Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vilja breyta nafni Samfylkingarinnar Þær Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar og Margrét S. Björnsdóttir, formaður framkvæmdastjórnar flokksins, vilja breyta nafni Samfylkingarinnar og ætla að leggja fram tillögu þess efnis á landsfundi flokksins sem fer fram í byrjun febrúar. 22.1.2013 17:37
Engar eignir í þrotabúi móðurfélags N1 Engar eignir fundust í þrotabúi EM 13, sem áður hét BNT, við slit þess. Félagið var móðurfélag N1 en fór í þrot og var búið tekið til gjaldþrotaskipta þann 6. september síðastliðinn. Skiptum á búinu lauk þann 15. janúar síðastliðinn án þess að greiðsla fengist upp í lýstar kröfur. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, var stjórnarformaður umrædds félags fram í desember 2008. 22.1.2013 17:08
Viðbrögð við Icesave-dómi þurfa að vera upplýst Árni Páll Árnason, starfandi formaður utanríkismálanefndar Alþingis, segir mikilvægt að yfirlýsingar í kjölfar dómsins í Icesave-málinu verði ekki handahófskenndar. Fylgst verði með viðbrögðum Íslendinga og því skipti máli hvernig haldið sé á málum. 22.1.2013 15:41
Ákærðir fyrir kappakstur Tveir karlmenn um tvítugt hafa verið ákærðir fyrir glæfraakstur í neðra Breiðholti að kvöldi 23. ágúst 2011 22.1.2013 15:34
Vinstri grænir sáttastir með Skaupið Minni ánægja var með Áramótaskaupið 2012 en árið á undan samkvæmt nýlegri könnun MMR. 32,7% fannst Skaupið 2012 gott samanborið við 64,8% á síðasta ári. 22.1.2013 15:27
Óvissustigi á Landspítalanum aflétt Viðbragðsstjórn Landspítala ákvað í hádeginu að fella úr gildi viðbragðsáætlun sem virkjuð var síðastliðinn föstudag og aflétta óvissustigi vegna farsótta. 22.1.2013 14:59
16 ára stöðvaður fyrir framan lögreglustöðina Lögreglan í Kópavogi þurfti ekki að fara langt til þess að ná í skottið á sextán ára pilti sem hafði tekið bifreið foreldra sinna traustataki um helgina. 22.1.2013 14:49
Lagðist ölvaður á götuna á Skaganum Lögreglan á Akranesi kom manni til aðstoðar aðfaranótt laugardags sem hafði lagt sig á götuna. 22.1.2013 14:37
Dularfulla ljósmyndin: Magnús trúir Jóni "Ef það er öruggt mál að enginn gekk fyrir myndavélina þá er þetta yfirnáttúrlegt mál, alveg klárlega,“ segir Magnús Skarphéðinsson, formaður Sálarrannsóknarfélags Reykjavíkur um ljósmynd Jóns Hauks Jóelssonar af dularfullri veru við klettavegg á Snæfellsnesi í fyrrasumar. 22.1.2013 14:26
Notkun aspirin tengd sjónleysi Vísindamenn í Ástralíu hafa sýnt fram á að þeir sem reglulega nota verkjastillandi lyfið aspirin séu líklegri til þess að missa sjón. 22.1.2013 14:21
Lagt til að stofna hamfarasjóð Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra lagði til á ríkisstjórnarfundi í morgun að stofnaður verði sérstakur hamfarasjóður. 22.1.2013 13:39
Dolph Lundgren vitnar í íslenska vefsíðu Hasarmyndaleikarinn Dolph Lundgren virðist afar sáttur við gagnrýni íslensku vefsíðunnar Filmophilia á nýjustu mynd Svíans, Universal Soldier: Day Of Reckoning. 22.1.2013 12:54
Stórir kögglar af vegklæðningu í Hvalfjarðargöngunum Svo virðist sem hættuástand vegna ónýtrar vegklæðningar einskorðist ekki við leiðina um Húnavatnssýslu og nágrenni þótt helst hafi orðið vart við blæðingu þar. Vegfarandi sem fór um Hvalfjarðargöng í morgun tjáði Umferðarðarstofu að í göngunum hefðu verið stórir kögglar af storknaðri vegklæðningu sem losnað hefur af bílum í göngunum. 22.1.2013 12:52
Fyrrum dómari í Gettu Betur segir kynjakvóta tímabæran "23 strákar og ein stelpa er bara vont sjónvarp, nema þátturinn sé Bachelorette," segir sagnfræðingurinn Stefán Pálsson, og að hans mati er tímabært að innleiða kynjakvóta í Gettu Betur, spurningakeppni framhaldsskólanna. 22.1.2013 12:38
Bjargað af brautarteinunum í Madríd 51 árs gömul kona féll í yfirlið þar sem hún beið eftir neðanjarðarlestinni í Madríd, höfuðborg Spánar, í gær. Sem betur gekk spænsk lögreglukona vasklega til verks og kom henni til bjargar. 22.1.2013 12:05
Átta mánaða rannsókn á mannsláti hefur engri niðurstöðu skilað Þótt átta mánuðir hafi liðið frá því að Sigurður Hólm Sigurðarson, fangi á Litla Hrauni, lést í fangelsinu er rannsókn á andláti hans ekki enn lokið. 22.1.2013 12:03
Lögga og blaðamaður í vondum málum Fyrrverandi lögreglumaður og blaðamaður á breska götublaðinu The Sun eiga yfir höfði sér ákæru. Málið er hluti af rannsókn lögreglu á spillingu opinberra starfsmanna í starfi. 22.1.2013 11:25
Ólafur Ragnar sendi forseta Bandaríkjanna kveðju Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sendi í dag Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, heillaóskir í tilefni af embættistöku hans. 22.1.2013 11:13
Ákærður fyrir líkamsárás á Hverfisgötu Karlmaður á þrítugsaldiri hefur verið ákærður fyrir að hafa skallað mann í andlitið svo hann féll í götuna í apríl í fyrra, en atvikið átti sér stað á Hverfisgötu. Hann kýldi mannin síðan í andlitið og loks sparkaði hann í andlit hans þar sem hann lá í götunni. Ákæra í máli mannsins var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 22.1.2013 11:06
Nauðsynlegt fyrir batann að rannsókn málsins klárist Freyja Þorvaldardóttir, sem varð fyrir alvarlegri líkamsárás á Hólum í Hjaltadal í mars á síðasta ári, bíður enn eftir að ákæra verði gefin út í málinu. 22.1.2013 10:20
Færri flytja til útlanda Alls fluttust 319 fleiri frá landinu en til þess á síðasta ári. Það dró úr brottflutningi á árinu miðað við árið áður, þegar 1.404 fluttust úr landi umfram aðflutta. Alls fluttust 6.276 frá landinu, samanborið við 6.982 í hitteðfyrra Alls fluttust 5.957 manns til Íslands í fyrra, sem er nokkur aukning miðað við árið 2011 þegar 5.578 manns fluttu til landsins. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar. 22.1.2013 10:18
Sex dagar til dómsdags Sex dagar eru í dag þangað til að dómur verður kveðinn upp í Icesave-málinu. Utanríkismálanefnd Alþingis hitti í morgun sérfræðinga sem unnu að málsvörn Íslands fyrir EFTA dómstólnum. Fulltrúar nefndarinnar, þeir Jóhannes Karl Sveinsson hæstarréttarlögmaður og Kristján Andri Stefánsson sendiherra mættu fyrir nefndina til þess að útskýra eðli málsins fyrir nefndina og hvaða afleiðingar dómsniðurstaðan gæti haft. 22.1.2013 09:42
Porsche 918 handan við hornið Ofurbíllinn Porsche 918 er líklega kominn á framleiðslustigið og sífellt fleiri upplýsingar eru að birtast um bílinn. Meðfylgjandi mynd má finna á vef þýsku einkaleyfastofunnar, sem bendir einmitt til þess að hann sé kominn í framleiðslu. Vitað er að 25 tilbúnir slíkir bílar eru í prófunum víða um heim. Porsche 918 bíllinn er um margt óvenjulegur. Hann er svokallaður tvinnbíll (Plug-in Hybrid) sem hlaða má með heimilisrafmagni og hægt að aka honum 25 km eingöngu á rafmagni og á allt að 145 km hraða. Bíllinn er 770 hestöfl sem fást úr 4,6 l. V8 vél sem skaffar 570 þeirra en rafhlöðurnar 200 hestöflum. Það skilar þessum straumlínulaga bíl í hundraðið á 2,9 sekúndum og hámarkshraðinn er 325 km. Eyðsla hans verður innan við 3 lítrar á hundraðið. Í útliti er bíllinn þónokkuð frábrugðinn öðrum Porsche sportbílum, hann er miklu lengri, breiðari og lægri en t.d. 911 eða Boxter bílarnir. Verð bílsins verður eitthvað í nágrenni við 130 milljónir króna. 22.1.2013 09:00
Amma á sextugsaldri dæmd til dauða fyrir fíkniefnasmygl Bresk kona, Lindsay Sandiford, var í gær dæmd til dauða, fyrir að reyna að smygla fíkniefnum á eyjunni Balí. Það vekur athygli að konan er orðin 56 ára gömul og amma. Hún var handtekin í maí síðastliðnum á flugvellinum í Balí þegar tollverðir fundu um 3,8 kíló af kókaini í farangri hennar. Í dómnum segir að Sandiford hafi eyðilagt ímynd Balí sem ferðamannaparadísar og veikt baráttu yfirvalda í fíkniefnastríðinu. Sandiford neitar sök. 22.1.2013 08:23
Þurftu að kæla niður hjólabúnað á vél Icelandair Slökkviliðsmenn á Loganflugvelli í Boston, þurftu í gær að kæla niður hjólabúnað á þotu frá Icelandair þegar hún var umþaðbil að leggja af stað til Íslands. Engin eldur kviknaði , að sögn talsmanns vallarins og engan sakaði. Verið er að rannsaka hvað gerðist og gera við búnaðinn. Flugi Icelandair til Íslands var frestað í gærkvöld vegna atviksins. 22.1.2013 08:05
Búast við 20% lækkun á laxveiðileyfi Verð fyrir laxveiðileyfi í Skjáalfandafljóti mun lækka um 20 til 25 prósent í sumar, frá því sem það var í fyrra, samkvæmt heimasíðu fyrirtækisins Lax-ár, sem hefur veiðiréttinn þar á leigu. Þetta kann að marka upphaf á breytingum á þessum markaði, því aðeins bárust tvö gild tilboð í veiðiréttinn í Noðrurá í Borgarfirði, bæði upp á lægri upphæðir en greiddar hafa verið fyrir veiðiréttinn þar undanfarin ár. 22.1.2013 07:53
Inflúensan er fyrr á ferðinni í ár Inflúensutilvikum fjölgar nú hratt hér á landi og sóttvarnalæknir gerir ráð fyrir að faraldurinn nái hámarki fyrr en undanfarin ár. Faraldurinn er skæðari hér og í Noregi en í flestum öðrum Evrópuríkjum, samkvæmt tölum Sóttvarnastofnunar Evrópu. 22.1.2013 07:00
Íbúar í Diabaly tóku vel á móti Frökkum Franski herinn er kominn til Diabaly í Malí, viku eftir að íslamistar hertóku bæinn. Íslamistarnir hröktust burt eftir linnulausar loftárásir Frakka undanfarna daga. Frakkar vilja að herlið frá Afríkuríkjunum taki við keflinu á næstu vikum. 22.1.2013 07:00
Samningar styttir og friðurinn tryggður ASÍ og SA sömdu í gær um að stytta kjarasamninga og hefja undirbúning nýrra samninga strax. Leggja áherslu á kaupmátt og efnahagslegan stöðugleika. Kenna stjórnvöldum um að fjárfestingar í atvinnulífi hafi ekki aukist á samningstíma. 22.1.2013 07:00
Íslenskar sækýr synda yfir Ermarsund í júní Sex íslenskar konur hyggjast synda boðsund yfir Ermarsund og til baka í júní. Þær nefna hópinn Sækýrnar. Liðsstjórinn kveður þær þrautreynda "dísilmótora“. Gera á heimildarmynd um sundið sem gæti varað 30 tíma. "Leynivinir“ styrkja hópinn. 22.1.2013 07:00
Þýsk hjón gefa safn íslenskra landabréfa Akureyrarbær mun á næstunni eignast einstakt safn handmálaðra landabréfa af Íslandi sem þýsku hjónin og Íslandsvinirnir Karl-Werner Schulte og Gisela Schulte-Daxbök hafa komið sér upp á liðnum áratugum. 22.1.2013 07:00
Skuldastaða ríksins verri en ætla mætti Sé áætluðum lífeyrisskuldbindingum ríkisins og fyrirséðum útgjöldum vegna vanda Íbúðalánasjóðs bætt við heildarskuldir ríkissjóðs hækka þær úr um 1.500 milljónum króna í hátt í 2.000 milljónir. 22.1.2013 07:00
Sex milljarðar í að klára tvöföldunina Sex milljörðum króna verður varið á næstu tíu árum til að ljúka tvöföldun Reykjanesbrautar Hafnarfjarðarmegin. Þetta kemur fram í svari innanríkisráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Guðlaugssonar. 22.1.2013 07:00
Landtökumönnum spáð sjötta hverju sæti Benjamín Netanjahú og bandalagi hægri flokka undir hans forystu er spáð naumum meirihluta í þingkosningum í dag. 22.1.2013 07:00
Látinn hætta með laun út árið Jón Pálmi Pálsson, sem látið hefur af störfum bæjarritara á Akranesi, fær greidd laun út þetta ár samkvæmt samkomulagi um starfslok hans. 22.1.2013 07:00
Stjórnarskrármálið úr nefnd Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar stefnir að því að taka frumvarp um nýja stjórnarskrá úr nefnd í dag. Málið er á dagskrá Alþingis á fimmtudag. 22.1.2013 07:00
Segist hafa skotið Talibana Harry Bretaprins, sem er á heimleið eftir fjögurra mánaða herþjónustu í Afganistan, segist hafa lent í aðstæðum sem þyrluflugmaður þar sem hann þurfti að skjóta á Talibana og að einhverjir þeirra hafi fallið. 22.1.2013 07:00
Blær er vongóð um viðsnúning Móðir Stúlku Bjarkardóttur Rúnarsdóttur segir dóttur sína vongóða um að ákvörðun mannanafnanefndar um að synja henni þess að fá að bera nafnið Blær verði hnekkt fyrir dómi. 22.1.2013 07:00
Íbúar vilja betri útivistarsvæði Bætt aðgengi að útivistarsvæðum og bættar aðstæður fyrir gangandi og hjólandi var rauði þráðurinn í hugmyndum íbúa Vesturbæjar fyrir Betri hverfi í fyrra. Meðal þess sem horft var til voru betri róluvellir, bætt aðgengi að fjörum við borgina og bætt aðgengi gangandi og hjólandi borgarbúa og ferðamanna. Íbúar Vesturbæjar sendu inn hugmyndir í fyrra og svo var kosið um þær í rafrænni kosningu. 22.1.2013 07:00
Gröf leynt fyrir tengdamömmu Sóknarnefnd á Norður-Sjálandi hefur í þrjú ár neitað að upplýsa Ann Brydholm um hvar leiði sonar hennar, Claus Brydholm, er. Leiðið var á leynilegum stað í kirkjugarðinum í Karlebo og án legsteins þar til fyrir stuttu vegna óska ekkjunnar en nú hafa jarðneskar leifar Brydholms verið fluttar annað, að því er greint er frá í Jyllands-Posten. 22.1.2013 07:00
Reykjandi múslímar stöðvaðir Tungumálaörðugleikar eiga ekki að koma í veg fyrir að menn hætti að reykja. Þetta er mat yfirvalda í Kaupmannahöfn sem ákváðu að láta tóbaksvarnarráðgjafa stöðva múslíma á leið til föstudagsbænar. 22.1.2013 07:00
Rannsókn á barnaníði hætt Kaþólska kirkjan í Þýskalandi hefur blásið af óháða rannsókn viðurkennds fræðimanns á kynferðisglæpum innan kirkjunnar. 22.1.2013 07:00
Veita leyfi fyrir þyrluskíðafólk Íþróttaráð Akureyrar hefur samþykkt að félagið Bergmenn fái leyfi til að gera tilraun með sölu og markaðssetningu þyrluskíðaferða frá skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli. Skilyrði er að Bergmenn vinni þetta verkefni í fullu samráði við forstöðumann Hlíðarfjalls. Fyrirtækið hefur áður boðið upp á þyrluskíðaferðir á Tröllaskaga. Stofnandi Bergmanna er Jökull Bergmann fjallaleiðsögumaður. 22.1.2013 07:00
Kynnti stöðuna fyrir ESB-fólki Stefán Haukur Jóhannesson, aðalsamningamaður Íslands í aðildarviðræðunum við ESB, kynnti ákvörðun ríkisstjórnarflokkanna um að hægja á viðræðum, fyrir Evrópumálaráðherrum ESB-landa á fundi í gær. Frá þessu segir á vef utanríkisráðuneytisins, en á fundinum fjallaði Stefán Haukur einnig um áherslu Íslands á gagnsæi í viðræðuferlinu. 22.1.2013 07:00
Sláandi myndir af rafgeymi Dreamliner þotunnar sem nauðlenti Flugmálastjórn Japans hefur sett myndir á netið af því hvernig rafgeymir Dreamliner þotunnar leit út eftir að henni var nauðlent á Takamitshu flugvellinum í Japan í síðustu viku. Til samanburðar er svo mynd af því hvernig sá rafgeymir lítur út þegar allt er með felldu. 22.1.2013 06:14