Innlent

Innbrot upplýst

Við húsleit á Selfossi í vikunni fannst þýfi úr fimm eða sex innbrotum í bænum síðustu daga. Lögreglunni bárust vísbendingar og í kjölfar þeirra beindust grunsemdir að karlmanni um tvítugt og var heimild fengin til húsleitar hjá honum. Þýfið var úr innbrotum í heimahús, skóla og fyrirtæki á Selfossi. Þar á meðal var dýr tölvubúnaður og fleiri hlutir. Má kalla lán að þjófurinn skyldi ekki vera búinn að koma frá sér þýfinu, þar sem stolnum munum er yfirleitt komið í verð eins fljótt og auðið er.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×