Fleiri fréttir

Múraður úti

Íbúar fjögurra íbúða fjölbýlishúss við Spítalastíg hafa fengið dómsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur vegna áralangra deilna um eignaraðlid á forstofu. Árið 1994 keypti stefnandi íbúð í húsinu með leyfi til að færa vegg í forstofunni um hálfan metra og stúka svæði íbúðarinnar af.

Stal 3,6 milljónum

Maður fæddur 1975 hefur verið dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir þjófnaði og fjársvik. Maðurinn braust inn á heimili við Langholtsveg í september í fyrra og hafði með sér innbú að værðmæti 700 þúsund krónur.

Fylgst með nýjum reinum

"Það er vel fylgst með því að ekki sé urðað hærra í nýjum reinum heldur en deiliskipulag segir til um," sagði Sigurður Jónsson, skipulags- og byggingafulltrúi sveitarfélagsins Ölfuss, vegna ágreinings sem uppi er um urðun Sorpstöðvar Suðurlands.

Tvær kynskiptiaðgerðir á Íslandi

Það er Jens Kjartansson, lýtalæknir á Landspítala - háskólasjúkrahúsi, sem framkvæmdi báðar aðgerðirnar fyrir allnokkru síðan. Hann vann á Karolínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi áður en hann hóf störf hér heima.

Rúmlega 1000 undirskriftir

Átakshópurinn gegn færslu Hringbrautar hefur ákveðið að halda úti yfirstandandi undirskriftasöfnun til miðnættis 21. júní á forsíðu <a href="http://www.mbl.is">www.mbl.is</a> og <a href="http://www.tj44.net/hringbraut/">www.tj44.net/hringbraut/</a>.

Ómarkviss fiskveiðistjórnun

Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra segir vinnu við endurskoðun úthafssamnings Sameinuðu þjóðanna að hefjast. Hann segir mikilvægt að sjávarútvegsráðherrar Norður-Atlandshafslanda vinni saman í þeim málum og hafi áhrif:

Toppeinkunn staðfest

Matsfyrirtækið Moody's hefur staðfest hæstu lánshæfiseinkunn sína fyrir Ísland. Einkunnin er Aaa/P1 og segir Moody's að hún byggist á aukinni fjölbreytni íslenska hagkerfisins og sveigjanleika þess.

Bónusinn aflagður

Tryggingamiðstöðin tilkynnti í gær að hún hefði ákveðið að leggja niður bónuskerfi í bílatryggingum. Að sögn Guðmundar Gunnarssonar deildarstjóra er núverandi kerfi ónýtt og því bregður TM á þetta ráð.

Sjálfstæðu leikhúsin í sókn

Bandalag sjálfstæðra leikhúsa fær jafn marga gesti og Þjóðleikhúsið, Borgarleikhúsið, Leikfélag Akureyrar, Íslenska óperan og Íslenski dansflokkurinn til samans.

Vilja ekki Orkuveituna

Kópavogsbær íhugar að hætta að kaupa rafmagn af Orkuveitu Reykjavíkur og leitar samninga hjá Orkuveitu Suðurnesja. "Við höfum skrifað Orkuveitu Suðurnesja bréf um að kaupa rafmagn af þeim. Við erum fyrst og fremst að leita að betra verði og þjónustu," segir Gunnar I. Birgisson.

Dæmdur í fangelsi fyrir vopnað rán

Tuttugu og fimm ára maður var dæmdur í átján mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, fyrir vopnað rán og önnur þjófnaðarbrot. Fjórar ákærur á hendur manninum voru sameinaðar.

ILO gagnrýnir stjórnvöld

Þing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, ILO, hefur staðfest niðurstöðu Félagafrelsisnefndar vegna kæru ASÍ um endurtekin afskipti stjórnvalda af gerð kjarasamninga. Kæran fólst í að lög á verkfall sjómanna vorið 2001 brytu gegn grundvallarsamþykktum ILO og þjóðréttarlegum skuldbindingum Íslands.

Einhleypir karlar skulda mest

Einhleypir karlar skulda hlutfallslega mest þeirra sem leituðu ráðgjafar til Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna á síðasta ári. Alls sóttu 823 um slíka ráðgjöf. Flestir voru einstæðar mæður eða þriðji hver umsækjandi.

Verjandi fær að sjá gögn

Lögreglustjóranum í Reykjavík hefur verið gert að veita verjanda eins þriggja útlendinga sem eru í haldi lögreglu aðgang að rannsóknargögnum málsins.

Engar upplýsingar

Umboðsmaður Alþingis telur Ríkisútvarpið skorta lagaheimildir til þess að vinna efni sérstaklega fyrir vef stofnunarinnar og birta þar auglýsingar, að því er fram kom í fréttum Sjónvarpsins í gær.

Kennarar samþykktu verkfall

Kennarasamband Íslands samþykkti með 90,2% atkvæða að fara í verkfall 20. september nái samninganefnd þeirra og launanefnd sveitarfélaga ekki samkomulagi. Finnbogi Sigurðsson, formaður félags grunnskólakennara, er ánægður með afgerandi niðurstöðu kosninganna.

Þingfest í næstu viku

Mál vegna líkfundar Vaidasar Jucevicius í Neskaupstað verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur miðvikudaginn 16. júní næstkomandi.

Kaupmáttur launa rýrnar

Laun landsmanna rýrna frá árinu áður samkvæmt könnun kjararannsóknarnefndar og vísbendingar eru um að lítið þurfi til að verðbólga fari aftur af stað. Landsbyggðin heldur áfram að dragast aftur úr í launum.

Hæstiréttur mildaði

Hæstiréttur dæmdi rúmlega fertugan mann í tíu mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn dóttur sinni og stjúpdóttur. Maðurinn hafði áður verið dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi í Héraðsdómi Vestfjarða í október á síðasta ári.

Styrkir stjórnina

Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra telur að Íraksályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna verði til þess styrkja írösku bráðabirgðastjórnina og segir miklu skipta að ályktunin var samþykkt með atkvæðum allra ríkjanna sem eiga sæti í öryggisráðinu.

Eltur á 200 km hraða

Lögreglan í Kópavogi og Hafnarfirði veitti manni á fimmtugsaldri eftirför suður eftir Reykjanesbraut í fyrrinótt. Maðurinn sinnti engum stöðvunarmerkjum og ók á allt að 200 kílómetra hraða. Til að stöðva ferðir mannsins þurfti að aka einum lögreglubílnum utan í bíl mannsins á Strandarheiði.

Mikill meirihluti á móti lögunum

Meirihluti þjóðarinnar hyggst greiða atkvæði gegn fjölmiðlalögum ríkisstjórnarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslu sem ráðgert er að verði í fyrri hluta ágústmánaðar. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem Fréttablaðið gerði um síðustu helgi.

Færði útvarpsstjóra tómatsósu

Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi er ósáttur við litla athygli fjölmiðla. Því freistaði hann þess að ná athygli þeirra með því að færa Markúsi Erni Antonssyni tómatsósu í gærdag og til að undirstrika hversu ósáttur hann er

Málið þingfest

Mál manns um þrítugt á Patreksfirði, sem ákærður hefur verið fyrir meint kynferðisbrot gegn sjö drengjum var þingfest fyrir Héraðsdómi Vestfjarða í gær.

Leiðir ekki til ógildingar

"Það er grundvallaratriði að lögin eru búin að taka gildi og taka gildi þrátt fyrir synjun forseta," segir Björg Thorarensen, prófessor í stjórnskipunarrétti.

Segir dóm auka réttaröryggi

Mannréttindadómstóll Evrópu segir brotið hafa verið á Hildu Hafsteinsdóttur með ítrekuðum handtökum fyrir 12 til 16 árum síðan. Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður segir dóminn auka réttaröryggi hér því í kjölfarið taki dómarar sig á og gefi betur gaum ríkjandi sjónarmiðum hjá Mannréttindadómstólnum.

Davíð við útförina

Davíð Oddsson forsætisráðherra og Ástríður Thorarensen, eiginkona hans, verða við útför Ronalds Reagans sem var fertugasti forseti Bandaríkjanna. Hann verður jarðsettur í Washington í dag. Forsætisráðherra hefur þegar sent frú Reagan samúðarkveðju.

Leikskólar stytta sumarlokanir

Leikskólar Reykjavíkur verða lokaðir í hálfan mánuð í sumar. Það er helmingi styttri tími en á síðasta ári.

Andstaðan hefur minnkað

Andstaðan við fjölmiðlalögin hefur minnkað samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins, sem gerð var um síðustu helgi. Samkvæmt henni segjast um 71 prósent þeirra sem tóku afstöðu ætla að greiða atkvæði gegn fjölmiðlalögunum í þjóðaratkvæðagreiðslu en í fyrri könnunum blaðsins hefur andstaðan við málið mælst á bilinu 77 til 83 prósent.

Valdamikill og pólitískur

Málþing um pólitískt hlutverk forseta Íslands frá stofnun lýðveldis til okkar daga var haldið í gær. Prófessor í stjórnmálafræði segir Svein Björnsson hafa skapað pólitískt og valdamikið embætti. Kristjáni Eldjárn reyndist erfitt að sitja á friðarstóli.

Endurbættu leiðarkerfi frestað

Nýtt leiðakerfi Strætó bs. verður ekki tekið í notkun fyrr en í fyrsta lagi í október vegna þess að ekki næst að ráðast í nauðsynlegar framkvæmdir á tilsettum tíma. Áður hafði verið stefnt að því að taka nýja leiðakerfið í notkun seinni part sumars.

Skuldum vafin ungmenni

Þess eru dæmi að ungmenni undir tvítugu skuldi vel á þriðju milljón króna og að sama upphæð sé í vanskilum, samkvæmt upplýsingum frá Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Fólki í þessum aldurshópi sem þarf að leita aðstoðar hjá ráðgjafarstofunni hefur farið fjölgandi á milli áranna 2002 og 2003, samkvæmt ársskýrslu stofunnar.

Breyttir jeppar ekki hættulegri

Enginn marktækur munur er á slysa- og meiðslatíðni vegna árekstra upphækkaðra jeppa og hinna venjulegu samkvæmt nýrri könnun. Fjármagn skortir til að láta fara fram vísindalegar árekstrarprófanir hér á landi.

Fjármálavandræði ungs fólks aukast

Því miður sjáum við oft mikla fjölskylduharmleiki vegna ábyrgðarmennsku," sagði Ásta S. Helgadóttir, forstöðumaður Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna, um ábyrgðir foreldra eða annarra ættingja á lántökum ungs fólks.

Meiri áhrif á næsta ári

Tillögur Hafró hafa lítil áhrif á útflutningsframleiðslu sjávarafurða í ár, en þó má búast við að hún dragist saman um 0,25 prósent, samkvæmt því sem kemur fram á vefriti fjármálaráðuneytisins. Hins vegar er gert ráð fyrir að áhrifin verði meiri á næsta ári miðað við áætlanir.

Tíundi dómurinn

Maður á fimmtugsaldri fékk átta mánaða fangelsisdóm í Hérðasdómi Reykjavíkur fyrir akstur undir áhrifum lyfja og önnur umferðarlagabrot, þjófnað, nytjastuld, gripdeildir og vopnalagabrot.

Háhýsabyggð á Seltjarnarnesi

Hópur bæjarbúa á Seltjarnarnesi óttast að skipulagsslys sé í uppsiglingu vegna háreistrar íbúðabyggðar sem hugmyndir eru um að rísi þar sem nú er fyrir knattspyrnuvöllur fyrir neðan Valhúsaskóla.

Frétt ehf. gert að greiða

Frétt ehf. sem er núverandi eigandi Fréttablaðsins var dæmt, í Héraðsdómi Reykjavíkur, til að greiða hluta af launakröfu blaðamanns sem starfaði hjá fyrrverandi eiganda blaðsins, Fréttablaðið ehf.

Vill frjálsar ufsa- og ýsuveiðar

"Það er alveg út úr korti að ætla að draga úr veiðum á fiskitegund og vonast til að stofninn nái sér þegar alla fæðu vantar," segir Guðjón A. Kristjánsson, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins.

Enginn árangur af starfi Hafró

"Það er hreint með ólíkindum að eftir 20 ára veiðistjórnun á þorski skuli veiðiheimildir enn vera skertar," segir Grétar Mar Jónsson, skipstjóri og varaþingmaður Frjálslynda flokksins.

Samnorræn kvikmyndaverðlaun veitt

Menntamálaráðherrar allra Norðurlandanna hafa ákveðið að stofna til norrænna kvikmyndaverðlauna sem afhendast á í fyrsta sinn á næsta ári. Verðlaunin munu nefnast kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs og er vinningsupphæðin rúmlega fjórar milljónir króna.

Skipstjóri veiddi án aflaheimilda

Skipstjóri var dæmdur til greiðslu 400 þúsunda króna, í Héraðsdómi Reykjaness í gær, fyrir veiðar á fiski þrátt fyrir að hafa skort aflaheimildir til fiskveiða. Verði sektin ekki greidd innan fjögurra vikna kemur 40 daga fangelsi hennar í stað.

Milljóna - Svíinn ákærður

Rannsókn lögreglunnar á sænskum ferðalangi, sem tekinn var með 2 milljónir króna í reiðufé 21. maí síðastliðinn í Leifsstöð, var á lokastigi í gær. Einn maður var yfirheyrður hjá lögreglunni í gærdag, sem vitni, en hann var ekki talinn hafa stöðu grunaðs manns. 

Fór ofan í hver

Erlendur ferðamaður var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri eftir að hann hafði farið ofan í hver í Mývatnssveit í fyrrakvöld. Lögreglunni á Húsavík barst tilkynning um að maðurinn hefði misst bíllykil ofan í hverinn. Þegar lögreglan koma á staðinn kom í ljós að maðurinn hafði farið ofan í hverinn en ekki er ljóst hvernig það bar að

Umsókn ekki komin frá ráðuneyti

Kvennaskólinn í Reykjavík fór þess á leit við menntamálaráðuneytið í apríl síðastliðinn að sótt yrði um lóð fyrir skólann á Mýrargötusvæðinu í Reykjavík.

Sjá næstu 50 fréttir