Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
"Hvar voru allir þessir fréttamenn fyrir 40 árum?" Rússneski söngvarinn, sem myndbandavefurinn Youtube gerði óvænt heimsfrægan á gamalsaldri sem Trololo, lést í Sánkti Pétursborg í gær, 77 ára að aldri. Hann hét í raun Edvard Kihl, hafði verið þekktur í gömlu Sovétríkjunum fyrir 40 árum, en flestum gleymdur þar til fyrir tveimur árum að einhver fann gamalt myndband af honum úr sovéska sjónvarpinu frá árinu 1976 og setti á Youtube. 5.6.2012 20:15
Einar Örn: Borgaði 5.900 krónur fyrir sætið "Ég tel mig ekki hafa verið að brjóta siðreglurnar, mér var ekki boðið sem borgarfulltrúa,“ segir Einar Örn Benediktsson, borgarfulltrúi Besta flokksins og formaður menningar- og ferðmálanefndar Reykjavíkurborgar. 5.6.2012 19:17
Öryggisvörðurinn sér mikið eftir árásinni Sláandi myndir náðust af því þegar öryggisvörður á Hlemmi gekk í skrokk á manni sem þar hafðist við. Starfsmanninum hefur verið vikið frá störfum og forstjóri Strætó segir koma til greina að endurskoða öryggismálin. 5.6.2012 18:39
Vill samráðs við stéttina til að leysa vandann Niðurskurður í heilbrigðiskerfinu virðist á góðri leið með að ganga af heimilislækningum dauðum. Þetta segir formaður félags íslenskra heimilislækna sem krefst samráðs við stéttina svo hægt sé að leysa vandann. 5.6.2012 19:59
Gerist næst árið 2247 - einstakt tækifæri að sjá Venus í kvöld "Næst þegar þetta gerist þá verður árið 2247 - þannig þetta er einstakt tækifæri fyrir okkur Íslendinga,“ segir Sævar Helgi Bragason, formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness. Klukkan korter yfir tíu í kvöld mun plánetan Venus ganga á milli sólarinnar og jarðarinnar - og eru Íslendingar í bestu stöðu í heiminum til að sjá það gerist. 5.6.2012 19:45
Síminn bjargaði hjónum í sjálfheldu "Það var nú eiginlega bara heppni að ég við vorum með síma,“ segir Elísabet Ósk Vigfúsdóttir, sem var bjargað ásamt manni sínum úr sjálfheldu á Helgafelli í gær. Um 20 björgunarsveitarmenn tóku þátt í að bjarga þeim. 5.6.2012 17:33
Helmingurinn fær sumarstarf hjá borginni Rúmlega 50% þeirra ungmenna sem sóttu um sumarstarf hjá Reykjavíkurborg fá vinnu í ár. Þetta segir Hulda Gunnarsdóttir, sérfræðingur upplýsingamála hjá borginni. Áætlað er að ráða um 1400 starfsmenn í sumar-og afleysingastörf hjá borginni 2012. Rúmlega 4000 umsóknir hafa borist. 5.6.2012 17:30
Ferðamaðurinn á leið til Reykjavíkur Erlendi ferðamaðurinn sem sendi neyðarboð frá Skeiðarárjökli fyrr í dag er nú á leið með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur. Ekki er vitað um ástand mannsins en hann er ekki talinn vera mikið slasaður. 5.6.2012 17:12
SÞ ætla ekki að aðhafast í máli íslenskra sjómanna gegn ríkinu Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna sem hefur fjallað um mál Erlings Sveins Haraldssonar og Arnar Snævars Sveinssonar gegn íslenskum stjórnvöldum hefur ákveðið að loka málinu þar sem stjórnvöld hafi brugðist, "með ásættanlegum hætti að hluta til" við tilmælum nefndarinnar. Stjórnvöldum barst tilkynning um þetta í gær. 5.6.2012 16:59
"Niðurstaðan kemur ekki á óvart" Páll Magnússon, útvarpsstjóri, fagnar niðurstöðu álitsgerðar sem unnin var um hæfi RÚV til að fjalla um forsetakosningarnar í ár. "Niðurstaðan kemur ekki á óvart,“ segir Páll. "En við töldum rétt að útkljá þessi mál.“ 5.6.2012 16:57
Klámmyndaleikarinnar framseldur til Kanada Klámmyndaleikarinnar Luka Rocco verður að öllum líkindum framseldur til Kanada á næstu vikum. Luka var handekinn á kaffihúsi í Berlín í gær eftir að hafa verið eftirlýstur af Interpol. 5.6.2012 16:36
Tvo þarf til að rjúfa þing Hvorki forseti né forsætisráðherra fara einir með þingrofsrétt. Þetta segir Ragnhildur Helgadóttir, prófessor í stjórnskipunarrétti við Háskólann í Reykjavík. 5.6.2012 16:08
71 milljón úthlutað úr Pokasjóði Úthlutað var úr Pokasjóði verslunarinnar við athöfn í Salnum í Kópavogi í dag. Tæplega 71 milljón króna var úthlutað til 82 verkefna á sviði umhverfismála, menningar, mannúðar, íþrótta og útivistar um allt land. 5.6.2012 15:53
Fangelsið á Hólmsheiði - Arkís sigraði Arkitektastofan Arkís sigraði í samkeppni um hönnun fangelsis á Hólmsheiði. Alls bárust átján tillögur og voru veitt verðlaun fyrir þær þrjár sem þóttu bera af. 5.6.2012 15:52
Aðstoðarmönnum dómara falið ríkara hlutverk Aðstoðarmönnum dómara verður, lögum samkvæmt, falið mun ríkara hlutverk í héraðsdómstólum samkvæmt nýju frumvarpi um dómstóla sem er í þinginu. Samkvæmt frumvarpinu munu aðstoðarmenn geta setið þingfestingar og fyrirtökur fyrir dómara og tekið á móti skjölum sem dómari tekur nú við. Þá munu aðstoðarmenn geta tekið ákvarðanir í málum þar sem sakborningur eða stefndi grípur ekki til varnar. 5.6.2012 15:07
Fíkniefni fundust í húsleitum Töluvert magn fíkniefna fannst í húsleitum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Þá var karl á þrítugsaldri handtekinn í íbúð í Breiðholti en grunur lék á að kannabisefni væru seld þaðan. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni lagði mikla kannabislykt frá íbúðinni en í henni fundust um 170 grömm af af marijúana í söluumbúðum. 5.6.2012 14:33
Björgunarsveitamenn og þyrla kölluð á Skeiðarárjökul Neyðarsendir á Skeiðarárjökli fór í gang nú fyrir stundu og hefur þyrla Landhelgisgæslunnar verið kölluð út vegna þessa. Undanfarar frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg munu fljúga með þyrlunni. Á þessari stundu er ekki vitað hvers vegna neyðarsendirinn fór í gang, en málið verður kannað. 5.6.2012 14:33
Forsetakosningar 2012: RÚV ekki vanhæft Samkvæmt niðurstöðu álitsgerðar þeirra Róbert Spanó, forseta lagadeildar Háskóla Íslands og Trausta Fannars Valssonar, lektors við lagadeild, telst Ríkisútvarpið ekki vanhæft til að fjalla um forsetakosningar 2012 - þó svo að Þóra Arnórsdóttir og eiginmaður hennar, Svavar Halldórsson, hafi starfað hjá stofnuninni um árabil og séu í launalausu leyfi. 5.6.2012 14:24
Guðmundur í Brimi þaggaði niður í þingmanni Guðmundur Kristjánsson, eigandi útgerðarfyrirtækisins Brims, þaggaði niður í Jóni Gunnarssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, á fundi Brims með sjómönnum og fiskverkafólki á Miðbakkanum í dag. Þótt Steingrími J. Sigfússyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hafi verið boðið auk þingmanna var fundurinn aðallega til upplýsinga fyrir starfsfólk Brims. 5.6.2012 14:01
Afmælishátíð Bretlandsdrottningar í myndum Elísabet bretlandsdrottning fagnaði 60 ára valdaafmæli sínu nú um helgina. Hún er annar þjóðhöfðinginn í sögu Englands sem hefur náð þessum embættisaldri, en Viktoría Bretlandsdrottning sat í 63 ár. 5.6.2012 13:59
Húsasmiðjan tekur áburð úr sölu Matvælastofnun hefur gert athugasemdir við sölu fyrirtækisins á áburði sem gengur undir nafninu Garðablámi. Niðurstöður efnagreininga Matvælastofnunar leiddu í ljós að kadmíuminnihald væri yfir viðmiðunarmörkum sem í gildi eru á Íslandi. Húsasmiðjan flutti inn viðkomandi áburð í góðri trú enda sýndi innihaldslýsing þýska framleiðandans að efnainnihald áburðarins samræmdist íslenskum reglugerðum og byggðist innflutningsleyfið á þeim upplýsingum sem framleiðandinn upplýsti um. Húsasmiðjan hefur nú þegar brugðist við, í ljósi tilkynningar Matvælastofnunar, og tekið áburðinn tímabundið úr sölu í verslunum félagsins. 5.6.2012 13:34
Sendiherrar ekki lengur velkomnir í Sýrlandi Sendiherrar Bandaríkjanna og Bretlands eru ekki lengur velkomnir í Sýrlandi. Yfirvöld þar í landi tilkynntu í dag að diplómatarnir yrðu reknir á brott en fyrir rúmri viku var sendiherrum Sýrlands gert að yfirgefa sendiráð sín í nokkrum löndum í Evrópu og Asíu. 5.6.2012 13:17
Óvíst hvenær þingstörfum lýkur Ekki liggur fyrir hvenær þingstörfum lýkur og þingmenn fara í sumarfrí. Formenn flokkanna funduðu um málið í gær. Bjarni Benediktsson sagði enga niðurstöðu hafa fengist á fundinum. "Menn voru svona að ræða stöðuna. Það gerðist nú ekki mikið," sagði Bjarni. Hann vill ekki spá fyrir um hve lengi þingið mun dragast í viðbót. Upphaflega var stefnt að því að þinglok yrðu nú um mánaðarmótin eða í byrjun júní. Ljóst er að það mun dragast um sinn enda nokkur stór mál á dagskrá alþingis. 5.6.2012 12:47
Allir fengu vinnu hjá Kópavogi Öll ungmenni sem sóttu um sumarstarf hjá Kópavogsbæ fengu vinnu. Rúmlega 1.500 ungmenni munu því starfa við margvísleg störf hjá bænum í sumar. Flest starfa ungmennin við snyrtingu og fegrun bæjarins en einnig sem stjórnendur á leikjanámskeiðum, flokksstjórar í vinnuskóla, verkamenn við íþróttavelli eða við afleysingar í sundlaugum svo dæmi séu nefnd. 5.6.2012 12:21
Einstakur stjarnfræðilegur atburður - Ísland á fremsta bekk Einstakur stjarnfræðilegur atburður mun eiga sér stað í kvöld þegar Venus gengur fyrir sólina. Það má segja að við séum á fremsta bekk en sjónarspilið mun njóta sín afar vel á hinum íslenska næturhimni. 5.6.2012 12:13
Árásin á Hlemmi átti sér aðdraganda Persónulegar illdeilur urðu til þess að öryggisvörður á Hlemmi gekk í skrokk á útigangsmanni sem þar hafðist við. Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó, segist hafa heyrt af því að árásin sem Grapevine birti á vefsíðu sinni hafi átt sér aðdraganda og mönnunum lent saman áður. 5.6.2012 11:42
Kæra ógildingu framboðs Ástþórs Fimm kjósendur hafa tekið sig saman og kært ákvörðun Innanríkisráðuneytisins að ógilda forsetaframboð Ástþórs Magnússonar. Kæran hefur borist til Hæstaréttar og Umboðsmanns Alþingis. 5.6.2012 11:32
Árásin á Hlemmi einstakt mál "Þetta er mjög leiðinlegt atvik, en einstakt mál geri ég ráð fyrir,“ segir Heiða Kristín Helgadóttir, varaformaður velferðaráðs Reykjavíkurborgar. Vísir sagði í gær frá myndbandi sem Grapevine birti af öryggisverði á Hlemmi sem gekk í skrokk á útigangsmanni sem hafðist við á Hlemmi. Mikið hefur verið gert á Hlemmi til þess að reyna að koma í veg fyrir að fólk dvelji þar langtímum saman við óæskilega iðju, en sú spurning vaknar hvort nóg sé gert fyrir utangarðsfólk. Heiða Kristín telur að mikil vinna sé unnin. 5.6.2012 11:19
Affallsvatn frá jarðhitavirkjunum nýtt til sköpunar Kynningarfundur um möguleika á nýtingu á affallsvatni frá virkjunum við Mývatn verður haldinn í Reykjahlíðarskóla í Mývatnssveit kl. 2 næsta föstudag. 5.6.2012 10:44
Fangelsið að Sogni opnað Nýtt fangelsi að Sogni í Ölfusi var formlega tekið í notkun þann 1. júní síðastliðinn. Fangelsið er skilgreint sem "opið" fangelsi og verður það rekið sem útibú frá öryggisfangelsinu á Litla-Hrauni. Gert er ráð fyrir að vista þar allt að 20 fanga. 5.6.2012 10:12
Klámmyndaleikarinn handtekinn í Berlín Kanadíski klámmyndaleikarinn sem var eftirlýstur af Interpol var handtekinn í Berlín þar sem hann sat á netkaffi og las fréttaumfjöllun um sjálfan sig. Klámmyndaleikarinn Luka Rocco Magnotta er grunaður um að hafa drepið fyrrum ástmann sinn, skorið af honum limi og sent í pósti til stjórnmálamanna. 5.6.2012 09:51
Íslendingum mun fjölga gríðarlega Íslendingar verða að minnsta kosti orðnir 393 þúsund talsins árið 2061 samkvæmt mannfjöldaspá Hagstofunnar. Ítrasta spá, eða svokölluð háspá, gerir reyndar ráð fyrir því að mannfjöldinn verði orðinn 498 þúsund og miðspá gerir ráð fyrir að mannfjöldinn verði 436 þúsund. 5.6.2012 09:14
Veltan á hassmarkaðinum í Kristjaníu komin í 21 milljarð á ári Hasssalan í Kristjaníu í Kaupmannahöfn er nú orðin svipuð að umfangi og hún var fyrir árið 2004 þegar þáverandi stjórnvöld létu til skarar skríða gegn fíkniefnasölum á staðnum og lokuðu Pusher Street. 5.6.2012 07:44
Laxveiðin í Norðurá hafin, fyrsti laxinn kominn á land Laxveiðin í Norðurá er hafin en upphaf veiða þar er jafnan talið marka upphaf laxveiðitímabilsins. Þegar er búið að landa fyrsta laxinum en hann veiddi Bjarni Júlíusson formaður SVFR. 5.6.2012 07:24
Eldsvoði í sorpeyðingarstöðinni Kölku Starfsmenn sorpeyðingarstöðvarinnar Kölku í Reykjanesbæ, sakaði ekki þegar eldur kviknaði þar rétt fyrir klukkan sex í morgun. 5.6.2012 07:08
Dularfullt geimfar lendir eftir ár á braut um jörðu Dularfullt geimfar á vegum bandaríska flughersins á að koma til lendingar í þessum mánuði. 5.6.2012 06:50
Hollywoodstjörnur mætast í málaferlum í New Orleans Hollywoodstjörnurnar Kevin Costner og Stephen Baldwin munu mæta hvor annarri í málaferlum í New Orleans á næstu dögum. 5.6.2012 06:43
Fiskverð snarhækkar á innlendum mörkuðum Fiskverð snarhækkaði á fiskmörkuðum í gær og var um það bil 20 prósentum hærra en að meðaltali í síðasta mánuði, samkvæmt heimasíðum fiskmarkaðanna. 5.6.2012 06:39
Íslenskum hjónum bjargað úr sjálfheldu í Helgafelli Íslensk hjón, bæði þaulreynd í fjallgöngum, lentu í sjálfheldu í klettabelti í hlíðum Helgafells, austan við Hafnarfjörð í gærkvöldi og kölluðu eftir hjálp. 5.6.2012 06:36
Rebekka Rut er fundin Rebekka Rut Baldvinsdóttur, 15 ára gömul stúlka er fundin. Lögreglan lýsti eftir henni í gærdag en þá hafði hún ekki sést frá því að hún fór í skóla á föstudaginn var. 5.6.2012 08:27
Kjarnorkuvopn verða um borð Þýsk stjórnvöld hafa frá upphafi vitað að Ísraelar myndu setja kjarnorkuvopn í kafbáta sem framleiddir eru í Þýskalandi og að stærstum hluta greiddir af þýskum stjórnvöldum. 5.6.2012 08:00
Vonsvikin með umboðsmann Ástæða er til að endurskoða og endurskipuleggja starf umboðsmanns skuldara vegna þess hversu hægt fólki gengur að fá úrlausn sinna mála hjá embættinu. Þetta sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á Alþingi í gær. 5.6.2012 08:00
Ferðamönnum komið til bjargar á Sólheimasandi Björgunarsveit frá Vík í Mýrdal var kölluð út í gærkvöldi til að aðstoða ferðamenn sem höfðu fest bíl sinn í sandbleytu á Sólheimasandi. Þeim var þó engin hætta búin. 5.6.2012 07:40
Til mannréttindadómstólsins Mál Baldurs Guðlaugssonar fyrrverandi ráðuneytisstjóra hefur verið kært til Mannréttindadómstóls Evrópu. Þetta kom fram á RÚV í gær. 5.6.2012 07:30
Obama áfram vinsælli en Romney Í nýrri skoðanakönnun á vegum CNN kemur fram að Barack Obama bandaríkjaforseti er áfram vinsælli en Mitt Romney andstæðijngur hans í komandi forsetakosningum í haust. 5.6.2012 07:16