Fleiri fréttir

Grunuð um að beita börn sín ofbeldi

Fimm barna móðir er grunuð um ofbeldi gagnvart börnum sínum. Barnaverndarnefnd hefur haft afskipti af fjölskyldunni í tíu ár. Barnavernd segist ekki hafa brugðist börnunum en þau eru fyrst nú vistuð utan heimilis.

Þúsundir kvenna fögnuðu

Frelsið, jafnréttið og lýðræðið er ekki sjálfgefið. Það var inntakið í ræðu frú Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta, á hundrað ára afmæli kosningaréttar kvenna. Gríðarlegur fjöldi var samankominn í miðbænum.

Ég hætti að vera góður

Kristjón Kormákur Guðjónsson var fimm ára gamall þegar hann fann fyrst til hræðslu og bjargarleysis vegna heimilisofbeldis. Hann var um ellefu ára gamall þegar sjúkrabíll sótti móður hans á heimili þeirra blóðuga eftir árás fóstra hans. Samt höfðu þau það stundum svo gott. Svo gerði hann uppreisn. Hætti að vera góður. Sextán ára gamall flutti hann að heiman og sautján ára var hann kominn á götuna.

Rússar eyða mestu í bjór og vín á barnum

Viðskipti Rússneskir ferðamenn hérlendis straujuðu greiðslukort sín fyrir að meðaltali þrefalt meira fé á skemmtistöðum og börum en næsteyðslufrekasta þjóðin í þeim efnum, Kanadamenn.

Yfir 155 hafa sagt upp hjá LSH

Nokkuð var um að hjúkrunarfræðingar og aðrir starfsmenn Landspítalans sem voru í verkfalli fram að lagasetningu ríkisins um síðustu helgi segðu starfi sínu lausu í gær. Í gær var því fagnað að 100 ár eru síðan konur fengu hér kosningarétt og vildu einhverjir vekja athygli á launamun kynjanna og nýta daginn til að segja upp.

Metur möguleika metárganga mikla

Tæplega 2.800 manns munu útskrifast úr Háskólanum í Reykjavík, Háskóla Íslands og Listaháskóla Íslands í dag. Í Laugardalshöllinni mun Háskóli Íslands brautskrá 2.098 nemendur og í Hörpu mun Háskólinn í Reykjavík útskrifa 553 nemendur. Í báðum tilfellum er um metfjölda að ræða.

Ferðamaðurinn fundinn

Á níunda tug björgunarmanna tóku þátt í leit að erlendum ferðamanni á Snæfellsnesi í kvöld.

Porsche Roadshow á Íslandi

Bílabúð Benna stendur þessa dagana fyrir skemmtilegri uppákomu á nýrri kappakstursbraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni.

Leita ferðamanns á Snæfellsnesi

Björgunarsveitir frá Snæfellsnesi og Borgarfirði leita nú erlends ferðamanns sem saknað er í Hnappadal á Snæfellsnesi.

Aldrei fleiri á vergangi

Um 60 milljónir manna hafa þurft að flýja heimili sín og ekkert útlit er fyrir fækkun þeirra á næstu árum.

Sjá næstu 50 fréttir