Töluverðar skemmdir í óveðrinu 13. október 2005 14:48
Töluverðar skemmdir urðu á bílum og húsum í miklu norðanbáli í Vestmannaeyjum í dag þar sem um tíma ríkti neyðarástand. Foráttuveður var einnig á Austfjörðum og er þar rafmagnslaust á stóru svæði. Á sjötta tímanum fundu björgunarsveitir tvo menn sem setið höfðu fastir á bíl sínum á Fagradal frá því í morgun. Vetur konungur ætlar svo sannarlega ekki að leyfa okkur að gleyma því að fyrsti dagur vetrar er samkvæmt dagatali næsta laugardag. Í Vestmanneyjum fór meðalvindhraðinn mest upp í þrjátíu og tvo metra á sekúndu og urðu vindhviður svo snarpar að um tíma þurfti að lýsa yfir hreinu og kláru neyðarástandi. Þak ÍMEX-hússins svo að segja splundraðist og dreifðist brak um miðbæinn. Bílar skemmdust svo og önnur hús. Björgunarsveitarmenn höfðu í nógu að snúast í allan dag. Meðal annars unnu þeir við að festa þakplötur á ÍMEX-húsinu og tveimur öðrum. Þá þurfti einnig að festa klæðningar á nokkrum húsum sem tekið höfðu að losna. Á austanverðu landinu var ástandið ekkert skárra. Þar tala björgunarsveitarmenn víða um að veður sé glórulaust og alls ekki til að ferðast í. Sérstaklega erfiðar aðstæður hafa verið á Fagradal þar sem komu þurfti nokkrum ökumönnum til aðstoðar í dag. Á Egilsstöðum var ráðlegt að halda sig innandyra í dag, enda snjóbylur og skyggni afskaplega lítið. Á Akureyri hins vegar var snjór yfir bænum en fínt veður.
Fréttir Innlent Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira