Fleiri fréttir

Fjármálaöryggi heimilanna í forgangi hjá Hægri grænum

Fjármálaöryggi heimilanna verður sett í forgang hjá Hægri grænum, flokki fólksins að því er fram kemur í landsfundarályktun Hægri grænna sem send var til fjölmiðla í morgun en landsfundur flokksins fer fram í dag.

Börn létu lífið í sprengjuárás

Níu létust í sjálfsmorðsárás í borginni Kabúl Afganistan í gær og 20 slösuðust. Árásin er talin tengjast heimsókn nýs yfirmanns varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna til borgarinnar.

Harma ályktun VG um staðgöngumæðrun

Staðganga, stuðningsfélag um staðgöngumæðrun og Tilvera, samtök um ófrjósemi harma samþykkt ályktunar Vinstri Grænna gegn staðgöngumæðrun í velgjörð og telja að hún byggi á vanþekkingu og fordómum.

Ók alltof hratt undir áhrifum fíkniefna

Ökumaður sem tekinn var fyrir of hraðan akstur á Kringlumýrarbraut rétt eftir miðnætti í gær reyndist einnig vera undir áhrifum fíkniefna. Hann var handtekinn og tekin voru sýni og skýrsla af honum. Þá voru fjórir til viðbótar teknir fyrir ölvunarakstur í nótt.

Chavez kvaddur og Maduro sór eiðinn

Strax eftir að útför Hugo Chavez, forseta Venesúela, lauk í gær sór útnefndur arftaki hans embættiseið til bráðabirgða. Venesúelabúar eru ekki allir sáttir við þá ákvörðun að smyrja lík hins látna og hafa það til sýnis eins og Lenín og Maó.

Fjölbreytni og sátt í stað sóunar og vesens

Björt framtíð vill auka fjölbreytni í samfélaginu og breyta umræðunni um stjórnmál. Hegðun stjórnmálaflokka í kosningabaráttunni mun hafa áhrif á með hverjum flokkurinn vill starfa. Setur á oddinn að klára aðildarviðræður.

Stefnt fyrir að flytja ábyrgðir á ónýt félög

Slitastjórn Glitnis höfðar skaðabótamál gegn tveimur fyrrverandi starfsmönnum bankans. Sagðir hafa fært milljarða skuldbindingar frá stöndugum félögum yfir á gjaldþrota Stím og Gnúp. Sérstakur saksóknari rannsakar málið sem umboðssvik.

Hótel Borg stækkar þótt íbúar mótmæli

Þrátt fyrir mótmæli tveggja húsfélaga vegna skuggavarps og ónæðis og ósáttan íbúðareiganda sem missir baðherbergisglugga heimilar skipulagsráð að bætt verði allt að 43 herbergjum við Hótel Borg, fyrst og fremst í viðbyggingu á baklóð.

Boltinn hjá þingi og ráðherrum

Framkvæmdastjórn Sjúkrahússins á Akureyri segir að öryggi sjúklinga á geðdeild sjúkrahússins sé tryggt og þeir veikustu fái þjónustu fyrirvaralaust. Boltinn sé hjá stjórnvöldum hvað varðar húsnæðismál.

Neytendur geti valið ferska vöru

Þó að íslensk stjórnvöld neyðist til að breyta lögum og heimila innflutning á hrárri ófrystri kjötvöru breytir það engu um innflutningshömlur á erlendu kjöti þó að líklegt sé að framboðið myndi breytast, segir Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu.

Útboði strandsiglinga frestað

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gærmorgun tillögu Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra um að fresta útboði á strandsiglingum við Ísland.

Merki frá sendi draugaskipsins

Landhelgisgæslunni hafa borist fregnir af draugaskipinu Lyubov Orlova frá írsku strandgæslunni. Komið hefur fram í fjölmiðlum að talið er líklegt að skipið hafi sokkið.

Tjáir sig mikið með augunum

Hún virtist fullkomlega heilbrigð í fyrstu en allt í einu hætti hún að tjá sig með sama hætti og áður, það hægðist á öllum þroska og persónuleikinn breyttist. Guðrún Sædal var fjögurra ára greind með hinn sjaldgæfa genasjúkdóm Rett-heilkenni.

Afbrýðisamur eiginmaður skaut sjónvarpsmann

Íbúi í Montana-fylki í Bandaríkjunum skaut sjónvarpsmann til bana í því sem virðist hafa verið afbrýðisemiskast í gær. Sjónvarpsmaðurinn var í heimsókn hjá eiginkonu skotmannsins.

Passað upp á skjaldbökurnar

Á ráðstefnu CITES í Bangkok í Tælandi í dag var ákveðið að auka eftirlit með skjaldbökum í útrýmingarhættu.

Bolatíst á sjö sekúndna fresti

Á áttunda tímanum voru Íslendingar búnir að senda 10 þúsund tíst með merkingunni #boladagur á Twitter. Alls voru send 9.000 tíst með þessari merkingu á Boladeginum á síðasta ári.

Guðlaugur Þór hrósaði Jóhönnu

Sá fáheyrði atburður varð á Alþingi í dag að Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins hrósaði Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Hún tók hólinu vel þótt hún segðist honum annars ósammála í hundrað prósent tilvika.

"Það er oft erfitt að láta ekki deigan síga"

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fulltrúi Sameinuðu þjóðanna hjá UN Women í Kabúl segir réttindamálum þar í landi miða alltof hægt og glæpir gegn konum ekki kalla á refsingar. Alþjóðlegur baráttudagur kvenna er minnsta víða um heim í dag.

"Tökum til fullra varna“

Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra segir að það komi ekki til greina að heimila innflutning á hráu kjöti hingað til lands. Nýverið komst ESA að því að bann Íslands við innflutningi á hráu kjöti standist ekki EES-samninginn og gæti málið endað fyrir dómstólum. Steingrímur segir að hann taki til fullra varna ef til þess kemur.

Þrír milljarðar í stóriðju á Bakka

Ríkið mun leggja fram, yfir þrjá milljarða króna vegna stóriðju á Bakka og meiri skattaívilnanir en áður, samkvæmt frumvarpi sem Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra mælti fyrir á Alþingi í gærkvöldi. Ráðherrann segir að ríkið verði búið að fá peningana til baka áður en framkvæmdum lýkur.

Flest brotin samræði í endaþarm eða leggöng

Flest þeirra barna sem leita til Barnahúss hafa orðið fyrir alvarlegustu gerð kynferðisofbeldis. Eftir því sem börnin eldast verða brotin alvarlegri en því yngri sem þau eru er líklegra að ofbeldismaðurinn sé tengdur brotaþola í gegnum fjölskyldu.

Mátti ekki kyssa Justin Bieber

"Mig langaði að fara að gráta en ég vildi ekki vera grátandi á myndinni því það myndi eyðileggja líf mitt," segir Auður Eva 14 ára aðdáandi Justin Bieber.

Kominn um borð í sjúkrabíl

Maðurinn sem fótbrotnaði í Botnssúlum fyrr í dag er kominn um borð í sjúkrabíl. Sjúkraflutningamenn, björgunarsveitamenn og sérsveitarmenn fluttu manninn á sjúkrabörum um 300 metra vegalengd í Hvalfirði síðdegis.

Hreindýrin nefnd Tindur og Heiður

Nýkomin hreindýr í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn hafa fengið nöfn. Vinir garðsins á Facebook lögðu Garðinum lið í nafnaleitinni.

Þingkonur ræða jafnréttismál í Jónshúsi

"Hrun og heimsmet í kynjajafnrétti? Femínisminn - fimm árum síðar" er yfirskrift erindis sem dr. Þorgerður Einarsdóttir flytur á baráttusamkomu í Jónshúsi í Kaupmannahöfn 8. mars. Á eftir ræða fjórar þingkonur stöðu kynjajafnréttis á Íslandi.

Þurfa að bera manninn 300 metra

Um 40 björgunarsveitamenn ásamt sjúkraflutningsmönnum og lögreglumönnum úr sérsveitinni sem voru á æfingu í Hvalfirðinum eru komnir á slysstað þar sem maður fótbrotnaði í Botnssúlum fyrr í dag. Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið að flytja björgunarmenn á staðinn, en hún gat ekki athafnað sig á slysstaðnum þar sem maðurinn var í miklum bratta.

Fótbrotnum manni komið til bjargar

Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu eiga í þó nokkrum erfiðleikum með að nálgast karlmann sem fótbrotnaði við Botnsúlur í Hvalfirði laust fyrir klukkan tvö í dag.

Sjö þúsund tíst send inn á Boladegi

Klukkan 14 höfðu ríflega þúsund manns sent tæplega sjö þúsund tíst inn á samskiptasíðuna Twitter með merkingunni #boladagur. Eins og fram kom á Vísi í morgun snýst dagurinn að mestu leyti um það að Íslendingar senda erlendum stórstjörnum skilaboð á Twitter og biðja þá um að svara.

Ófremdarástand ríkir í Barnahúsi

Börn sem hafa orðið fyrir mjög grófu kynferðisofbeldi eru á bið í meðferð í Barnahúsi vegna ófremdarástands sem þar ríkir. Forstöðumaður Barnahúss segir að það sem af sé þessu ári hafi þeim borist yfir hundrað mál þar sem grunur er um kynferðisofbeldi gegn börnum. Ekki sé nægur mannskapur eða húsrými til að sinna þessum málum sem skyldi og fjármagn til málaflokksins hafi ekki verið aukið í sex ár.

Sverðnykra bættist við flóru landsins

Ný háplöntutegund, sverðnykra, bættist við flóru landsins síðastliðið sumar þegar starfsmenn Náttúrufræðistofu Kópavogs voru við rannsóknir í Berufjarðarvatni nærri Bjarkalundi í Reykhólahreppi. Staðfesting á tegundagreiningunni fékkst nú á dögunum, segir í frétt frá Náttúrufræðistofnun.

Segir Sjálfstæðisflokknum stjórnað með baktjaldamakki

Helgi Magnússon, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, deilir hart á forystu Sjálfstæðisflokksins í grein sem birtist í Fréttablaðinu í dag. Þar gerir hann umræðu um Evrópusambandið og aðildarviðræður við sambandið að umfjöllunarefni.

Sjá næstu 50 fréttir