Heyrðu af uppsögn á skotspónum 23. maí 2012 06:00 Glaðir leikskólakrakkar sem sóttu skemmtun á Klambratúni í fyrrasumar. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Fréttablaðið/Anton
Valgerður Anna Þórisdóttir, leikskólastjóri leikskólans Sunnufoldar, þar sem sameina á þrjá leikskóla í Grafarvogi, hefur sagt starfi sínu lausu. „Það gerði hún að eigin frumkvæði og í fullri sátt við sína undirmenn og yfirmenn hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar,“ segir í svari borgarinnar við fyrirspurn blaðsins. Valgerður vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. Foreldrar barna í leikskólunum sem um ræðir í Grafarvogi hafa mótmælt fyrirhuguðum breytingum. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, tók málið upp á fundi borgarstjórnar í gær og vitnaði í bréf foreldrafélags barna við Funaborg þar sem lýst var áhyggjum af áhrifum sameininganna. „Í bréfi foreldranna kemur fram áfellisdómur yfir vanhugsuðum og óvönduðum vinnubrögðum meirihluta Samfylkingar og Besta flokksins varðandi sameiningu þessara þriggja leikskóla,“ sagði Kjartan. Síðustu tíðindi sagði hann uppsögn Valgerðar á föstudag, en hún hafi hætt störfum sama dag. „Tölvupóstur um uppsögnina var sendur til foreldra kl. 15:50 [á mánudag] eða þegar komið var nálægt lokum leikskólans. Margir foreldranna fréttu því á skotspónum að þessir þrír skólar væru orðnir skólastjóralausir eða lásu það af miðum, sem festir höfðu verið upp á hurðir skólanna þegar þeir sóttu börn sín í gær,“ sagði hann. - óká
Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Erlent Fleiri fréttir Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Sjá meira