Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tóku skóflustungu að nýjum framhaldsskóla í Mosfellsbæ Í dag var fyrsta skóflustungan að byggingu Framhaldsskólans í Mosfellsbæ við Bjarkarholt tekin. Fyrsti áfangi verkefnisins gerir ráð fyrir fjögur þúsund fermetra byggingu og búist er við að 400 til 500 nemendur sæki skólann. 15.6.2012 14:46
Dingóar námu Azariu á brott Eftir 32ja ára þrautagöngu var léttir hinnar áströlsku Lindy Chamberlain-Creighton mikill í gær þegar hún var endanlega hreinsuð af ásökunum um að hafa valdið dauða dóttur sinnar árið 1980. 15.6.2012 14:00
SUS sakar Kristján og Tryggva um að kaupa sér atkvæði Samband ungra sjálfstæðismanna gagnrýnir þingmenn Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi harðlega fyrir að hafa samþykkt gerð Vaðlaheiðarganga á þingi í gær. Í ályktuninni er þeim Kristjáni Þór Júlíussyni og Tryggva Þór Herbertssyni óskað til hamingju með að hafa keypt sér endurkjör á næsta kjörtímabili, eins og það er orðað. Ungir sjálfstæðismenn bæta því við að verðið sem þeir greiði fyrir endurkjörið, 8,7 milljarðar, komi reyndar ekki úr þeirra vösum, heldur renni það úr vösum skattgreiðenda. 15.6.2012 13:57
Ók á Leifsstöð Síðdegis í gær varð ökumanni stigabíls sem notaður er á flugstöð Leifs Eiríkssonar á að aka á flugstöðina. Lögregla var kölluð til vegna óhappsins og sagðist ökumaðurinn hafa gleymt því hve hár bíllinn var. Hann ók því undir tengibygginguna og við það rakst bíllinn upp undir. Tjón varð á ytra byrði byggingarinnar og smávægilegt tjón á lyftu stigabílsins. 15.6.2012 13:50
Efnavopn í Sýrlandi Uppreisnarmenn í Sýrlandi segja stjórnarher landsins nota efnavopn gegn andófsmönnum sínum. 15.6.2012 13:45
Fyrsta kínverska konan í geimnum Kínverjar munu senda fjórða mannaða geimfar landsins út í geim á morgun. Ein kona verður um borð og verður þar með fyrsta kínverska konan í geimnum. 15.6.2012 13:31
Verðandi biskup prédikar í kvennamessu Verðandi biskup yfir Íslandi, séra Agnes M. Sigurðardóttir mun prédika í kvennamessu sem haldin verður við Þvottalaugarnar í Laugardal á kvenréttindadaginn 19. júní næstkomandi klukkan átta. Kvennakirkjan stendur fyrir guðsþjónustunni í samstarfi við Kvenréttindafélag Íslands og Kvenfélagasamband Íslands. 15.6.2012 13:21
Vill rannsaka rassskellingarnar Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri grænna, vill að íþróttahreyfingin rannsaki rassskellingar meðal ungra íþróttamanna. Hún hvetur hreyfinguna ennfremur til að fordæma slíka vígslur. 15.6.2012 13:14
Kínverskar silkhænur urðu hundi að bráð Hundur í Keflavík þefaði uppi og drap í gær hænur þegar hann slapp úr pössun. Lögreglu var tilkynnt um málið en þegar hún kom á vettvang hafði hundinum tekist að drepa þrjár kínverskar silkihænur sem voru á baklóð húss í bænum. Hundurinn var á bak og burt þegar lögreglu bar að garði. 15.6.2012 13:12
Fjögur skemmtiferðaskip til borgarinnar sama daginn - 8000 farþegar Ferðamönnum í Reykjavík fjölgar all hressilega á mánudaginn kemur en þá vill svo til að fjögur skemmtiferðaskip leggjast að bryggju í borginni. Um borð eru átta þúsund erlendir ferðamenn en aldrei áður hafa jafnmargir farþegar komið hingað til lands á einum og sama deginum. TVG-Zimsen sér um að þjónusta þrjú þessara skipa og segir Björn Einarsson framkvæmdastjóri ljóst að dagurinn verði mjög annasamur, enda mikið umstang að þjónusta eitt skip, hvað þá þrjú sama daginn. 15.6.2012 13:02
Þarf ekki að vera flókið að stilla til friðar „Eitt af okkar markmiðum er að svara þeirri spurningu hvernig við getum breytt hugarfari múslíma til að haga sér með þeim hætti að það gefi góða og rétta mynd af íslam.“ 15.6.2012 13:00
Rottur sjást oftar á vorin Á þessum tíma árs verða borgarbúar iðulega meira varir við rottugang en á veturna. Ómar F. Dabney, rekstrarfulltrúi hjá meindýravörnum borgarinnar segir ekkert óeðlilegt við það. 15.6.2012 12:58
Hættan á gróðureldum fer vaxandi í þurrkatíðinni Hætta á gróðureldum fer vaxandi dag frá degi vegna langvarandi þurrka. Almannavarnir kynntu í gærkvöldi fólki í Skorradal drög að viðbragðsáætlun við slíkum eldum og verða viðlíka áætlanir gerðar fyrir fleiri svæði víða um land. 15.6.2012 12:55
Eflaust skálað í kampavíni fyrir Vaðlaheiðargöngum Eflaust hafa einhverjir skálað í kampavíni í gær, segir stjórnarformaður Vaðlaheiðarganga hf. Framundan eru samningaviðræður við lægstbjóðanda. Enn er ekki hægt að segja til um hvenær framkvæmdir hefjast. Alþingi samþykkti í gær frumvarp sem heimilar fjármálaráðherra að lána félaginu Vaðlaheiðargöng hf. 8,7 milljarða króna til gerðar ganganna. 29 þingmenn samþykktu frumvarpið, 13 voru á móti og fimm sátu hjá, þar af þrír stjórnarliðar. Félagið Vaðlaheiðargöng hf. er í eigu Vegagerðarinnar, sem fer með 51 prósents hlut, og Greiðrar leiðar sem á prósent. Kristín H. Sigurbjörnsdóttir er stjórnarformaður félagsins. Hún segir að framundan séu samningaviðræður við lægstbjóðanda, ÍAV og Marti Contractors Lts frá Sviss sem komu með sameiginlegt tilboð. " Síðan þarf að klára þessa lánasamninga gagnvart fjármálaráðuneytinu og hlutafjáraukninguna. Það er alveg hellingur af verkefnum framundan. Þetta hefur verið á bið þangað til núna og nú bara göngum við í verkefnalistann," segir Kristín. Fundir með fulltrúum ÍAV og Marti eru fyrirhugaðir eftir helgina. Kristín er sannfærð um að framkvæmdin standi undir sér, en greiða á ríkislánið til baka með tekjum af veggjöldum. "Já, miðað við okkar útreikninga þá teljum við svo vera," segir hún. Enn er óljóst hvenær framkvæmdir hefjast og þar með hvenær þeim lýkur, en þetta skýrist allt frekar í þeim viðræðum sem nú fara í gang, að sögn Kristínar. Kristín segir ánægjulegt að óvissunni um fjármögnun ganganna hafi nú verið eytt, enda hafi félagið fyrir átta mánuðum opnað fyrir útboð í þeirri trú að gögnin yrðu að veruleika. Þannig að það var skálað í kampavíni í gær, eða hvað? "Jú, örugglega hafa einhverjir gert það," segir hún. "Það er ánægjulegt að það sé komin niðurstaöa og að núna sé hægt að halda áfram vinnunni." 15.6.2012 12:00
Dæmdur fyrir kannabisræktun Tæplega þrítugur karlmaður var dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fíkniefnalagabrot í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. 15.6.2012 11:52
Fara með þyrlu að skoða tökustaði Framleiðendur kvikmyndarinnar Oblivion eru nú á leið í þyrluflug til þess að skoða væntanlega tökustaði en tökur á henni hefjast norðan heiða á næstu dögum. Stórstjarnan Tom Cruise kom til landsins með einkaþotu fyrr í dag og dvelst nú á Hilton Reykjavík Nordica hótelinu á Suðurlandsbraut. Samkvæmt heimildum mun hann síðan dvelja í glæsihýsinu Hrafnabjörgum á Vaðlaheiði ásamt fjölskyldu sinni á meðan á tökum stendur. Cruise mun fagna merkum áfanga á meðan hann dvelst hér á landi en hann verður fimmtugur þann 3. júlí næstkomandi. 15.6.2012 11:50
Bjarni segir ýmislegt óeðlilegt á Alþingi Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins sagði í morgun að margt væri óvanalegt og óeðlilegt á Alþingi í dag. 15.6.2012 11:37
"Ríkisstjórnin er að fara í kosningabaráttu“ Björn Valur Gíslason, formaður þingflokks VG, segir ábyrgð minnihlutans mikla þar sem hann hefði komið í veg fyrir að Alþingi gæti tekið afstöðu til mikilvægra mála á vorþingi. 15.6.2012 11:35
„Alþingi er í miklum vanda“ "Alþingi er í miklum vanda," sagði Steingrímur J. Sigfússon á Alþingi í dag. Minnihlutinn á Alþingi hefði lagst gegn mikilvægum málum með málþófi og komið í veg fyrir afgreiðslu þeirra. 15.6.2012 11:12
Tom Cruise lenti á Reykjavíkurflugvelli fyrir stundu Kvikmyndastjarnan Tom Cruise lenti nú fyrir stundu í einkaþotu á Reykjavíkurflugvelli. Með í för er nokkurt fylgdarlið og fóru allir um borð í bílalest og óku rakleitt á brott. Í gær bárust fregnir af því að stjarnan væri komin til landsins og væri á Hilton Reykjavík Nordica. Þær fréttir virðast ekki hafa verið á rökum reistar. 15.6.2012 10:50
Enn leitað að lottóspilaranum Vinningshafinn í lottóinu síðustu helgi er enn ófundinn. Hann fékk fimm tölur réttar á miða sem hann keypti í Leirunesti á Akureyri og vann 73 milljónir króna. 15.6.2012 10:32
Skólakrakkar fá 4500 fána fyrir þjóðhátíðardaginn Skátahreyfingin og Eimskip hafa dreift litlum íslenskum handfánum ásamt bæklingi um meðferð íslenska fánans til allra grunnskólabarna í landinu sem luku 2. bekk nú í júní. "Um 4.500 börn hafa fengið fánana að gjöf og geta fagnað 17. júní með fánaveifu í hönd,“ segir í tilkynningu. 15.6.2012 10:31
Cruise ætlar í gönguferð á afmælisdaginn Hollywood stórstjarnan Tom Cruise sem nú dvelur á Íslandi við tökur, ætlar í gönguferð á afmælisdaginn sinn. Þetta kemur fram í viðtali við kappann sem birtist í tímaritinu People í dag. Þar ræðir hann um lífið og tilveruna og hvernig það sé að þurfa að vinna á afmælisdaginn, en Cruise verður fimmtugur þann þriðja júlí næstkomandi. 15.6.2012 10:09
Rassskellingar á að afnema með öllu Ég veit að börn hafa hætt í íþróttum vegna rassskellinganna,“ segir Þorlákur Helgason, framkvæmdastjóri Olweusar-áætlunarinnar gegn einelti. „Þetta er alveg eins og hvert annað ofbeldi þar sem krakkar eru að reyna að komast inn í hópana. Þetta á að afnema með öllu og það á ekki að fara neina millileið.“ 15.6.2012 10:00
Kirkja brann til grunna, mynd af verndardýrlingi slapp Lítil kirkja í bænum Juárez í Mexíkó brann til grunna í vikunni fyrir utan einn hlut í henni, málverk á tréplötu af Hinni hreinu mey frá Guadalupe. 15.6.2012 09:53
Fegra umhverfið í Kópavogi með veggjalist Ungmenni í sumarvinnu í Molanum, ungmennahúsi Kópavogs, hafa undanfarna daga fengið útrás fyrir listsköpun sína og málað graffiti myndir á stóran vegg við bílastæðið sunnan við Auðbrekku 6 í Kópavogi. Í tilkynningu frá bænum segir að veggurinn hafi áður verið mikið lýti á umhverfinu en nú sé þar nýtt listaverk að líta dagsins ljós. 15.6.2012 09:27
Með þungar áhyggjur af stöðu háskóla Stjórn Bandalags háskólamanna, BHM, lýsir þungum áhyggjum af stöðu háskólastigsins í íslensku menntakerfi, en Ísland er eina landið innan OECD sem ver minna fé til menntunar hvers nemanda á háskólastigi en á grunnskólastigi. En framlag á hvern nemanda á háskólastigi er 25 prósentum undir meðaltali OECD ríkjanna. 15.6.2012 09:21
Sagðist særð, móðguð og reið Þóra Victoria, aðstoðarflokksstjóri hjá Skrúðgarðyrkjudeild borgarinnar, hefur sent opinbert kvörtunarbréf til yfirmanna Reykjavíkurborgar þar sem hún sakar Bjarna Brynjólfsson, upplýsingafulltrúa Reykjavíkurborgar, um aðdróttanir og svívirðingar í sinn garð. 15.6.2012 09:00
Gífurleg spenna í Grikklandi, sala á skotvopnum eykst Gífurleg spenna ríkir í Grikklandi fyrir þingkosningarnar sem haldnar verða þar um helgina. 15.6.2012 08:57
Skrifstofa Alþingis á Ólafsfirði tíu ára Skrifstofur Alþingis eru starfræktar á nokkrum stöðum í miðborg Reykjavíkur og síðustu tíu ár einnig á Ólafsfirði. 15.6.2012 08:30
Mál starfsmannanna einstakt tilvik Sérstakur saksóknari kærði tvo lögreglumenn sem starfað hafa hjá embættinu um margra ára skeið til Ríkislögreglustjóra fyrir brot á þagnarskyldu í apríl síðastliðnum. 15.6.2012 08:00
Regndans sunnlenskra bænda bar árangur Veðurguðirnir brugðust við regndansi sunnlenskra bænda í gær með því að senda þeim úrhellis rigningu með þrumum og eldingum, en langvarndi þurrkar hafa víða hægt á sprettu og þar með seinkað slætti. 15.6.2012 07:44
Stórútkall að dvalarheimili vegna reyks í niðurfalli Slökkvilið Dalabyggðar, lögregla og sjúkraflutningamenn voru kvödd að dvalarheimilinu Fellsenda í Miðdölum í gærkvöldi eftir að þar varð vart við reykjarlykt. 15.6.2012 07:40
Mikil reiði og mótmæli í Egyptalandi Mikil reiði ríkir í Egyptalandi og mótmæli voru víða í landinu í gærkvöldi og nótt vegna þess að herinn hefur tekið aftur við völdum í landinu. 15.6.2012 07:19
Hellateikningar á Spáni eru yfir 40.000 ára gamlar Hellateikningar á Spáni eru taldar mun eldri en áður var talið. Með nýrri tækni í aldursgreiningu kemur í ljós að nokkrar þessara teikninga eru yfir 40.000 ára gamlar. 15.6.2012 07:13
Fimm teknir úr umferð vegna ölvunar- og dópaksturs Fimm ökumenn voru teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinu í nótt vegna ölvunar- eða fíkniefnaaksturs. 15.6.2012 07:04
Síðasti sarin-hryðjuverkamaðurinn handtekinn Lögreglan í Japan hefur handtekið síðasta meðlim sértrúarsafnaðarins og hryðjuverkasamtakanna Aum Shinrikyo sem eftirlýstur var fyrir sarín eiturgasárásina í lestarkerfi Tókýó fyrir 17 árum síðan. Í þeirri árás fórust 13 manns. 15.6.2012 07:00
Agnarsmár vágestur veldur miklum skaða Smávaxið fiðrildi, birkikemba, hefur náð undraverðri útbreiðslu á stuttum tíma. Ummerki þessa nýbúa má víða merkja í görðum á höfuðborgarsvæðinu og víðar en skýrasta merkið um heimsókn þess eru sölnuð birkilauf sem víða eru mjög greinileg. 15.6.2012 07:00
Forseti Argentínu krefst samninga um Falklandseyjar Cristina Kirchner forseti Argentínu hefur krafist þess að Bretar semji við Argentínumenn um framtíð Falklandseyja. 15.6.2012 06:56
Forseti Kína skoðar Litlu hafmeyjuna í dag Opinber heimsókn Hu Jintao forseta Kína heldur áfram í Danmörku í dag. Dagurinn hefst á því að forsetinn situr dansk-kínverska ráðstefnu í Moltke höll en síðan verður farið í skoðunarferð um Kaupmannahöfn. 15.6.2012 06:50
Tölum hreint út um spillingu og þöggun Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðandi var á persónulegu nótunum þegar hún kynnti framboð sitt á hádegisfundi hjá CCP á Grandagarði. Í stað þess að halda hefðbundnar ræður leggur Herdís áherslu á að setjast niður með fólki og ræða málin. Heitar umræður spunnust um forsetaembættið og framtíðarhorfur landsins yfir gúllassúpunni sem borin var á borð í starfsmannamötuneytinu. 15.6.2012 06:30
Hæna fóstrar andarunga Hænan Gulla á Ósbakka í Skeiða og Gnúpverjahreppi fóstrar nú þrjá stokkandarunga eftir að hrafnar réðust á andamömmu fyrir skemmstu. Frá þessu er greint í Bændablaðinu. 15.6.2012 06:30
Alþingi veitir heimild til láns Frumvarp Oddnýjar G. Harðardóttur, fjármálaráðherra, um heimild til fjármálaráðherra til að fjármagna göng undir Vaðlaheiði var samþykkt með 29 atkvæðum gegn 13 á Alþingi í gær. Fimm þingmenn sátu hjá við atkvæðagreiðsluna þar af þrír stjórnarþingmenn. 15.6.2012 06:00
Eldur í plastbát í Hrísey Eldur kom upp í plastbátnum Guðrúnu EA 58 í Hrísey á Eyjafirði í gær. Slökkvilið var kallað til og réði niðurlögum eldsins á skömmum tíma. 15.6.2012 05:30
Sumarfríin eru ekki sjálfgefin á Alþingi „Ef þing verður áfram í sumar er ljóst að einhverjir gætu þurft að fresta hluta af sumarfríinu. En við vitum enn ekki hvernig fyrirkomulagið verður,“ segir Hildur Eva Sigurðardóttir, formaður starfsmannafélags Alþingis, þar sem 120 manns starfa. Hildur segir óvissu um þinglok auka álag á starfsfólk og geta haft áhrif á plön fram í tímann. 15.6.2012 04:30