Ferðamannadagurinn mikli - Öngþveiti á Þingvöllum Lillý Valgerður Pétursdóttir og Karen Kjartansdóttir skrifar 18. júní 2012 18:57
Öngþveiti var á helstu ferðamannastöðum þegar metfjöldi kom til landsins með skemmtiferðaskipum. Áætlað er að farþegarnir og áhafnir hafi eytt rúmum hundrað milljónum í vörur og þjónustu á þessum eina degi. Það var mikið um að vera á Skarfabakkanum í dag en aldrei áður hafa jafnmargir komið með skemmtiferðaskipum til Reykjavíkur á einum degi eða 10 þúsund manns. Alls komu fjögur skip. Það fyrsta kom sjö í morgun og síðan fylgdu hin á eftir. Talið er að um fimm þúsund manns hafi farið í skipulagðar ferðir í dag „Þetta er svo vel undirbúið af þeim sem eru að sjá um að útvega rútur, leiðsögumenn og að skipleggja ferðirnar að það hefur bara allt gengið eins og smurð vél," segir Ágúst Ágústsson, markaðsstjóri Faxaflóarhafna. Ágúst segir ferðir í Bláa lónið, upp á jökla og að náttúruperlum á Suðurlandi hafa verið vinsælar. Töluverður tekjur eru af komu skipanna. „Ég hugsa að þessi dagur í dag svona bein eyðsla farþeganna og þeirra sem eru í áhöfn sé eitthvað í kringum 100 milljónir," segir Ágúst.Við Almannagjá var þröngt á þingi snemma dags og tugir langferðabíla á svæðinu. Einhverjir kvörtuðu yfir því að þeir næðu ekki að njóta fegurðarinnar og friðsældarinnar sem þeim hafði verið sagt að ríkti á Íslandi vegna mannmergðar. En mikill fjöldi mynda var tekin og því getur fólk notið þess sem á þeim má sjá í betra tómi síðar og líklega hafa langflestir náð að njóta þess sem fyrir augu bar. Ferðamenn sem fréttastofa tók tali við Geysi kváðust flestir ánægðir og þeir sem höfðu komið áður sögðu að þeim þætti ferðamennskan hafa tekið jákvæðum breytingum undanfarin ár.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira