Eldvarnir til sveita í ólestri 21. október 2004 00:01
Eldsvoðinn ógurlegi á bænum Knerri á mánudagskvöldið olli miklum skaða, hvort tveggja á bústofni og dauðum hlutum. Eldvarnir til sveita eru víða í ólestri að mati brunamálastjóra sem hvetur bændur til að gera bragarbót. Eftirlit með brunavörnum er í molum því slökkviliðsstjórar hafa ekki tíma til að sinna því. Bæta þarf brunavarnir Eldsvoðinn á Knerri er talinn hafa komið upp í hlöðu býlisins og borist þaðan í fjárhús og tækjageymslu. Ábúendur urðu ekki eldsins varir fyrr en þeir sáu útihús sín í björtu báli þaðan sem þeir sátu í stofu sinni. Björn Karlsson brunamálastjóri segir að eldvarnir til sveita séu ekki nógu góðar enda eru hús oftar en ekki komin til ára sinna. Þar við bætist að oft taki langan tíma að uppgötva brunann ef útihús eru langt frá og yfirleitt tekur langan tíma fyrir slökkvilið að komast á staðinn. Þar með er ekki sagt að ekki sé hægt að bæta úr ástandinu á einhvern hátt. "Vel mætti hugsa sér að bændur yrðu aðstoðaðir við að koma sér upp einföldum viðvörunarbúnaði, til dæmis samtengdum reykskynjurum sem gera viðvart í íbúðarhúsi ef eitthvað gerist í útihúsum." Enginn slíkur búnaður var fyrir hendi í hlöðunni á Knerri. Brunamálastjóri telur að skynjararnir lengi viðvörunartíma umtalsvert sem skipt geti sköpum. "Með nokkur þúsund krónum geta bændur margfaldað öryggi sitt og bústofnsins," segir hann. Eftirlit í molum Opinber byggingarreglugerð segir til um hvernig húsakostur skuli gerður úr garði og eru landbúnaðarbyggingar þar ekki undanskildar. Þannig er kveðið á um að gripahús skulu vera sérstök brunahólf sem ekki kviknar í þótt eldar brenni næst því í allt að klukkustund. Sé um stórt gripahús að ræða, meira en 200 fermetrar, skal það aðskilið frá hlöðu með sérstökum eldvarnarvegg. Að sögn slökkviliðsstjórans í Snæfellsbæ, Jóns Þórs Lúðvíkssonar, voru engar slíkar ráðstafanir til staðar á Knerri. Björn brunamálastjóri segir þessar reglur hafa verið í gildi í mörg ár og því eigi flest bændabýli að hafa verið reist með hliðsjón af þeim. Byggingarfulltrúar eiga að ganga úr skugga um að nýbyggingar séu í samræmi við reglugerðir og slökkviliðsstjórar eiga að skoða húsakost að minnsta kosti á þriggja ára fresti. Björn viðurkennir hins vegar að allur gangur sé á því hvernig þessu eftirliti er sinnt. Jón Þór Lúðvíksson segist sjálfur eiga afar erfitt um vik og hið sama sé að segja um marga kollega hans. "Menn eru á fullu í annarri vinnu og hafa því ekki tíma til að sinna eftirliti," segir hann. Þvingunarúrræði eru til staðar ef lögbundnar úrbætur eru ekki gerðar, til dæmis dagssektir og jafnvel lokanir, en brunamálastjóri segir fátítt að þeim sé beitt því þau eru afar þung í vöfum og erfitt að koma þeim á. Augljóst er að eldsvoðinn á Knerri hefur hreyft við embættismönnum því að sögn Björns stefnir Brunamálastofnun á að fá Bændasamtök Íslands til liðs við sig til að vekja bændur til vitundar um nauðsyn eldvarna.
Fréttir Innlent Mest lesið Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Sendi vitlaust skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Innlent Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Erlent Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Erlent Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Innlent Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Innlent Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Innlent Ölvun og þjófnaðir Innlent Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Innlent Fleiri fréttir „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi vitlaust skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Skjálftahrina í Mýrdalsjökli „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Þurfa aftur að rannsaka mál tveggja barna á Múlaborg Sorglegt að vera einungis tala á blaði Konur í Framsókn sjá að sér Stjórnin treystir Margréti Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Skila af sér breyttri Reykjavíkurleið í febrúar Framsóknarmenn takast hart á að tjaldabaki Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Saka stjórnina um „óskhyggju, afneitun og ímyndaðan veruleika“ Grautfúl Kristrún og Vetrarhátíð hefst í kvöld Tíu tilkynnt um veikindi eftir að hafa borðað mat frá Vitatorgi Afturkalla endurvigtunarleyfi Brims vegna „stórfellds gáleysis“ Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Sjá meira