rúmum áratug vöruðu forsvarsmenn sjómanna við ásókn í ódýrt erlent vinnuafl.

Smábátasjómenn án samninga

"Það eru dæmi um útgerðir sem gera út sex til átta smábáta. Mér er sagt að Samherji sé kominn með tvo smábáta. Þetta er orðinn útvegur," segir Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands. Hann telur það afar áríðandi að gerðir séu kjarasamningar við áhafnir á smábátum.

Skipafélag í burðarliðnum fyrir norðan

Nýtt íslenskt skipafélag er í burðarliðnum og hyggur félagið á fraktflutninga á milli Eyjafjarðar og meginlands Evrópu. Eigendur skipafélagsins verða bæði innlendir og erlendir en höfuðstöðvar þess verða á Akureyri.

Kröfðust frestunar vegna fjarveru ráðherra

Þingmenn stjórnarandstöðunnar kröfðust þess að umræðum um fjárlagafrumvarpið yrði frestað í dag þar sem þrír ráðherrar voru erlendis og tveir fjarverandi af öðrum orsökum. Sérstaka reiði vakti að menntamálaráðherra væri í Senegal.

Sjúkraliðar bíða endurnýjun kjarasamninga

Alls bíða 180 sjúkraliðar í Sjúkraliðafélagi Íslands sem endurnýjun samnings við Launanefnd sveitafélagana. Mikil óánægja er sögð vera meðal félagsmanna enda rann kjarasamningur þeirra út 1. júní.

Skotlandsbanki dregur í land varðandi KB banka

KB banki þarf fyrst og fremst að bæta upplýsingagjöf sína, segir yfirgreinir Skotlandsbanka. Mjög hefur verið dregið í land í nýrri greiningu skoska bankans á KB. Stjórnarformaður KB segir vinnubrögð Skotanna fyrir neðan allar hellur, en hefur þó engar áhyggjur.

Skulda hverjum opinberum starfsmanni 2 milljónir

Hver einasti maður á almennum vinnumarkaði skuldar hverjum opinberum starfsmanni tvær milljónir króna í lífeyrisgreiðslur. Þetta er sú fjárhæð sem ríkið þarf að ná af almenningi með sköttum til að standa undir tvö hundruð milljarða króna lífeyrisskuldbindingu, sem engin innistæða er fyrir.

Stjórnvöld verða að rannsaka ferðir CIA-flugvéla

Íslensk stjórnvöld verða að rannsaka ferðir CIA-flugvéla um íslenska flugvelli og lofthelgi eftir að Evrópuráðið krafðist svara um ferðir vélanna í Evrópu. Svara þarf innan þriggja mánaða.

Íbúðalánasjóður óskar eftir skjótum viðbrögðum stjórnvalda

Íbúðalánasjóður hefur skrifað félagsmálaráðherra og fjármálaráðherra og óskað eftir skjótum viðbrögðum stjórnvalda við frétt í kvöldfréttum NFS í gær. Þar var haft eftir Lánasýslu ríkisins að ekki væri hægt að mæla með ríkisábyrgð á lántökum sjóðsins upp á áttatíu og átta milljarða króna, eins og fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir, nema ráðist verði í úttekt á fjárhagsstöðu sjóðsins, eins og samkomulag ráðherra fjármála og félagsmála kvað á um í júní.

Sigurður Tómas kærir úrskurð Héraðsdóms

Settur ríkissaksóknari í Baugsmálinu, Sigurður Tómas Magnússon, hefur kært til Hæstaréttar úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að hann sé ekki bær um að fjalla um ákæruliðina átta sem enn eru fyrir dómi í héraði. Sigurður krefst þess einnig að Hæstiréttur taki afstöðu til þess að Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hafi verið hæfur til þess að setja hann í að fjalla um ákærurnar.

Sjá næstu 50 fréttir