Innlent

Framseldur til Slóvakíu

Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem ákvörðun innanríkisráðherra um framsal dansks ríkisborgara til Slóvakíu var staðfest. Maðurinn sætir farbanni hér á landi en hann liggur undir grun að hafa hlunnfarið starfsmenn félags sem hann rak í Slóvakíu.

Talið er að maðurinn hafi ekki staðið í skil á hluta af launum starfsmanna félagsins að fjárhæð 139.476 slóvakískar krónur, að jafnvirði 4.600 evrur eða um 728 þúsund krónur.

Maðurinn var handtekinn á Keflavíkurflugvelli 30. apríl síðastliðinn en lýst hafði verið eftir honum í Schengen-upplýsingakerfinu.

Hægt er að nálgast dóm Hæstaréttar hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×