Aðalfundur Freyju ógiltur 5. febrúar 2005 00:01
Laganefnd Framsóknarflokksins hefur úrskurðað að aðalfundur Freyju, félags framsóknarkvenna í Kópavogi, sem fór fram 27. janúar síðastliðinn sé ógiltur og sömuleiðis allar afgreiðslur fundarins, þar með taldar kosningar til trúnaðarstarfa. Gamla stjórnin skal boða til nýs aðalfundar svo fljótt sem auðið er og skulu inntökubeiðnir afgreiddar í upphafi aðalfundar. Laganefndin fjallaði ekki um ágreiningsefni að öðru leyti. Una María Óskarsdóttir, varaformaður Freyju, segir að Freyjurnar séu ánægðar með úrskurðinn því hann sýni að tekist hafi að afstýra valdaráni. "Í því fólust bein, opinber afskipti frá þingmanni úr öðru kjördæmi af flokksstarfi Freyjukvenna í Kópavogi. Slík afskipti hafa ekki viðgengist í okkar flokki og margir telja það alvarlegt mál og í rauninni siðlaust," segir hún. Una María telur þá niðurstöðu ekki koma málinu við að ekki hafi verið löglega að aðalfundi staðið. Meginniðurstaðan sé sú að tekist hafi að afstýra valdaráni. Laganefnd taki ekki afstöðu til annarra atriða enda líklegt að sú niðurstaða hefði orðið stjórninni í vil. Aðalheiður Sigursveinsdóttir, mágkona Árna Magnússonar félagsmálaráðherra, lætur á sér skilja að hún sé sátt við niðurstöðuna en segir hana óvenjulega, kærandinn sé kærður og á þar við að formaðurinn hafi sent kæruna til laganefndar. "Niðurstaðan er skýr. Laganefndin leggur ekki dóm á okkar starfshætti eða aðkomu að fundinum. Mér finnst það mjög jákvætt. Við hefðum auðvitað viljað að fundurinn væri löglegur og í því liggja viss vonbrigði," sagði hún. Aðalheiður bjóst við að reynt yrði að "ná lendingu" í þessu máli sem fyrst. Stjórnin kemur saman á næstunni og verður í framhaldi af því boðað til aðalfundar. Flokksþing Framsóknarflokksins verður 25. til 26. febrúar.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Sjá meira