Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Næsti fundur eftir viku Samningafundi kennara við fulltrúa sveitarfélaganna, sem hófst hjá Ríkissáttasemjara klukkan níu í morgun var slitið á tólfta tímanum, án þess að árangur hafi náðst. Nýr fundur hefur ekki verið boðaður fyrr en eftir viku, segir Ásmundur Stefánsson, ríkissáttasemjari, sem ekki vill fjölyrða um ástæðuna. 23.9.2004 00:01
Mismunun segir Halldór Grönvald Fólk sem ekki vinnur hjá ríkinu á ekki rétt á orlofsgreiðslum í fæðingarorlofi, samkvæmt dómi héraðsdóms í morgun. Aðstoðarframkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands segir fæðingarorlof því styttra en lög kveða á um og að fólki á vinnumarkaði sé mismunað. 23.9.2004 00:01
Skógarstígur fyrir hjólastóla Um síðustu helgi voru opnaðir skógarstígar í Haukadalsskógi sem sérstaklega eru gerðir með aðgengi hreyfihamlaðra í huga. Hreinn Óskarsson, skógarvörður á Suðurlandi og Svanur Ingvarsson, formaður Sjálfsbjargar á Suðurlandi, helstu hvatamenn þess að stígarnir yrðu til, opnuðu nýja stíginn með viðhöfn. 23.9.2004 00:01
Aukinn kraftur í söfnunina Í apríl hófst söfnunin "Þitt framlag skiptir máli" þar sem Krabbameinsfélag Íslands og KB banki sameinast um söfnun velunnara fyrir Krabbameinsfélagið. Auk þess að skrá sig í bankanum getur fólk nú hringt í Krabbameinsfélagið í síma 540 1900 og skráð sig sem velunnara. 23.9.2004 00:01
Athugasemdir nær alls staðar Skoðun Löggildingarstofu hefur leitt í ljós að raflögnum og rafbúnaði í íslenskum gisti- og veitingahúsum er víða ábótavant. Rafmagnsöryggisdeild Löggildingarstofu hefur síðustu tvö ár látið skoða raflagnir á þriðja hundrað gisti- og veitingahúsa víðsvegar um landið. 23.9.2004 00:01
Fjallað um undanþágur Nefnd á vegum kennara og sveitarfélaga fjallar nú um tug umsókna um undanþágu frá verkfallinu. Þetta er í fyrsta skipti sem nefndin kemur saman frá því verkfall hófst. Meðal þeirra sem sótt hafa um undanþágu er Barna og Unglingageðdeild Landspítalans, en stöðvun á kennslu er talin geta haft alvarlegar afleiðingar fyrir heilsu barna sem stríða við geðsjúkdóma. 23.9.2004 00:01
Hærri laun fyrir kennara segja VG Stjórn Vinstri-grænna í Kópavogi hvetur til þjóðarsáttar um kjarabætur til handa kennurum. Flokksfélagið harmar að til verkfalls hafi komið og skorar á deiluaðila að komast að samkomulagi hið allra fyrsta. Hún segir kjör kennara til skammar í okkar þjóðfélagi á sama tíma og sífellt meiri ábyrgð er velt yfir á stéttina. 23.9.2004 00:01
Enginn samningur Farmanna- og fiskimannasamband Íslands og Félag skipstjórnarmanna segja fullkomlega ósatt að samningur eða samningsdrög liggi fyrir á milli áhafnarinnar á Sólbaki EA og Guðmundar Kristjánssonar útgerðarmanns. Í yfirlýsingu frá félögunum segir að Jóhannes Gunnarsson skipstjóri hafi í tvígang haldið slíku fram. 23.9.2004 00:01
Börn Sri og frændsystkin styrkt Velferðarsjóður barna styrkti börn Sri Rahmawati og frændsystkin þeirra með myndarlegu framlagi í gær. 23.9.2004 00:01
Dýrt veggfóður til Umhyggju Eitt dýrasta veggfóður Íslandssögunnar var plokkað af veggjum Þingholtsstrætis 3 á dögunum. Veggfóðrið samanstóð af 528 ekta þúsund króna seðlum. Það voru forsvarsmenn Umhyggju, félag til stuðnings langveikum börnum, sem náðu veggfóðrinu niður með forsvarsmönnum Eikar fasteignafélags hf. 23.9.2004 00:01
Fylgst með "orkufólki" Landlæknir hyggst kalla tengilið "orkufólksins" svokallaða hér á landi fyrir. 23.9.2004 00:01
KEA selur í Kaldbaki Stjórn KEA hefur samþykkt að selja allan hlut félagsins í Kaldbaki hf., að nafnverði 474 milljónir króna á genginu 7,90 eða fyrir rúma 3,7 milljarða króna. Þá keypti KEA í Samherja fyrir 166 milljónir króna að nafnverði eða fyrir rúma 2 milljarða. 23.9.2004 00:01
Samfylking tekur undir með ASÍ Þingflokkur Samfylkingarinnar tekur undir gagnrýni ASÍ á Brim vegna kjarasamningsins á Sólbaki EA, en þar virðist eitt skilyrðið vera að sjómenn séu ekki í stéttarfélagi. Í ályktun sem þingflokkurinn sendi frá sér í dag er minnt á að Brim sé aðili að LÍÚ, sem nú eigi í samningaviðræðum við samtök sjómanna. 23.9.2004 00:01
Framsóknarkonur í hringferð Núna klukkan fjögur hófst mikil framsóknarkvennareið, þegar þær lögðu upp í hringferð um landið undir yfirskriftinni "Konur til áhrifa." Ferðin hófst við stjórnarráðið og fara þær um á vandlega merktum fjallabíl. Fyrsti viðkomustaður þeirra verður Akranes, en þær verða með fundi í Framsóknarhúsinu klukkan átta í kvöld. 23.9.2004 00:01
Fasteignalán til jarðakaupa Fasteignalán bankanna hafa hleypt nýju lífi í viðskipti með bújarðir á landsbyggðinni að sögn Jóns Hólms Stefánssonar, fasteignasala hjá Hóli. 23.9.2004 00:01
Hasskötturinn og sköpunargáfan Á morgun hefst Evrópukeppni ungra vísindamanna á Írlandi og stendur til 30. september. Tvö íslensk verkefni taka þátt í keppninni, annars vegar verkefnið "Hasskötturinn" og hins vegar verkefni um "Áhrif umhverfis á sköpunargáfu". 23.9.2004 00:01
Tryggingastofnun sýknuð Tryggingastofnun ríkisins var sýknuð í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur af kröfum Alþýðusambands Íslands um viðurkenningu á rétti foreldra í fæðingarorlofi til orlofslauna úr Fæðingarorlofssjóði á þeim tíma sem þeir eru í fæðingarorlofi. 23.9.2004 00:01
6 í haldi vegna fíkniefnasmygls 6 Íslendingar á fertugsaldri eru í haldi lögreglu í tengslum við rannsókn eins allra stærsta fíkniefnamáls sem komið hefur upp hér á landi til þessa. 23.9.2004 00:01
Stærsti hafnarkraninn í notkun Jarl annar hefur störf í Sundahöfn eftir helgi, en þessi arftaki Jarls hins fyrsta er hátt í sextíu metra hár hafnarkrani með 110 tonna lyftigetu. Jarl annar sem er stærsti hafnarkrani landsins er þýsk smíði sem kostaði rúmar 200 milljónir króna. 23.9.2004 00:01
Davíð mun skera Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar segist sannfærður um að Davíð Oddsson, nýskipaður utanríkisráðherra muni bregða niðurskurðarhnífi á loft í utanríkisráðuneytinu. 23.9.2004 00:01
Nýr formaður umhverfisnefndar Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður verður næsti formaður umhverfisnefndar og leysir nýskipaðan umhverfisráðherra, Sigríði Önnu Þórðardóttur, af hólmi. 23.9.2004 00:01
Undanþágum enn hafnað Undanþágunefnd vegna kennaraverkfallsins hefur hafnað einni beiðni um undanþágu. Afgreiðslu ellefu beiðna til viðbótar var frestað þangað til í fyrramálið. Að sögn Sigðurðar Óla Kolbeinssonar, sem sæti á í nefndinni, snéri beiðnin, sem hafnað var, ekki að fötluðum nemendum 23.9.2004 00:01
Þriggja og hálfs árs fangelsi Hæstiréttur dæmdi fyrir stundu karlmann í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot, frelsissviptingu, eignaspjöll og fleira. Maðurinn var sekur um að nauðga fyrrverandi sambýliskonu sinni og halda henni nauðugri í íbúð hennar. Þar olli hann einnig miklum skemmdum og stal ýmsu. Maðurinn á langan sakaferil að baki. 23.9.2004 00:01
Tæknival sýknað Hæstiréttur sýknaði í dag Tæknival af bótakröfum Bjarna Ákasonar fyrrverandi framkvæmdastjóra félagsins. Bjarni hafði látið viðskiptabanka fyrirtækisins fá hutabréf sín í fyrirtækinu að veði fyrir láni fyrirtækisins og vildi hann fá þóknun fyrir. 23.9.2004 00:01
Flugvél í sjó á Akureyri Tveggja sæta Cessna-vél hlekktist á á Akureyrarflugvelli í morgun og lenti úti í sjó. Einn maður var um borð og slapp hann lítið meiddur. Vélin var í flugtaki til norðurs en eftir að hafa lyfst aðeins af flugbrautinni skall hún niður aftur og fór yfir öryggissvæði við enda brautarinnar og hafnaði í fjöruborðinu. 23.9.2004 00:01
Kennt í grunnskóla sveitarfélags Verkfall kennara hefur ekki áhrif á 6. bekk Sk í Flataskóla. Hann er eini bekkur skólans sem stundar nám í fjarveru grunnskólakennara og sá eini á landsvísu sem fær kennslu í skólum sveitafélaganna. Ástæðan er sú að bekknum kennir stundakennari um mánaðarskeið meðan umsjónarkennari þeirra er í leyfi. 23.9.2004 00:01
Börn gefin en hundarnir seldir Fjölmörg íslensk börn voru seld eða gefin enskum iðnaðarmönnum og kaupmönnum fyrr á öldum. Það orð fór af Íslendingum að þeir gæfu börnin sín, en seldu hundana. 23.9.2004 00:01
Langt í úrlausn verkfalls Samninganefnd kennara hyggst ekki funda með launanefnd sveitarfélaganna fyrr en nýtt tilboð liggur á borðinu. Launanefnd sveitarfélaganna ætlar ekki að leggja fram tilboðið fyrr en umræður hafa farið fram milli þeirra og kennara. Fyrsta fundi deilenda eftir að til verkfalls kennara kom lauk á tólfta tímanum í gærmorgun. Næsti fundur hefur verið boðaður eftir tæpa viku. 23.9.2004 00:01
Læra ensku fimm ára Fimm til sjö ára börnum er kennd enska í leikskóla og skóla hjallastefnunnar í Hafnarfirði. Margir eru þeirrar skoðunar að tungumálanám eigi að hefjast mun fyrr í skólakerfinu en nú er. 23.9.2004 00:01
Dæmdir fyrir að veiða utan kvóta Framkvæmdastjóri útgerðarfélags og skipstjóri voru í dag dæmdir í Hæstarétti fyrir að veiða utan kvóta. Báðir töldu þeir sig ekki bera ábyrgð á því að skipin væru kvótalaus, en Hæstiréttur var ekki sammála því. Framkvæmdastjórinn var jafnframt sakaður um brot á skattalögum, og dæmdur til að greiða samtals átján milljónir króna í sekt. 23.9.2004 00:01
3 og hálft ár fyrir kynferðisbrot Karlmaður var í Hæstarétti í dag dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga fyrrverandi sambýliskonu sinni og svipta hana frelsi. Hæstiréttur staðfesti þar með dóm Héraðsdóms í málinu. Maðurinn hefur verið dæmdur 22 sinnum á síðustu 13 árum. 23.9.2004 00:01
Stöð2 braut jafnréttislög Íslenska útvarpsfélagið og yfirmenn fréttastofu Stöðvar 2 brutu jafnréttislög fyrir rúmu ári þegar þeir sögðu fjórum fréttakonum upp. Engum karlmanni í sambærulegu starfi var sagt upp. Ástæður uppsagnanna voru sagðar hagræðing og að starfsaldur hefði ráðið mestu um uppsagnirnar, en þó ekki öllu. Frekari rök voru þó ekki tilgreind. Í það minnsta þrír karlar með styttri starfsaldur en konurnar störfuðu á fréttastofunni á þessum tíma. 23.9.2004 00:01
Kann að flýta þróun vetnisbílsins Um áttatíu manns frá tuttugu löndum sitja fund framkvæmdanefndar um vetnisvæðingu, IPHE, sem fer fram í Þjóðmenningarhúsinu í Reykjavík og lýkur í dag. Fimmtán þjóðir hófu verkefnið í nóvember í fyrra en fleiri þjóðir hafa sýnt áhuga á þátttöku og á fundinum verður fjallað um umsóknir fimm landa. 23.9.2004 00:01
Stígvélaði bæjarstjórinn Stefanía Traustadóttir, bæjarstjóri í Ólafsfirði, hefur staðið í ströngu undanfarna daga. Bærinn hennar fór nánast á bólakaf í miklu vatnsveðri í vikunni en nú hefur rofað til. 23.9.2004 00:01
Tinna Þjóðleikhússtjóri Menntamálaráðherra hefur skipað Tinnu Gunnlaugsdóttur í embætti þjóðleikhússtjóra, fyrsta allra kvenna. 23.9.2004 00:01
Ekkert að gerast Formaður Kennarasambandsins og formaður launanefndar sveitarfélaga horfa fram á langt verkfall að óbreyttu. Sáttafundi í kennaradeilunni var slitið í morgun. Nýr fundur verður ekki fyrr en eftir viku. Formaður launanefndar segir að kennarar mæti að öllum líkindum með hundshaus í Karphúsið eftir viku. 23.9.2004 00:01
Burðarás sameinast Kaldbaki Burðarás stefnir að því að stórauka fjárfestingar utan landsteinanna eftir sameiningu við fjárfestingarfélagið Kaldbak í dag. Helstu forkólfar Kaldbaks eru Samherji og Baugur, en Landsbankinn og Björgólfsfeðgar eru helstu eigendur Burðaráss. 23.9.2004 00:01
ASÍ skorar á félagsmálaráðherra Fólk í fæðingarorlofi á ekki rétt á sumarleyfisdögum meðan á orlofi stendur. Þetta er niðurstaða héraðsdóms í máli sem ASÍ höfðaði gegn Tryggingastofnun. ASÍ skorar á félagsmálaráðherra að eiga frumkvæði að því að tryggja þennan rétt. 23.9.2004 00:01
Jöklarnir að minnka og hverfa Á næstu 100 til 200 árum er talið að jöklar landsins dragist saman og hverfi. Á meðan á þessu stendur má búast við auknu rennsli jökuláa og breyttum vatnabúskap þar á eftir. Landsvirkjun fylgist með þróuninni. </font /></b /> 23.9.2004 00:01
Vatnsskortur í Eyjum Vestmannaeyingar gætu orðið uppiskroppa með ferskvatn eftir að tvær leiðslur sem flytja vatn til Eyja rofnuðu í gær. Skemmdirnar eru verulegar en talið er að vatnsbirgðir dugi í þrjá til fjóra daga. 23.9.2004 00:01
Stórfyrirtæki siðblind segir Bart Stórfyrirtækið er með sömu eiginleika og siðblindingi segja höfundar margverðlaunaðu heimildamyndarinnar The Corporation. Í myndinni líta þeir á fyrirbærið stórfyrirtæki og áhrif þess á menn og málefni. 23.9.2004 00:01
Tólf hundruð fíkniefnabrot Tæplega tólfhundruð ætluð brot á fíkniefnalöggjöfinni hafa komið á borð lögreglu frá áramótum, að því er fram kemur í frétt frá embætti Ríkislögreglustjóra. Allt síðasta ár voru skráð 1.385 fíkniefnabrot en þau eru nú orðin 1.185 það sem af er árinu. 23.9.2004 00:01
Vanaafbrotamaður í steininn á ný Hæstiréttur dæmdi í gær karlmann til fangelsisvistar í tvö ár og sex mánuði fyrir ítrekuð afbrot, þ.á m. þjófnað, húsbrot og fíkniefnabrot. Í niðurstöðum réttarins segir að brotaferill mannsins, sem rauf reynslulausn með þeim afbrotum sem til umfjöllunar voru, hafi staðið samfellt frá því í nóvember árið 2001. 23.9.2004 00:01
Allar þrjár dæturnar rangfeðraðar Nær áttræður verslunarmaður í Reykjavík fékk þau skelfilegu tíðindi í seinustu viku að þrjár dætur sem hann hafði alið upp um 40 ára skeið sem sínar eigin væru allar rangfeðraðar og þær væru ekki hans. Fjallað er um málið í DV í dag. 23.9.2004 00:01
Heimsótti Ólaf á Bessastaði Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tók á móti Tarja Halonen, forseta Finnlands, á Bessastöðum í gær en Halonen er hingað komin til að taka þátt í málþingi sem haldið er vegna 30 ára afmælis norræns samstarfs um jafnréttismál. 23.9.2004 00:01