Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Slökkviliðsmenn styðja kennara Stjórn og fulltrúaráð Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna lýsir fullum stuðningi við kjarabaráttu kennara, sem landssambandið telur mikilvægt að leysist hið allra fyrsta, enda geti langvinnt verkfall haft mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér. 17.10.2004 00:01
Biskup: Kennaraverkfall óþolandi Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, var ómyrkur í máli þegar hann ræddi verkfall grunnskólakennara í setningarræðu sinni á kirkjuþingi. Sagði hann að samfélagið flokkaði börn sem afgangsstærð og að óþolandi væri að kennarar fyndu sig knúa til að beita verkfallsvopninu. 17.10.2004 00:01
Ávaxtablanda á þrjúþúsundkall Fjöldi Íslendinga kaupir tæpan líter af djúsi á þrjú þúsund krónur í þeirri von að grennast. Verkefnisstjóri næringarmála hjá lýðheilsustöð segir kúrinn ekki skila meiri árangri en tveir til þrír ávextir, fjölvítamíntafla og nokkur vatnsglös. 17.10.2004 00:01
Hætt eftir að Jón komst í málið Skömmu eftir að Jón Steinar Gunnlaugsson komst á snoðir um gerð sjónvarpsþáttar um prófessorsmálið svokallaða var hætt við gerð þáttarins. Dagskrárstjóri sjónvarps segir Jón Steinar ekki hafa komið nálægt þeirri ákvörðun. 17.10.2004 00:01
Héraðslistinn vann Héraðslistinn var sigurvegari sveitarstjórnarkosninganna í sameinuðu sveitarfélagi á Héraði í gær. Þá völdu kjósendur hinu nýja sveitarfélagi nafnið Fljótsdalshérað. Kjörsókn var heldur dræm í gær, eða 66,38%. Minnst var kjörsókn meðal íbúa Austur Héraðs þar sem 1600 afþeim 2100 sem voru á kjörskrá búa. 17.10.2004 00:01
Nýtt fiskasafn Til stendur að opna fiskasafn í Húsdýragarðinum og er sjó dælt í garðinn í því skyni. Nú stendur yfir kynning á deiliskipulagi sem felur í sér mikla stækkun á garðinum. Samkvæmt nýju deiluskipulagi sem nú er til kynningar verður garðurinn stækkaður umtalsvert og gert er ráð fyrir yfirbyggðum hluta sem gæti orðið allt að tíu þúsund fermetrar. 17.10.2004 00:01
Biskup mjög ósáttur Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, segir óþolandi að kennarar finni sig knúna til að beita verkfallsvopninu. Það sé brýnt að fundin verði leið til að tryggja kennurum viðunandi kjör. Börnin séu afgangsstærð í einu ríkasta samfélagi heims. 17.10.2004 00:01
Kirkjan í mál við ríkið? Kirkjan gæti þurft að höfða mál á hendur ríkinu vegna deilna um Prestsetur. Kirkjan sakar Landbúnaðarráðuneytið um að selja eignir kirkjunnar meðan samningum um þær sé ólokið. Dómsmálaráðherra segir að jarðir sem alþingi hafi samþykkt að selja séu í gíslingu. 17.10.2004 00:01
Einokun ekki aflétt Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans segir ekki standa til að aflétta skipulagskvöðum í Grafarvogi sem meina lóðareigendum í Fossaleyni að starfrækja matvöruverslun. Hún segir slíkar kvaðir ríkjandi alls staðar í borginni til að stýra skipulagi svo ekki skapist óreiða. 17.10.2004 00:01
Bróðurparturinn er lesblindur Bróðurpartur þeirra fimmtán þúsund manna sem ætla má að eigi við verulega lestrarörðugleika að etja hér á landi er lesblindur. Skýrslu um leiðir til að takast á við vandann hefur verið stungið ofan í skúffu. 17.10.2004 00:01
AVION hefur góð áhrif Nýi, íslenski flugrisinn, Avion Group, hefur jákvæð áhrif á rekstur Iceland Express, að sögn eigenda þess síðarnefnda. Iceland Express stefnir í að verða réttum megin við núllið í ár, eftir 30 milljóna króna tap í fyrra. Óformlegar viðræður standa enn yfir við flugfreyjur félagsins, sem sagt var upp störfum fyrir skemmstu. 17.10.2004 00:01
HVersdagslegir hlutir segja margt Hversdagslegir hlutir á borð við baunadós og ópalpakka geta sagt til um tíðarandann og þankaganginn í samfélaginu. Í Listasafni Reykjavíkur stendur nú yfir Grafísk hönnunarsaga á Íslandi. 17.10.2004 00:01
Fær hótanir vegna dóplista Breiðhyltingurinn Björn Sigurðsson sem birtir nöfn dópsala á netinu hefur fengið hótanir í gegnum síma og á netinu frá þeim sem eru andsnúnir listunum. Tengdadóttir hans hefur einnig fengið hótanir. 17.10.2004 00:01
Lög á verkfall eina leið ríkisins Ekki er hægt að leysa verkfall kennara með því að ríkið setji fé í jöfnunarsjóð sveitarfélaganna svo illa stæð sveitarfélög geti mætt launakröfum kennara því samkomulag hafi náðst um fjármál milli sveitarfélaga og ríkisins, segir Gunnar I. Birgisson, formaður bæjarráðs Kópavogs og menntamálanefndar Alþingis. 17.10.2004 00:01
28. dagur verkfalls Samninganefndir kennara og sveitarfélaganna hittast á fundi ríkissáttasemjara klukkan eitt í dag. Kennarar ætla að fjölmenna fyrir utan Karphúsið og sýna samninganefnd sinni samstöðu. 17.10.2004 00:01
Útilokar ekki málsókn gegn ríkinu Þjóðkirkjuna og ríkið greinir á um eignarréttarstöðu prestssetra. Kirkjumálaráðherra undrast að deilur séu um málið en biskup segist ekki útiloka málsókn ef í harðbakkann slær. 17.10.2004 00:01
Útilokar ekki málsókn gegn ríkinu Þjóðkirkjuna og ríkið greinir á um eignarréttarstöðu prestssetra. Kirkjumálaráðherra undrast að deilur séu um málið en biskup segist ekki útiloka málsókn ef í harðbakkann slær. 17.10.2004 00:01
Líklega í stjórn með D-lista Héraðslistinn fékk fjóra menn kjörna í sveitarstjórnarkosningum á Héraði á laugardag. Nafnið Fljótdalshérað var efst á lista yfir hugsanlegt nafn á sameinuðum sveitarfélögum Austur- og Norður Héraðs og Fellahrepps. 17.10.2004 00:01
Skoða lausn á námsmálum fatlaðra Borgarstjórn Reykjavíkur og bæjarstjórn Akureyrar ætla að skoða hvort grundvöllur sé til að leysa vanda fjölskyldna fatlaðra barna. Það er í kjölfar frétta um samninga Kópavogs við Kennarasamband Íslands sem leiddi til undanþágu fyrir 13 kennara einhverfra barna í Digranesskóla. 17.10.2004 00:01
Stöðumælagjöld greidd með gsm Á næstunni verður hægt að greiða stöðumælagjöld í Reykjavík með gsm-símum. Samningur Reykjavíkurborgar um þetta við félögin Góðar lausnir ehf. og Farsímagreiðslur ehf. verður undirritaður í dag. Árni Þór Sigurðsson, formaður samgöngunefndar Reykjavíkur, segir að það muni líða tvær til fjórar vikur frá undirritun samningsins þar til kerfið verði tekið í notkun. "Við vonum að þetta verði komið fyrir jólatraffíkina," segir Árni. 17.10.2004 00:01
Verðbólga verður rúm 6% Verðbólga verður rúm sex prósent í upphafi árs 2007 samkvæmt hagspá Landsbankans fyrir árin 2004 til 2010. Í spám fjármálaráðuneytisins er hins vegar gert ráð fyrir að verðbólga haldist á bilinu þrjú til 3,5 prósent fram til ársins 2007, en þá muni hún lækka í tvö prósent. 17.10.2004 00:01
Þrýstingi létt af ríkisstjórninni Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, skrifaði undir viljayfirlýsingu sambandsins, félagsmálaráðherra og fjármálaráðherra um áhersluatriði í samningaviðræðum ríkis og sveitarfélaga án þess að bera hana undir stjórn sambandsins eða fulltrúa sambandsins í svonefndri tekjustofnanefnd. Fjallar sú nefnd meðal annars um tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga. 17.10.2004 00:01
Segir herþoturnar óþarfar Framtíðarhópur Samfylkingarinnar undir forystu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur varaformanns skilaði af sér áfangaskýrslum á flokksstjórnarfundi á laugardag. Þar kemur meðal annars fram sú skoðun að Íslendingar eigi að taka við rekstri flugvallarins í Keflavík. 17.10.2004 00:01
Herþoturnar mikilvægar Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra og einn helsti talsmaður Sjálfstæðisflokksins í utanríkismálum, segir að pólitískt gildi varnarbúnaðar, eins og orrustuþotna, skipti verulegu máli við öryggisgæslu. 17.10.2004 00:01
Hléið varð til happs Betur fór en á horfðist þegar eldur kom upp í þjóðleikhúskjallaranum í gærkvöldi. Um 800 manns voru í þjóðleikhúsinu á tveimur leiksýningum en greiðlega gekk að rýma hússið. Það vildi til happs að hlé var á leiksýningunni þegar brunavarnakerfið fór í gang. 16.10.2004 00:01
Teknir fyrir að hafa í haldi dóp Lögreglan í Kópavogi handtók í gær tvo menn og gerði upptæk tæplega 400 grömm af kannabisefnum, e-töflum og amfetamíni í húsi í austurbæ Kópavogs. Þá fannst líka töluvert af landa í húsinu. Mönnunum var sleppt að loknum yfirheyrslum og telst málið upplýst. Einn ökumaður var tekinn í Kópavogi grunaður um ölvun við akstur, og annar í Keflavík. 16.10.2004 00:01
Hrefna heldur suður um höf Ingibjörg Helga heitir hrefna ein sem merkt var með gervihnattamerki í Faxaflóa í haust. Samkvæmt upplýsingum Hafrannsóknarstofnunar hefur hún nú haldið suður í höf, yfir þúsund sjómílna leið. Hrefnan Ingibjörg var merkt þann 14. september, en rúmri viku síðar synti hún hratt vestur að landgrunnsbrún og hélt sig þar í nokkra daga. 16.10.2004 00:01
Fljúgandi hálka á Holtavörðuheiði Fljúgandi hálka er efst á Holtavörðuheiði að sögn lögreglunnar í Borgarnesi. Hún biður fólk að fara varlega og hafa í huga að ísing á vegum geti verið lúmsk þannig að fólk átti sig ekki á hálkunni fyrr en í vandræði er komið. Lítill jeppi valt á tíunda tímanum, en farþegi og ökumaður sluppu án teljandi meiðsla. Að mati lögreglu skipti bílbeltanotkun þar sköpum. Nánast á sama tíma fór annar bíll út af veginum en þar urðu heldur ekki nein slys. 16.10.2004 00:01
Sjálfstæðismenn nota verkfallið Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, segir Sjálfstæðisflokkinn vera að notfæra sér verkfall grunnskólakennara til að ýta undir hugmyndir um einkavæðingu skólakerfisins. Það sé ástæða þess að flokkurinn þráast gegn því að ríkisstjórnin komi að lausn deilunnar. 16.10.2004 00:01
Greiða atkvæði um rannsóknir Vestmannaeyingar greiða atkvæði um það á næstunni hvort bæjarsjóður eigi að greiða fyrir rannsóknir vegna jarðganga milli lands og eyja. Samþykkt var í bæjarstjórn á fimmtudag að kanna vilja bæjarbúa vegna þessa en búist er við að rannsóknirnar muni kosta á bilinu fimmtíu til áttatíu milljónir króna. 16.10.2004 00:01
Þjóðleikhúsið rýmt eftir eld Rýma þurfti Þjóðleikhúsið í gærkvöld eftir að eldur kom upp í eldhúsi Þjóðleikhúskjallarans. Um átta hundruð manns voru í húsinu þegar brunavarnarkerfið fór í gang en svo vel vildi til að hlé var á leiksýningunum Edith Piaf og Svört mjólk. 16.10.2004 00:01
Eiga að hætta í aukaatriðum Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins segist hafa þungar áhyggjur af áhrifum verkfalls grunnskólakennara á fjölskyldurnar í landinu. Hann segir nausynlegt að deiluaðilar hætti að hugsa um aukaatriði og fari að snúa sér að því að leysa deiluna. 16.10.2004 00:01
Líklega öll farin Landhelgisgæslan telur allar líkur á að Rússaskipin sem voru austur fyrir landi séu farin. Gæslan er nú í könnunarflugi yfir staðinn. Á miðvikudag bárust þau skilaboð að skipin myndu verða á Þistilfjarðargrunni fram á sunnudag. 16.10.2004 00:01
Fimm ára afmæli Krafts Lífið er núna var yfirskrift fimm ára afmælishátíðar Krafts sem haldin var í miðborg Reykjavíkur í dag. Kraftur er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra. Félagsmenn hvöttu fólk til að fagna lífinu og minnast þess að átta þúsund Íslendingar sem greinst hafa með krabbamein eru á lífi á Íslandi í dag. 16.10.2004 00:01
Kjúklingabaunir valda bruna Eldur kom upp í eldhúsi kaffihússins Café Puccini við Vitastíg seinnipart laugardags. Kokkurinn hafði skilið eftir pott með kjúklingabaunum á heitri hellu á meðan hann brá sér frá í Bónus 16.10.2004 00:01
Feðgar týnast á Esjunni Neyðarlínunni barst símtal úr farsíma um fimmleytið í gær frá karlmanni sem var týndur ásamt sex ára syni sínum á Esjunni og báðu þeir um hjálp. 16.10.2004 00:01
Rússarnir farnir Landhelgisgæslan ályktar að rússnesku herskipin sem hafa verið við æfingar við strendur landsins séu farin en flogið var yfir svæðið í gærmorgun þar sem þau höfðu haldið sig og sást ekki lengur til skipanna. 16.10.2004 00:01
Tækjakostur sýndur fólki Í tilefni af 30 ára afmæli gjörgæslunnar við Hringbraut var boðið upp á opna dagskrá á Landspítalanum í gær. 16.10.2004 00:01
Tölur liggja fyrir upp úr 11 Sveitarstjórnarkosningar voru haldnar í nýja sveitarfélaginu á Héraði í dag. Ekki er von á fyrstu tölum fyrr en upp úr klukkan ellefu í kvöld. Kjörsókn í sveitarstjórnarkosningunum í nýja sameinaða sveitarfélaginu á Héraði fór rólega af stað, en tók þó við sér þegar líða tók á daginn. Ríflega 2100 manns eru á kjörskrá og geta þeir valið á milli fjögurra lista. 16.10.2004 00:01
Auðvelt að klúðra uppeldi hunda Ekki eru allir á eitt sáttir að banna eigi innflutning á Doberman og Rottweiler-hundum, en hundar þessarar tegundar ollu ótta í Seljahverfinu fyrir rúmri viku þegar þeir rifu í sig kött og veltu barnavagni með barni í. 16.10.2004 00:01
Mótmælir einkarétti verslana Bónus og Hagkaup hafa haft einkarétt á því í átta ár að versla með matvörur í Spönginni í Grafarvogi. Nóg er komið af einokunarverslun segir fyrrverandi borgarfulltrúi sem stefnir borginni fyrir hönd íbúa og fyrirtækis í grenndinni. 16.10.2004 00:01
Ólæsi er enn mikið á Íslandi Starfshópur á vegum menntamálaráðuneytisins komst að þeirri niðurstöðu fyrir tveimur árum að líklega ættu um fimmtán þúsund Íslendingar á fullorðinsaldri við umtalsverða lestrarörðugleika að stríða. Starfshópurinn lagði til hugmyndir um úrbætur en síðan þá hefur ekkert gerst þó svo að kostnaðurinn við úrlausn vandans sé ekki mikill. 16.10.2004 00:01
Geðheilbrigðisþjónusta í ólestri Sveinn Magnússon framkvæmdastjóri Geðhjálpar segir geðheilbrigðisþjónustu í fangelsum á Íslandi óviðunandi. Hann segir að stofnanir sem heyri undir ólík ráðuneyti verði að vinna saman og sníða lausnir sem henti þörfum fólks en ekki varpa því út á götu ef það á ekki heima á viðkomandi stofnunum. 16.10.2004 00:01
Umber ástandið í bili Íslensk stjórnvöld voru ekki með puttana í kaupum Landssímans á meirihluta bréfa í Skjá einum, segir Geir H. Haarde fjármálaráðherra. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segist umbera þetta um tíma þar sem Landssíminn verði seldur. 16.10.2004 00:01
Voru komnir óþægilega nálægt Æfingar rússneska flotans voru óþægilega nærri ströndum landsins, að mati íslenskra stjórnvalda. Því var beðið um upplýsingar frá rússneskum stjórnvöldum. Flotinn hefur lokið æfingum sínum og er farinn. Rússnesk stjórnvöld segjast ekki hafa ætlað að ógna öryggi landsins. Skipin hafa undanfarna daga verið á Þistilfjarðargrunni. 16.10.2004 00:01