Fleiri fréttir

Mikil fækkun á gjaldþrotum

Alls voru 118 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í októbermánuði síðastliðnum. Þetta segir á vef Hagstofu, en um er að ræða 40% fækkun frá sama mánuði í fyrra.

Árni Múli leiðir Bjarta framtíð

Árni Múli Jónasson, fyrrverandi bæjarstjóri á Akranesi, mun leiða lista Bjartrar framtíðar í Norðvesturkjördæmi í kosningunum til Alþingis næsta vor.

Slökkviliðið eykur stofnfé

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins vantar allt að 683 milljónir króna í nýtt stofnfé á þessu ári frá sveitarfélögum sem standa að byggðasamlaginu.

Nýr maður við stjórnvölinn

Jón Svanberg Hjartarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá 1. janúar 2013. Eins og komið hefur fram í Fréttablaðinu var samið um starfslok forvera Jóns í starfinu fyrr í þessum mánuði.

Lagði lækninn sinn að velli

Hinn ellefu ára gamli Felix Steinþórsson er einn efnilegasti skákmaður landsins, en hefur þó lengi glímt við erfiðan hjartasjúkdóm og því dvalið langdvölum á Barnaspítala Hringsins.

Ríkisstjórnin vill hækka fjölmörg gjöld

Ríkisstjórnin vill hækka bensíngjöld, útvarpsgjald, tóbaksgjald, vörugjöld á bílaleigubíla, gistináttagjöld, almenn tryggingagjöld , framlengja raforkuskatt um þrjú ár, og að kolefnisgjald og gjald á sölu á heitu vatni verði varanleg.

Guðbjartur með örugga kosningu í 1. sætið

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hlaut afgerandi fylgi í fyrsta sæti Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi, í póstkosningu þar sem kjörsókn var tæp 47 prósent.

Þingmenn vilja vernda uppljóstrara

Hópur þignmanna sem allir hafa starfað sem blaða- og fréttamenn, hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um miðlun upplýsinga og vernd uppljóstrara, eða heimildarmanna.

Anna Kristín er komin fram

Liðlega fertug kona, sem björgunarsveitir hófu leit að í Reykjavík í gær, er fundin heil á húfi. En lögreglan lýsir enn eftir Elvu Brá Þorsteinsdóttur, sem er 22 ára, 165 sentímetrar á hæð, grannvaxin og dökkhærð.

Skíðasvæðið í Seyðisfirði opnað á morgun

Eftir miklar framkvæmdir í sumar verður skíðasvæðið í Stafdal í Seyðisfirði opnað á morgun. Tvö þúsund rúmmetrar af jarðvegi voru meðal annars fluttir til, læk veitt út fyrir skíðasvæðið og snjósöfnunargirðingar reistar.

Fæðingartíðnin í Bandaríkjunum sú lægsta síðan 1920

Fæðingartíðni kvenna í Bandaríkjunum á síðasta ári hefur ekki verið lægri síðan árið 1920 þegar fyrst var farið að mæla hana þarlendis. Í fyrra var fæðingartíðnin aðeins rúmlega 63 börn á hverjar þúsund konur.

Strauss-Kahn samdi við herbergisþernuna í New York

Dominique Strauss-Kahn fyrrum forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur náð samkomulagi við herbergisþernuna í New York sem ákærði hann fyrir kynferðisbrot gegn sér á síðasta ári.

Bjarni Ben: Mistök gerð við breytingu á Íbúðalánasjóði 2004

Undirliggjandi vandi Íbúðalánasjóðs er allt að 200 milljarðar króna sem skapar mikla áhættu fyrir skattgreiðendur. Þetta segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sem telur ríkisstjórnina vanmeta þessa áhættu. Hann er sammála því að alvarleg mistök hafi verið gerð með kerfisbreytingu á sjóðnum á árinu 2004, en á þeim tíma voru Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn í ríkisstjórn.

Áheyrnaraðild Palestínu samþykkt

Allherjarþing Sameinuðu Þjóðanna samþykkti í kvöld að veita Palestínu stöðu áheyrnarríkis með 138 atkvæðum gegn 9.

Flytja út lambatyppi í tonnavís

Tvö tonn af lambatyppum frá Sláturfélagi Suðurlands á Selfossi eru á leið til Kína en markaðir í Asíu fyrir þessa vöru eru að opnast.

Ályktun um Palestínu til afgreiðslu

Ályktun um að Palestína fái stöðu áheyrnarríkis hjá Sameinuðu Þjóðunum er nú til afgreiðslu og hér má sjá beina útsendingu frá atkvæðagreiðslu.

Strokudrengirnir komnir í leitirnar

Hælisleitendurnir sem reyndu að smygla sér um borð í vél Icelandair í sumar fundust um borð í flutningaskipi á Englandi.

Eldsneyti stolið af sjúkrabíl

Eldsneyti var stolið af sjúkrabíl í Reykjanesbæ í vikunni. Bifreiðin stóð á bílastæði við slökkvistöðina í Reykjanesbæ þegar óprúttnir aðilar í skjóli nætur tóku nær allt eldsneytið af bílnum.

Þurfti áfallahjálp eftir erfiðan vinnudag

"Það var þegar ég hafði tekið á móti tveimur símtölum varðandi banaslys sama daginn. Eftir það síðara treysti ég mér ekki til að opna línuna aftur,“ segir Hjördís Garðarsdóttir aðstoðarvarðstjóri hjá Neyðarlínunni.

Sýknaður af ákæru um kynferðisbrot

Hæstiréttur Íslands sýknaði í dag karlmann af ákæru um að hafa brotið kynferðislega gegn 15 ára gamalli stúlku í september árið 2010. Héraðsdómur Norðurlands vestra dæmdi manninn í sex mánaða fangelsi fyrir athæfið.

Hæstiréttur þyngir dóminn í Frón-málinu

Hæstiréttur dæmdi í dag Agné Krataviciuté í þriggja ára fangelsi fyrir að hafa orðið nýfæddu sveinbarni sínu að bana í júlí á síðasta ári, veitt því skurðáverka í andliti og koma líkama þess fyrir í ruslageymslu Hótel Frón, þar sem Agné starfaði við þrif. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt Agné í tveggja ára fangelsi.

Skordýr í hrökkbrauði frá Tiger

Tiger Ísland ehf., í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur innkallað þrjár tegundir af hrökkbrauði. Í pakkningum varanna fundust skordýr og eru þær því óhæfar til neyslu. Um er að ræða vörur sem voru í sölu á tímabilinu 22. október- 29. nóvember og eru með best fyrir dagsetningu 28.02.2013. Vörurnar hafa verið teknar af markaði.

Læknir segir "gervivísindi“ ekki eiga heima innan heilbrigðiskerfisins

"Maður myndi halda að þarna á undan væru tannlækningar og sálfræðiþjónusta,“ segir Svanur Sigurbjörnsson læknir um þingályktunartillögu sem þrír þingmenn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna lögðu fram um að skoðað yrði hvort tilefni væri til þess að ríkið niðurgreiði óhefðbundnar lækningar.

Lokað fyrir internetið í Sýrlandi

Sýrland er nú svo gott sem lokað frá umheiminum eftir að lokað var fyrir öll helstu fjarskiptakerfi landsins og aðgang að internetinu.

Sjö ára fangelsi fyrir kynferðisbrot

Karlmaður var dæmdur í sjö ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir alvarleg kynferðisbrot gegn unglingsstúlku. Brotin voru framin á árunum 1998 - 2002. Dómurinn í málinu var fjölskipaður. Við segjum meira frá málinu rétt á eftir.

Continental sýknað

Franskur áfrýjunarréttur hefur sýknað bandaríska flugfélagið Continental af manndrápsákæru vegna Concorde-flugslyssins sem kostaði 113 manns lífið.

Umtalaður þáttur um umdeildan mann

Gestur Jóns Ársæls í Sjálfstæðu fólki á sunnudagskvöld verður Styrmir Gunnarsson, fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins. "Umtalaður þáttur um umdeildan mann á sunnudagskvöld á Stöð 2,“ segir í fréttatilkynningu en nýleg bók Styrmis, Sjálfstæðisflokkurinn - Átök og uppgjör, hefur vakið mikið umtal síðustu daga.

Vilja kanna niðurgreiðslur óhefðbundinna lækninga

Þingmennirnir Guðrún Erlingsdóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, Bjarkey Gunnarsdóttir, varaþingmaður Vg í Norðausturkjördæmi og Ólína Þorvarðardóttir hafa lagt fram þingsályktunartillögu sem miðar að því að greiða niður það sem heitir heildrænar meðferðir græðara.

Enn lýst eftir Elvu Brá

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir aðstoð almennings um að þeir sem hafi vitneskju um hvar Elva Brá Þorsteinsdóttir, fædda árið 1990, sé niðurkomin hafi samband við lögreglu.

Segir stöðugt ráðist á RÚV úr Hádegismóum

Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir segir stöðugar árásir á einstaka starfsmenn og fréttastjóra RÚV í leiðurum, staksteinum og Reykjavíkurbréfum Morgunblaðsins ekki heilbrigða blaðamennsku. Hún er í forsíðuviðtali Nýs lífs.

Jón Svanberg verður framkvæmdastjóri Landsbjargar

Jón Svanberg Hjartarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Jón hefur verið félagi í Björgunarsveitinni Sæbjörgu á Flateyri frá 1986 og sat í stjórn hennar frá 1989- 2002, þar af sem formaður 1996-2002. Hann var umsjónarmaður unglingadeildar sveitarinnar 1989-2003 og var kjörinn í stjórn SL árið 2011.

Sjá næstu 50 fréttir