Fimmtungur með þunglyndiseinkenni 14. janúar 2005 00:01
Einn af hverjum fimm unglingum í 9. og 10. bekk hefur alvarleg þunglyndiseinkenni. Þetta sýnir ný íslensk rannsókn. Skilnaðarbörn og börn sem búa í dreifbýli hafa meiri þunglyndiseinkenni en önnur börn. Þunglyndi barna er sterkur fyrirboði þunglyndis á fullorðinsárum og ástæða virðist til að hafa áhyggjur því fimmtungur barna í 9. og 10. bekk hefur alvarlegri þunglyndiseinkenni samkvæmt nýrri rannsókn. Voru stúlkur oftar með einkenni en drengir og líklegra er að börn fái þunglyndiseinkenni sem eiga minna menntaða foreldra eða búa í dreifbýli. Guðrún Kristjánsdóttir, prófessor í hjúkrunarfræði, segir það geta haft með ýmsa þætti að gera, t.d. einangrun, atvinnuleysi og möguleikarnir kannski ekki jafn miklir fyrir ungt fólk. Þá eru skilnaðarbörn með meiri þunglyndiseinkenni. Börn einstæðra mæðra eru með marktækt hærri tíðni af þunglyndiseinkennum en þau sem eru með hæsta tíðni eru börn sem búa við flókið fyrirkomulag heima fyrir. Þetta er í samræmi við það sem sést erlendis að sögn Guðrúnar. Guðrún leggur til að skimað verði fyrir þunglyndiseinkennum barna í skólaheilsugæslu til að finna þessi börn og hjálpa þeim. Það er einmitt það sem verður gert í Grafarvogi, stærsta barnahverfi landsins. Þar tók til starfa í dag sérstakur meðferðarhópur sálfræðinga, félagsráðgjafa og hjúkrunarfræðinga til að vinna fyrirbyggjandi starf á þessu sviði og nálgast börnin, m.a. í skólum, áður en mál þeirra þróast á verri veg. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra segist vona að hægt verði að koma upp sambærilegri starfsemi á öðrum heilsugæslustöðvum landsins.
Fréttir Innlent Mest lesið Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Erlent „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ Innlent Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Innlent „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Innlent Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Innlent Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Erlent Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu Innlent Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Innlent „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Erlent Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis Erlent Fleiri fréttir Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Auglýsa forskráningu í skóla í Grindavík Segir ekkert náttúrulögmál að bílasalar þurfi að velta hækkunum út í verðlagið Þrjár hlutu heiðursverðlaun Fimm handteknir grunaðir um skipulagðan þjófnað Ráðherra situr fyrir svörum, gleðitíðindi og konan sem hafði aldrei heyrt um handbolta Seinka sýningum fyrir leikinn Óbirt svör og starfslokin tekin fyrir Tæplega þrjátíu prósent Tesla Y þurftu í endurskoðun Mikil andstaða við nýtt 160 herbergja hótel á Laugarvatni Á fjórða hundrað vilja á lista Sjálfstæðisflokks í Reykjavík Hótaði málþófi vegna veiða sem tengdasonurinn stundar Svona mun Suðurlandsbraut líta út Kannast ekki við tilraunir til að stofna nýtt Vélfag Ljósið flytur í Grafarvog Launin lækkuð um 97 prósent en ekki afnumin „Við eigum ekki að vera hrædd við að taka umræðuna“ Pallborðið: Aðstoðarmenn, bæjarstjóri og viðskiptafræðingur Viðreisnarfélögum fjölgað um helming fyrir prófkjör Afi fór ekki yfir strikið með meintri rassskellingu Guðjón endurkjörinn og Simon líka Mannabreytingar samráðsfunda eins og tiltekt á jólakortalista Óttast vaxtahækkanir vegna sleggjunnar sem stjórnvöld „fengu í trýnið“ Verðbólgan eykst en loðnan gleður Bein útsending: Opinn fundur um áfallaþol Íslands Sjá meira