Fleiri fréttir

Besti vefurinn tilnefndur

Val á besta íslenska vefnum stendur þessa dagana yfir vegna Íslensku vefverðlaunanna sem veitt verða í fjórða sinn föstudaginn 29. október. Hægt er að tilnefna vefi til miðnættis annað kvöld á vef <strong><a href="http://www.vefsyn.is" target="_blank">Vefsýnar</a></strong>.

Einn látinn og annar á gjörgæslu

Pólskur karlmaður að nafni Lukas Zewicz Rafal Maciej lést þegar jeppabifreið fór út af þjóðvegi eitt við bæinn Brekku í Skagafirði skömmu fyrir klukkan hálf ellefu á sunnudagskvöldið.

Vænlegar tegundir til fiskeldis

Staða einstakra eldistegunda og þörf á rannsókna- og þróunarvinnu verður til umræðu á ráðstefnu sem haldin verður af Fiskeldishópi AVS og Landssambandi fiskeldisstöðva í Reykjavík á föstudaginn.

Útlendingar látnir í bílslysum

Það sem af er ári hafa fjórir útlendingar látist í umferðarslysum hér á landi, samkvæmt upplýsingum Umferðarstofu. Tveir í júlí og svo tveir í þessum mánuði.

Borgin þrýsti á ríkið

Listi Frjálslynda flokksins í Reykjavíkurborg mun á borgarstjórnarfundi á morgun leggja fram tillögu um að Reykjavíkurborg beiti sér fyrir þrýstingi á ríkisvaldið um að það komi að verkfallli grunnskólakennara.

Grafið undan samningum

Alþýðusamband Íslands segir nýja verðbólguspá greiningadeildar Landsbanka Íslands staðfesta enn að grafið sé undan forsendum kjarasamninga. Gert var ráð fyrir 2.5% verðbólgu á næsta ári í kjarasamningum, 3.5% í forsendum fjárlagafrumvarpsins og Landsbankinn spáir nú stöðugt 3-3.5% verðbólgu til 2007.

Vinna gengur vel í Eyjum

Björgunaraðgerðir í Vestmannaeyjum ganga vel að sögn Adolfs Þórssonar, formanns Björgunarsveitarinnar í Vestmannaeyjum. Búið er að festa þakplötur á þremur húsum í bænum ásamt því að björgunarsveitarmenn eru að fergja þakhlutana og festa sem fuku af IMEX-húsinu á þriðja tímanum í dag. Adolf segir veðrið hins vegar enn mjög slæmt.

Andvaraleysi gagnrýnt

Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri-grænna gagnrýndi íslensk stjórnvöld fyrir andvaraleysi í umræðum um heræfingar rússneska flotans hér við land á Alþingi í gær. Taldi hann vítavert að hálfur mánuður hefði liðið frá því að rússneskra skipa varð vart hér við land þar til íslensk stjórnvöld hafi leitað skýringa hjá Rússum.

Flug liggur enn niðri

Allt innanlandsflug Flugfélags Íslands liggur enn niðri og hefur ekkert verið flogið síðan fyrir hádegi. Ekki verður flogið til Egilsstaða eða Ísafjarðar í bráð en verið er að athuga hvort unnt reynist að fljúga til Akureyrar þegar kvölda tekur.

Einn lést og annar á gjörgæslu

Pólskur karlmaður á fertugsaldri beið bana og landi hans slasaðist alvarlega þegar jeppi sem þeir voru í valt skammt frá Varmahlíð í Skagafirði í gærkvöldi. Bíllinn var á sumardekkjum en fljúgandi hálka var á svæðinu. Fjórir voru í bílnum en enginn í bílbeltum.

Nefndarskipan gagnrýnd

Til hvassra orðaskipta kom á Alþingi í gær á milli fjármálaráðherra og þingmanna Samfylkingarinnar. Tilefnið var athugasemd Katrínar Júlíusdóttur, þingmanns flokksins um störf þingsins.

Þóttum ótraust og kröfuhörð þjóð

Bandaríkjastjórn vildi taka til athugunar að segja upp varnarsamningnum við Ísland og draga herlið sitt frá landinu í þorskastríðinu 1975 til 1976. Var það mat embættismanna í Washington að Íslendingar væru svo ótraustir og kröfuharðir bandamenn að vera kynni að Bandaríkin sættu sig ekki við fórnarkostnaðinn sem því fylgdi að halda þeim góðum.

Töluverðar skemmdir í óveðrinu

Töluverðar skemmdir urðu á bílum og húsum í miklu norðanbáli í Vestmannaeyjum í dag þar sem um tíma ríkti neyðarástand. Foráttuveður var einnig á Austfjörðum og er þar rafmagnslaust á stóru svæði. Á sjötta tímanum fundu björgunarsveitir tvo menn sem setið höfðu fastir á bíl sínum á Fagradal frá því í morgun.

10 þúsund minna í vasann

Skattprósentan á að lækka niður í um 35% í lok kjörtímabilsins eða svipað og hún var 1988 þegar staðgreiðslukerfið var tekið upp. Hins vegar hefur maður sem hafði 50 þúsund krónur á mánuði 1988 10 þúsund krónum minna eftir í vasanum nú en hann hefði haft ef skattkerfið hefði haldist óbreytt.

Hressir eftir að Vaidas dó

Jónas Ingi Ragnarson og Tomas Malakauskas virtust hressir og kátir og alls ekki áhyggjufullir, eftir að Vaidas Jucevicius lést í Kópavogi og þar til honum var komið fyrir í sjóinn við netagerðabryggjuna í Neskaupstað, að sögn vitna í aðalmeðferð Líkfundarmálsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Rússar tjá sig um æfingu

Í svari rússneska utanríkisráðuneytisins til íslenskra stjórnvalda kemur fram að æfingu rússneskra herskipa sem héldu sig skammt norðaustur af Íslandi hafi lokið síðasta föstudag og að í framhaldinu hafi skipin haldið á braut.

Hermönnum bjargað úr pytti

Fimm varnarliðsmönnum í skemmtiferð var bjargað skammt frá Kerlingafjöllum skömmu fyrir klukkan hálf sjö í gær þar sem þeir höfðu fest Ford 450 pikkupjeppabifreið sína í krapapytti.

Lög ekki til umræðu

Lög á kennaraverkfall eru ekki á borðum ríkisstjórnarinnar sem stendur, segir menntamálaráðherra, og telur sveitarfélögin hafa töluvert svigrúm til að leysa deiluna. Deilendur eru sammála um að lagasetning leysi ekki vandann. Þeir sátu árangurslausan sáttafund í dag en til nýs fundar hefur verið boðað á morgun.

Peningar í hjálparstarf

Í nýjustu Stiklum utanríkisráðuneytisins kemur fram að ríkisstjórnin hafi ákveðið að veita 5 milljónum króna til mannúðar-og uppbyggingarstarfs í ríkjunum sem verst hafa orðið úti af völdum fellibylja í Karabíska hafinu.

Vissi ekki af líkinu

Einn sakborninganna í líkfundarmálinu segist ekki hafa haft hugmynd um að lík væri vafið í teppi og geymt aftur í, í jeppa sem hann ók um 700 kílómetra leið austur á firði. Hinir sakborningarnir tveir staðhæfa að allir þrír hafi átt þátt í að koma líkinu fyrir í höfninni í Neskaupstað. Aðalmeðferð málsins hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Varnarhugmyndir gagnrýndar

Hugmyndir framtíðarhóps Samfylkingarinnar um varnarmál eru gagnrýndar bæði frá hægri og vinstri. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, varaformaður Samfylkingarinnar kynnti nýjar hugmyndir framtíðarhóps á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar um helgina. Óhætt er að segja að "umræðuplagg" hópsins í varnarmálum hafi vakið mesta athygli.

Lægstu símgjöldin hér á landi

Íslendingar borga minnst norrænu þjóðanna fyrir að tala í síma. Þetta kemur fram í viðamikilli skýrslu norrænu samkeppnisstofnananna sem kynnt var í dag. Höfundar skýrslunnar telja of mikla fákeppni á símamarkaði á Norðurlöndum og æskilegt að stefna að einum norrænum símamarkaði.

Þak fauk og bátur sökk

Vitlaust veður var í Vestmannaeyjum í gær og hlaust af talsvert tjón. Rýma þurfti nokkra vinnustaði í bænum eftir að hluti þaks á einu af húsum Ísfélags Vestmannaeyja hófst á loft og skall af miklum þunga á jörðina. Engan sakaði. </font /></b />

Dimmt og kalsalegt

Rafmagn fór af Höfn í Hornafirði um miðjan dag í gær og voru bæjarbúar án rafmagns fram undir kvöld. Bilun varð í báðum línunum sem bera rafmagnið inn í bæinn en orsakir þeirra eru ókunnar. </font /></b />

Hlunnfarin um hlunnindajarðir

Þjóðkirkjan vill að ríkið greiði henni þrjá milljarða króna í bætur fyrir prestssetur sem seld hafa verið á síðustu áratugum án þess að nokkuð hafi komið í staðinn. Ríkið vill hins vegar aðeins greiða 150 milljónir enda styðst það við aðra skilgreiningu á hvaða jarðir teljist til prestssetra. </font />

Sinnuleysi um varnir landsins

Rússnesku herskipin höfðu verið innan íslensku efnahagslögsögunnar í hálfan mánuð áður en krafist var skýringa frá yfirvöldum í Moskvu. Þetta töldu stjórnarandstæðingar bera vott um sinnuleysi ríkisstjórnarinnar um varnir landsins í umræðum um málið á Alþingi í dag. Ótti við kjarnorkuknúna, rússneska ryðdalla virtist þó ekki fylgja flokkslínum.

Höfuðborgarbúar flýja atvinnuleysi

Síðustu mánuði hafa fleiri flutt frá höfuðborgarsvæðinu en til þess. Prófessor í félagsfræði segir þessa þróun afar óvenjulega og telur að betra atvinnuástand á landsbyggðinni en í höfuðborginni sé líklegasta skýringin. </font /></b />

Vestfirðir eitt prófastsdæmi

Á kirkjuþingi í gær var lagt til að Barðastrandarprófastsdæmi og Ísafjarðarprófastsdæmi sameinist og heiti hins sameinaða prófastsdæmis verði Vestfjarðaprófastsdæmi.

Líflegt á kirkjuþingi

Líflegt var í Grensáskirkju á öðrum degi kirkjuþings í gær. Umræður spunnust um stöðu samningamála við ríkið eftir að kirkjumálaráðherra vék að prestssetrum í ræðu sinni á sunnudag. Bent var á var að vilja hafi skort til að ræða þessi mál af hálfu ráðamanna og því hafi verið erfitt að þoka þeim áfram.

Vetrardekkin viðruð

Annir voru á dekkjaverkstæðum í gær þar sem fjöldi ökumanna vildi losna af sumarbörðunum í fyrstu vetrarhálkunni sunnan heiða. Lausleg athugun Fréttablaðsins sýndi að nagladekkin væru á undanhaldi, heilsársdekk og grófmynstruð vetrardekk nytu æ meiri vinsælda.

Þaki haldið í skefjum

Þaki á einbýlishúsi á Höfn í Hornarfirði var haldið í skefjum með skurðgröfu í gær. Hávaðarok var í bænum, líkt og víða um land, og fylgdust björgunarsveitarmenn árvökulum augum með því sem hugsanlega gat tekist á loft.

Hundrað skip á sjó

Um eitt hundrað skip og bátar voru á sjó undir kvöld í gær samkvæmt upplýsingum frá tilkynningaskyldunni. Smærri bátar höfðu komið sér í land vegna veðursins en hinir stærri létu ekki vagg og veltu á sig fá og héldu fast við sinn keip. Skip voru víða að veiðum, á grynningu fyrir sunnan land, meðfram norðurströndinni og eins á Halamiðum.

Komst sjálfur heim

Bónda í Berufirði var saknað um skeið í gær og voru björgunarsveitir kallaðar út til leitar. Skilaði hann sér sjálfur heim, heill á húfi, áður en leit hófst af þunga. Maðurinn fór að líta eftir fé snemma í gær og skilaði sér ekki heim á tilsettum tíma.

Veturinn kom í gær

Vindur blés hressilega víða um land í gær og sums staðar var dágóð snjókoma. Nokkurt tjón hlaust af þegar hluti þaks feyktist af mjölgeymslu í Vestmannaeyjum, rafmagn fór af á Höfn í Hornafirði og snjóþyngsli öftruðu færð á Austfjörðum.

Málaferli gegn borginni

Oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn telur fráleitt að líta svo á að hömlur sem settar voru á uppbyggingu matvöruverslana í Grafarvogi gildi enn. Engum geti dottið í hug að þær hafi átt að gilda að eilífu. Verið er að undirbúa málaferli gegn Reykjavíkurborg vegna samninga um einokun Baugs á matvöruverslun í hverfinu. 

Öftust í forgangsröðinni

Sum börn innan veggja almennra grunnskóla eiga við mun alvarlegri fötlun að stríða en börnin í sérskólum, segir Halldór Gunnarsson formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar.

Einhverf börn á leið í skólann

Reykjavíkurborg hefur látið undirbúa nýjar umsóknir fyrir um tíu einhverf grunnskólabörn í borginni. Stefán Jón Hafstein formaður Fræðsluráðs Reykjavíkur segir að farið verði að kröfum kennara. Allir þeir 20 til 30 sem komi að kennslu barnanna verði kallaðir út og fái laun samkvæmt ráðningarsamningi.

Loka þurfti Oddsskarði

Vonskuveður var á austanverðu landinu í gær og voru björgunarsveitir á Egilsstöðum og Reyðarfirði kallaðar út til að aðstoða ökumenn bíla sem lent höfðu í vandræðum í Fagradal vegna ófærðar.

Olíuvinnsla hér við land?

Eftir því sem olíuverð hækkar og ófriður eykst á helstu olíuvinnslusvæðum veraldar leita menn nýrra olíuvinnslusvæða á norðurhveli. Ýmsar vísbendingar eru um olíu og gas á íslensku hafsvæði.

29. dagur verkfalls

Landsbankinn hefur hætt dagvistun barna starfsmanna í verkfalli kennara. Atli Atlason framkvæmdastjóri starfsmannasviðs segir að í byrjun verkfalls þegar staða foreldra hafi verið könnuð hafi verið talið að um 40 til 50 börn þyrftu gæslu.

Fasteignaskattstekjur aukast mikið

Tekjur sveitarfélaga af fasteignasköttum gætu aukist um meira en einn milljarð króna á næsta ári vegna hækkunar fasteignaverðs. Fasteignaskattar eru næststærsti tekjustofn sveitarfélaganna á eftir útsvarinu og skila þeim u.þ.b. 11 milljörðum króna á þessu ári í sveitarsjóðina. Þeir taka hins vegar mið af fasteignaverði.

Eiríkur útilokar lagasetningu

Ekki er í bígerð að setja lög á verkfall kennara, segir Eiríkur Jónsson formaður Kennarasambands Íslands: "Lagasetning er út úr myndinni. Ég treysti þeim heimildum sem ég hef."

Frammíköll, skvaldur og fliss

Geir H. Haarde fjármálaráðherra sakaði Samfylkinguna um málefnaskort þegar hann var gagnrýndur fyrir það í upphafi þingfundar að skipa einungis karlmenn í nýja framkvæmdanefnd um stofnanakerfi og rekstur verkefna ríkisins. 

Héraðslistinn fékk flest atkvæði

Héraðslistinn fékk flest atkvæði í sveitarstjórnarkosningunum í nýja sveitarfélaginu á Héraði í gær. Fékk listinn 417 atkvæði og fjóra menn kjörna. Framsóknarflokkurinn og Sjálfsstæðisflokkurinn fengu hvor þrjá menn kjörna og listi Áhugafólks um sveitarstjórnarmál einn mann. Alls nýttu 1410 atkvæðisrétt sinn en á kjörskrá voru ríflega 2100 manns.

Sjá næstu 50 fréttir