Fleiri fréttir

Kafari kemst í hann krappan

Eugene van Wyngaardt var brugðið þegar hann rakst á ógnvænlegan hvítháf undan ströndum Port Elizabeth

Ingvar kjörinn nýr formaður Heimdallar

Ingvar Smári Birgisson var kjörinn nýr formaður Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, á aðalfundi félagsins sem fram fór í kvöld.

Skoða hækkun lífeyrisaldurs til að leysa vanda LSR

Til skoðunar er í fjármálaráðuneytinu að leggja til hækkun á lífeyrisaldri opinberra starfsmanna í 67 ár til að bjarga fjárhag Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Hækkunin myndi bæta fjárhag A-deildar sjóðsins um 60 milljarða króna og fara langleiðina við að leysa vanda hans.

Héraðsskólinn á Laugarvatni fær nýtt hlutverk

Hið sögufræga hús Héraðsskólans á Laugarvatni öðlast nú nýtt hlutverk því á morgun verður opnað þar farfuglaheimili, veitingastaður og upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn. Rekstraraðilar stóðu í ströngu í dag við að gera allt tilbúið og Hrund Þórsdóttir kíkti í heimsókn.

"Við erum fremur bjartsýn"

Geislafræðingar eru bjartsýnir á að lausn finnist í kjaradeilu þeirra við Landspítalann, en uppsagnir þeirra taka gildi á miðnætti ef ekki verður búið að semja. Formaður Félags geislafræðinga segir að nýtt fjármagn hafi ekki komið til en að samningsaðilar séu að teygja sig til að finna leiðir.

Reiknar ekki með refsiaðgerðum ESB gegn Íslandi á næstunni

Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segir að refsiaðgerðir Evrópusambandsins gegn Færeyingum hafi ekki tekið gildi þótt greitt hafi verið fyrir því í sjávarútvegsnefnd sambandsins í dag að leggja viðskiptabann á Færeyinga.

Sæfarar komnir til Þórshafnar

Íslendingarnir fjórir sem eru að róa á sérstökum úthafsróðrarbát frá Noregi til Íslands komu að landi í Þórshöfn í Færeyjum í dag eftir tveggja daga róður frá Porkeri á Suðurey.

Tíu prósent stunda ekki kynlíf edrú

Eitt af hverjum tíu pörum í Bretlandi segjast ekki hafa stundað kynlíf edrú í yfir sex mánuði, samkvæmt niðurstöðum úr nýrri könnun.

Segir aðgerðir gegn Færeyingum harkalegar

Mette Gjerskov matvælaráðherra Danmerkur lýsir yfir vonbrigðum með þá ákvörðun Evrópusambandsins í dag að hefja refsiaðgerðir gegn Færeyingum vegna deilna þeirra við sambandið um veiðar úr síldarstofninum.

Samþykkja nafnið Þyrnirós

Mannanafnanefnd samþykkti eiginnafnið Þyrnirós í úrskurði 5. júlí síðastliðinn og færði á mannanafnaskrá.

Gleymdist í fangelsi - var nær dauða en lífi

Daniel Chong, háskólanemi í San Diego í Bandaríkjunum, hefur fengið hálfan milljarð íslenskra króna í skaðabætur frá stjórnvöldum í Bandaríkjunum eftir að hann var læstur inni í fangaklefa í fjóra daga án vatns né matar.

Sjávarútvegsráðherra Færeyja: "Fáheyrt í samskiptum siðaðra þjóða!"

Jacob Vestergaard, sjávarútvegsráðherra Færeyja, fordæmir refsiaðgerðir ESB vegna síldveiða Færeyinga. "Ég skil ekki að þeir skuli koma fram með þessum hætti og beita refsiaðgerðum gegn Færeyjum í stað þess að semja um málið við okkur og hin strandríkin,“ segir hann í samtali við Politiken.

ESB beitir refsiaðgerðum gegn Færeyjum vegna síldveiðideilu

Aðildarríki ESB samþykktu í dag að beita refsiaðgerðum gegn Færeyjum vegna deilu um síldveiðar. Aðgerðirnar munu fela í sér bann á löndun og sölu síldar- og makrílafurða í löndum ESB, en bannið mun ekki taka gildi fyrr en framkvæmd þess hefur verið útfærð.

Sér eftir múhameðsmyndaviðbrögðum

Ahmed Akkari, fyrrum talsmaður trúfélags danskra múslíma hefur skipt um skoðun í máli skopmyndanna af Múhameð spámanniog sér eftir orðum sínum og gjörðum.

Magnús verður framkvæmdastjóri borgarstjórnarflokks

Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur ráðið Magnús Sigurbjörnsson framkvæmdastjóra borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins. Magnús tekur við af Þóreyju Vilhjálmsdóttur sem nú er aðstoðarmaður innanríkisráðherra.

Segir refsiaðgerðir ólöglegar

Sigurður Ingi Jóhansson, sjávarutvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur kallað eftir fundi með ráðamönnum Noregs, Færeyja og Evrópusambandsins vegna makríldeilunnar.

Franska parið fundið

Franska parið sem björgunarsveitir leituðu að á Fjallabaksleið-Nyrðri í gærkvöldi og fram á nótt er komið fram.

Fengu 500 þúsund króna sekt fyrir smygl

Tollverðir haldlögðu fyrr í mánuðinum talsvert magn af smyglvarningi, sem átta skipverjar á flutningaskipinu Arnarfelli gengust við að eiga. Um var að ræða nær áttatíu lítra af áfengi og 6.800 vindlinga.

Kornabarn hætt komið á Hvammstanga

Eins árs stúlka var hætt komin þegar hún féll aftur fyrir sig í heimahúsi á Hvammstanga um miðnæturbil og hlaut þungt höfuðhögg.

Dorrit ríður um Brandenborgarhliðið

Setningarathöfn Heimsmeistaramóts íslenska hestsins fer fram á sunnudag og þá mun Dorrit Moussaieff, forsetafrú, ríða í gegnum Brandenborgarhliðið í Berlín ásamt hópreið íslenskra gæðinga sem fara í gegnum miðborgina að mótsvæðinu.

Færði gjörgæslu LSH tæki í þakklætisskyni

Margrét Skúladóttir Sigurz færði gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi tveggja milljóna króna gjöf til að þakka þeim fyrir að annast föður sinn, þegar hann dvaldi þar í rúman mánuð á síðasta ári. Hún fékk féð í fertugsafmælisgjöf.

Flest slys verða við bestu aðstæður

Björn Traustason, stjórnarmaður í Landssambandi íslenskra vélsleðamanna, segir að Langjökull, þar sem tævanskur ferðamaður lést í vélsleðaslysi í fyrradag, sé einn öruggasti staðurinn til slíkra ferða.

Vilja undanþágu til að skjóta svani

Bændur sem eiga repjuakra við Hornafjörð segja ræktuninni sjálfhætt fáist ekki undanþága frá umhverfisráðuneyti til að skjóta álftir sem leggist á akra. Búnaðarsamband Austur-Skaftafellssýslu vill að sveitarfélagið styðji undanþágumsókn.

Smávirkjanir fýsilegar til sjálfbærni Hornafjarðar

Sveitarfélagið Hornafjörður stefnir að því að auka orkuframleiðslu á eigin landi. Smávirkjanir eru fýsilegasti kosturinn í bili, en önnur spennandi verkefni gætu legið fyrir á næstu árum að sögn bæjarstjóra. "Verðum að horfa til langs tíma.“

Vill skýringar frá ráðuneyti

Umboðsmaður Alþingis fer fram á upplýsingar frá heilbrigðisráðuneytinu vegna sumarlokana hjá Sjúkratryggingum Íslands og úrskurðarnefnd almannatrygginga.

Taka ekki undir lýsingar lögreglu um mansalsmál

Lögregla segir engar vísbendingar um mansal hafa komið fram í um 100 vændismálum sem tekin hafi verið til skoðunar. Passar ekki við upplifun Stígamóta segir talskona samtakanna. Fimm konur sögðust sjálfar fórnarlömb mansals í fyrra.

Flóttafangar í örugga höfn hjá talibönum

Þeir 25 vígamenn sem talibanar frelsuðu úr fangelsi í Pakistan í fyrrakvöld eru komnir í örugga höfn í bækistöðvum hreyfingarinnar í Waziristan-héraði í norð-vesturhluta landsins.

Fleiri óbreyttir falla í Afganistan

Alls létu 1.319 óbreyttir borgarar lífið í átökunum í Afganistan á fyrri helmingi þessa árs. Það er 161 fleiri en var á sama tíma í fyrra, sem nemur um fjórtán prósenta fjölgun.

Sjá næstu 50 fréttir