Fleiri fréttir

Austurland skelfur

Jarðskjálfta varð vart á Austurlandi í gærkvöldi. Samkvæmt Veðurstofunni voru upptök hans um 200 kílómetra austan af landinu. Skjálftinn hafi minnst verið 5,2 á Richter.

Ekki heppilegt að rugga skipinu

Össur Skarphéðinsson segir Samfylkinguna á góðri siglingu og því ekki heppilegt að rugga skipinu með því að skipta um skipstjóra. Hann segir kosningabaráttuna mælikvarða á flokkinn en að sín barátta verði einungis háð á málefnalegum grunni. </font /></b />

Illa gengur með Dettifoss

Dettifoss lónar enn stjórnlaus með brotið stýrisblað um 23 sjómílur úti fyrir Reyðarfirði. Varðskipin Týr og Ægir hafa nú í á annan sólarhring barist við að draga skipið til hafnar en illa gengur.

Lög um hringamyndun lögð fram

Lög um hringamyndun verða lögð fram á Alþingi á næstu dögum að því er fram kemur í opnuviðtali við Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra í Morgunblaðinu í dag. Halldór segir að í lögunum felist endurskipulagning á Samkeppnisstofnun þannig að eftirlit með hringamyndun verði hert en jafnframt verði kveðið á um refsingar vegna brota á lögunum.

Vegurinn um Mýrdalssand lokaður

Þjóðvegurinn um Mýrdalssand er lokaður. Leysingavatn rauf skarð í veginn seint í nótt en miklar rigningar, hláka og rok hefur verið á þessum slóðum.

Fok á Akureyri

Töluverður erill var hjá lögreglunni á Akureyri í gær og í nótt vegna veðurs. Vindhraða sló upp í þrjátíu metra þegar mest var og þakplötur og þakskyggni fóru af stað.

Skerpt á lögum Samkeppnisstofnunar

Ríkisstjórnin ætlar ekki að setja sérstök lög um hringamyndun. Í staðinn verður skerpt á lögum um Samkeppnisstofnun og verður frumvarp þess efnis lagt fram á Alþingi á næstu dögum.

Umferð um veginn hleypt á

Bráðabirgðaviðgerð á þjóðveginum um Mýrdalssand er lokið og umferð hefur verið hleypt um veginn á ný. Hann lokaðist í morgun þegar leysingavatn rauf skarð í veginn. Hins vegar hefur umferð verið lokað um veginn við Ferjukot í Borgarfirði.

Siv segist ekki muna

Siv Friðleifssdóttir, fyrrverandi ráðherra, segist ekki muna hvort stuðningur Íslands við innrásina í Írak hafi verið ræddur á ríkisstjórnarfundi þann 18. mars árið 2003. Þetta kom fram í þættinum Silfur Egils á Stöð 2 í hádeginu í dag.

Skipin nálgast land

Varðskipin Týr og Ægir eru nú aftur lögð af stað með Dettifoss í togi eftir að hafa haldið sjó fyrir austan land í sólarhring vegna veðurs. Tæpir tveir sólarhringar eru liðnir frá því stýrisblað Dettifoss brotnaði í tvennt. Björgunaraðgerðir hafa gengið treglega enda hefur haugasjór og vonskuveður hamlað aðgerðum.

Þakplötur fuku og malbik fór af

Hvassviðri var víðast hvar um landið um helgina og loka þurfti veginum við Mýrdalssand sökum vatnavaxta aðfaranótt sunnudags. Á Akureyri fuku þakplötur af raðhúsalengjum og vörubifreið fauk út af veginum rétt norðan við bæinn.

Getur þjóðarsálin búið í buxum?

Getur þjóðarsálin búið í klakaboxi, á snaga eða í gallabuxum? Þessari spurningu er varpað fram á sýningu sem opnuð var á Þjóðminjasafninu fyrir helgi. Sýningin ber nafnið „Ómur - Landið og þjóðin í íslenskri hönnun“ og þar getur að líta verk 42 hönnuða sem valin voru í sex flokkum: snjórinn, sauðkindin, sjórinn, þjóðbúningurinn, hraunið og þjóðlegt.

Formennirnir viðurkenni mistök

Steingrímur Hermannson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, segist halda að Davíð Oddsson hafi einn tekið ákvörðun um að styðja innrásina í Írak. Hann hvetur stjórnarherrana til að tala opinskátt um málið, birta fundargerðir utanríkismálanefndar og viðurkenna að mistök hafi verið gerð.

Ekki lengur með hreinan skjöld

Steingrímur Hermannsson fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins telur það hafa verið við hæfi að jafn mikilvægt mál og stuðningur Íslands við innrásina í Írak hefði átt að vera tekið upp og rætt í ríkisstjórn. 

Tekið undir hugmyndir Georgs

"Ég fagna mjög sjónarmiðum Georgs um að íhuga leigu á skipi," segir Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður Frjálslynda flokksins. Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, sagði í viðtali við Fréttablaðið á laugardag að hagkvæmara væri að leigja nýtt varðskip í stað þess að kaupa það.

Flóðbylgja gæti náð til Grindavíku

Gjósi Katla af öllum mætti gæti flóðbylgja skollið á suðurströnd landsins. Þessi möguleiki er fjarlægur en engu að síður raunhæfur og út frá honum verður unnið þegar aðgerðir vegna hugsanlegs Kötlugoss verða ákveðnar.

Hagkvæmasti kosturinn valinn

Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra finnst sjálfsagt að skoða til hlítar möguleikann á að taka nýtt varðskip á leigu í stað þess að festa á því kaup.

Safnar sorpi í kjallaraíbúð

Rottugangur og flær hrjá nágranna konu við Hverfisgötu sem er aftur byrjuð að safna rusli í kjallaraíbúð sína eftir fimm ára hlé. Konan var borin út fyrir fimm árum vegna subbuskapar. Hún neitar að flytja úr húsinu eða bæta umgengina. Nágrannarnir geta hvergi leitað réttar síns. Þeir geta aðeins skorað á hana skriflega að bæta umgengnina. <b><font face="Helv" color="#000080" size="2"></font></b>

Hvorki kynja- né innanflokksátök

Páll Magnússon, varaþingmaður Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi, segist ekki hafa gert upp við sig hvort hann sækist eftir að leiða lista flokksins í næstu bæjarstjórnarkosningum í Kópavogi. Ýmsir innan flokksins telja að tilgangur hallarbyltingar í Freyju, félagi framsóknarkvenna í Kópavogi í liðinni viku, hafi verið að tryggja honum oddvitastöðu í bænum.

Dettifoss kominn á lygnan sjó

Búist var við því í gærkvöldi að varðskipin Týr og Ægir kæmu kæmi með flutningaskipið Dettifoss í togi til hafnar á Eskifirði í nótt. Þau voru stödd í mynni Reyðarfjarðar um klukkan sjö í gærkvöld. Stýrisblað skipsins brotnaði af um klukkan átta á föstudagskvöld þar sem það var statt austur af landinu á leið til Eskifjarðar frá Reykjavík.

40% neita líffæragjöf

Fjörutíu prósent aðstandenda látinna sem geta gefið líffæri neita slíkum beiðnum. Íslendingar gefa færri líffæri en aðrir Norðurlandabúar.

Pompei norðursins í Vestmannaeyjum

Pompei norðursins mun rísa í Vestmannaeyjum. Grafa á upp hús og aðrar minjar sem urðu undir í gosinu árið 1973 og setja á fót sýningarsvæði um liðna tíð. Menningarfulltrúi Vestmannaeyja segir verkefnið verða unnið í samstarfi við fyrrum íbúa húsanna.

Líkan til að finna kuml

Fornleifafræðingar hafa gert líkan til að finna út líklega staðsetningu heiðinna grafa. Miklar vonir eru bundnar við að það skili því að heil og óskemmd kuml komist í hendur fornleifafræðinga.

Íslenk stuttmynd um einelti

Einelti getur eyðilagt líf fólks til frambúðar, segir ungur aðalleikari nýrrar íslenskrar stuttmyndar um einelti og afleiðingar þess sem frumsýnd var í Laugarásbíói í dag.

250 þúsund til að rétta námið af

Grunnskólar Reykjanesbæjar fá hver um sig 250 þúsund króna styrk frá bæjaryfirvöldum. Styrkina á að nýta til að bæta nemendur 10. bekkja skólanna í stærðfræði og íslensku fyrir samræmd próf í vor.

Ótímabært að meta sérsamninginn

Algerlega ótímabært er fyrir samninganefndir kennara og sveitarfélaga að tjá sig um hvernig þeim lítist á sérkjarasamning í Sjálandsskóla fyrr en þeir hafi hann í höndunum, segir Ásdís Halla Bragadóttir bæjarstjóri í Garðabæ.

Garðabær getur ekki ákveðið launin

Sérsamningur við kennara í Sjálandsskóla, nýjum grunnskóla Garðabæjar, getur ekki orðið að veruleika nema launanefnd sveitarfélaga og Kennarasamband Íslands samþykki hann.

Ríkið á í 200 fyrirtækjum

Ríkið á eignarhlut í 206 fyrirtækjum. Ríkissjóður á 24 fyrirtæki. Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir að sameina eigi Byggðastofnun og Nýsköpunarsjóð. Sjóðirnir fjárfesti jafnvel í sömu fyrirtækjunum. </font /></b />

Staða formanns rædd

Stjórn Blaðamannafélags Íslands hefur verið boðuð til fundar á mánudag til að ræða stöðu mála eftir að formaður félagsins sagði upp starfi sínu á Stöð 2 eftir að fréttastofa stöðvarinnar dró til baka og baðst afsökunar á frétt hans. Róbert lýsti því yfir að hann hygðist áfram gegn formennsku í Blaðamannafélaginu.

Deilt um túlkun Halldórs á 1441

Stjórnarandstæðingar telja Halldór Ásgrímsson rangtúlka lykilályktun öryggisráðsins með því að segja að hún snúist um að velta Saddam. Aðstoðarmaður Halldórs segir orð hans mistúlkuð. </font /></b />

Hyggst semja á ný við kennara

Garðabær ætlar að sérsníða kjarasamning fyrir grunnskólakennara sem koma til með að vinna í Sjálandsskóla. Ásdís Halla Bragadóttir bæjarstjóri segir nýtt ákvæði í kjarasamningi Kennarasambandsins og sveitarfélaga gefa ráðrúm til breytinganna. Sérsamningurinn sé tilraun til að fara nýjar leiðir í kjaramálum starfsfólks Garðabæjar.

Víglína þvert yfir eldhúsborðið

Svilfólkið Össur Skarphéðinsson og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir háir sitt fyrsta einvígi í formannskosningu Samfylkingarinnar í kvöld á Akureyri. Mikill ótti er við átök í flokknum enda ekki aðeins fjölskyldur formannsefnanna sem er klofin. </font /></b />

Týr með Dettifoss í togi

Varðskipið Týr lónar nú um 18 sjómílur austur af Papey með bilaðan Dettifoss í togi og kemst hvorki lönd né strönd vegna veðurs. Stýrið í Dettifossi bilaði í gærkvöldi þegar skipið var statt út af Lóni, austan við Hornafjörð. Engin hætta var talin á ferðum þar sem skipið rak frá landi en óskað var eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar.

Fischer þjáist af áfengisskorti

Heilsa Bobby Fischers er sögð slæm þar sem hann situr í fangelsi útlendingaeftirlitsins í Japan. Nú segja japanskir fjölmiðlar að sjálfur telji hann eina megin ástæðuna þá að hann fái ekkert áfengt að drekka í haldi.

Skýli yfir rúllubaggastæður

Rúllubaggar eru sjónmengun og skemma ásýnd landsins - því ætti að styrkja bændur til að byggja skýli yfir rúllubaggastæður sínar. Þetta er skoðun formanns Samtaka sauðfjárbænda. Fréttamaður Stöðvar 2 heimsótti bónda sem þótti ekki mikið til hugmyndarinnar koma - en hann vandar sig við að raða böggunum og segir staflana búmannlega.

Flutningabíll fauk út af

Flutningabíll fauk út af vegi í Hörgárbyggð norðan við Akureyri um klukkan hálf átta í morgun. Ökumaður var fluttur á slysadeild. Að sögn lögreglu er oft og tíðum mikill vindstrengur á þessum slóðum. Þess má geta að hálka, hálkublettir og éljagangur er á fjallvegum landsins.

Handtekinn með fíkniefni

Lögreglan á Akranesi hafði afskipti af einum góðkunningja lögreglunnar í gærkvöld þar sem hann var á gangi í bænum. Maðurinn tók til fótanna þegar hann varð var við lögreglu en hún náði að hlaupa hann uppi og handsama. Þegar lögreglumenn handsömuðu manninn náði hann að kasta frá sér tveimur litlum bögglum sem reyndust innihalda fíkniefni.

Ræða atvinnumál á Stöðvarfirði

Byggðarráð Austurbyggðar hefur óskað eftir fundi með þingmönnum Norðausturkjördæmis til að ræða atvinnumál á Stöðvarfirði. Samherji íhugar að hætta allri landvinnslu á Stöðvarfirði sem myndi þýða að um 35 manns misstu vinnuna.

Össur og Ingibjörg takast á

Formannsframbjóðendur Samfylkingarinnar takast á á opnum fundi í dag í fyrsta sinn síðan formannsslagur flokksins hófst. Össur Skarphéðinssonm, formaður Samfylkingarinnar, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir varaformaður munu mætast á almennum, opnum stjórnmálafundi sem hefst á Akureyri klukkan hálffjögur.

Framsóknarkonur á rökstólum

Konur í Landssambandi framsóknarkvenna, með Siv Friðleifsdóttur, ritara Framsóknarflokksins, fremsta í flokki, sitja nú á fundi til að ræða meðal annars nýjustu hræringar innan flokksins.

Ægir kominn á staðinn

Varðskipið Týr lónar enn um 18 sjómílur austur af Papey með bilaðan Dettifoss í togi og kemst hvorki lönd né strönd vegna veðurs. Varðskipið Ægir er komið á vettvang en beðið er eftir að veðrinu sloti og aðstæður batni.

Kvöldverður sem hjálparstarf

Yfir hundrað íslensk veitingahús taka þátt í allsérstæðu verkefni þessa helgina til stuðnings fólki á hamfarasvæðunum í Asíu. Þeir veitingastaðir sem taka þátt gefa hlutdeild af hverjum greiddum reiningi í söfnunina. Fólk getur því slegið tvær flugur í einu höggi þessa helgi: farið út að borða og rétt fólki á hamfarasvæðunum hjálparhönd.

Leikskólakennarar samþykktu

Nýr kjarasamningur Félags leikskólakennara var samþykktur með allsherjaratkvæðagreiðslu í dag. Atkvæði greiddu 1.365; 880 sögðu „já“, eða 64,5%, en 443 sögðu „nei“, eða 32,5%. Auðir seðlar og ógildir voru 42, eða 3,0%. 1.491 var á kjörskrá og þátttaka því 91,5%.

Sjá næstu 50 fréttir