260 borga mest allt sitt í auðlegðarskatt Svavar Hávarðsson skrifar 7. mars 2013 06:00 Þeir sem greiða auðlegðarskatt eru gjarnan 65 ára og eldri með undir fimm milljónir í árslaun. fréttablaðið/pjetur
Nokkur hundruð manns borga stóran hluta tekna sinna í auðlegðarskatt. Yfirleitt er um fólk að ræða sem er 65 ára og eldra. Stór hópur hefur innan við fimm milljónir í árstekjur. Eignasala er oft eina lausnin til að mæta skattinum. Af um þrjú þúsund einstaklingum sem greiddu auðlegðarskatt árið 2012 greiddu um 260 stærstan hluta heildartekna sinna frá árinu á undan í opinber gjöld. Þeir sem greiða auðlegðarskatt eru að stofninum til einstaklingar sem eru 65 ára og eldri. Þetta kemur fram í svari Katrínar Júlíusdóttur, fjármála- og efnahagsráðherra, við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokks, um auðlegðarskatt í gær. Í fyrirspurn Guðlaugs er spurt hversu stór hluti þeirra sem greiddu skattinn greiddi meira en 75% en minna en 100% af tekjum sínum í opinber gjöld. Það eru 1,9% af heildarfjölda þeirra sem greiddu skattinn, eða um sextíu manns. Þegar spurt var hversu margir greiddu meira en helming en minna en 75% af tekjum sínum í opinber gjöld er svarið 6,4% sem greiddu skattinn, eða um 200 manns. „Uppistaðan af því fólki sem greiðir þennan skatt er fólk sem fékk ekki að greiða í lífeyrissjóð og þurfti því að gera eigin ráðstafanir. Fólk sem eignaðist góðar skuldlausar eignir sem þarf núna að selja þær til að borga skattinn. Enginn sem þarf að borga svona hátt hlutfall af tekjum sínum í skatt getur mætt þessu með öðrum hætti. Það hefur verið hrópað mannréttindabrot af minna tilefni en þessu,“ segir Guðlaugur. Auðlegðarskattur, sem var tekinn upp í lok árs 2009, er lagður á einstaklinga sem eiga eignir umfram 75 milljónir króna og hjón sem eiga eignir umfram 100 milljónir króna. Um þriðjungur þeirra sem greiða skattinn eru 65 ára eða eldri og margir þeirra hafa innan við fimm milljónir króna í árstekjur en eignir bundnar í húsnæði sem engar tekjur eru af. Eignastýring Íslandsbanka, meðal annarra, hefur birt greiningar sem sýna þetta. Skatturinn átti að vera tímabundinn til þriggja ára en var síðar framlengdur og hann hækkaður. Guðlaugur bendir á að margar þeirra þjóða sem lagt hafa á eignaskatt sem þennan hafa lagt hann af fljótlega. Í Þýskalandi var hann ekki talinn samræmast stjórnarskrá landsins. „Þegar þessi skattur var lagður á hér var þessi þróun erlendis ekki höfð til hliðsjónar,“ segir Guðlaugur.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Segja engan fund á dagskrá Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira