Innlent

Útifundur um stjórnarskrármálið í dag

Mynd úr safni
Mynd úr safni
Í dag klukkan þrjú verður haldin útifundur um stjórnarskrármálið á Ingólfstorgi í Reykjavík.

Í fundarboði sem sent hefur verið út á Facebook segir að Alþingi beri að virða skýran vilja kjósenda, eins og hann kom fram í þjóðaratkvæðagreiðslu 20. október sl.

Þá segir að meiri hluta Alþingis beri að láta þann vilja ná fram að ganga. Ræðumenn eru Birgitta Jónsdóttir, Gísli Tryggvason og Inga Sigrún Atladóttir.

Fundarstjóri er Hörður Torfason og Svavar Knútur ætlar að flytja tónlistaratriði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×