Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íhuga að kæra vélhjólamann Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli, segir rétt að lögreglumaður undir hans stjórn hafi ekki kært vélhjólamann sem brákaði á honum nefið í handalögmálum sem urðu þegar maðurinn var handtekinn í desember síðastliðnum. "Ástæðan er að honum stóð stuggur af þessum mönnum," segir Jóhann. 21.10.2004 00:01
Skattbyrði eykst mest á Íslandi Skattbyrði á Íslandi hefur í valdatíð núverandi stjórnarflokka aukist margfalt meira en í nokkru öðru ríki Vesturlanda. Meðan skattbyrði í flestum iðnríkjum hefur verið að léttast hefur hún snarþyngst á Íslandi. 21.10.2004 00:01
Engin undanþága vegna fatlaðra Þroskaþjálfar starfandi við Nesskóla í Neskaupstað og Grunnskólann á Reyðarfirði fá ekki heimild til að aðstoða tvö fötluð börn í bæjarfélögunum, þar sem hætta er talin á að þeir gangi inn á verksvið kennara. 21.10.2004 00:01
Vill verslun á sama stað og Nóatún Matvöruverslunarfyrirtæki er nú að kanna hvort það geti fengið heimild til reksturs verslunar á sama svæði í Grafarholti og Nóatún rekur nú verslun. Júlíus Vífill Ingvarsson, lögfræðingur hjá lögmannstöfunni Lögvernd, segist ekki geta sagt hvaða fyrirtæki sé um að ræða. 21.10.2004 00:01
Ekki brot á jafnræðisreglu Að synja fyrirtæki um leyfi til að reka verslun á svæði þar sem Nóatún rekur verslun í Grafarholti er ekki brot á jafnræðisreglu að sögn Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, formanns skipulags- og bygginganefndar Reykjavíkur. 21.10.2004 00:01
Skaupinu sleppt Fjöldi Íslendinga kýs að verja áramótunum í útlöndum, fjarri áramótabrennum og skaupi, að ógleymdum ávörpum helstu höfðingja þjóðarinnar. Það er enda háttur sumra að vilja frið og ró fremur en skarkala eða slark, þó vissulega geti glaumur og gleði ríkt í öðrum löndum en á Íslandi. 21.10.2004 00:01
Búist við að þorskeldi margfaldist Framleidd voru sex þúsund tonn af eldisfiski í fyrra. Samkvæmt nýrri skýrslu um stöðu og framtíðaráform í íslensku fiskeldi er gert ráð fyrir að framleiðslan verði fimmtán þúsund tonn árið 2006. 21.10.2004 00:01
Beðið eftir strætó á klósettinu Vegfarendur í Reykjavík hafa eflaust sumir tekið eftir því að búið er að "innrétta" tvenn strætisvagnabiðskýli á sérstakan hátt. 21.10.2004 00:01
Eldvarnir til sveita í ólestri Ríflega 600 sláturlömb drápust í eldsvoða á bænum Knerri í vikunni. Brunamálastjóri segir að brunavarnir í sveitum séu ekki nógu góðar en slökkviliðsstjóri kveðst ekki hafa tök á að sinna lögbundnu eftirliti. 21.10.2004 00:01
Stjórnarskrárbundinn réttur Það er fráleitt að halda því fram að ákvörðun um að virða gildandi skipulagsskilmála í Grafarvogi valdi lóðarhöfum við Fossaleyni fjárhagslegu tjóni. Þetta segir í minnisblaði frá Jónasi Þór Þorvaldssyni, framkvæmdastjóra Stoða hf., sem er lóðarhafi í Spönginni. 21.10.2004 00:01
Heyið ofhitnaði Allt bendir til að svonefnd íkviknun hafi orðið í heyi í hlöðunni á Knerri. Að sögn Björns Karlssonar brunamálastjóra getur slíkt gerst í massa sem hefur mikið rúmmál en lítið flatarmál og súrefni kemst að. 21.10.2004 00:01
Borgin sker niður framlög Tónlistarskólar í Reykjavík horfa fram á mikinn rekstrarvanda auki Reykjavíkurborg ekki fjárframlög sín til þeirra að sögn Sigursveins Kr. Magnússonar, formanns Samtaka tónlistarskóla í Reykjavík. 21.10.2004 00:01
Kaup bújarða gagnleg þróun Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra segir enga ástæðu til að grípa til aðgerða vegna kaupa auðmanna á bújörðum og samþjöppun framleiðsluréttar. "Við megum ekkert gera til að stöðva þessa þróun sem er á margan hátt mjög gagnleg" sagði landbúnaðarráðherra í utandagskrárumræðum á Alþingi. 21.10.2004 00:01
Um 5 þúsund fyrirmæli frá Brussel Á þeim tíu árum sem liðin eru frá því að EES-samningurinn tók gildi hafa hátt á fimmta þúsund lög og reglugerðir Evrópusambandsins öðlast gildi á Íslandi. "Ólýðræðislegasti alþjóðasamningur sem um getur," segir Eiríkur Bergmann Einarsson, sérfræðingur í Evrópumálum. </font /></b /> 21.10.2004 00:01
Fimmtán hendur á loft Meiri- og minnihlutar í stjórnmálum koma sér sjaldnast saman um mál. Í atkvæðagreiðslum er vaninn að meirihluti felli flest sem frá minnihlutanum kemur og minnihlutinn segir oftast nei eða situr hjá þegar kosið er um tillögur meirihlutans. </font /></b /> 21.10.2004 00:01
Hvert er þjóðarblómið? Þjóðarblómið verður kynnt þjóðinni við hátíðlegt tækifæri í dag. Leit hefur staðið yfir frá því í vor og nú liggja niðurstöður fyrir. Bæði sérfræðingar og almenningur hafa látið sig málið varða og eftir ótal ábendingar stóð valið á milli sjö jurta; blágresis, blóðbergs, geldingahnapps, gleym-mér-ei, holtasóleyjar, hrafnafífu og lambagrass. 21.10.2004 00:01
Stofnun verður heimili Nafni Öldrunarstofnunar Akureyrarbæjar hefur verið breytt í Öldrunarheimili Akureyrar. Sérskipuð dómnefnd hefur kveðið upp úr með þetta að undangenginni nafnasamkeppni. 21.10.2004 00:01
Kristinn er okkar þingmaður Vestfirðingar eru ósáttir við ákvörðun þingflokks Framsóknarflokksins að útiloka Kristinn H. Gunnarsson úr þingnefndum. Þeir segja hann sinn þingmann, það sé stórmál að hann hafi verið gerður áhrifalaus. </font /></b /> 21.10.2004 00:01
Eru búnir að gefa skýrslu Mennirnir þrír, sem réðust á fréttastjóra DV í gær og gengu berserksgang á ritstjórn blaðsins, gáfu lögreglu skýrslu í dag. Fréttastjórinn kærði mennina í morgun. Á annan tug manna, sem urðu vitni að atburðunum, gefur skýrslu hjá lögreglu á morgun. 21.10.2004 00:01
Áfenisneysla Íslendinga eykst mest Áfengisneysla Íslendinga hefur aukist verulega umfram það sem gerst hefur annars staðar á Norðurlöndum, að því er fram kom í svari Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Marðar Árnasonar, þingmanns Samfylkingarinnar, á Alþingi í gær. 21.10.2004 00:01
Konur með Sirrý Mun fleiri karlar en konur vinna á íslenskum fjölmiðlum. Kvenstarfsmenn eru þó í miklum meirihluta í þættinum Fólk með Sirrý á Skjá einum. Sirrý segir engin sérstök karla- og kvennastörf á Skjánum. </font /></b /> 21.10.2004 00:01
Atlansskip unnu mál við ríkið Atlantsskip unnu í dag mál gegn ríkinu í Hæstarétti, en rétturinn segir að ríkinu hafi verið óheimilt að þrengja skilgreiningu um skipafélög sem mega annast sjóflutninga fyrir varnarliðið. 21.10.2004 00:01
Áttu von á deilum um varnarmál Framtíðarhópur Samfylkingarinnar bjóst við því að tekist yrði um tillögur vinnuhóps um varnarmál þegar áfangaskýrsla var kynnt á flokksstjórnarfundi um síðustu helgi. 21.10.2004 00:01
Spjöll unnin á leiðum Spjöll hafa verið unnin á leiðum í kirkjugarðinum í Keflavík. Spellvirkjar hafa velt við um það bil tuttugu legsteinum, rifið upp krossa og brotið skildi með nöfnum látinna í mél. Eins hafði ýmsu smálegu, eins og lugtum og öðru skrauti, verið dreift eins og hráviði um allan garð. 21.10.2004 00:01
Slitnaði upp úr viðræðum Upp úr viðræðum grunnskólakennara og sveitarfélaga slitnaði nú undir kvöld. Ríkissáttasemjari lagði fyrir deilendur í dag hugmynd að lausn sem ekki náðist sátt um. Hann hyggst ekki boða til nýs sáttafundar fyrr en eftir hálfan mánuð. 21.10.2004 00:01
Landeigendur unnu Ríkið beið ósigur í Hæstarétti í dag þegar staðfest var að land innan tiltekinna jarða í Árnessýslu teldust ekki til þjóðlendna, eins og ríkið krafðist. Landeigendur segja langri og erfiðri baráttu þar með lokið. Lögmaður landeigenda segir dóminn fela í sér skilaboð til ríkisins um að gæta hófs í kröfum sínum. 21.10.2004 00:01
Milljónir tonna af sandi fuku Það tekur náttúruna að minnsta kosti fimm ár að vinna upp þá landeyðingu sem varð í ofsarokinu í byrjun vikunnar, þegar milljónir tonna af sandi fuku yfir landið. Svörðurinn er nú sérstaklega viðkvæmur fyrir öðrum eins veðurofsa, og óskar landgræðslustjóri sér nú helst af öllu mikillar snjókomu til að vernda landið. 21.10.2004 00:01
Fækkar ef dregur úr karlmennsku Nauðgunum fækkar ef dregið er úr karlmennskudýrkun í samfélaginu. Þetta segir mannfræðingur sem leitar svara við því í meistararitgerð sinni af hverju karlmenn nauðga. Hún segir nauðganir algengar á Vesturlöndum, en fátíðar í menningarsamfélögum þar sem er jafnræði milli kynjanna. 21.10.2004 00:01
Þróunin góð segir Guðni Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra segir ekkert að því að fjársterkir menn kaupi upp jarðir og framleiðslu og að tugir jarða séu í eigu sömu manna. Þetta sé framfaraþróun sem styrki búin og sveitina. 21.10.2004 00:01
Fyrir Mannréttindadómstólinn Ólafur Björnsson, lögmaður jarðeigenda í Biskupstungum, segir þá fagna niðurstöðu Hæstaréttar þar sem eignarréttur þeirra yfir eigin jörðum sé staðfestur. Línur milli afréttar og jarða haldi þrátt fyrir að ríkið hafi gert kröfu um hluta af jörðum skjólstæðinga hans. 21.10.2004 00:01
Nauðsynlegt prófmál "Niðurstaða Hæstaréttar staðfesti eignarrétt landeigenda og ég óska þeim til hamingju með það," segir Geir H. Haarde, fjármálaráðherra. "Rétturinn tekur þó á hinn bóginn undir aðrar kröfur sem ríkið gerði." Hann segir að það hafi verið nauðsynlegt að reka málið alla leið í Hæstarétt til að fá skýra niðurstöðu um ákveðin grundvallaratriði sem kunna að hafa þýðingu í öðrum þjóðlendumálum. 21.10.2004 00:01
Deilan um landið á tímamótum Jarðeigendur í uppsveitum Biskupstungna halda jörðum sínum óskertum en afréttur sem þeir gerðu kröfu til verður að þjóðlendum samkvæmt dómi Hæstaréttar í gær. Ríkið gerði kröfu um hluta jarðanna. Með dómnum er staðfestur úrskurður óbyggðanefndar frá því árið 2000. Þetta er fyrsti dómur Hæstaréttar í þjóðlendumáli. 21.10.2004 00:01
Mengun 15 sinnum yfir viðmið Svifryk í andrúmslofti í Reykjavík fór fimmtán sinnum yfir viðmiðunarmörk á síðasta ári, oftar en nokkru sinni áður. Þetta kemur fram í skýrslu Umhverfisstofu Reykjavíkur. Talið er að aukin notkun bíla og breytt veðurfar í borginni hafi haft þessi áhrif. Svifryk mælist mest á þurrviðrisköflum að vetrarlagi þegar jörð er snjólaus. 21.10.2004 00:01
Lokatilraun til samninga brást Kennarasambandið vill semja sér við hvert sveitarfélag í næstu kjarasamninga. Fundum samninganefndanna verður ekki framhaldið næstu tvær vikurnar nema eitthvað nýtt komi fram. Sveitarfélögin segjast ekki munu óska eftir nýjum fundum. Allt er því strand í kennaradeilunni.</b /> 21.10.2004 00:01
Lögfræðingur skoðar rétt bæjarins Sveitarstjórnin í Súðavík hefur fengið lögfræðing til að meta hvort um verkfallsbrot yrði að ræða, eins og verkfallsstjórn kennara telur, fari dagvistun barna fram í íþróttahúsi bæjarins í verkfalli kennara. 21.10.2004 00:01
Skemmdir í kirkjugarði í Keflavík Skemmdir voru unnar í kirkjugarðinum við Aðalgötu í Keflavík í gær. Fimm krossar voru losaðir upp og 21 legsteini var velt við. Einn legsteinn var brotinn sem og nokkur luktarhús, blómaker og styttur. 21.10.2004 00:01
Gríðarlegt áfall að ekki samdist Fundarslitin í Karphúsinu eru gríðarlegt áfall, segir Stefán Jón Hafstein formaður fræðsluráðs Reykjavíkur. "Það sem gerist núna kallar á varfærin viðbrögð. Það má alls ekkert út af bregða," segir Stefán Jón. 21.10.2004 00:01
32. dagur verkfalls "Á jákvæðan hátt sendur fólk saman," segir Ólafur Loftsson formaður Kennarafélags Reykjavíkur. Kennarar hafi hreina samvisku því kröfur þeirra séu á engan hátt óréttmætar. 21.10.2004 00:01
Borgin mismunar börnum Reykjavíkurborg mismunar fötluðum börnum með því að greiða einungis úr neyð einhverfra barna í verkfalli kennara, segir Ingibjörg Gyða Guðrúnardóttir. 21.10.2004 00:01
Fjölda lamba og kinda bjargað Fjölmennu liði björgunarsveitarmanna tókst að bjarga tugum ef ekki hundruðum lamba og kinda, sem voru hætt komin í Eiðaþinghá á Fljótsdalshéraði í gær. Þegar björgunarmenn komu á vettvang við erfiðar aðstæður, voru margar kindur við það að örmagnast þar sem blautur snjór hafði sest í ullina og hálf forsið, þannig að kindurnar voru að sligast og örmagnast. 20.10.2004 00:01
Eitthvað að gerast Talið er að einhver hreyfing hafi komist á samningaviðræður kennara og sveitarfélaga á fimm klukkustunda samningafundi hjá Ríkissáttasemjara í gær og hefur hann boðað deilendur aftur á fund klukan eitt í dag. Menn verjast þó nánari fregna af fundinum, en í dag hefur verkfall kennara staðið í réttan mánuð. 20.10.2004 00:01
Verið að gera við brúnna Vegagerðarmenn eru nú byrjaðir að gera við brúnna yfir Núpsvötn austan við Kirkjubæjarklaustur, eftir að hluti af nýrri málmklæðningu á brúargólfinu flettist upp í veðurofsanum í gærmorgun. Þjóðvegi eitt var þá lokað á milli Skeiðarár og Lómagnúps og er hann það enn. Vegagerðarmenn gátu ekkert aðhafst í gær vegna veðurofsans. 20.10.2004 00:01
Logaði í heyi fram á kvöld Glæður loguðu í heyi að bænum Knerri á Snæfellsnesi alveg fram á kvöld í gærkvöldi, efitr að þar kviknaði í í fyrrakvöld með þeim afleiðingum að á milli 600 og 700 fjár drápust þegar fjárhúsin brunnu. Talið er að þetta sé eitthvert mesta búfjártjón hjá einum bónda í Íslandssögunni. 20.10.2004 00:01
10 milljarða hækkun lífeyris Lífeyrisskuldbindingar ríkisins hækka um 10 milljarða sé miðað við rúmlega 16 prósent hækkun dagvinnulauna kennara. Hækki laun kennara um 35 prósent á samningstímanum hækka lífeyrisskuldbindingar ríkisins um allt að 20 milljarða. 20.10.2004 00:01
Bílbeltanotkun ábótavant Bílbeltanotkun í hópbifreiðum og bílaleigubílum er verulega ábótavant að mati framkvæmdastjóra rannsóknarnefndar umferðarslysa. Hann segir nauðsynlegt að fara af stað með sérstaka herferð þar sem brýnt er fyrir fólki að nota bílbelti í hópbiffreiðum. Aðeins þrír þeirra 48 sem voru í rútunni sem valt nálægt Hvalfjarðargöngunum í gær notuðust við bílbelti. 20.10.2004 00:01