Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gunnar Birgisson íhuga að áfrýja Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri í Kópavogi og stjórnarformaður Lífeyrissjóðs Kópavogs, íhugar alvarlega að áfrýja dómi sem kveðinn var upp yfir honum í gær vegna brota tengdum störfum hans fyrir Lífeyrissjóðinn. Hann var dæmdur til að greiða 150 þúsund krónur fyrir að gefa Fjármálaeftirlitinu villandi upplýsingar um lánveitingar sjóðsins til bæjarsjóðs. Gunnar segist vera saklaus af sakargiftum ríkissaksóknara og hann hafi þar af leiðandi búist við sýknu í öllum ákæruliðum. Hann hafi verið sýknaður af aðalákæruliðnum. 23.5.2012 16:08
Krefjast gæsluvarðhalds yfir Annþóri og Berki Annþór Karlsson og Börkur Birgisson voru færðir fyrir dómara nú á fjórða tímanum en krafist verður gæsluvarðhalds á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Þetta er gert til þess að hægt sé að halda þeim áfram í einangrun á meðan rannsókn málsins stendur yfir. Mennirnir eru grunaðir um að hafa myrt samfanga sinn á fimmtudag í síðustu viku. Samkvæmt heimildum Vísis úr fangelsismálakerfinu var hinn látni með innvortis áverka sem hann hefði ekki með neinum hætti getað fengið nema að utanaðkomandi aðili hafi veitt honum þá. Annþór og Börkur voru færðir í einangrun í gær eftir að krufningaskýrsla lá fyrir. Þeir höfðu áður verið í fangelsinu að afplána refsidóma sem þeir fengu fyrir eldri brot. 23.5.2012 16:03
Füle kemur til Íslands Štefan Füle, framkvæmdastjóri stækkunar- og nágrannastefnu Evrópusambandsins, verður í heimsókn á Íslandi á morgun og föstudag til að ræða um starfið sem framundan er í aðildarviðræðunum. Nú hafa fimmtán samningskaflar verið opnaðir í samningaviðræðum Íslands og Evrópusambandsins, tíu hefur þegar verið lokað til bráðabirgða og undirbúningur er hafinn að því að fást við næstu kafla. 23.5.2012 14:50
Munu opna Boot Camp í Elliðaárdal Eigendur Boot Camp munu geta opnað líkamsræktarstöð í Elliðaárdal í sumar. Þetta var ljóst þegar borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti breytingu á deiliskipulagi að Rafstöðvarvegi 9 og 9a á fundi sínum í gær. 23.5.2012 14:44
Allt að 25 stiga hita spáð um næstu helgi Allt að 25 stiga hita er spáð á landinu um næstu helgi. Það er hvítasunnuhelgin og má búast við að hún verði fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins. 23.5.2012 14:22
Á annan tug ökumanna stöðvaður Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði á annan tug ökumanna í gær og fyrradag. Þessir ökumenn voru allir á bílum á nagladekkjum en það er óheimilt á þessum árstíma. Nú ber að greiða 5 þúsund krónur í sekt fyrir hvert nagladekk og því kemur trassaskapurinn verulega við pyngjuna hjá áðurnefndum ökumönnum. Lögreglan ítrekar þau tilmæli til eigenda og umráðamanna ökutækja sem eru búin nagladekkjum að gera þar bragarbót á. 23.5.2012 13:49
Vill að Alþingi beiti sér í málum Asera og Armena Zakir Jón Gasanov, formaður Vináttufélags Íslands og Aserbaídsjan, hvetur Alþingi Íslendinga til þess að beita sér til þess að lausn fáist í deilum Asera við nágranna þeirra Armena. 23.5.2012 13:41
Skuldamál Regnbogabarna fyrir dóm Höfundur barnabókar um forvarnir gegn einelti hefur stefnt Regnbogabörnum fyrir að hafa ekki greitt sér fyrir bókina. Regnbogabörn fara fram á að málinu verði vísað frá dómi. 23.5.2012 12:15
Tæplega 4 ára fangelsi fyrir vopnuð rán Liðlega þrítugur karlmaður, Mark Gunnar Roberts, hefur verið dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir rán sem framin voru í þremur verslunum 1. febrúar síðastliðinn. Í öllum tilfellum ógnaði hann starfsfólki með sprautunálum og hótaði að smita með HIV veirunni ef hann fengi ekki peninga úr versluninni. Mark Gunnar á að baki fjölmörg hegningarlagabrot og var á skilorði þegar hann framdi brotin. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því að hann framdi ránin. 23.5.2012 11:35
Reyna að sanna tilvist snjómannsins ógurlega Viðamikil rannsókn er hafin á því hvort snjómaðurinn ógurlegi sé í raun og veru til. Það eru vísindamenn við Oxford háskóla á Englandi sem leiða rannsóknina sem ætlað er að varpa ljósi á hvort snjómaðurinn ógurlegi sem fjölmargar sögur hafa verið sagðar um sé til í raun og veru. 23.5.2012 11:33
Morðkvendi handtekið í eigin brúðkaupsveislu Kona ein í Rússlandi var handtekin á dögunum grunuð um morð. Það sem gerir málið athyglisvert er að hin 22 ára gamla kona var handsömuð í miðri brúðkaupsveislu. Og það sem meira er, hún var sjálf brúðurin. 23.5.2012 10:59
Annþór og Börkur í yfirheyrslum í dag Þeir Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson sem eru grunaðir um að hafa orðið samfanga sínum að bana á Litla Hrauni í síðustu viku eru til yfirheyrslu hjá lögreglunni á Selfossi núna og verða yfirheyrðir fram eftir degi. Maðurinn lést á fimmtudag en hann var nýkominn í fangelsið. 23.5.2012 10:27
Ætlar í fallhlífarstökk - án fallhlífar Breskur ofurhugi ætlar sér á spjöld sögunnar síðar í dag með því að stökkva út úr flugvél og lenda á jörðinni heilu og höldnu, án þess að nota fallhlíf. 23.5.2012 09:03
Rætt við Írani um kjarnorkumálin Embættismenn frá sex ríkjum hefja í dag viðræður við Írani um hina umdeildu kjarnorkuáætlun þeirra. Fundurinn verður haldinn í Bagdad höfuðborg Íraks en í gær sagði Alþjóðakjarnorkumálastofnunin að samkomulag við Íran væri í burðarliðnum sem þykir benda til að Íranir séu að verða samvinnuþýðari og tilbúnir til að leyfa ítarlegra eftirlit með áætlunum sínum. 23.5.2012 09:39
Bauð miða á Ólympíuleikana á svörtum markaði Háttsettur starfsmaður Ólympíunefndarinnar í Úkraínu hefur verið leystur frá störfum eftir að upp komst að hann hefur verið að selja miða á Ólympíuleikana í London fyrir háar fjárhæðir. Upp komst um málið þegar blaðamaður breska ríkisútvarpsins var að gera úttekt á miðasölu á svarta markaðinum fyrir leikana sem fram fara í sumar. Hann sóttist eftir miðum og úkraínski nefndarmaðurinn sagðist geta útvegað 100 miða. Löngu er uppselt á leikana og ströng viðurlög eru við því að selja miðana á svörtum markaði. 23.5.2012 08:59
Egyptar kjósa sér forseta Egyptar ganga í dag að kjörborðinu og kjósa sér forseta. Þetta er í fyrsta sinn í fimmþúsund ára sögu Egyptalands sem þeir fá að kjósa sér leiðtoga í frjálsum kosningum. Fimmtán mánuðir eru nú liðnir frá því að Hosni Mubarak fyrrverandi forseta var komið frá völdum og fimmtíu milljónir Egypta eiga þess kost á að kjósa eftirmann hans. 23.5.2012 08:56
Egyptar kjósa forseta Fyrstu frjálsu forsetakosningarnar í Egyptalandi hefjast í dag. Strangtrúaðir íslamistar og fulltrúar gömlu valdaklíkunnar keppa við lýðræðissinna. 23.5.2012 07:30
Sótti veikan sjómann Sjómaður veiktist alvarlega um borð í íslensku nótaskipi austur af Hornafirði í nótt og óskaði skipstjórinn eftir þyrlu til að flytja hann á sjúkrahús. Gæsluþyrla var send austur í nótt og hífði sjómanninn um borð undir morgun. 23.5.2012 07:08
Presley kom til bjargar - dró bát til Grindavíkur Hætta skapaðist í nótt þegar vélin bilaði í litlum fiskibáti með einum manni um borð, þegar báturinn var staddur skammt undan Reykjanesi og tók að reka í átt að grýttri ströndinni. 23.5.2012 07:04
Þyrla slökkti mosaeld með fötu TF-LÍF, þyrla Landhelgisgæslunnar, aðstoðaði Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins við að slökkva eld í mosa í Kapelluhrauni á mánudag. Til verksins var nýttur búnaður sem var keyptur fyrir þyrluna eftir sinubrunann mikla á Mýrum vorið 2006. 23.5.2012 07:00
Ítreka kröfu um hraðari viðræður Þingmaður Vinstri grænna vill kosningar um aðild að ESB í ár. Ráðherra tekur undir. Verði breytingartillaga Vigdísar Hauksdóttur um kosningar um framhald viðræðna í haust samþykkt styður Framsókn kosningar um stjórnarskrá. 23.5.2012 06:30
Undirmenn borgarstjóra átta í stað átján Teknar voru til afgreiðslu tillögur um einföldun á stjórnkerfi Reykjavíkurborgar á aukafundi borgarstjórnar í gær. Einnig var afgreidd stofnun embættis umboðsmanns borgarbúa. 23.5.2012 06:30
Hærri gjaldskrár en heimsóknum fjölgar Samningsleysi Sjúkratrygginga við sérfræðilækna hefur í för með sér hærri gjöld. Fjórði hver Íslendingur frestaði nauðsynlegri læknisþjónustu árin 2006 og 2007. Finnum fyrir auknum þrýstingi, segir kynningarfulltrúi Sjúkratrygginga. 23.5.2012 06:00
Hagnaður í fyrra nam 95 milljónum króna Þótt Lyfjastofnun hafi farið fram úr fjárheimildum þá glímir stofnunin ekki við fjárhagsvanda, segir Rannveig Guðmundsdóttir, forstjóri Lyfjastofnunar. Ríkisendurskoðun sendi í byrjun vikunnar frá sér skýrslu þar sem sagt var áhyggjuefni hversu illa gengi að halda stofnuninni innan ramma fjárlaga. 23.5.2012 06:00
Heyrðu af uppsögn á skotspónum Valgerður Anna Þórisdóttir, leikskólastjóri leikskólans Sunnufoldar, þar sem sameina á þrjá leikskóla í Grafarvogi, hefur sagt starfi sínu lausu. „Það gerði hún að eigin frumkvæði og í fullri sátt við sína undirmenn og yfirmenn hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar,“ segir í svari borgarinnar við fyrirspurn blaðsins. Valgerður vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. 23.5.2012 06:00
Bann við könnunum heftir upplýsingar Ný fjölmiðlalög leggja til bann við birtingu skoðanakannana skömmu fyrir kosningar. Stjórnmálafræðingur segir ekki hægt að framfylgja því. Þá hefti það aðgang almennings að upplýsingum. Unnið í samráði við stjórnmálaflokkana. 23.5.2012 05:30
Flóra Íslands greind í gegnum farsímann Íslenskur hugbúnaður fyrir snjallsíma og spjaldtölvur til að greina plöntur á einfaldan hátt kemur senn á markað. Tæknin nýtist við kennslu og við alla almenna og faglega náttúruskoðun. Fugla- og pöddulyklar eru á næsta leiti. 23.5.2012 05:30
Fólkið búi þar sem því líður vel Bæjarstjórn Ölfuss hafnar tilmælum Skipulagsstofnunar um að setja skorður við uppbyggingu margra íbúðarhúsa á einu og sama lögbýlinu. Stofnunin segir að með því að heimila allt að fjögur íbúðarhús og fjögur frístundahús á bújörðum sé grafið undan stefnumörkun um eflingu íbúðarbyggðar á skilgreindum íbúðarsvæðum og byggðakjörnum. 23.5.2012 05:30
Alræmdir hrottar í haldi vegna andláts Annþór Karlsson og Börkur Birgisson færðir af almennri deild á Litla-Hrauni í einangrun. Taldir hafa veitt samfanga sínum áverka sem drógu hann til dauða. 23.5.2012 05:00
Um 75 milljón ungmenni eru án vinnu Nær 13 prósent allra ungmenna í heiminum á aldrinum 15 til 23 ára eru án atvinnu eða alls 75 milljónir. Ástandið mun ekki breytast verulega á næstum fjórum árum, að því er kemur fram í nýrri skýrslu Alþjóðavinnumálastofnunarinnar sem BBC vitnar í. Um sex milljónir ungmenna um heim allan hafa misst móðinn og gefist upp. Þeim finnst sem samfélagið hafi hafnað þeim. 23.5.2012 04:00
„Flug Falcons var fullkomið“ Bandaríska fyrirtækið SpaceX braut blað í sögu geimferða í dag þegar Falcon 9 eldflaugin hóf sig á loft í Flórída. Um borð í flauginni er ómannað hylki, Dragon, en það mun flytja rúmlega 450 kíló af birgðum til Alþjóðlegum geimstöðvarinnar. 22.5.2012 23:49
Rússneskir ofurhugar sektaðir - ekki fyrir lofthrædda Yfirvöld í Rússlandi hafa sektað þrjá drengi sem klifu eina hæstu brú landsins fyrir stuttu — án öryggisbúnaðar. 22.5.2012 22:45
Sinueldur í Hafnarfirði - slökkvistarfi lokið Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur ráðið niðurlögum sinuelds sem kom upp við Breiðhellu í Hafnarfirði fyrr í kvöld. Ekki var um mikinn eld að ræða og voru slökkviliðsmenn snöggir að ná tökum á honum. 22.5.2012 23:17
Mögulegt að rækta kaffi, sykurmaís og kakóbaunir hér á landi Guðríður Helgadóttir hjá Landbúnaðarskólanum að Reykjum var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis í dag. Þar ræddi hún um ýmiskonar ræktun sem mætti reyna á Íslandi. 22.5.2012 22:15
Of Monsters and Men með bestu plötuna samkvæmt Amazon Stærsta vefverslun veraldar, Amazon, hefur valið plötuna My Head is an Animal eftir íslensku hljómsveitina Of Monsters and Men sem bestu hljómplötuna það sem af er árinu. 22.5.2012 21:30
Höfum almennt verið heppin Íslensk umræða um útlendinga er frumstæð og stjórnmálaflokkar þurfa að marka sér stefnu í málaflokknum. Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddi við Kristínu Völundardóttur, forstjóra Útlendingastofnunar, um hælisleitendur, fjársvelti og umræðuna. 22.5.2012 22:00
Ákvörðun um áfrýjun tekin í kvöld Gunnar Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri Kópavogs, vill ekki tjá sig um niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness í dag. Gunnar og Sigrún Ágústa Bragadóttir voru dæmd til að greiða 150 þúsund krónur í sekt vegna brota tengdum störfum þeirra fyrir Lífeyrissjóð starfsmanna Kópavogs. 22.5.2012 21:37
Catalina á leið til Íslands Catalina-flugbátur er væntanlegur til Íslands á fimmtudag og verður hann hápunkturinn á flugdegi sem Flugmálafélag Íslands heldur á Reykjavíkurflugvelli á laugardag í tilefni af 75 ára afmæli Icelandair. Þetta verður í fyrsta sinn í áratugi sem almenningi hérlendis gefst kostur á því að skoða í návígi og sjá Catalinu á flugi, að sögn Matthíasar Sveinbjörnssonar, stjórnarmanns í Flugmálafélaginu. 22.5.2012 21:00
Ísland komst áfram Gréta Salóme og Jónsi komust áfram á úrslitakvöld söngvakeppni Eurovision í Bakú í Aserbaídsjan. Ljóst var að lagið Never Forget, sam Gréta samdi, færi áfram þegar þriðja umslagið var opnað. 22.5.2012 20:46
Kornsnákur fannst í austurborginni Kornsnákur fannst í húsi í austurborginni um helgina. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók snákinn í vörslu en skriðdýrið var síðan flutt á dýraspítala. Snákurinn er rúmlega metri á lengd. 22.5.2012 20:45
Málþófi á Alþingi lokið - Atkvæði um stjórnlagaráð greidd á fimmtudag Samkomulag náðist á sjötta tímanum á milli stjórnarflokkana og stjórnaraðstöðunnar um að ljúka umræðum um stjórnlagaráð. Sá þingmaður sem oftast talaði í umræðunum fór alls 115 sinnum í pontu. 22.5.2012 20:30
Ættleiðingaráform í uppnámi: "Við fáum engin svör" Ungt par sem er í óvissu með ættleiðingarmál sitt hér á landi íhugar að leita út fyrir landsteinana til að láta draum sinn rætast þrátt fyrir mikinn aukakostnað og umstang. Óvissan sé hræðileg og engin svör berist frá innanríkisráðherra. 22.5.2012 19:45
Flutningur Grétu og Jónsa gekk vel - Svartfjallaland vekur athygli Íslenski Eurovision-hópurinn stóð sig með stakri prýði þegar þau stigu á svið í Kristalshöllinni í Bakú í kvöld. Þau Gréta Salóme og Jónsi voru önnur í röðinni en það var Svartfjallaland sem opnaði söngvakeppnina í ár. 22.5.2012 19:42
Vilja rigningu til að skola Grímsvatnaöskunni burt Úrhellsrigningar er það sem bændur í Skaftárhreppi óska sér nú heitast til að losna við öskuna úr Grímsvötnum. Undir Eyjafjöllum er verið að setja Svaðbælisá í nýjan farveg og með því vonast menn til að vandræðin sem hlutust af eldgosinu úr Eyjafjallajökli verði að mestu úr sögunni. 22.5.2012 19:11
Meirihluti fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu vegna ESB-aðildar Nýr meirihluti myndaðist í morgun í utanríkismálanefnd fyrir því að vísa umsókn um aðild að ESB í þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir áramót. Málið mun hafa komið viðkvæmri sátt í fleiri málum milli stjórnarflokkanna í algjört uppnám. 22.5.2012 19:00