Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Meðvitundarlaus eftir líkamsárás Einn var fluttur meðvitundarlaus á sjúkrahúsið á Ísafirði eftir líkamsárás í miðbænum í nótt. Ekki er vitað hver upptök árásarinnar voru en tveir voru handteknir í tengslum við hana og gista þeir nú fangageymslur lögreglunnar. Sá sem slasaðist er til aðhlynningar á sjúkrahúsinu. 17.7.2005 00:01
Aflífa þurfti 30 fugla í Sandgerði Aflífa þurfti rúmlega þrjátíu fugla í Sandgerði í gær vegna grúts sem þeir höfðu leitað í við höfnina í bænum. Ljóst þykir að fiskveiðiskip hafi losað grútinn fyrir utan höfnina sem fuglinn hafi svo leitað í. 17.7.2005 00:01
Hætta vegna tjöru Lögreglan í Borgarnesi þurfti um tíma að vakta kafla þjóðvegarins efst í Borgarfirði í fyrrakvöld eftir að klæðning verktaka fyrr um daginn misfórst með þeim afleiðingum að mikið magn tjöru sat á veginum. 17.7.2005 00:01
Bindisleysið kostaði hann leigubíl Bindisleysi varð til þess að Örnólfur Thorlacius var næstum orðinn of seinn til að halda munnlegt stúdentspróf fyrir um fjörutíu árum. Hann rifjar upp söguna í kjölfar fréttar um bindislausa forkolfa íslensks viðskiptalífs. </font /></b /> 17.7.2005 00:01
Óttast pólitík í RÚV Margrét Sverrisdóttir, formaður Hollvinasamtaka Ríkisútvarpsins, óttast að nýr útvarpsstjóri verði ekki ráðinn á faglegum forsendum heldur pólitískum. 17.7.2005 00:01
Munkaklaustur rís á Egilsstöðum "Okkur sýnis að Egilsstaðir komi einna helst til greina eins og staðan er nú en það á þó eftir að koma betur í ljós," segir séra Jakob Rolland, kanslari biskupsdæmis kaþólsku kirkjunnar hér á landi. 17.7.2005 00:01
Íbúar Suðurgötu reiðir Strætó Með breyttu leiðarkerfi Strætó, sem tekur gildi á laugardag, fjölgar ferðum strætisvagna um Suðurgötu í Reykjavík, íbúum götunnar til sárrar óánægju. 17.7.2005 00:01
Minni hallarekstur en verið hefur "Það má segja að þetta sé viðunandi árangur og vel innan skekkjumarka," segir Anna Lilja Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjárreiðna og upplýsinga hjá Landspítala-Háskólasjúkrahúsi. 17.7.2005 00:01
Atvinnulausum fækkar Atvinnuleysi eykst í höfuðborginni en minnkar úti á landi samkvæmt útreikningum Vinnumálastofnunar fyrir síðasta mánuð. 17.7.2005 00:01
Yfirlýsing Össurar sögð heimskuleg Oddvitar flokkanna sem standa að Reykjavíkurlistanum gefa lítið fyrir þá skoðun Össurar Skarphéðinssonar að Samfylkingin eigi að bjóða fram R-lista hvort sem samstarfsflokkarnir taki þátt í framboðinu eður ei. Árni Þór Sigurðsson segir yfirlýsinguna heimskulega. 17.7.2005 00:01
R-listinn er að liðast í sundur Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, segir R-listan vera að liðast í sundur. 17.7.2005 00:01
Handfrjáls búnaður líka hættulegur Fjórum sinnum meiri líkur eru á að ökumaður sem talar í farsíma undir stýri lendi í umferðarslysi en aðrir ökumenn. Virðist þá engu skipta hvort notaður er handfrjáls búnaður. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem birt var í <em>The British Medical Journal</em> fyrr í vikunni. 17.7.2005 00:01
Unnið að viðbragðaáætlun Unnið er að viðbragðaáætlun vegna hugsanlegra eldsumbrota undir Mýrdals- og Eyjafjallajöklum, jökulhlaupa til sjávar og jafnvel flóðbylgju í kjölfarið. 17.7.2005 00:01
Mega ekki bera vopn Öryggisverðir hafa á sér mismikinn búnað eftir því hvar þeir starfa að sögn Snorra Sigurðssonar, þjónustustjóra hjá Securitas. Verðirnir mega ekki bera vopn lögum samkvæmt, en það má einungis lögregla að sögn Snorra. 17.7.2005 00:01
Flytur sig kannski um set Talið er hugsanlegt að Árni Magnússon félagsmálaráðherra flytji sig um set og leiði lista framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi í næstu alþingiskosningum að því er fram kom í fréttum Sjónvarpsins í gærkvöldi. 17.7.2005 00:01
Kastaðist tólf metra Tvítugur maður slasaðist alvarlega í bílveltu við Gljúfurfoss, skammt frá Seyðisfirði, aðfaranótt sunnudags. Hann liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi í Reykjavík.<font face="Helv"></font> 17.7.2005 00:01
Meðvitundarlaus eftir árás Tveir menn á þrítugsaldri gengu í skrokk á manni fyrir utan skemmtistaðinn Krúsina í miðbæ Ísafjarðar um þrjúleytið aðfaranótt sunnudags. Maðurinn var fluttur meðvitundarlaus á slysadeild sjúkrahússins á Ísafirði eftir árásina.<span lang="EN-US" style="COLOR: black; FONT-FAMILY: Helv; mso-ansi-language: EN-US"></span> 17.7.2005 00:01
Gistu í hellinum Sjö skátar gengu ríflega 40 kílómetra til að safna peningum fyrir ferð á skátamót í London. Þeir gistu í 100 metra löngum helli. 17.7.2005 00:01
Stórveldi með þrjá starfsmenn Ferskir vindar blása um starfsemi Kaupfélags Eyfirðinga í upphafi nýrrar aldar og félagið fer ótroðnar slóðir í markmiði sínu að bæta búsetuskilyrði og efla byggð í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum. Beinn atvinnurekstur KEA heyrir sögunni til en fjárhagslegur styrkur gerir rödd félagsins sterka. 17.7.2005 00:01
Verið að fara yfir samninginn Félagsmálaráðherra segir að verið sé að fara yfir lánasamning á milli Íbúðalánsjóðs og bankanna og vel geti verið að þar þurfi að skerpa einhverjar reglur. 17.7.2005 00:01
Sílamávar aflífaðir Lögreglan í Reykjanesbæ þurfti að aflífa um 40 sílamáva í Sandgerði síðdegis í fyrradag. Sílamávarnir höfðu fengið á sig grút sem óþekkt skip losaði í sjóinn úti fyrir Sandgerði. 17.7.2005 00:01
Bjórinn kominn í matvöruverslanir Bjórinn er kominn í matvöruverslanir. Í verslunum Nóatúns er nú hægt að kaupa gasgrill og fylgir bjór í kaupbæti; bjórinn er því ekki seldur heldur er hann gefins. Áfengislögin virðast ekkert segja um gefins bjór. 16.7.2005 00:01
Díselolía í tönkum við Smáralind Ríflega fimm þúsund lítrar af díselolíu eru geymdir í tönkum á bílastæði við Smáralindina. Eigandi olíunnar kveðst vita um fleiri samskonar tilvik. 16.7.2005 00:01
Minningarathöfn um QP-13 Blómsveigar voru lagðir á hafið norður af Horni í morgun til minningar um sjómenn sem fórust með skipalestinni QP-13 í júlí árið 1942. 16.7.2005 00:01
Kínverska parið fékk dóm í dag Grunur leikur á að karlmaður frá Filippseyjum hafi stundað að smygla fólki til Bandaríkjanna með viðkomu hér á landi. Kínverskt par var gripið með manninum á Keflavíkurflugvelli í síðustu viku og dæmt til fangelsisvistar í dag. 16.7.2005 00:01
Nokkur erill hjá lögreglunni Nokkur erill var hjá lögreglunni í Reykjavík í nótt, aðallega vegna slagsmála og ölvunar. Tveir voru fluttir á slysadeild eftir slagsmál sinn á hvorum staðnum í miðborginni en voru ekki alvarlega slasaðir. 16.7.2005 00:01
Innbrot og eldur í bíl Tveir menn handteknir við innbrot í Lindina, söluskála Esso, við Leiruveg á Akureyri klukkan sex í morgun. Þeir höfðu unnið þó nokkur skemmdarverk og gistu fangageymslur það sem eftir var nætur en rannsókn á málinu stendur yfir. 16.7.2005 00:01
Grunuð um innbrot á Selfossi Fimm voru handteknir af lögreglunni á Selfossi í gær. Fyrst voru tvær konur og einn maður handtekin við Litlu kaffistofuna vegna gruns um innbrot í raftækjaverslun á Selfossi skömmu áður. Í bílnum fannst þýfi, þar á meðal símar og sjónvarp og er fólkið grunað um þjófnaði í verslunum í bænum og innbrot í bíla. 16.7.2005 00:01
Þrír gistu fangageymslur Ein kona og tveir menn gistu fangageymslur lögreglunnar á Selfossi í nótt vegna ölvunar og óláta. Konan var færð á lögreglustöðina eftir að hún hafði veist að annarri konu fyrir utan skemmtistað í bænum. 16.7.2005 00:01
Adrenalíngarður á Nesjavöllum Ofurhugar fá sinn leikvöll í dag þegar „Adrenalíngarðurinn“ verður opnaður. Hann er sá fyrsti sinnar tegundar hér á landi en þar eru háloftabraut, klifurveggur, svifbraut og landsins stærsta róla, svo eitthvað sé nefnt. 16.7.2005 00:01
Össur vill opið prófkjör Össur Skarphéðinsson vill að prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík verði opið. Þannig segir hann að leið myndi opnast fyrir Dag B. Eggertsson til að vera á listanum. 16.7.2005 00:01
Kyndill fljótandi í Hvalfirði Logandi kyndill flýtur yfir Hvalfjörðinn þessa stundina en fimm sjósundmenn skiptast á að synda með hann yfir fjörðinn. Það er Sundfélag Hafnafjarðar og Garparnir sem skelltu sér í sjóinn á sundfötunum einum saman og er ferðin farin til að minna fólk á að hugsa um vináttu og samkennd. 16.7.2005 00:01
Fundu einstakan bronspening Einstakur bronspeningur frá fimmtándu öld fannst við fornleifauppgröft við Skriðuklaustur í fyrradag. Klausturbyggingin sem verið er að grafa upp varpar nýju ljósi á starfsemi klaustursins og hefur það verið mun stærra en áður var talið. 16.7.2005 00:01
Í skoðun í Sjávarútvegsráðuneytinu "Við höfum verið með þetta í skoðun innan ráðuneytisins en þetta snýst um túlkunaratriði þessa samnings," segir Árni M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, vegna gagnrýni Eftirlitsstofnunar EFTA á Íslendinga og Norðmenn vegna sölu landanna á frosnum fiski frá fyrirtækjum í Rússlandi 16.7.2005 00:01
Fækkun í ýmsum brotaflokkum Líkamsárásum og fíknefnabrotum í umdæmi sýslumannsins á Ísafirði fækkaði á síðasta ári miðað við árið á undan. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ársskýrslu embættisins. Þá fækkaði innbrotum og þjófnuðum sömuleiðis. 16.7.2005 00:01
Mikil eftirspurn eftir vændi Íslensk vændiskona, sem auglýsir þjónustu sína á vefsíðunni einkamal.is, segir eftirspurn eftir þjónustunni mikla. Giftir karlar eru hennar helstu viðskiptavinir og segist hún taka 30 þúsund krónur fyrir skiptið. 16.7.2005 00:01
Nálægt því að vera lögbrot "Ég veit ekki hvort forráðamenn Nóatúns hafa skoðað lögin náið en öll veiting áfengis án leyfis er bönnuð og þessi svokallaða gjöf þeirra fellur að mínu mati undir það," segir Guðni R. Björnsson, verkefnastjóri hjá Fræðslumiðstöð í fíkniefnum. 16.7.2005 00:01
Össur vill R-lista, sama hvað "Ég tel að undir öllum kringumstæðum eigi Samfylkingin að bjóða fram sem Reykjavíkurlisti, þó að annar eða báðir samstarfsflokkana vilji ekki vera með í slíkum lista," segir Össur Skarphéðinsson. 16.7.2005 00:01
Með þýfi í farteskinu Einn karl og tvær konur á þrítugsaldri voru á föstudagsmorgun handtekin við Litlu kaffistofuna í Svínahrauni, grunuð um að hafa brotist inn í raftækjaverslun á Selfossi. 16.7.2005 00:01
Hringróður gengur vel Kjartan Hauksson sem er að fara hringinn í kringum landið á árabát fór frá Neskaupsstað aðfaranótt föstudags og kom til Stöðvarfjarðar síðdegis á laugardag. 16.7.2005 00:01
Flugvélin í Fljótavík hífð í þyrlu Cessna einkaflugvélin sem hlekktist á í flugtaki í Fljótavík á Hornströndum á föstudaginn var hífð með þyrlu Landhelgisgæslunnar um borð í varðskipið Óðinn á laugardag. 16.7.2005 00:01
Harry seldist vel á miðnæturopnun Um sex hundruð manns keyptu nýju Harry Potter bókina í Mál og menningu á Laugarvegi aðfaranótt laugardags, segir Óttar Proppe vörustjóri erlendra bóka hjá Pennanum. "Fyrsta prentun bókarinnar fer að verða búin," segir Óttar. 16.7.2005 00:01
Kári í ÍE leysir af á Landspítala Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar ætlar að eyða viku af sumarfríi sínu við lækningar á Landspítala-háskólasjúkrahúsi. 16.7.2005 00:01
Vatnsleki í Amarohúsinu Nokkurt vatnstjón varð á skrifstofu- og verslunarrými í eldri hluta Amarohússins á Akureyri um miðja vikuna þegar ofn á þriðju hæð gaf sig. 16.7.2005 00:01
Hitaveita Ólafsfjarðar seld Þrjú veitufyrirtæki hafa sýnt áhuga á að kaupa Hitaveitu Ólafsfjarðar. Bæjaryfirvöld hafa ekki ákveðið hvort veitan verði seld en Stefanía Traustadóttir bæjarstjóri segir ákvörðun þess efnis væntanlega liggja fyrir í næstu viku. 16.7.2005 00:01