Fleiri fréttir

Nýr prestur á Þingvöllum

Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, hefur falið sr. Kristjáni Val Ingólfssyni prestsþjónustu í Þingvallaprestakalli til loka ágústmánaðar. Mun hann meðal annars sinna helgihaldi á Þingvöllum yfir sumarmánuðina en það verður með fjölbreyttum hætti og verður leitast við að koma til móts við þarfir þeirra er sækja þennan þjóðarhelgidóm.

Maður um þrítugt í gæsluvarðhald

Maður um þrítugt var í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald, grunaður um aðild að stóru fíkniefnamáli, þar sem maður var handtekinn í Leifsstöð 24. maí síðastliðinn með eitt kíló af amfetamíni og annað eins af kókaíni. Meintur samverkamaður var handtekinn síðdegis í fyrradag og yfirheyrður í gær.

Vill fresta skattalækkunum

Gunnar Páll Pálsson, formaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur, vill fresta fyrirhuguðum skattalækkunum haldi verðbólga áfram að hækka. Formaður Bandalags háskólamanna, Halldóra Friðjónsdóttir, segir einnig skattalækkanir ekki ráðlegar í haust, þær leiði til frekari niðurskurðar annars staðar í velferðarkerfinu.

Færri hross flutt út

Færi hross voru flutt út á fimm fyrstu mánuðum þessa árs en á sama tímabili í fyrra. Þá höfðu verið flutt út 619 hross á móti 591 nú. Ef litið er á útflutning til hinna ýmsu landa hafa verið flutt 30 hross til Austurríkis á móti 17 á sama tíma í fyrra. Samtals 116 hafa farið til Þýskalands nú á móti 91 í fyrra.

Innheimta skatttekna eykst

Innheimta skatttekna ríkisins jókst um 14,4 prósent á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs miðað við sama tímabil í fyrra samkvæmt því sem kemur fram í vefriti fjármálaráðuneytisins.

Lést við Bláa lónið

Bandarískur ferðamaður af skemmtiferðaskipi hné skyndilega niður og lést á göngustíg við Bláa lónið í gær. Maðurinn, sem var hjartasjúklingur, kom með rútubíl að Bláa lóninu og var á göngu á stígnum um hraunið milli bílastæðisins og þjónustuhússins.

Fiskifræði Hafró gengur ekki upp

"Þessar tillögur frá Hafrannsóknarstofnun sanna það enn einu sinni að starfsmenn hennar vita ekkert í þennan heim né annan þegar kemur að fiskveiðum," segir Ásgeir Guðbjartsson, fyrrverandi skipstjóri á Ísafirði, vegna tillagna Hafró fyrir næsta fiskveiðiár.

Tíu ára afmæli Reykjanesbæjar

"Besta afmælisgjöfin er líklega mjög góð niðurstaða í svokölluðu Bertelsmannsprófi sem er alþjóðlegur mælikvarði á gæði í stjórnsýslu," sagði Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, á tíu ára afmæli bæjarins í gær.

Metaðsókn í Kennaraháskólann

Annað árið í röð er metaðsókn í Kennaraháskóla Íslands. Nemendur skólans er nú rúmlega 2300 og hefur fjölgað verulega á síðustu árum, að því er segir í frétt fá skólanum. Umsóknir um nám hafa aldrei verið fleiri en nú í vor. Því miður verður aðeins hægt að bjóða tæplega helmingi þessa hóps skólavist vegna fjárhagsramma skólans.

Þrjár hrefnur veiddar

Búið er að veiða þrjár hrefnur það sem af er sumri af þeim 25 sem stendur til að veiða í ár. Í fyrra tók það þrjú skip hálfan annan mánuð að veiða dýrin. Samkvæmt upplýsingum sem fengust frá Hafró eru dýrin af svipaðri stærð og þau sem veiddust í fyrra en þau þóttu í magrara lagi.

Lítill drengur með eldspýtur

Lítill drengur sem var að fikta með eldspýtur, kveikti í rúminu sínu í kjallaraíbúð í fjölbýli við Flókagötu. Slökkviliðinu var tilkynnt um brunann fimm mínútur yfir átta í gærkvöldi og hafði lokið störfum tuttugu mínútum síðar. Reykkafarar slökktu eldinn og reykræsta þurfti íbúðina. Töluvert miklar skemmdir urðu á herbergi drengsins.

Dómur kveðinn upp á morgun

Dómur í meiðyrðamáli Jóns Ólafssonar, fyrrverandi aðaleiganda Norðurljósa, gegn Davíð Oddssyni forsætisráðherra verður kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Jón Ólafsson stefndi Davíð skömmu fyrir áramót vegna ummæla sem féllu í viðtali við Ríkisútvarpið eftir að Jón hafði selt eigur sínar hér á landi með milligöngu Kaupþings-Búnaðarbanka.

Eldur á Flókagötu

Slökkvilið var kvatt að húsi við Flókagötu í Reykjavík í gærkvöldi en þar logaði eldur í rúmdýnu í lítilli íbúð. Eldurinn barst ekki út fyrir dýnuna og tókst fljótlega að kæfa hann. Mikill svartur reykur myndaðist hins vegar í íbúðinni, enda var þetta svampdýna sem brann, en íbúana sakaði ekki. Talið er að barn hafi kveikt í dýnunni.

Bílstuldur á Selfossi

Gestkomandi fólk á Selfossi kemst nú ekki til síns heima þar sem jeppanum þeirra var stolið fyrir utan hús ættingja þeirra í gærmorgun. Jeppinn er vínrauður á litinn af gerðinni Mitsubishi Pajero, árgerð 1990. Númer bílsins er SK-268. Lögreglan á Selfossi biður þá sem hafa orðið varir við bílinn að hafa samband.

Esjudagur fjölskyldunnar

Árlegur Esjudagur fjölskyldunnar er í dag en eins og nafnið gefur til kynna felst hann í því að ganga á Esju, borgarfjall Reykjavíkur. Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis stendur fyrir Esjudeginum og er þetta sjötta árið í röð sem hann er haldinn. Í tilkynningu frá Sparisjóðnum segir að þetta sé sannkölluð fjölskylduhátíð þar sem hver og einn geti fundi eitthvað við sitt hæfi.

Þorskeldi við hlið stóriðju

 Tvær fiskikvíar í Hvalfirði gegnt álveri Norðuráls hafa vakið athygli margra vegfarenda um Hvalfjörðinn síðustu mánuði og hafa þeir bent Fréttablaðinu á að fyrir utan nálægð álversins við kvíarnar séu viðkvæmar laxveiðiár í grenndinni. Samkvæmt upplýsingum blaðsins er þarna um þorskeldi að ræða í annarri kvínni en hin stendur auð. 

Geta haft ungabörn í fangelsinu

Heimilt er að konur hafi börn að eins og hálfs árs aldri innan fangelsisveggja, segir Erlendur S. Baldursson, afbrotafræðingur og starfsmaður Fangelsisstofnunnar. Ófrísk kona var handtekin í Leifsstöð með 5.005 E-töflur í bakpoka á föstudag. Hún verður í einangrun á Litla-Hrauni til tveggja vikna og á fjögurra til sex ára dóm yfir höfði sér verði hún sakfelld.

Reykingalöggjöf hafnað?

Frjálshyggjufélagið hvetur stjórnvöld til að hafna öllum hugmyndum um sérstaka löggjöf um reykingar í fréttatilkynningu sem félagið sendi út. Þar segir að slík löggjöf sé óþörf þar sem eignarréttur leysi allan þann vanda sem reykingar kunna að valda öðrum en reykingamönnum.

KB banki styrkir námsmenn

Fimmtán námsmenn sem stunda nám á háskólastigi hafa fengið 200 þúsund kr. hver úr Námsmannalínu KB banka en styrkirnir eru veittir árlega. Er þetta fjórtánda árið sem bankinn veitir styrki úr Námsmannalínunni.

Bændur hafa áhyggjur af kálfadauða

Kálfadauði er vaxandi vandamál á íslenskum búum og hefur aukist umtalsvert allra síðustu ár. Baldur H. Benjamínsson, nautgriparæktarráðunautur hjá Bændasamtökum Íslands, segir það ekki hafa verið fyrr en fyrir um áratug síðan að meira fór að bera í milli í samanburði við önnur lönd.

Krafðist sex milljóna í bætur

Kjötvinnsla var sýknuð af rúmlega sex milljóna króna skaðabótakröfu, í Héraðsdómi Reykjavíkur, vegna slyss sem fyrrverandi starfskona varð fyrir á vinnustaðnum. Konan steig á mottu í kjötvinnslunni sem rann undan fæti hennar þannig að hún skall af nokkru afli í gólfið á hægri öxl. Bæklunarlæknir segir konuna bera varanlegan skaða sökum fallsins.

R-listinn að verða lítil klíka

"Auðvitað er það áhyggjuefni að þreyta komi í samstarf sem er á þriðja kjörtímabili. Það er eitt stærsta verkefnið fyrir okkur sem starfa fyrir og styðja Reykjavíkurlistann að verða ekki valdþreytunni að bráð," segir Helgi Hjörvar þingmaður og einn helsti hvatamaðurinn að stofnun Reykjavíkurlistans í helgarviðtali við Fréttablaðið í dag.

Leitað að samverkamönnum

Ekki er hægt að greina frá framvindu rannsóknar í máli ófrískrar konu á þrítugsaldri, sem handtekin var á föstudag með 5.005 E-töflur í bakpoka, þar sem hún er í einangrun, segir Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli. Hann segir rannsóknina beinast að því að upplýsa hverjir samverkamenn konunnar séu.

Nóbelsverðlaunahafi styður Ástþór

Oscar Arias Sanches, fyrrverandi forseti Kosta Ríka og handhafi friðarverðlauna Nóbels, hefur lýst yfir stuðningi sínum við Ástþór Magnússon forsetaframbjóðanda. Sanches telur að vægi smáþjóða til að stuðla að friði sé heilmikið.

Konur geta haft börn í fangelsi

Heimilt er að konur hafi börn að eins og hálfs árs aldri innan fangelsisveggja, segir Erlendur S. Baldursson, afbrotafræðingur og starfsmaður Fangelsisstofnunnar. Ófrísk kona var handtekin í Leifsstöð með 5.005 E-töflur í bakpoka á föstudag.

Kennaranámið lengt?

Rektor Kennaraháskóla Íslands telur að huga beri að lengingu kennaranáms á Íslandi og færa það til jafns við það sem tíðkast í nágrannalöndunum.

Hringbraut í opinn stokk

Tillagan felst í því að yfirborð Hringbrautar verði lækkað um þrjá til fjóra metra á um 600 metra löngum kafla sunnan Landspítala og Umferðarmiðstöðvar að áætluðum gatnamótum við Bústaðarveg og Njarðargötu. Þannig lægi umferðin í gegnum opin stokk sem mætti loka og byggja yfir ef byggingarétti yrði úthlutað við Hringbraut.

Financial Times fjallar um Ísland

Breska blaðið Financial Times gerði stóra fjölmiðlalagamálið á Íslandi að umfjöllunarefni í gær og sagði alvarlega stjórnskipunarkreppu ríkja í landinu. Raunar þá verstu á lýðveldistímanum, eftir að Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands synjaði lögum um eignarhald á fjölmiðlum staðfestingar.

Sex ára barn slasaðist

Sex ára gamalt barn slasaðist lítillega þegar tveir bílar rákust á hvorn annan á Arnarnesvegi, rétt fyrir klukkan þrjú í gær. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru bílarnir að koma úr gagnstæðri átt og var annar að beygja af Reykjanesbraut inn á Arnarnesveg þegar slysið varð. Tvö börn voru farþegar í öðrum bílnum en ökumaður var einn í hinum.

Keyrði út í tjörn

Betur fór en á horfðist þegar bíll keyrði út í tjörn rétt fyrir utan Flateyri á fimmta tímanum í fyrrinótt. Að sögn lögreglunnar á Ísafirði fór allur bíllinn í kaf og tókst ökumanninum með naumindum að koma sér út úr bílnum. Hann þykir hafa sloppið ótrúlega vel og er lítið lemstraður.

Kostnaður hugsanlega ofmetinn

Samkvæmt útreikningum Fréttablaðsins nær kostnaður við þjóðaratkvæðagreiðslu um fjölmiðlalögin ekki fjörutíu milljónum. Forsætisráðherra hefur sagt við fjölmiðla að hann telji að kostnaðurinn muni verða á bilinu 100-200 milljónir.

Guðrún Vera hlýtur styrk

Guðrún Vera Hjartardóttir hlaut 250 þúsund króna styrk fyrir framlag sitt til myndlistar úr minningarsjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur frá Miðengi. Sjóðnum er ætlað að efla og styrkja listsköpun kvenna og var afhentur við opnun Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsinu í gær.

Dómur hjá Davíð og Jóni í dag

Í dag verður kveðinn upp dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli sem Jón Ólafsson kaupsýslumaður, kenndur við Skífuna, höfðaði gegn Davíð Oddssyni forsætisráðherra fyrir meiðyrði.

Sýslumaður setur lögbann

Sýslumaðurinn í Reykjavík hefur sett lögbann við sölu á bætiefninu Life Extension sem heildverslunin Arnarvík ehf. hefur selt til verslana Bónus undanfarnar vikur. Heildsalan Celsus heilsu- og hjúkrunarvörur ehf. krafðist lögbannsins, en hún hefur í nokkur ár flutt inn vörur undir sama heiti og telur sig hafa öðlast vörumerkjavernd á heitinu og umbúðum varanna.

Fjöldi vopna óskráður

Alls eru 71 skotvopn stolið eða týnt samkvæmt upplýsingum úr skotvopnaskrá Ríkislögreglustjóra, þar af hafa sextán glatast síðan árið 2000. Samkvæmt skránni eru um 50.000 skráð skotvopn á landinu.

Aðstæður móður ekki metnar

Umboðsmaður Alþingis hefur úrskurðað að Tryggingastofnun ríkisins hafi ekki metið megin málaðstæður þegar hún synjaði móður í fullu námi við HÍ um fæðingarstyrk veturinn 2001 til 2002. Forsendur Tryggingastofnunar voru að konan hefði ekki lokið tilskildum einingafjölda.

Ástþór vill fresta kosningum

Ástþór Magnússon hefur kært Ríkisútvarpið til Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu fyrir "grófa ritskoðun og alvarlegt brot" á þeim reglum sem séu við lýði. Vísar Ástþór í viðtal sem Kastljós tók við þýska fræðimanninn Dietrich Fischer í maí og sendi út í fyrrakvöld.

Lýðræðið fótum troðið

"Þessar niðurstöður eru svo sem ósköp eðlilegar því að ég fæ ekkert að koma málefnum framboðsins til skila," segir Ástþór Magnússon, sem mældist með 0,6 prósenta fylgi í skoðanakönnun Fréttablaðsins.

RÚV kært til ESA vegna ruv.is

Eftirlitsstofnun evrópska efnahagssvæðisins, ESA, hefur til skoðunar kæru vegna reksturs Ríkisútvarpsins á ruv.is. Þetta er önnur kæran á hendur RÚV sem ESA hefur til skoðunar. Fyrri kæran barst frá Norðurljósum þar sem óskað var eftir því að kannað yrði hvort RÚV hafi rétt á að innheimta skylduáskriftargjöld auk þess að fá rekstrarfé af auglýsingatekjum.

Varað við sprengingum

Búið er að gefa út tilkynningu meðal íbúa í Hlíðahverfi um að vegna framkvæmda við færslu Hringbrautar megi búast við sprengingum og titringi samfara þeim.

Skotið á bíl í Breiðholti

Skotið var á bíl á plani fjölbýlishúss í efra Breiðholti í gær. Skotið, sem fór í afturbretti bílsins, er 22 kalibera og er talið að því hafi verið skotið af stuttu færi.

Endurskoða aflareglu í þorski

Hafrannsóknastofnunin telur afar brýnt að endurskoða hið fyrsta þá aflareglu sem notuð er vegna þorskveiða hérlendis, þar sem reynslan sýni að afli undanfarinna ára hafi ekki verið í samræmi við markaða nýtingarstefnu íslenskra stjórnvalda.

Ekki ætlunin að ræða frumvarp

Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að nefndin sem skipuð var um löggjöf um þjóðaratkvæðagreiðslu muni starfa fullkomlega sjálfstætt.

Halldór vill samstöðu

"Af lyktum fundarins er augljóst að forsætisráðherra hefur ekki minnsta áhuga á að ná samkomulagi við stjórnarandstöðuna um undirbúning þjóðaratkvæðagreiðslu og komandi þinghald," segir Össur Skarphéðinsson

Stuttur kveikur í húsráðanda

"Við hófum umræður um þessi mál og það er ljóst að það er afskaplega stuttur kveikurinn í þeim sem ráða ríkjum í þessu húsi hér," sagði Ögmundur Jónasson.

Sjá næstu 50 fréttir