Komið að ögurstundu í deilu geislafræðinga Heimir Már Pétursson skrifar 31. júlí 2013 11:00 Katrín Sigurðardóttir, formaður Félags geislafræðinga, segir komið að ögurstundu í viðræðum þeirra við yfirstjórn Landsspítalans.
Formaður Félags geislafræðinga segir komið að ögurstundu í viðræðum þeirra við yfirstjórn Landsspítalans og ekki dugi að gefa loforð um leiðréttingu kjara þeirra í komandi kjarasamnngum. Tveir þriðju starfandi geislafræðinga ganga út af spítalnum eftir tólf klukkustundir náist ekki samningar. Tíminn er að renna út varðandi lausn á deilu geislafræðinga og Landsspítalans, en uppsagnir um fjörtíu geislafræðinga taka gildi um miðnætti hafi ekki samist . Katrín Sigurðardóttir formaður Félags geislafræðinga segist bjartsýn að eðlisfari og hún héldi í vonina skömmu áður en hún fór inn á samningafund upp úr klukkan ellefu í morgun. Fréttastofan hefur heyrt að búið sé að bjóða geislafræðingum einhverja hækkun, er það rétt? „Auðvitað er eitthvað inn í myndinni og hefur verið frá upphafi. En spurningin er hvað og hvernig. Það eru ákveðnir hlutir sem geislafræðingar hafa talað um og við erum að berjast við að koma til skila því sem fólki finnst vanta upp á svo það geti hugsað sér að starfa þarna áfram,“ segir Katrín. Katrín segir kröfur geislafræðinga snúast um fleira en beinar launahækkanir og á sumum sviðum hafi verið komið til móts við þeirra kröfur, en ekki launaliðinn. Sjúkrahúsið telji sig ekki hafa leiðir til að koma til móts við heildarkröfurnar. Kjarasamningur geislafræðinga eins og annarra opinberra starfsmanna rennur út um áramótin. Duga einhver loforð inn í þær viðræður til að leysa þann hnút sem málin eru í núna? „Það er mjög erfitt með þessi loforð, því það er búið að lofa svo oft með alls konar bókunum sem er svo ekki staðið við. Af hvaða ástæðum sem það er. Þannig að það er mjög ósanfærandi í okkar eyrum,“ segir Katrín. Það verði að leysa málið núna. Um fjörtíu geislafræðingar hætta störfum á miðnætti, eða tveir þriðju allra geislafræðinga á spítalanum, ef samningar takast ekki í dag. Það sé engan bilbug á geislafræðingum að finna. „Nei, einstaklingarnir eru búnir að ákveða að þeir geti ekki lengur sætt sig við stöðuna og ég heyri ekki annað á fólki en það sé algerlega búið að fá nóg. Og það er ekkert sem maður getur gert í því annað en reyna að finna leiðir til að afstaða þess breytist,“ segir Katrín Sigurðardóttir formaður Félags geislafræðinga.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Fleiri fréttir Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sjá meira