Skuldastaða ríksins verri en ætla mætti 22. janúar 2013 07:00 Fjármálaráðuneytið Hagfræðideild Landsbankans bendir á að fyrirséð útgjöld ríkissjóðs hækka skuldastöðu hans verulega.
Sé áætluðum lífeyrisskuldbindingum ríkisins og fyrirséðum útgjöldum vegna vanda Íbúðalánasjóðs bætt við heildarskuldir ríkissjóðs hækka þær úr um 1.500 milljónum króna í hátt í 2.000 milljónir. Þetta kemur fram í nýjustu Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans sem gefin var út á föstudag. Er þar fjallað um skuldastöðu ríkisins og helstu óvissuþætti er snúa að því markmiði að lækka skuldir ríkissjóðs. Í Hagsjánni kemur fram að miðað við áætlanir stjórnvalda verði skuldir ríkisins um 1.500 milljarðar í lok árs, eða um 80% af landsframleiðslu. Til lengri tíma litið sé hins vegar stefnt að því að ná skuldum ríkisins niður í 45 til 50% af landsframleiðslu. Er áætlað að lækkun skulda hefjist á næsta ári þegar búist er við því að afgangur verði af fjárlögum í fyrsta sinn frá bankahruni. Samkvæmt reikningum hagfræðideildar Landsbankans þarf hins vegar mun meiri afgang úr rekstri ríkisins en fyrirsjáanlegur er á næstu árum til þess að markmiðið um verulega lækkun skulda náist. Munar þar mestu um að ef ríkissjóður legðist í skuldabréfaútboð til að fjármagna rekstur Íbúðalánasjóðs og standa undir lífeyrisskuldbindingum ríkissjóðs myndu bætast við tæplega 50 milljarðar á ári við rekstrarkostnað hins opinbera samkvæmt útreikningum hagfræðideildarinnar. - mþl
Mest lesið Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Innlent Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Erlent Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Erlent Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Innlent Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Innlent Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent Spurning með sálina Innlent Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu Innlent Fleiri fréttir Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Spurning með sálina Girnist enn Grænland, vændiskaup og áfengisauglýsingar áhrifavalda Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Átök í hvalveiðiumræðunni og fælingarmáttur lögregluaðgerða Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum „Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Sjá meira