Innlent

Uppsagnir á Hofsósi

"Við erum að fara yfir þetta allt saman og kanna hvort þessar uppsagnir séu lögmætar og samkvæmt bókunum," segir Jón Karlsson, formaður stéttarfélagsins Öldunnar á Sauðárkróki. Fjórtán starfsmönnum fiskvinnslunnar Kolku á Hofsósi hefur verið sagt upp störfum og er það talsvert áfall fyrir ekki stærra bæjarfélag en á Hofsósi búa um 250 manns. Jón segir að ýmsir hafi reynt fyrir sér með fiskvinnslu á Hofsósi með litlum árangri og allnokkur önnur fyrirtæki hafi farið í gjaldþrot á síðustu árum. "Þetta er hörmulegt ástand og því miður ekki í fyrsta sinn sem slíkt á sér stað á Hofsósi."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×