Fleiri fréttir

Hleypi almennum borgurum út

Yfirmaður eftirlitssveita Sameinuðu þjóðanna í Sýrlandi krafðist þess í gær að stríðandi fylkingar leyfðu „konum, börnum, öldruðum og veikum“ að yfirgefa borgina Homs og önnur átakasvæði. Degi fyrr hafði hann tilkynnt að eftirlitsmennirnir hefðu hætt störfum vegna vaxandi ofbeldis í landinu.

Hátíðahöld í Reykjavík

Fjölmenni sótti hátíðahöld í miðbæ Reykjavíkur í tilefni af þjóðhátíðardegi Íslendinga, 17. júní, í gær. Boðið var upp á leiktæki fyrir börnin í Hljómskálagarðinum og dagskrá var á sviðinu við Arnarhól. Þá var efnt til skrúðgöngu frá Hlemmi niður á Lækjartorg þar sem lúðrasveit lék fastan takt í broddi fylkingar.

Sinna nýsköpun og eftirliti á Breiðafirði

Nýsköpunarfyrirtækið OK Hull hefur sótt um einkaleyfi á bátsskrokk sem nýtist öllum tegundum báta og skipa, stórum sem smáum. Landhelgisgæslan kemur að nýsköpunarvinnunni með að nýta bát til eftirlits á Breiðafirði.

Fáninn við hún klukkan þrjú

Lögreglan á Suðurnesjum neyddist til að taka niður tvo íslenska fána um klukkan þrjú aðfaranótt 17. júní. Fánarnir voru sóttir af eigendum sínum morguninn eftir. Lögreglan bendir fólki á fánalögin þar sem finna má umgengnisreglur um þjóðfánann.

Mengunarbótareglan innleidd

Ný lög um umhverfisábyrgð voru nýverið samþykkt á Alþingi. Með lögunum er greiðsluregla umhverfisréttarins, eða mengunarbótareglan svokallaða, innleidd í íslenskan rétt.

Sósíalistar ná meirihluta í Frakklandi

Sósíalistaflokkurinn getur myndað hreinan meirihluta í neðri deild franska þingsins samkvæmt útgönguspám. Samkvæmt spánum hlaut flokkurinn, sem er flokkur Francois Hollande forseta, 312 af 577 þingsætum.

Lífi 45 milljóna verði bjargað næstu 23 árin

Bóluefni, bætt heilsugæsla og aukin menntun í heiminum á síðustu fjörutíu árum hefur dregið úr tíðni barnadauða um meira en helming. Alþjóðlegur fundur um málefnið hófst fyrir helgi í Washington í Bandaríkjunum.

Stal hugmyndinni frá Obama

Forsetaframbjóðandinn Ari Trausti Guðmundsson ætlar að vera með kosningaskrifstofu á hjólum að hætti Obama bandaríkjaforseta. Hann segist eiga mikið fylgi inni á lokasprettinum.

Rúmlega 70 frumvörp bíða afgreiðslu

Rúmlega sjötíu stjórnarfrumvörp bíða nú afgreiðslu á Alþingi en þar af hafa tuttugu og fjögur mál enn ekki verið tekin til fyrstu umræðu. Ekkert samkomulag er um framhald þingstarfa og óljóst hvenær þing fer í sumarfrí.

Varla marktækur munur í þingkosningunum

Útgönguspár eftir þingkosningarnar í Grikklandi í dag benda til þess að Nýi lýðræðisflokkurinn, flokkur Antoni Samaras, sé með örlítið meira fylgi en vinstrabandalagið Syrizia. Munurinn er þó varla marktækur.

Flestir vilja takmarka setu forseta

Rúm sextíu prósent þeirra sem tóku þátt í könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins á dögunum telja að takmarka beri þann fjölda kjörtímabila sem forseti Íslands getur setið. Það kemur ekki á óvart að mest er andstaðan við slíkt á meðal stuðningsmanna Ólafs Ragnars Grímssonar.

Jóhanna: Mikill árangur náðst frá hruni

Forsætisráðherra segir þjóðina hafa náð gríðarlegum árangri frá hruni, samdráttarskeiðið hafi verið stryttra hér en annarss staðar og jöfnuður aukist til muna. Hún segir átök á vettvangi stjórnmálanna ekki hafa verið hatrammari á 34 ára ferli hennar sem stjórnmálamaður.

Laug að löggunni

Sex ökumenn voru teknir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Einn af þeim reyndist án bílprófs en hann verður einnig kærður fyrir rangar sakargiftir því hann sagði lögreglumönnum að hann væri annar en hann er, það er gaf upp rangt nafn.

Kosið í Egyptalandi

Seinni dagur egypsku forsetakosninganna fer fram í dag og hefur þátttakan verið fremur dræm eins og spáð var. Tveir frambjóðendur eru í kjöri, annars vegar fulltrúi Múslimska bræðralagsins, Mohamed Morsi og Ahmed Shafiq, sem var forsætisráðherra í síðustu ríkisstjórni Mubaraks fyrrverandi forseta. Hann er sagður njóta stuðnings hersins í landinu sem haldið hefur um stjórnartaumana frá því Mubarak var komið frá. Margir þeirra sem stóðu að mótmælunum í landinu á sínum tíma eru ósáttir með valkostina í forsetakjörinu og hafa hvatt fólk til þess að sitja heima.

Snjór, þrumur og eldingar í nótt

Þjóðhátíðardagurinn heilsaði ökumönnum í Svínahrauni með alhvítri jörð og þrumum og eldingum um klukkan eitt í nótt. Þetta kemur frá fréttavefnum Sunnlenska.is. Fimm stiga hiti var á heiðinni í nótt og snjóaði talsvert á litlu svæði. Annars má búast við skúrum suðvestanlands í dag en bjartviðri norðanlands. Hiti verður á bilinu sex til fimmtán stig, hlýjast á suðvesturlandi.

Fjörutíu ár frá Watergate-málinu

Í nótt voru fjörutíu ár liðin frá því að brotist var inn í Watergate bygginguna í Washington. Innbrotið var upphafið að einu mesta hneykslismáli í pólitískri sögu Bandaríkjanna og varð það til þess að Richard Nixon Bandaríkjaforseti sagði af sér tveimur árum síðar.

Hópslagsmál á Bíladögum

Tilkynnt var um hópslagsmál í miðbæ Akureyrar í nótt en þar í bæ fer hátíðin Bíladagar fram. Að sögn lögreglu voru fimm fluttir á slysadeild eftirð hafa lent í slagsmálum í miðbænum en mikill mannfjöldi safnaðist saman fyrir utan skemmtistaðina eftir lokun. Þrír menn ruddustu inn á heimili í bænum og lömdu húsráðanda. Árásin tengist deilum á milli aðila, segir lögregla en húsráðandi slapp með minniháttar áverka.

Svona er dagskráin í dag

Þjóðhátíðardagur Íslendinga sautjándi júní verður haldinn hátíðlegur um allt land í dag. Hátíðarhöld í Reykjavík hefjast með guðsþjónustu í Dómkirkjunni núna klukkan korter yfir tíu og verður hátíðardagskrá á Austurvelli upp úr klukkan ellefu og lýkur með skrúðgöngu að kirkjugarðinum við Suðurgötu þar sem forseti borgarstjórnar mun leggja blómsveig á leiði Jóns Sigurðssonar.

Borgarbúar verða að flokka rusl

Brátt þurfa allir Reykvíkingar að flokka pappír samkvæmt stefnu Reykjavíkurborgar. Óheimilt verður að setja pappír í sorpílát fyrir blandað sorp.

Eldur í Breiðholti

Eldur kom upp í fjölbýlishúsi í Dalaseli í Breiðholti á fimmta tímanum í dag. Að sögn varðstjóra kviknaði í húsbúnaði á svölum einnar íbúðarinnar. Stuttan tíma tók að ráða niðurlögum eldsins sem var ekki mikill. Mikið hefur verið að gera hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu í dag og hafa slökkviliðsmenn sinnt allskyns útköllum, þar á meðal vatnslekum í íbúðum.

OR hefur lagt milljarða í Gagnaveituna

Orkuveita Reykjavíkur hefur frá árinu 1999 lagt 13 milljarða í fjarskiptastarfsemi. Þar af hafa 4,7 milljarðar farið beint í Gagnaveitu Reykjavíkur frá stofnun hennar. RÚV greinir frá þessu.

Þriðju hverri ferð seinkaði hjá WOW air

Þriðju hverri ferð WOW air frá landinu seinkaði á fyrri hluta mánaðarins. Komutímar stóðust hins vegar oftar og í heildina mælist stundvísi fyrirtækisins 69 prósent á tímabilinu. Þetta kemur fram á vefsíðunni Túristi.is. Fyrsta flug WOW air fór í loftið um mánaðarmótin.

Þyrlan verið kölluð út vegna sinubrunans

Þyrla landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út til að aðstoða slökkviliðsmenn sem berjast við sinubruna í Ásfjalli í Áslandi í Hafnarfirði. Að sögn varðstjóra er töluvert mikill eldur á svæðinu en þrír slökkviliðsbílar hafa verið kallaðir út sem og sexhjól slökkviliðsins. Mikinn reyk leggur frá svæðinu og sést hann greinilega frá höfuðborgarsvæðinu. Ekki er vitað hvort hús eru í hættu.

Mikill sinubruni í Hafnarfirði

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er nú á leið á Ásfjall í Áslandi í Hafnarfirði vegna mikils sinubruna í fjallinu. Að sögn varðstjóra eru tveir slökkviliðsbílar á leiðinni, tankbíll og sexhjól. Verið er að kanna hvort að það þurfi að kalla út þyrlu til að hjálpa til við slökkvistarf. Mikinn reyk leggur frá svæðinu og sést hann greinilega frá höfuðborgarsvæðinu.

Kvennahlaupið í dag

Kvennahlaupið er í dag og verður hlaupið frá áttatíu stöðum hér á landi og sextán stöðum erlendis en kvennahlaupið er einn fjölmennasti íþróttaviðburður sem fram fer hér á landi ár hvert.. Í Garðabæ hefst hlaupið klukkan tvö en í Mosfellsbæ, Reykjanesbæ og á Akureyri hefst það klukkan ellefu. Upplýsingar um alla hlaupastaði má finna á sjova.is.

Reiðubúnir að leggja fram tillögu um að stöðva umræðu

Allt kapp var lagt á að ná samkomulagi um þinglok í gær. Þingfundi var frestað ítrekað og þegar Fréttablaðið fór í prentun stóð til að funda klukkan 22. Útkoma fundanna ræður því hvort þing klárast í dag. Ef ekki, er vilji fyrir hendi til að beita ákvæði um að ljúka umræðu með atkvæðagreiðslu.

Gefa íslenskum börnum fánann

Um 4.500 börn sem luku öðrum bekk grunnskóla nú í júní hafa fengið litlar fánaveifur að gjöf frá Skátahreyfingunni og Eimskip.

Efla erlenda fjárfestingu á Íslandi

Alþingi hefur samþykkt stefnumörkun um beina erlenda fjárfestingu, en hún var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Samkvæmt tillögunni, sem efnahags- og viðskiptaráðherra lagði fram, skal hann, ásamt iðnaðarráðherra, leggja fram tímasetta áætlun um aðgerðir til að bæta samkeppnisstöðu Íslands.

Þingholtin hæst metna hverfið

Hækkun fasteignamats er mjög misjafnt eftir hverfum á höfuðborgarsvæðinu. Nýtt fasteignamat fyrir næsta ár var kynnt á fimmtudag.

Málskotsrétturinn er ykkar fólksins

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti og forsetaframbjóðandi, heimsótti Marel á dögunum ásamt Dorrit Moussaieff, eiginkonu sinni. Yfirfullt var í matsal Össurar þegar Ólafur Ragnar kynnti stefnumál sín og útskýrði sýn sína á hlutverk forsetans.

Kínversk kona út í geim

Liu Yang verður í dag fyrsta kínverska konan til þess að fara út í geim. Tilkynnt var um geimferðina í gær. Liu er 33 ára gamall herflugmaður. Hún mun ásamt tveimur karlkyns geimförum halda út í geim í dag í Shenzhou-geimferjunni. Förinni er heitið að geimstöðinni Tiangong 1, sem er tilraunaverkefni Kínverja, sem vilja koma upp varanlegri miðstöð í geimnum.

Ungu fólki ekki vísað burt

Bandaríkin ætla að hætta að vísa úr landi ólöglegum innflytjendum sem komu til landsins sem börn. Fólk á aldrinum 16 til 30 ára sem hefur búið í landinu í fimm ár eða lengur fær mögulega að vera þar áfram og fá atvinnuleyfi. Fólkið þarf að vera í skóla, útskrifað úr menntaskóla eða hafa verið í hernum og með hreinan sakaferil.

Varað við meðferð elds - gróður eins og púðurgeymsla

Skógurinn er eins og púðurgeymsla eftir langvarandi þurrka, segir slökkviliðsstjóri Borgarbyggðar, sem segir eldnotkun úti í náttúrunni sérlega hættulega um þessar mundir. Almannavarnir prófa á morgun viðbragðskerfi fyrir Skorradal vegna skógarelda. Um sjöhundruð sumarbústaðir eru í Skorradal en almannavarnir héldu í gærkvöldi fund á Hvanneyri þar

Dóttir Þóru þyngst um kíló í kosningabaráttunni

"Hún er fjögurra vikna í dag og það hefur gengið ótrúlega vel,“ sagði Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi, þegar hún var spurð í Reykjavík síðdegis í dag hvernig það gengi að standa í kosningabaráttu með kornabarn í fanginu.

Sneri á lesblinduna og dúxaði

Sem barn taldi hún sig vera heimska og lesblindan háði henni fram á fullorðinsár. Hún var komin á sextugsaldur þegar hún lærði nýja tækni við lestur, og tók stúdentspróf. Guðríður Gyða Halldórsdóttir segir að þá fyrst hafi lífið byrjað.

Ólafur Ragnar með afgerandi forystu

Ólafur Ragnar Grímsson hefur tvöfalt meira fylgi en Þóra Arnórsdóttir í nýjustu skoðanakönnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins. Þóra toppaði of snemma, segir stjórnmálafræðingur.

Sjá næstu 50 fréttir