Stjórnvöld verða að rannsaka ferðir CIA-flugvéla 24. nóvember 2005 21:04
Íslensk stjórnvöld verða að rannsaka ferðir CIA-flugvéla um íslenska flugvelli og lofthelgi eftir að Evrópuráðið krafðist svara um ferðir vélanna í Evrópu. Svara þarf innan þriggja mánaða. Fregnir af ferðum CIA-flugvéla og um leynileg fangelsi bandarísku leyniþjónustunnar í Evrópu hafa leitt til rannsókna í fjölmörgum löndum og í dag þótti framkvæmdastjóra Evrópuráðsins tímabært að safna öllum upplýsingum saman á einn stað. Hann beitti því fimmtugustu og annari grein mannréttindasáttmála Evrópu til að krefja aðildarlönd sáttmálans um svör innan þriggja mánaða. Þór Vilhjálmsson, fyrrverandi hæstaréttardómari og dómari við Mannréttindadómstól Evrópu, sagði í samtali við fréttastofuna að íslensk stjórnvöld yrðu að bregðast við tilmælum Evrópuráðsins þar sem Evrópusáttmálinn væri lögbundinn hér á landi. Því verða íslensk stjórnvöld nú að rannsaka ferðir CIA-véla um íslenska flugvelli og lofthelgi. Í texta ráðsins er að vísu ekki vísað beint til CIA-véla heldur meðal annars beðið um útskýringar á því hvort og hvernig lög aðildarríkja tryggja eftirlit með aðgerðum útsendara erlendra ríkisstjórna á landsvæði aðildarríkjanna, og hvernig lög tryggi að þeim sem beita pyntingum sé refsað. Portúgalar vilja rannsókn á ferðum CIA-véla um flugvelli í Portúgal og á Azor-eyjum, forsætisráðherra Póllands telur eðlilegt að rannsaka sögusagnir um ferðir vélanna og á Finnlandi er einnig verið að athuga málið, að sögn Erkki Tuomioja, utanríkisráðherra landsins. Svissneski þingmaðurinn Dick Marty er að rannsaka ferðir þrjátíu og einnar vélar og vill að NATO, Sameinuðu þjóðirnar og Eurocontrol, flugumsjón í Evrópu, veiti aðstoð við að upplýsa málið.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fleiri fréttir ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Sjá meira