Vilja undanþágu til að skjóta svani Garðar Örn Úlfarsson skrifar 31. júlí 2013 07:00 Eiríkur Egilsson á Seljavöllum segir álftina fara úr repjuökrum í önnur beitarlönd þegar plantan nær þeirri hæð að trufla fuglinn í flugtaki. Mynd/Ólafur Eggertsson
Bændur sem eiga repjuakra við Hornafjörð segja ræktuninni sjálfhætt fáist ekki undanþága frá umhverfisráðuneyti til að skjóta álftir sem leggist á akra. Búnaðarsamband Austur-Skaftafellssýslu vill að sveitarfélagið styðji undanþágumsókn. „Það er ekki verið að tala um að skjóta álftina stjórnlaust heldur að menn hafi leyfi til að verja sína akra,“ segir Eiríkur Egilsson, bóndi á Seljavöllum og formaður Búnaðarsambands Austur-Skaftfellinga sem vill heimild til að skjóta álftir sem leggjast á olíurepjuakra. „Þær hlífa engu þessar álftir. Kornrækt er til dæmis aflögð í Lóni út af álftum,“ segir Eiríkur sem kveður fimm bændur í Nesjum nú vera með samtals sautján hektara undir í olíurepjuræktun í tilraunaskyni. Að sögn Eiríks lofar repjuræktunin góðu. Menn vonist til að sala á matarolíu úr repjunni standi undir tilkostnaðinum. Eftir sitja bændur með hratið sem nota megi í skepnufóður í stað innflutts fóðurs.Eiríkur Egilsson segir álftum hafa fjölgað gríðarlega síðustu tuttugu árin.Mynd/Stöð 2„En það er til lítils að vera að kosta hundruðum þúsunda á hverju vori og heilmikilli vinnu í þessa ræktun ef fuglinn má svo bara koma og hirða þetta allt saman,“ segir Eiríkur. Álftin sé miklum mun ágengari en gæsir og erfitt að fæla hana í burt. Geldfuglinn, sem eðli málsins samkvæmt verpir ekki, sé stærsta vandamálið. Eiríkur segir eina álft éta á við kind með tvö lömb. „Hvaða bóndi halda menn að væri með 50 til 100 tvílembur í kornakrinum eða repjuakrinum hjá sér?“ spyr Eiríkur og bendir einnig á að mikil mengun fylgi skítnum frá álftinni. „Það er varla skófært um túnin.“ Hornafjörður styrkir tilraunaræktunina með repjuna. Búnaðarsambandið vill nú að sveitarfélagið beiti sér til að fá umhverfisráðuneytið til að veita undanþágu frá eitt hundrað ára gömlum lögum um friðun álftarinnar. „Það er alveg sama hversu margar ályktanir og samþykktir hafa verið gerðar á hverjum fundinum á fætur öðrum. Það hefur ekki fengist ein einasta undanþága á landinu til að skjóta þessar álftir,“ segir Eiríkur. Hann vonast til að staðan breytist með atbeina sveitarfélagsins. „Ljósið í myrkrinu er að það er kominn nýr ráðherra. Ég gæti trúað því að hann hefði betri skilning á þessu heldur en fyrrverandi ráðherra. Það er munur á hvort menn sjá þetta í túninu hjá sjálfum sér eða á Tjörninni í Reykjavík,“ segir Eiríkur Egilsson.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Fleiri fréttir Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sjá meira