Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
260 borga mest allt sitt í auðlegðarskatt Nokkur hundruð manns borga stóran hluta tekna sinna í auðlegðarskatt. Yfirleitt er um fólk að ræða sem er 65 ára og eldra. Stór hópur hefur innan við fimm milljónir í árstekjur. Eignasala er oft eina lausnin til að mæta skattinum. 7.3.2013 06:00
Sektum gegn rusli er ekki beitt Ef sektir fyrir að fleygja rusli á almannafæri eiga að þjóna tilgangi sínum og hafa fælingarmátt þarf hert eftirlit og hærri sektir. Þetta segir deildarstjóri umhverfis- og úrgangsstjórnunar hjá Reykjavíkurborg. 7.3.2013 06:00
Vilja sérstaka afeitrunarmeðferð fyrir konur „Það er mjög brýnt að byrja á því að kynjaskipta afeitruninni og skoða þessar kvennameðferðir sem eru í gangi til að sjá hvað má betur fara,“ segir Ilmur Kristjánsdóttir, leikkona og stofnfélagi Rótarinnar – félags um málefni kvenna með áfengis- og fíknivanda. 7.3.2013 06:00
Hrogn fryst allan sólarhringinn Frysting á loðnuhrognum hófst hjá fiskiðjuveri HB Granda á Akranesi um liðna helgi og hefur hrognaskurðurinn og frystingin gengið vel þessa fyrstu daga. Unnið er allan sólarhringinn í loðnuhrognavinnslunni á Akranesi. 7.3.2013 06:00
Vargöld ríkir í undirheimum Danmerkur Mikil óöld hefur ríkt í undirheimum Kaupmannahafnar þar sem glæpaklíkur takast á. Frá áramótum hafa tveir verið drepnir og margir hafa særst í fjölmörgum hnífa- og skotárásum. 7.3.2013 06:00
Vantraust ekki til umræðu á morgun Tillaga Þórs Saari, þingmanns Hreyfingarinnar, um vantraust á ríkissstjórnina verður ekki til umræðu á þinginu á morgun. Þetta staðfesti Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, við Ruv.is í kvöld. 6.3.2013 23:39
Nýtti tækifærið og synti nakinn "Ég gat ekki sleppt því tækifæri að synda í sjónum norður fyrir heimskautsbauginn,“ segir bandaríski ferðamaðurinn Link Kokiri í samtali við vef Akureyrarbæjar. 6.3.2013 23:31
"Mér finnst þetta svolítið ósanngjarnt“ "Maður er allur boðinn og búinn til að hjálpa,“ segir Guðjón Þorbjörnsson sem keyrði fram hjá fjölda bifreiða á höfuðborgarsvæðinu í dag sem hefðu vafalítið vel þegið hans aðstoð. 6.3.2013 23:03
Vinningurinn nýttur í baráttu eiginkonunnar við krabbamein Körfuboltaáhugamaðurinn Heath Kufahl fagnaði ógurlega þegar skot hans frá miðju á NBA-leik á dögunum hafnaði í körfunni. 6.3.2013 22:38
Dóttir Michael Jackson orðin klappstýra Paris Jackson, dóttir tónlistargoðsagnarinnar Michael Jackson, stendur sig vel í klappstýruhlutverkinu hjá Sherman Oaks Buckley gagnfræðaskólanum í Kaliforníu. 6.3.2013 22:24
Fjórum sinnum á hausinn á leiðinni í vinnuna "Þetta var allt mjúkt nema þriðja byltan,“ segir hjólreiðakappinn Þorfinnur Pétur Eggertsson sem flaug fjórum sinnum á hausinn á leið sinni á hjólinu í vinnuna í morgun. 6.3.2013 21:39
Hlýnar og slær á skafrenning í kvöld Vonskuveður er á Suðurlandi og víðast hvar ekki ferðaveður. Á láglendi suðvestanlands hlýnar upp undir frostmark í kvöld og slær verulega á skafrenning. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. 6.3.2013 21:10
Bíða enn eftir gögnum frá Eir Nokkrir fyrrverandi íbúar á hjúkrunarheimilinu Eir, sem enn eiga eftir að fá greiddar um samtals tvöhundruð milljónir fyrir búseturétt, eru ósáttir við sáttarleið stjórnarinnar. Lögmaður segir gjaldþrot ekki endilega verri kostinn en mjög illa hefur gengið að fá gögn frá heimilinu til að varpa ljósi á stöðuna. 6.3.2013 20:43
"Þetta getur ekki versnað“ Vöruskortur gerði vart við sig í verslunum í úthverfum Reykjavíkur í dag. Þeir sem ætluðu að næla sér í eitthvað nýbakað í Nettó í Hverafold í Grafarvogi í dag urðu fyrir vonbrigðum. 6.3.2013 19:55
Fólk hvatt til að moka frá sorpgeymslum Ekki reyndist unnt að sinna sorphirðu í Vesturbæ Reykjavíkur í dag eins og til stóð sökum ófærðar og hindrana í íbúðargötum. Ekki er heldur hægt að klára verkefnin í Grafarvogi af sömu ástæðum. Hafist verður handa við að losa sorptunnur strax í fyrramálið ef veður og aðstæður leyfa. 6.3.2013 19:18
Sinfó sló í gegn Sinfóníuhljómsveit Íslands hlaut mikið lof tónleikagesta fyrir tónleika sína í Kennedy-listamiðstöðinni í Washington í Bandaríkjunum á mánudagskvöldið. Tónleikarnir voru hluti af listahátíðinni Nordic Cool sem stendur yfir í Washington. 6.3.2013 19:04
Skólar verða opnir á morgun 150-200 björgunarsveitamenn hafa unnið að um 140 verkefnum á höfuðborgarsvæðinu í dag. Fólk er hvatt til að fylgjast vel með upplýsingum um veður í fjölmiðlum í fyrramálið. 6.3.2013 18:28
Flestir flugu til Kaupmannahafnar Tæplega 380 þúsund farþegar flugu frá Keflavík til Kastrup-flugvallar í Kaupmannahöfn árið 2012. Þetta kemur fram í samantekt vefsíðunnar turisti.is. 6.3.2013 18:08
Steinunn lætur af störfum Steinunn Stefánsdóttir, aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins, hefur látið af störfum hjá blaðinu eftir tólf ára starf. Það tilkynnti hún samstarfsmönnum sínum í tölvupósti síðdegis í dag. 6.3.2013 17:58
„Dapurlegt raus hjá ASÍ“ "Þetta er óttalega dapurt raus hjá ASÍ og ég vísa þessu auðvitað til föðurhúsanna." Þetta segir Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hagkaupa um hugmyndir ASÍ að þær verslanir sem ekki taka þátt í verðlagskönnun sambandsins séu að leit skjóls til verðhækkana. 6.3.2013 17:48
Ekkert flogið innanlands í dag Öllu flugi innanlands í dag hefur verið aflýst. Þetta kemur fram á heimasíðum Flugfélags Íslands og Flugfélagsins Ernis. Millilandaflug hefur þó gengið nokkuð áfallalaust fyrir sig. 6.3.2013 17:46
Þór Saari leggur fram vantrauststillögu að nýju Þór Saari lagði í dag fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina. Hann hefur jafnframt óskað eftir því við Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, að tillagan verði tekin á dagskrá þingsins á morgun. 6.3.2013 17:22
Vindur fer minnkandi í Reykjavík - Stormi spáð með suðurströndinni "Veðrið á eftir að batna víðast hvar, nema kannski á suðurströndinni,“ segir Þorsteinn Jónsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Síðdegis gaf Veðurstofa út viðvörun en búist er við stormi eða roki á suður- og vesturlandi á morgun. 6.3.2013 17:07
Veðurstofan gefur út stormviðvörun fyrir morgundaginn Veðurstofa Íslands hefur gefið út viðvörun en búist er við stormi eða roki (meðalvindhraða meiri en 23 m/s) S- og V-til á landinu fram á nótt og syðst á landinu á morgun. 6.3.2013 15:56
Strætó að hefja ferðir á ný Stefnt er að því að hefja akstur upp úr klukkan fjögur á helstu stofnleiðum Strætós og þeim minni eftir því sem vegirnir eru ruddir. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Strætó. 6.3.2013 15:37
Buðu björgunarsveitarmönnum í hádegismat "Þetta æxlaðist þannig að ein kona sem starfar hjá okkur er í björgunarsveitinni í Garðabæ. Hún er bara í viðbragðsstöðu en við ákváðum í hádeginu að bjóða þeim sem komust í mat,“ segir Gísli Þorsteinsson, markaðsstjóri Nýherja, en fyrirtækið bauð björgunarsveitarmönnum í hádegismat í dag til þess að hvíla lúin bein eftir erfið verkefni morgunsins. 6.3.2013 15:29
Foreldrar mega sækja börnin í skólann - flestar stofnæðar færar Flestar stofnæðar á höfuðborgarsvæðinu eru nú færar umferð. Korpuvegur er þó ófær og er umferð til og frá Grafarvogi beint um Gullinbrú og Víkurveg. Ártúnsbrekka er þungfær, sem og aðreinar upp á Höfðabakkabrú. 6.3.2013 15:29
Lokuðust inni í tæpar fimm klukkustundir Bílaröð á Vesturlandsvegi komst hvergi eftir að veginum var lokað snemma á níunda tímanum í morgun. Varlega áætlað voru hátt í eitt þúsund bílar fastir á Vesturlandsvegi við jaðar Grafarholts. 6.3.2013 15:14
Russell Crowe sá fljúgandi furðuhlut Stórleikarinn og Íslandsvinurinn Russell Crowe fullyrðir að hann hafi séð fljúgandi furðuhlut hátt yfir borginni Sidney í Ástralíu á dögunum. 6.3.2013 14:58
Vilja að heildarendurskoðun stjórnarskrár verði lokið á 70 ára afmælinu Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, Katrín Jakobsdóttur, formaður VG, og Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar, leggja í dag fram frumvarp til breytingar á stjórnarskrá sem heimilar stjórnarskrárbreytingar á næsta kjörtímabili og tillögu til þingsályktunar um að heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar á grundvelli tillagna stjórnlagaráðs verði lokið á 70 ára afmæli lýðveldisins árið 2014. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Samfylkingarinnar. Þar kemur líka fram að formenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hafa verið upplýstir um þennan tillöguflutning. Vonir standa til að unnt verði að mæla fyrir báðum málunum í dag og koma þeim til nefndar. 6.3.2013 14:45
Brjálað að gera hjá 112 - 800 tilkynningar fyrir hádegi "Það stefnir í að þetta sé mesta álag hjá okkur frá upphafi - frá því klukkan átta í morgun og fram að hádegi bárust um 800 tilkynningar til okkar,“ segir Þórhallur Ólafsson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar. 6.3.2013 14:37
Norðfjarðarvegi lokað vegna umferðarslyss Norðfjarðarvegur um Hólmaháls er lokaður vegna umferðarslyss, samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Eskifirði. Þar er einnig vonskuveður og blindbylur. 6.3.2013 14:15
Innrásin frá Kína hefst með Qoros Stjórnendur Qoros koma frá BMW, General Motors, Jaguar/Land Rover, Saab og Volvo. Salan hefst í Evrópu fljótlega á næsta ári. 6.3.2013 14:00
50 strandaglópar hjá Strætó "Andrúmsloftið er þokkalegt,“ segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjór Strætó, en um fimmtíu farþegar sitja fastir í höfuðstöðvum Strætó í Hesthálsi, skammt frá Ártúnsbrekkunni. 6.3.2013 13:57
Þessir mega sækja börnin sín í skólann - farið eftir tilmælum lögreglu Lögregla og almannavarnir á höfuðborgarsvæðinu vilja ítreka enn og aftur mikilvægi þess að börn séu ekki sótt í skólana fyrr en tilkynning þess efnis hefur verið send út frá lögreglu. 6.3.2013 13:48
Carrie Fisher leikur Leiu prinsessu á ný Fregnir herma að bandaríska leikkonan Carrie Fisher muni á ný taka sér stöðu meðal uppreisnarmanna í fjarlægri vetrarbraut. 6.3.2013 13:46
Þeir sem eru með hungruð börn í bílum beðnir um að hringja í 112 Þeir sem eru fastir í bifreiðum með börn sem eru farin að finna til hungurs, eru beðinn um að láta lögregluna vita í síma 112 svo hægt sé að aðstoða. Þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar þar sem hún mun reyna að koma tilkynningum áleiðis til vegfarenda í dag. 6.3.2013 13:24
Landhelgisgæslan til aðstoðar vegna ófærðarinnar Starfsmenn séraðgerða- og sprengjueyðingasviðs Landhelgisgæslunnar voru í morgun kallaðir til aðstoðar lögreglu og slökkviliði höfuðborgarsvæðisins vegna ófærðarinnar. Fylgja ökutæki þeirra nú neyðarbílum í útköll og tryggja greiðan aðgang þeirra um höfuðborgarsvæðið. 6.3.2013 13:14
Athugað með akstur klukkan hálftvö Klukkan hálftvö verður skoðað hvort hægt verði að hefja akstur strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu. Strætisvagnaferðir hafa verið í lamasessi í allan dag vegna veðurs. Þá sinnir heimaþjónusta sveitarfélaganna einungis brýnustu erindum. 6.3.2013 13:06
Strandaglópar leituðu skjóls hjá Matís - tugir fastir hjá Strætó "Það voru fjórir í mat hjá okkur, en sex leituðu til okkar út af veðrinu,“ segir Guðlaug Þóra Marinósdóttir, skrifstofustjóri hjá Matís, en sex veðurtepptir ökumenn leituðu til þeirra í morgun vegna óveðursins. 6.3.2013 13:02
Engin alvarleg slys en mikið eignatjón Engin alvarleg slys urðu á fólki í árekstrinum á Hafnarfjarðarveginum í morgun. Það er þó ljóst að eignartjón er gríðarlega mikið. 6.3.2013 11:52
Unnið að því að ryðja götur og aðstoða fólk Áfram er lögð áhersla á að halda stofnbrautum og strætisvagnaleiðum opnum, sem og helstu göngu- og hjólaleiðum samkvæmt tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Vel gengur miðað við aðstæður. Þeir sem sinna snjóruðningi ítreka að fólk leggi ekki af stað á vanbúnum bílum. 6.3.2013 11:32
Almannavarnir: Ekki sækja börnin ykkar í skólann Almannavarnir sendu frá sér tilkynningu nú rétt í þessu en þar segir að börnin eru örugg í skólunum. "Vinsamlegast reynið ekki að komast til þess að sækja þau fyrr en aðstæður leyfa og lögregla hefur gefið út tilkynningu þar að lútandi. Allir björgunaraðilar á svæðinu eru á ferðinni og einkabílar í umferðinni eru til mikilla trafala við björgunarstörf.“ 6.3.2013 11:17
Strætó í hremmingum Öllum ferðum Strætó, bæði innan höfuðborgarsvæðisins og utan, hefur verið aflýst í augnablikinu vegna veðurs og færðar. Skoðað verður með akstur næst klukkan hálfeitt. Einnig hefur Ferðaþjónusta fatlaðra í Reykjavík hætt akstri. Á vefsíðu Strætó kemur fram að unnið verður í því eins og hægt er að koma þeim heim sem fóru af stað í morgun. 6.3.2013 11:03
Hátt í 20 bíla árekstur á Hafnarfjarðarveginum Um 15 til 20 bíla árekstur varð skömmu fyrir hálf ellefu á Hafnarfjarðarveginum suður við Kópavogslækinn. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu hafa sjúkrabílar verið kallaðir á vettvang og tækjabíll slökkviliðsins. 6.3.2013 11:01