Innlent

Hótel Borg stækkar þótt íbúar mótmæli

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Svona verður svipmót baklóðar Hótels Borgar ef áformuð viðbygging verður reist.
Svona verður svipmót baklóðar Hótels Borgar ef áformuð viðbygging verður reist. Mynd/THG Arkitketar
Þrátt fyrir mótmæli tveggja húsfélaga vegna skuggavarps og ónæðis og ósáttan íbúðareiganda sem missir baðherbergisglugga heimilar skipulagsráð að bætt verði allt að 43 herbergjum við Hótel Borg, fyrst og fremst í viðbyggingu á baklóð.

 „Litið er til að Hótel Borg er eitt elsta og virtasta hótel landsins og talið mikilvægt að það fái að dafna,“ segir í umsögn sem skipulagsráð Reykjavíkur samþykkti og felur í sér að reisa má viðbyggingu við Hótel Borg.

Rífa á lágreistar byggingar á baklóð Hótels Borgar að mestu leyti. Í staðinn rís viðbygging með kjallara, tveimur hæðum og tveimur rishæðum á þeim hluta sem snýr að Lækjargötu 4 en fjórum hæðum á þeirri hlið sem snýr að gamla hótelinu. Fást eiga 43 ný hótelherbergi til viðbótar við 52 herbergi sem fyrir eru.

Húsfélögin í Pósthússtræti 13 og Lækjargötu 4 segja mjög halla á íbúa reitsins og opin rými ætluð almenningi; garð Hressingarskálans, verönd Tes & Kaffis og útitorg sem að mestu sé á lóð Lækjargötu 4.

„Að þessum rýmum yrði þrengt að öllu leyti, það er með auknu skuggavarpi, minnkun á útsýni og með mikilli nánd húsa á milli,“ segir í bréfi húsfélaganna til skipulagssviðs borgarinnar.

Þá óttast húsfélögin skemmdir á framkvæmdatímanum. Ein versta breytingin verði þó persónuleg röskun íbúanna. „Ekki síst vegna þess að hún er viss innrás í friðhelgi einkalífs. Innsýn í íbúðir þeirra verður verulega meiri vegna nándar,“ segja húsfélögin í mótmælabréfi sínu. „Forsendur breytinganna byggja ekki á neinni hugmyndafræði heldur hagsmunum eins aðila á kostnað annarra.“

Knút Kützen frá Færeyjum, sem fyrir þremur árum eignaðist íbúð á þriðju hæð í Pósthússtræti 13, vill skaðabætur. „Ég mun tapa baðherbergisglugganum,“ skrifar Knút skipulagssviðinu. Hann kveðst munu þurfa að leggja í töluverðan kostnað vegna nýrrar loftræstingar ef byggt verði að veggnum hans. Skipulagsfulltrúi svarar að baðherbergislugginn sé ekki á samþykktum teikningum og bætur því ekki í myndinni.

Varðandi skuggavarp segir skipulagsfulltrúi það helst munu aukast síðdegis, næst Hótel Borg. Litið hafi verið til þarfa hótelsins eins og segir hér í upphafi.

„Þó var leitast við að finna tillögu sem gengi ekki um of á hagsmuni nágrennisins og var tillagan minnkuð talsvert,“ segir skipulagsfulltrúi, sem setur það skilyrði að viðbyggingin sé unnin í samráði við Húsafriðunarnefnd og Minjastofnun Íslands.

Ekki liggur fyrir hvenær framkvæmdir hefjast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×