Fleiri fréttir

Fjórðungur með laun undir 250 þúsund

Ríflega fjórðungur vinnandi fólks í Reykjanesbæ er með laun undir 250 þúsund krónum. Könnun sem Atvinnu- og hafnasvið í samstarfi við fjármálaskrifstofu Reykjanesbæjar er að vinna sýnir að 65% þeirra sem eru á aldrinum 18-67 ára voru við vinnu í febrúar síðastliðnum.

Baulað á Thorning-Schmidt

Baulað var á Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur, þegar hún hugðist halda ræðu í Árósum í dag, í tilefni af 1. maí. Að minnsta kosti einn maður var handtekinn fyrir að sprauta vatni á forsætisráðherra, að því er fram kemur á vef Jyllands-Posten. Svo mikil varð truflunin að forsætisráðherran gat varla komið upp orði. Hún hóf þó upp raust sína á endanum og hélt ræðuna. Hún endaði hana á því að óska þeim sem væru komnir til að hlusta og eiga rökræður gleðilegs verkalýðsdags.

Þúsund grænir fánar fari niður

Náttúruvinir ætla að setja niður þúsund græna fána á Austurvelli í dag, í tengslum við Grænu gönguna. Gangan var farin niður Laugaveg á eftir kröfugöngu verkalýðsfélaganna.

Fjöldi fólks fagnar verkalýðsdeginum

Mikill fjöldi fólks er samankominn í miðborg Reykjavíkur til þess að fagna verkalýðsdeginum. Hátíðarsamkomur og kaffisamsæti verða að minnsta kosti á 38 stöðum á landinu í dag, 1. maí, í tilefni af baráttudegi verkalýðsins. Í hádegisfréttum Bylgjunnar hvatti Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambandsins landsmenn til að fjölmenna og sýna samstöðu á frídeginum en hann vonast til að launafólk nái eyrum nýkjörinna þingmanna.

Allt tal um minnihlutastjórn brandari

Allt tal um minnihlutastjórn hljómar eins og brandari. Þetta segir sagnfræðingur sem rannsakað hefur stjórnarmyndarnir og stjórnarslit á Íslandi. Stjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks sé langlíklegasta niðurstaðan þegar menn séu búnir að sýna skrautfjaðrirnar og dansa stríðsdansa.

Fundurinn haldinn til að skýra myndina

"Þetta var ágætur fundur,“ sagði Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, eftir að hún hitti Sigmund Davíð Gunnlaugsson í morgun. Fundarefnið var stjórnarmyndun, en Sigmundur Davíð sagði í gær, þegar hann fékk stjórnarmyndunarumboð, að hann hygðist ræða við forystumenn allra flokka á Alþingi. Katrín sagði við fréttamann Stöðvar 2 og Vísis að engin niðurstaða hefði orðið af fundinum, en farið hefði verið yfir þau stefnumál sem VG og Framsóknarflokkurinn myndu leggja áherslu á ef til stjórnarmyndunar kæmi.

Steinunn fiskaði vel

Smábáturinn Steinunn HF, sem er gerður út frá Flateyri, hefur veitt gríðarlegt magn af steinbít núna í apríl. Mokið hjá þeim byrjaði um miðjan apríl þegar að þeir náði að komast yfir 10 tonn í einum róðri, að því er fram kemur á vefnum Aflafréttir. Veislan hélt áfram og í næstu róðrum á eftir kom báturinn með yfir 10 tonn, og samtals landaði báturinn 177 tonnum í 14 róðrum sem gerir 12,6 tonn í róðri.

Fundir forystumanna halda áfram

Fundir Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, með forystumönnum annarra flokka sem eiga kjörna þingmenn halda áfram. Hann átti fund með Katrínu Jakobsdóttur í bítið og mun funda með forystumönnum Bjartrar Framtíðar klukkan ellefu. Hann fundaði með Árna Páli Árnasyni, formanni Samfylkingarinnar, og Birgittu Jónsdóttur, kapteini Pírata, í gær.

Apríl sá kaldasti síðan um aldamót

Aprílmánuður var sá kaldasti í Reykjavík síðan árið 2000 og á Akureyri frá 1990. Úrkoma var um 70% af meðalúrkomu í Reykjavík, en í rétt rúmu meðallagi á Akureyri, eftir því sem fram kemur á vef Veðurstofunnar. Í Reykjavík voru sólskinsstundirnar óvenju margar, höfðu mælst 212 þegar einum miklum sólardegi var ólokið. Trúlega verður þetta þriðji mesti sólskinsapríl í Reykjavík frá upphafi mælinga.

Telur minnihlutastjórn vera góðan kost

"Ég held að það sé mögulegt að útkoma stjórnarmyndunar muni koma öllum á óvart," segir Birgitta Jónsdóttir, kapteinn Pírata, sem fundaði með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Framsóknarflokksins, í gær um stjórnarmyndun. Sigmundur Davíð fundaði einnig með Árna Páli Árnasyni, formanni Samfylkingarinnar, og hyggst funda með fleirum í dag.

Sprotafyrirtæki selt á milljarð

Íslenska sprotafyrirtækið CLARA ehf. hefur verið selt bandaríska hugbúnaðarfyrirtækinu Jive Software Inc. fyrir sem svarar um einum milljarði króna. Jive er skráð á Nasdaq-hlutabréfamarkaðinn í New York. Upplýst er um kaupin í ársfjórðungsuppgjöri Jive.

Líklegra að brotið sé á fötluðum konum

Fatlaðar konur eiga frekar á hættu að verða fyrir kynferðisofbeldi en aðrar konur. Nýleg sænsk rannsókn sýnir að þrisvar sinnum líklegra sé að þroskaheftar konur verði fyrir slíkum brotum, en engar rannsóknir hafa verið gerðar á slíku hérlendis þótt vísbendingar bendi í svipaða átt.

Tvö þúsund kafarar borguðu ofan í Silfru

„Ég hræðist ekki þessa aðsókn þegar við getum gert aðbúnaðinn góðan og fyrirtækjunum líður vel,“ segir Ólafur Örn Haraldsson, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum, þar sem aðsókn í köfun og snorkl í gjána Silfru var verulega umfram það sem menn áttu von á í mars og apríl.

Dæmdar 50.000 krónur í bætur

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær íslenska ríkið til að greiða konu 50 þúsund krónur í miskabætur. Konan hafði réttarstöðu sakbornings við rannsókn máls, en niðurstaðan var sú að hún hefði ekki tengst málinu.

Frábær árangur segir Jón Gnarr

„Annað árið í röð er taprekstur í borginni sem gefur til kynna að aðhald í rekstri borgarinnar sé ábótavant,“ segir í tilkynningu sem borgarstjórnarflokkur sjálfstæðismanna sendi frá sér í tilefni birtingar ársreiknings Reykjavíkurborgar.

Sviptur kjörgengi ævilangt

Pervez Musharraf, fyrrverandi leiðtogi herforingjastjórnarinnar í Pakistan, er ekki lengur kjörgengur í landinu. Þetta er niðurstaða dómstóla og gildir til frambúðar, en hann hafði hugað á endurkomu í stjórnmálin.

Obama vill loka Guantanamo

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, telur nauðsynlegt að sannfæra fulltrúadeild Bandaríkjaþings um að loka fangabúðunum í Guantanamo Bay. Hann segir að fangabúðirnar séu til þess fallnar að sannfæra öfgamenn í andúð sinni gegn Bandaríkjunum og að þær ógni öryggi Bandaríkjanna.

Eykon kynnir olíufélög í þriðja leyfið á Drekasvæðinu

Þriðja olíuleitarleyfið á Drekasvæðinu er komið í formlegt ferli hjá Orkustofnun eftir að Eykon Energy tilkynnti að það væri komið með viljayfirlýsingu frá erlendum olíufélögum um samstarf. Þegar fyrstu sérleyfunum til rannsókna og olíuvinnslu á Drekasvæðinu var úthlutað í Ráðherrabústaðnum í byrjun ársins fengu bara tveir af þremur umsækjendum leyfi. Þriða umsóknin, frá Eykon, fór í bið þar til fyrirtækinu hefði tekist að afla sér samstarfsaðila með nægjanlega sérþekkingu, reynslu og bolmagn til að annast olíuleit og var frestur veittur til 1.maí. Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri segir í viðtali í fréttum Stöðvar 2 að Eykon hafi tilkynnt Orkustofnun að félagið sé komið með viljayfirlýsingu frá hugsanlegum samstarfsaðilum, sem gætu uppfyllt skilyrðin. "Það þýðir að við munum nú setja þetta mál í ferli," segir Guðni. Að félaginu Eykon Energy ehf. standa meðal annarra Heiðar Már Guðjónsson, Gunnlaugur Jónsson og Norðmaðurinn Terje Hagevang. Nöfn samstarfsaðila Eykons eru ekki gefin upp að sinni en orkumálastjóri segist sjá augljósa möguleika á að þeir hafi styrk til að uppfylla öll skilyrði. Hann kveðst ekki vilja svara því hvort þetta séu stór og þekkt fyrirtæki í olíugeiranum. "En auðvitað eru þetta fyrirtæki sem við teljum líkleg til að uppfylla skilyrðin." Hann segir þetta sýna að Drekasvæðið sé komið á kortið í olíuheiminum, það sé áhugi á svæðinu til framtíðar. Miðað við fyrri reynslu segir orkumálastjóri að liðið geti tíu mánuðir þar til þriðja leyfið verði gefið út. Gefa þurfi noðrmönnum tækifæri til að koma inn í leyfið með sama hætti og þeir gerðu þegar norska ríkisolíufélagið Petoro kom inn í hin leyfin. "Þannig að það er töluvert ferli framundan áður en þetta er allt klárt," segir Guðni.

Ekki hægt að sakast við Árna Pál

Ekki er hægt að sakast við Árna Pál Árnason formann Samfylkingarinnar um fylgishrun flokksins í kosningunum að mati stjórnmálafræðings þar sem Árni hafi tekið við flokknum þegar hann mældist með tiltölulega lágt fylgi. Hann telur Árna hafa verið í sambærilegri stöðu og Bjarni Benediktsson þegar hann tók við Sjálfstæðisflokknum eftir hrun.

Margrét Hauksdóttir verður forstjóri Þjóðskrár

Margrét Hauksdóttir tekur við embætti forstjóra Þjóðskrá Íslands á morgun af Hauki Ingibergssyni sem óskaði lausnar á síðasta ári. Haukur var skipaður forstjóri Fasteignamats ríkisins 1. mars 2000, sem síðar varð Fasteignaskrá Íslands þar til að Fasteignaskrá og Þjóðskrá Íslands voru sameinaðar í eina stofnun, Þjóðskrá Íslands frá og með 1. júlí 2010.

Frétt um útstrikanir reyndist röng

Frétt um útstrikanir oddvita frambjóðenda í Reykjavíkurkjördæmi norður, sem Vísir greindi frá fyrr í dag, er röng. Vísir greindi þar frá því að Björt Ólafsdóttir hefði verið með hæsta hlutfall útstrikana og að Illugi Gunnarsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, hefði verið oftast strikaður út.

Efnavopnum hugsanlega beitt í Sýrlandi

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, segir vísbendingar um að efnavopnum hafi verið beitt í Sýrlandi. Þetta sagði hann á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í dag. Á blaðamannafundinum ræddi Obama líka um rannsóknina á hryðjuverkunum í Boston og stöðu ríkisfjármála í Bandaríkjunum.

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins komu saman

Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins kom saman á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins, í Valhöll, klukkan tvö í dag. Þar fer þingflokkurinn saman yfir niðurstöður nýafstaðnar kosningar og tíðindi dagsins þar sem Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, veitti Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Framsóknarflokksins, stjórnarmyndunarumboð.

Eðlilegt að Sigmundur fengi umboðið

"Ég var búin að lýsa því yfir strax eftir kosningar að líklegast væri eðlilegast að Sigmundur fengi umboðið," segir Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, um atburði morgunsins. Annars vegar sé Framsóknarflokkurinn annar af stærstu flokkunum og hins vegar sé flokkurinn stærsti sigurvegarinn í kosningunum.

Guðmundur Steingrímsson setur skýr skilyrði fyrir stjórnarþátttöku

Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar, segir að hann myndi mæta til fundar við Sigmund Davíð um stjórnarmyndun ef hann fengi símtal frá honum. Sigmundur Davíð sagði í dag að hann myndi tala við formenn allra flokka sem fengu kjörna menn á þing í stafrófsröð.

Sigmundur Davíð fær umboðið

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, fær umboð til stjórnarmyndunar frá forseta Íslands. Ólafur Ragnar Grímsson forseti tilkynnti þetta nú í hádeginu.

Nauðgað kvöldið fyrir heimferð

Ráðist var á konu á þrítugsaldri og hún beitt líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi í verslunarhúsnæði í austurborginni um þarsíðustu helgi. Konan, sem er frá Ástralíu og var ferðamaður hér á landi, hlaut mikla líkamlega áverka eftir árásina. Hún hafði átt að fljúga til síns heima um morguninn.

Ólafur boðar Sigmund Davíð á fund sinn

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur boðað Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Framsóknarflokksins, til fundar á Bessastöðum í dag klukkan hálftólf. Þar mun forsetinn væntanlega veita Sigmundi Davíð umboð til stjórnarmyndunar. Forsetinn ætlar að ræða við fjölmiðla að loknum fundi.

Ótrúleg heppni íþróttafréttakonu

Það er óhætt að segja að íþróttafréttakonan Kelly Nash hafi sloppið með skrekkinn á dögunum þegar hún fékk næstum því hafnarbolta í höfuðið.

Ölvuð með barn í bílnum

Kona á fertugsaldri var stöðvuð við akstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Hún var undir áhrifum áfengis. Með í för var barnið hennar en gerðar voru viðeigandi ráðstafanir í þágu þess og barnaverndaryfirvöld upplýst um málið. Lögreglan segir að því miður sé mál sem þetta ekki einsdæmi.

Hæfileikaríkt krútt

Suzuki Swift Sport er einstaklega skemmtilegt leiktæki, hagkvæmur og fallegur.

Sjá næstu 50 fréttir