Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sektuðu fyrir nagladekkin Ökumenn 30 bíla á höfuðborgarsvæðinu voru sektaðir um helgina fyrir að aka um á nagladekkjum. Notkun þeirra er óheimil á þessum árstíma. 5.6.2012 07:00
Þyrla Landhelgisgæslunnar fann virka neyðarbauju Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar fann í gær neyðarbauju á Breiðafirði, en hún hafði einhverra hluta vegna dottið af fiskibáti í fyrarkvöld og sendi út neyðarboð. 5.6.2012 06:57
Putin ræðir orku- og utanríksmál við Kínverja Þriggja daga opinber heimsókn Vladimir Putin forseta Rússlands til Kína hefst í dag. Að sögn BBC er reiknað með að orku- og utanríkismál muni verða helsta umræðuefni Putin og kínverska ráðamanna í þessari heimsókn þar á meðal ástandið í Sýrlandi. 5.6.2012 06:52
Laufskrúð og byggð dregur úr vindinum Lækkun ársmeðalvindhraða í Reykjavík er 0,1 m/s á áratug frá 1950. Mögulega enn meiri lækkun síðustu ár, að sögn Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings. 5.6.2012 06:30
Fimm ára fá inni í Flataskóla Flataskóli í Garðabæ mun í haust bjóða foreldrum fimm ára barna upp á val um að senda barn sitt í grunnskóla einu ári fyrr en áður. Ólöf Sigurðardóttir skólastjóri Flataskóla segir ráðist í verkefnið á faglegum forsendum. 5.6.2012 06:30
Kveðst saklaus af innherjasvikum Friðfinnur Ragnar Sigurðsson, fyrrverandi millistjórnandi hjá Glitni, neitaði því fyrir dómi í gær að hafa gerst sekur um tuttugu milljóna króna innherjasvik árið 2008. 5.6.2012 06:30
Enginn sáttatónn og skip enn við bryggju Sjávarútvegsráðherra segir aðgerðir LÍÚ ekki koma til með að hafa áhrif. Hann hafi aldrei hafnað því að ræða við útvegsmenn. Framkvæmdastjóri LÍÚ neitar að um lögbrot sé að ræða og kallar eftir því að málið verði leyst í breiðri sátt. 5.6.2012 06:00
Farsímamarkaður að ná jafnvægi Tíu þúsund áskriftir bættust við íslenskan farsímamarkað á síðasta ári. Hlutdeild Símans fór í fyrsta sinn niður fyrir 40 prósent og Vodafone fór niður fyrir 30 prósent. Nova og Tal bæta við sig. Samkeppnin jafnari frá næstu áramótum. 5.6.2012 06:00
Of feitum börnum fækkað um helming Niðurstöður rannsóknar sem kynnt var á ráðstefnu Samtaka norrænna næringarfræðinga sýna að helmingi færri sex ára börn á Íslandi eru of feit nú en fyrir tíu árum. Minni prótínneysla ungbarna er stór áhrifavaldur segir sérfræðingur. 5.6.2012 06:00
Vill setja lög um mótmæli Vladimir Pútín Rússlandsforseti segist vilja innleiða lög um mótmæli að evrópskri fyrirmynd. 5.6.2012 06:00
Dreifa ókeypis tölvuleik á íslensku Íslenska tölvufyrirtækið Gamatic hefur í dag dreifingu á nýjum tölvuleik að nafni Samsærið. Um er að ræða ævintýraleik sem snýst um að upplýsa glæp með því að leysa þrautir. Sérstaða leiksins er sú að hann hefur verið íslenskaður að fullu og verður dreift hér á landi án endurgjalds. 5.6.2012 05:30
Bensín ætti að lækka meira Enn er svigrúm fyrir frekari lækkanir á eldsneytisverði að mati FÍB þrátt fyrir að gengi krónunnar vinni á móti verðlækkunum á heimsmarkaði. Forstjóri N1 segir verðlækkanirnar þegar hafa skilað sér að fullu. 5.6.2012 05:00
Aðgerðir LÍÚ ólögleg og ósvífin árás á Alþingi „Þær aðgerðir sem Landssamband íslenskra útvegsmanna er að fara í núna, sem að mínu viti eru ólöglegar, eru ekkert annað en ósvífnar aðgerðir og eiga auðvitað ekki að líðast.“ Þetta sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á þingi í gær um þá ákvörðun útgerðarmanna að halda fiskiskipaflota landsins í höfn næstu daga til að mótmæla kvótafrumvörpum ríkisstjórnarinnar. 5.6.2012 05:00
„Skapar glundroða og óeiningu“ Fjölmenni var á fundi landverkafólks og sjómanna í Vestmannaeyjum í gær og var þar samþykkt harðorð ályktun gegn fiskveiðifrumvörpum stjórnvalda. Þau séu „klárlega aðför að kjörum sjómanna og landverkafólks“ að mati fundarins og „skapi glundroða og óeiningu meðal þjóðarinnar“. Skoraði fundurinn á stjórnvöld að sækja Eyjar heim til að heyra sjónarmið Eyjamanna. 5.6.2012 04:30
Par í sjálfheldu á Helgafelli Fjallabjörgunarmenn úr björgunarsveitum á höfuðborgarsvæðinu eru nú á leið á Helgafell þar sem par er í sjálfheldu. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg hugðist parið ganga á fellið og fór óhefðbundna leið. 4.6.2012 23:30
Herra Trololo látinn, 77 ára að aldri Rússneski söngvarinn Eduard Khil lést í Sankti Pétursborg í dag, 77 ára að aldri. Ferill Khils er rósum skreyttur, en það var túlkun hans á laginu I am so Happy til Finally be Back Home sem vakti hrifningu netverja — í kjölfarið varð Khil að stórstjörnu. 4.6.2012 22:45
Steingrímur situr fund Brims hf. um kvótafrumvörp Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, mun sitja opin fund útgerðarfélagsins Brims hf. um áhrif frumvarpa um stjórn fiskveiða og veiðigjöld. Skipafloti Brims fór ekki til veiða í dag og mun flotinn vera við bryggju út vikuna í mótmælaskyni. 4.6.2012 21:39
Ættleiðingarferlið í uppnámi - starfsemin gæti lagst af Kristinn Ingvarsson, framkvæmdastjóri Íslenskrar ættleiðingar segir að ættleiðingarmál hér á landi séu í uppnámi, fjárskortur sé algjör og að starfsemin gæti lagst af ef ekkert verður að gert. 4.6.2012 21:30
Segja skilið við vopnahlé Þjóðarráð Sýrlands, helstu samtök stjórnarandstæðinga í landinu, hefur sagt skilið við hið máttlausa vopnahlé sem ríkt hefur í landinu síðustu vikur. 4.6.2012 20:52
Forsetinn í flokksbundinni pólitík Ólafur Ragnar Grímsson er að bjóða upp á alveg nýja tegund af forseta, að mati álitsgjafa fréttastofu í kosningabaráttunni. 4.6.2012 20:00
ASÍ íhugar að stefna LÍU Alþýðusambandið telur útvegsmenn hafa farið langt út fyrir það sem skynsamlegt getur talist með ákvörðun sinn um binda flotann við bryggju. Ákall til stjórnvalda segir framkvæmdastjóri LÍÚ sem vonar að ekki þurfi að koma til frekari aðgerða. 4.6.2012 19:26
Grímuklæddir þjófar lentu í átökum við starfsmann apóteks Karlmaður og kona, með grímur fyrir andlitum sínum og vopnuð kúbeini, réðust inn í Akureyrarapótek í Kaupangi á Akureyri í hádeginu í gær. Til átaka kom á milli þessara aðila og starfsmanns apóteksins, sem hlaut minni háttar áverka á höfði, og reyndi maðurinn og konan síðan að flýja af vettvangi en voru handsömuð af vegfarendum sem leið áttu hjá og var þeim haldið þar til lögregla kom á vettvang. Um er að ræða einstaklinga á þrítugsaldri sem marg oft hafa komið við sögu lögreglu áður. Þau voru bæði í mjög annarlegu ástandi og fannst lítilræði af fíkniefnum á karlmanninum. Þau voru vistuð í fangageymslu og farið verður fram á gæsluvarðhald yfir þeim. 4.6.2012 17:14
Dómari í Breivik málinu spilaði kapal í réttarsal Dómari í Breivik málinu sást í dag leggja kapal í tölvunni sinni meðan á vitnaleiðslum stóð. Á mynd sem birtist í norskum fjölmiðlum sést Ernst Henning Eielsen, einn af fimm dómurum í málinu, leika sér í tölvukapalnum solitaire. "Fólk hefur mismunandi leiðir til að halda sér einbeittu," sagði talskona réttarins í fjölmiðlum í dag, en myndin hefur vakið töluverða athygli. "Dómararnir fylgjast gaumgæfilega með öllu því sem fram kemur fyrir réttinum." 4.6.2012 16:49
Sjómenn styðja ákvörðun útgerðarmanna Sjómenn styðja ákvörðun Landssambands íslenskra útvegsmanna um að halda skipum heima til þess að mótmæla frumvörpum stjórnvalda um auðlindagjald og fiskveiðistjórnunarkerfið. 4.6.2012 16:08
Höfði opinn almenningi í allt sumar Reykjavíkurborg hefur ákveðið að opna Höfða fyrir gestum og gangandi á morgun og verður húsið opið í allt sumar milli klukkan 11 og 16 virka daga. Húsið hefur verið notað sem vettvangur fyrir gestamóttökur á vegum borgarinnar og aðeins verið opið fyrir gesti á menningarnótt Reykjavíkurborgar. En nú verður breyting á og allir áhugasamir eiga þess kost að skoða húsið frítt en tekið er við frjálsum framlögum á staðnum. 4.6.2012 15:26
Aratúnsmálið flutt fyrir Hæstarétti Málflutningur fór fram í svokölluðu Aratúnsmáli fyrir Hæstarétti í dag. Í málinu er blaðamaður DV, Jón Bjarki Magnússon, krafinn um bætur vegna umfjöllunar hans um nágrannaerjur í Aratúni. 4.6.2012 15:07
Sýslumaður synjar lögbannskröfu á Landsbankann Sýslumaðurinn í Reykjavík hefur synjað lögbannskröfu Hagsmunasamtaka heimilanna og talsmanns neytenda gegn Landsbankanum. Í lögbannskröfunni var farið fram á að stöðvuð yrði öll innheimta greiðsluseðla áður gengistryggðra lána, vegna þeirrar miklu óvissu sem uppi er varðandi lánin sem Hæstiréttur hefur dæmt ólögmæt, og endurútreikninga þeirra. 4.6.2012 14:45
Eftirlýsti klámmyndaleikarinn sást í París Kanadíski klámmyndaleikarinn sem grunaður er um hrottalegt morð er sagður hafa sést tvisvar sinnum í Frakklandi um helgina. Sömuleiðis hefur lögreglan numið merki úr farsíma hans og rakið þau til Parísar. Því bendir allt til þess að hann hafi flúið til Frakklands. Ekki er vitað hvort hann er enn staddur þar eða hvort hann hefur haldið áfram. 4.6.2012 14:30
Alþjóðaflugvöllur í Líbíu umkringdur Vopnaður flokkur umkringdi í dag millilandaflugvöll Líbíu í Tripolí. Hópurinn hefur krafist lausnar eins af leiðtogum sínum sem hvarf fyrir tveimur dögum. Aðgerðirnar eru hugsaðar til að vekja athygli á kröfunum. Fyrir vikið hefur öllu flugi verið beint á herflugvöll landsins. 4.6.2012 14:13
Vistvænar byggingar ryðja sér til rúms hér á landi Huga þarf betur að byggingarefni og hönnun til að þær uppfylli kröfur um vistvænar byggingar. Fyrirsjáanlegar eru breytingar í takt við Evrópureglugerðir. Nýr skóli í Mosfellsbæ verður vistvæn bygging. 4.6.2012 13:30
Uppreisnarmenn fella 80 stjórnarliða Um 80 stjórnarliðar létust í átökum í Sýrlandi um helgina. Það ku vera mesta mannfall sem stjórnarherinn hefur þolað í einu síðan uppreisnin hófst í mars árið 2011. 4.6.2012 13:24
Tveir krúttlegir kópar Tveir landselkópar svamla nú um í selalauginni í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Tvær af þremur urtum garðsins kæptu sitt hvoru megin við sjómannadaginn. 4.6.2012 12:59
Vilja ekki muna atburðina á Torgi hins himneska friðar Nú eru 23 ár frá fjöldamorðunum í Kína á Torgi hins himneska friðar. Þá stöðvuðu kínversk stjórnvöld fjölmenn mótmæli með hervaldi. Í dag hafa stjórnvöld í Kína handtekið aðgerðarsinna og aukið alla gæslu til að koma í veg fyrir að minnt verði á atburðina. 4.6.2012 12:57
Þrjátíu ökumenn stöðvaðir á nagladekkjum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði þrjátíu ökumenn um helgina sem voru á bílum á nagladekkjum. Það er óheimilt á þessum árstíma. Þeim verður gert að greiða 5 þúsund krónur í sekt fyrir hvert nagladekk og því kemur þetta verulega við pyngjuna hjá áðurnefndum ökumönnum. 4.6.2012 12:38
Hrædd um að ekkert samráð hafi verið Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segist hrædd um að ekki hafi verið haft samráð við sjómenn og landverkafólk þegar ákveðið var að gera hlé á veiðum. Útgerðarmenn séu í pólitísku verkfalli sem feli í sér ólögmæta árás á stjónvöld. 4.6.2012 12:01
Síðasti góðviðrisdagurinn í bili Síðasti góðviðrisdagurinn í bili virðist vera í dag. Á morgun kólnar hressilega. Einnig er útlit fyrir úrkomu og jafnvel slyddu á hálendinu. Dæmalaus blíða hefur leikið við Íslendinga að undanförnu. "Já, þessir síðustu dagar hafa verið sérlega góðir og óvenjulega heiðríkir," segir Einar Magnús Einarsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. Hann sér ekki fram á svipaðan kafla í bráð svo Íslendingar geta lagt sólgleraugun á hilluna í bili frá og með morgundeginum. 4.6.2012 11:10
Starfsmenn fá greitt þótt skipin verði í landi Útvegsmenn segja að allir, sem eigi rétt á launum í vikunni, fái þau greidd þótt skip liggi við land á næstu dögum. Þeir hafna því þeirri fullyrðingu Alþýðusambands Íslands að áform þeirra feli í sér ólöglegt verkbann. 4.6.2012 11:01
Leita að Rebekku Rut Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Rebekku Rut Baldvinsdóttur, 15 ára. Talið er að hún sé klædd í dökka hettupeysu, Rebekka, er 156 sentimetrar á hæð og samsvarar sér í vaxtarlagi, eins og lögreglan orðar það. Hún er með blá augu og sítt ljóst hár. Síðast er vitað um ferðir hennar í Grafarvogi þegar hún fór í skóla á föstudagsmorgun. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Rebekku eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000. 4.6.2012 10:55
ASÍ íhugar málshöfðun vegna aðgerða útgerðarmanna Alþýðusamband Íslands áskilur sér rétt til að höfða mál gegn útgerðarmönnum láti þeir verða af fyrirhugaðri vinnustöðvun. Í tilkynningu sem sambandið sendi frá sér í morgun kemur fram að þetta eigi líka við um aðildarsamtök og einstaka félagsmenn. Til greina komi að krefjast skaðabóta og sekta ef aðgerðirnar koma til framkvæmda. Gylfi Arnbjörnsson sagði á laugardag að skildi hann ákvörðun LÍÚ rétt þá væri sambandið að beita Alþingi félagslegri aðgerð til þess að þvinga fram breytingar á áformum um breytingar á lögum. "Þetta gerðu þeir líka fyrir ári í tengslum við sömu deilu við gerð kjarasamninga," bætti Gylfi við. 4.6.2012 10:46
Fjórir menn dæmdir fyrir að skipuleggja árás á JP Dómstóll í Danmörku dæmdi í morgun fjóra menn seka um að hafa ætlað að gera hryðjuverkaárás á skrifstofur dagblaðsins Jyllands-Posten í Kaupmannahöfn. Mennirnir voru handteknir í árslok 2010. Fram kom í réttarhöldunum að mennirnir ætluðu sér að bana stórum hópi fólks til að hefna fyrir skrípamyndirnar sem blaðið birti af Múhameð spámanni árið 2005. Mennirnir voru allir múslimar sem búsettir voru í Svíþjóð. Refsing yfir þeim hefur ekki verið ákveðin en saksóknarar krefjast sextán ára fangelsis. 4.6.2012 10:35
Forvirkar rannsóknaraðgerðir á Ólympíuleikunum Lögreglan í Bretlandi hefur gefið það út að hún muni beita forvirkum rannsóknaraðgerðum komi upp grunur um fyrirhugaðar óeirðir eða glæpi í tengslum við Ólympíuleikana. 4.6.2012 10:17
Áhöfn Bylgju fékk verðlaun frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg Áhöfn Bylgju VE 75 hlaut viðurkenningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg í gær, á sjómannadaginn, fyrir að hafa sýnt öðrum fremur góða öryggisvitund á námskeiðum Slysavarnaskóla sjómanna. Skipstjóri er Óskar Matthíasson og tók hann á móti viðurkenningunni fyrir hönd áhafnarinnar frá Herði Má Harðarsyni formanni Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Viðurkenningin sem veitt er árlega er farandbikar sem afhentur er til varðveislu um borð í viðkomandi skipi í eitt ár ásamt veggskildi til eignar. Áhöfnin á Bylgju VE hlaut viðurkenninguna einnig árið 2007. 4.6.2012 09:58
Orkan og Atlantsolía lækkuðu verð Orkan lækkaði bensínverð um tvær krónur í morgun og Atlantsolía um sömu upphæð skömmu síðar. Bensínlítrinn hjá þessum félögum kostar nú röskar 248 krónur. Verð á Dísilolíu er óbreytt hjá báðum félögunum og er það nú alveg álíka og bensínverðið. Félögin lækkuðu bensínverðið um þrjár krónur fyrir helgi þannig að það hefur lækkað um samtals fimm krónur á nokkrum dögum. Þessar lækkanir koma í kjölfar lækkunar á heimsmarkaði, en þær héldu enn áfram í morgun. 4.6.2012 09:55
Réttað yfir Hauki í þriðja sinn í sama máli Aðalmeðferð fer fram í dag í máli ákæruvaldsins gegn Hauki Þór Haraldssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Landsbankanum. Þetta er í þriðja skiptið sem aðalmeðferð fer fram í málinu gegn honum, því Hæstiréttur hefur tvisvar sinnum vísað málinu heim í hérað. 4.6.2012 09:49
Assad líkir stjórnarhernum við skurðlækni Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, líkir aðgerðum stjórnarhersins í landinu við tilraunir skurðlækna til að bjarga mannslífum. Herinn hefur staðið fyrir fjöldamorðum og pyndingum að undanförnu. 4.6.2012 09:42