Innlent

Farið fram á framsal

Lögreglan hefur farið fram á það við hollensk yfirvöld að Íslendingur sem tengist umfangsmiklu fíkniefnamáli verði framseldur til landsins. Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík, segir ekki enn ljóst hvort orðið verði við beiðninni. Maðurinn var handtekinn í Hollandi á föstudaginn fyrir rúmri viku. Á mánudaginn var annar Íslendingur handtekinn í Hollandi en hann var með mikið magn fíkniefna heima hjá sér. Ekki liggur fyrir hvort lögreglan muni fara fram á framsal hans en hún er að skoða hver þáttur hans er í málinu. Upphaf málsins má rekja til þess þegar þrjú kíló af amfetamíni og nokkuð af kókaíni fannst í vörusendingu í Dettifossi í mars. Í framhaldinu fannst mikið magn af amfetamíni í vörusendingu í skipinu í júlí. Heimildir blaðsins herma að það hafi verið um átta kíló.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×