Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Flugslys á Reykjavíkurflugvelli Tilkynning barst um að kviknað hefði í flugvél með tugi manns innanborðs í lendingu á Reykjavíkurflugvelli í dag. Allt fór þó vel að lokum því þetta var flugslysaæfing sem á sjötta hundrað manns tók þátt í. 25.9.2004 00:01
Ljósaperur gegn eiturlyfjanotkun Ljósaperur með blárri birtu eru notaðar á salernum skiptistöðva Strætós við Hlemm og í Mjóddinni í Reykjavík til að gera fíkniefnaneytendum erfiðara fyrir að sprauta sig. Perurnar hafa reynst vel en töluvert ber á því að þeim sé stolið. 25.9.2004 00:01
Stófelldar kerfisbreytingar Tillögur Reykjavíkurlistans um stórfelldar breytingar á stjórnkerfi borgarinnar eru nú til óformlegrar umfjöllunar meðal borgarfulltrúa. Þar er meðal annars lögð til sameining menningarmála og íþrótta- og tómstundamála. 25.9.2004 00:01
Kennarar harma ummæli þingmanns Ummæli Einars Odds Kristjánssonar, þingmanns Norð-vesturkjördæmis, í fjölmiðlum, þar sem hann sagði kennara brjóta niður stefnu þjóðarinnar með kjarabaráttu sinni, voru óheppileg að mati Kennarasambands Norðurlands vestra. 25.9.2004 00:01
Fangaflótti í Svíþjóð Tveir hættulegir fangar brutust út úr sænsku fangelsi í grennd við Stokkhólm í gærkvöldi með því að taka fangavörð í gíslingu og hóta að skera hann á háls, ef ekki yrði opnað fyrir þeim. Gríðarleg leit er nú gerð að föngunum og gíslinum en annar fanginn er morðingi og hinn stórtækur fíkniefnasmyglari. 24.9.2004 00:01
Amfetamínið 150 milljóna virði Smásöluandvirði amfetamínsins, sem lögreglan og tollgæslan hafa gert upptækt við rannsókn fíkniefnamálsins sem greint var frá í gær, hefði numið allt að 150 milljónum króna miðað við að efnið hafi komið óblandað til landsins. 24.9.2004 00:01
Meiri skemmdir en talið var Vatnsleiðslurnar til Vestmannaeyja eru meira skemmdar en talið var og eru þær í sundur á fjögurra metra kafla. Bráðabirgðaviðgerð á annarri þeirra hefst í dag en óljóst er hvenær hún kemst í gagnið. 24.9.2004 00:01
Hver og einn kennari verði metinn Engar vísbendingar eru um að deilendur í kennaradeilunni séu að undirbúa nýtt útspil til að liðka fyrir lausn deilunnar. Samband ungra sjálfstæðismanna telur að eðlilegra væri að kennarar tækju það skref í faglega átt í deilunni að hefja umræðu um mat á hæfni og dugnaði hvers og eins kennara. 24.9.2004 00:01
Kennarar flykkjast til útlanda Fjölmargir grunnskólakennarar eru nú staddir erlendis eða eru á leið utan á meðan verkfalli þeirra stendur. Engir samninganefndafundir verða haldnir fyrr en seint í næstu viku og því er auðvelt að skipuleggja slíkar ferðir. 24.9.2004 00:01
Nýr krani í Sundahöfn Jarl annar hefur störf í Sundahöfn eftir helgi en þessi arftaki Jarls hins fyrsta er hátt í sextíu metra hár hafnarkrani með hundrað og tíu tonna lyftigetu. Jarl annar er stærsti hafnarkrani landsins. Hann er þýsk smíði og kostaði rúmar 200 milljónir króna. 24.9.2004 00:01
Mikið hvassviðri í borginni Meira hvassviðri hefur orðið á höfuðborgarsvæðinu í morgun en reiknað var með og fauk vinnupallur við hús um koll í vesturborginni. Þá gripu lögreglumenn járnplötu á flugi við Klapparstíg og maður sem ætlaði að líta eftir þakinu á Lágafellsskóla fauk ofan af þakinu og var fluttur á Slysadeild. Hann mun ekki vera alvarlega slasaður. 24.9.2004 00:01
Útflutningur þrefaldaðist á árinu Fiskvinnslan virðist ekki hafa notið góðs nema af um það bil helmingi af stórauknum ýsuafla á síðasta fiskveiðiári því útflutningur á óunninni ýsu í gámum hátt í þrefaldaðist á fiskveiðiárinu. Hann jókst úr sex þúsund og fimm hundruð tonnum upp í sautján þúsund tonn. 24.9.2004 00:01
Framseldur frá Hollandi? Fíkniefnadeild lögreglunnar óskar að öllum líkindum eftir að Íslendingur, sem býr í Hollandi, verði framseldur í tengslum við rannsókn á fíkniefnasmyglinu sem greint var frá í gær. Það ræðst endanlega á fundi sem nú stendur yfir og fari svo verða fimm menn í gæsluvarðhaldi hér á landi vegna rannsóknarinnar. 24.9.2004 00:01
Valgerður samstarfsráðherra Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, tók í morgun við því hlutverki að vera samstarfsráðherra Norðurlandanna. Á ríkisstjórnarfundi í morgun var ákveðið að Valgerður myndi taka við þessu embætti sem Siv Friðleifsdóttir gegndi áður. 24.9.2004 00:01
Sjómenn halda öryggisviku Öryggisvika sjómanna hófst í gær, en hún er haldin í tengslum við alþjóða siglingadaginn sem verður haldinn hátíðlegur á morgun. 24.9.2004 00:01
12 umsóknir borist undanþágunefnd Það mun væntanlega skýrast þegar líður á daginn hvort, eða hvaða undanþágubeiðnir, svonefnd undanþágunefnd mun veita vegna kennaraverkfallsins en tólf umsóknir hafa borist. Engar vísbendingar eru um að deilendur séu að undirbúa nýtt útspil til að liðka fyrir lausn deilunnar. 24.9.2004 00:01
ÍÚ braut jafnréttislög Íslenska útvarpsfélagið og yfirmenn fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar brutu jafnréttislög þegar þeir ráku fjóra kvenfréttamenn fyrir rúmu ári, samkvæmt niðurstöðu Kærunefndar jafnréttismála. 24.9.2004 00:01
Níu af hverjum tíu í orlof Bróðurpartur nýbakaðra ferða nýtir réttindi sín </font /></b /> 24.9.2004 00:01
Skemmdir á leiðslum alvarlegar Í ljós hefur komið að skemmdir á leiðslunum tveimur sem flytja ferskt vatn til Vestmannaeyja eru alvarlegar og mun taka nokkurn tíma að gera við þær að fullu. 24.9.2004 00:01
Flugi flýtt vegna fellibylsins Áætlunarflugi Icelandair frá Orlando á morgun verður flýtt vegna fellibylsins Jeanne sem talinn er geta haft áhrif á flugumferð til og frá Orlando. Samkvæmt áætlun er brottför frá borginni klukkan sjö annað kvöld en fluginu hefur verið til klukkan tíu í fyrramálið að staðartíma, eða klukkan 14 að íslenskum tíma. 24.9.2004 00:01
Guðni forsætisráðherra Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra verður starfandi forsætisráðherra næstu daga vegna fjarveru Halldórs Ásgrímssonar og Davíðs Oddssonar. 24.9.2004 00:01
Halldór hittir Raffarin Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra hittir Jean-Paul Raffarin, forsætisráðherra Frakklands í París á mánudag. 24.9.2004 00:01
Ný fisktegund við Íslandsstrendur Ný fisktegund hefur fundist við Íslandsstrendur. Fiskurinn, sem nefndur hefur verið pétursfiskur á íslensku en heitir <em>zeus faber</em> á latnesku, kom í veiðarfæri Helgu RE á þriðjudaginn á hafsvæðinu út af Sandgerði. 24.9.2004 00:01
Engar undanþágur veittar Engar undanþágur verða veittar vegna kennaraverkfallsins en svonefnd undanþágunefnd fór yfir umsóknirnar á fundi sínum í dag. Þrettán umsóknir bárust en að sögn Þórörnu Jónasdóttur, fulltrúa kennara í nefndinni, voru ekki allar umsóknir fullnægjandi. Hinum var hafnað. 24.9.2004 00:01
Vilja umboðsmann neytenda Jóhannes Gunnarsson lagði áherslu á stofnun embættis umboðsmanns neytenda í ræðu sinni á þingi Neytendasamtakanna í gær. Jafnframt flutti erindi Hagen Jörgensen umboðsmaður neytenda í Danmörku. 24.9.2004 00:01
120 lögmenn styðja Jón Steinar Um hundrað og tuttugu starfandi lögmenn hafa skrifað nafn sitt á undirskriftalista til stuðnings Jóni Steinari Gunnlaugssyni í embætti Hæstaréttardómara. 24.9.2004 00:01
Orðalagið rýrir gildi samninganna Samninganefnd kennara segir loðið orðalag hafa rýrt gildi samninganna sem gerðir voru við sveitarfélögin árið 2001. Meðal kennara heyrast þær raddir að tími sé kominn til að skipta út nefndarmönnum. 24.9.2004 00:01
Öllum undanþágubeiðnum hafnað Öllum undanþágubeiðnum um að kenna fötluðum börnum á meðan á verkfalli grunnskólakennara stendur hefur verið hafnað. Búast má við neyðarástandi á heimilum margra barnanna. Tveir fulltrúar eiga sæti í nefndinni sem fjallaði um beiðnirnar og greindi þá á um niðurstöður þeirra allra. 24.9.2004 00:01
Þjóðfélagið fer á annan endann Formaður menntamálanefndar Alþingis óttast að þjóðfélagið fari á annan endann, verði kennaraverkfallið langvinnt. Hann telur að verðbólga aukist og kaupmáttur hrapi, verði deilan ekki leyst í bráð. Félagsmálaráðherra vill ekki að ríkið komi að deilunni. 24.9.2004 00:01
Vill breytingar á starfseminni Nota verður tækifærið sem umræður um umbætur á starfsemi Sameinuðu þjóðanna gefa til að tryggja að öryggisráðið verði skilvirkara og endurspegli betur aðildarríki Sameinuðu þjóðanna, sagði Geir H. Haarde, starfandi utanríkisráðherra, þegar hann ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. 24.9.2004 00:01
Ísland í hættu vegna listans? Talið er líklegt að írakskir öfgahópar og mannræningjar viti að Ísland er á lista hinna viljugu þjóða í Íraksstríðinu. Þessi listi er víða orðinn mikið viðkvæmnismál og hefur ríkisstjórn Kosta Ríka farið fram á að landið verði fjarlægt af honum. Þá hefur listinn verið tekinn af heimasíðu Hvíta hússins. 24.9.2004 00:01
Ráðherra beitir sér ekki Félagsmálaráðherra segist ekki að ætla að beita sér fyrir því að launþegar á almennum vinnumarkaði öðlist rétt til sumarleyfis á launum í fæðingarorlofi eins og ríkisstarfsmenn. Hann segir Fæðingarorlofssjóð ekki geta staðið undir slíkum skuldbindingum. 24.9.2004 00:01
Vatnið streymir til Eyja Ferskt vatn tók að streyma til Vestmannaeyja á ný í kvöld þegar lokið var við bráðabirgðaviðgerð á annarri af tveimur vatnsleiðslum sem grafnar voru í sundur. 24.9.2004 00:01
Ráðherra harðorður um Hæstarétt Björn Bjarnason dómsmálaráðherra sagði Hæstarétt hafa gert nokkur afdrifarík mistök í dómum sínum sem hefðu neytt stjórnvöld til að bregðast við með lagasetningu. Harkalegri viðbrögð en búast mátti við segir Atli Gíslason hæstaréttarlögmaður og varaþingmaður Vinstri-grænna.</font /></b /> 24.9.2004 00:01
69% læra erlent tungumál Um 69 prósent framhaldsskólanema stunduðu nám í einhverju erlendu tungumáli skólaárið 2002 til 2003 samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Tæplega 73 prósent stúlkna stunduðu nám í erlendu tungumáli samanborið við tæplega 65 prósent drengja. 24.9.2004 00:01
Óska eftir 2.500 sjálfboðaliðum Landssöfnunin "Göngum til góðs" hefst laugardaginn 2. október. Þá munu íþróttamenn fara í tveggja tíma göngu í hús með söfnunarbauka milli klukkan 11 og 13 og safna peningum til handa börnum á stríðssvæðum. 24.9.2004 00:01
Farið fram á framsal Lögreglan hefur farið fram á það við hollensk yfirvöld að Íslendingur sem tengist umfangsmiklu fíkniefnamáli verði framseldur til landsins. Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík, segir ekki enn ljóst hvort orðið verði við beiðninni. 24.9.2004 00:01
Yfirlýsing samin í tölvu Jóns Yfirlýsing þar sem gagnrýnd er umsögn meirihluta Hæstaréttar um Jón Steinar Gunnlaugsson, sem er einn umsækjanda um stöðu hæstaréttardómara, var samin í tölvu Jóns Steinars sjálfs. Þetta kom fram í fréttum Sjónvarps í gær. 24.9.2004 00:01
Ómanneskjuleg afstaða kennara Engar undanþágur hafa verið veittar í yfirstandandi kennaraverkfalli. Í gær hafnaði fulltrúi kennara í undanþágunefnd að veita undanþágu vegna kennslu fatlaðra barna en fulltrúi sveitarfélaga vildi veita undanþágu. Alls tók nefndin afstöðu til fimm beiðna og hafnaði þeim öllum. 24.9.2004 00:01
Siv í varaformaður efnahagsnefndar Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins mun Siv Friðleifsdóttir, fráfarandi umhverfisráðherra, taka við embætti varaformanns efnahags- og viðskiptanefndar þegar þing kemur saman á ný eftir næstu mánaðamót. Gengið verður frá skipan þingmanna í þingnefndir á þingflokksfundi Framsóknarflokksins á þriðjudag. 24.9.2004 00:01
Ástæðulausar áhyggjur "Erlent vinnuafl sem kemur til sérhæfðra starfa við Kárahnjúka truflar íslenskt atvinnuumhverfi ekki neitt að mínu mati. Það er ástæðulaust að hafa áhyggjur af því," sagði Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, á ársfundi Vinnumálastofnunar í gær. 24.9.2004 00:01
Fundur að hefjast Samninganefndir í kennaradeilunni eru þessa stundina að mæta á samningafund hjá Ríkissáttasemjara, eftir að hann frestaði frekari fundarhöldum á sunnudag, þar sem himinn og haf skildu deilendur að. 23.9.2004 00:01
Vatnslaust í Eyjum á næstunni? Báðar ferskvatnsleiðslurnar ofan af landi til Vestmannaeyja rofnuðu í gær og gæti orðið vatnsskortur í Eyjum eftir nokkra daga. Grunur leikur á að grafa á dýpkunarpramma, sem verið hefur við vinnu við innsiglinguna til Eyja að undanförnu, hafi rofið leiðsluna. 23.9.2004 00:01
6 handteknir vegna LSD máls 6 manns haf verið handteknir og þar af 4 úrskurðaðir í gærluvarðhald í kjölfar þess að stór sending af ofskynjunarlyfinu LSD fannst í póstsendingu til Vestmannaeyja nýverið og reyndist vera angi af einhverju stærsta fíkniefnamáli sem upp hefur komið hér á landi til þessa. 23.9.2004 00:01
Háspennustrengur slitnaði Minnstu munaði að stjórtjón yrði í eggjaklakstöð á Eyrarbakka í gærkvöldi, eftir að grafa sleit háspennustreng frá Selfossi til Eyrarbakka og Stokkseyrar og rafmagn fór af. Það var um klukkan sex og komst rafmagn ekki aftur á fyrr en eftir miðnætti. Klakstarfssemin byggir á stöðugu rafmagni til að klakið heppnist, en rafmagnsleysið viðrist ekki hafa haft alvarlegar afleiðingar. 23.9.2004 00:01