Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gunnar Birgisson dæmdur til að greiða sekt Gunnar Birgisson og Sigrún Ágústa Bragadóttir voru dæmd til að greiða 150 þúsund krónur í sekt í Héraðsdómi Reykjaness í dag vegna brota tengdum störfum þeirra fyrir Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogs. Þeim var ekki gerð refsing að öðru leyti og aðrir stjórnarmenn í sjóðnum voru sýknaðir af ákæru. 22.5.2012 13:53
Fjármögnun Vaðlaheiðaganga verði rædd í vikunni Stefnt er að því að hægt verði að taka fjármögnun Vaðlaheiðaganga á dagskrá þingsins í vikunni. Framkvæmdin hefur verið umdeild, áætlaður kostnaður við byggingu þeirra er um 8,7 milljarðar. Vonast er til þess að féð verði greitt til baka á komandi árum, svo sem í gegnum veggjöld en óvissa hefur verið um fjármögnun verkefnisins. 22.5.2012 13:11
Rússnesku ömmurnar hafa mikið fylgi Eurovisionfarinn Greta Salóme Stefánsdóttir gefur lítið fyrir spádóma um úrslit Eurovisionkeppninnar. Íslenski hópurinn stígur á svið eftir um sjö klukkustundir og allt er að verða tilbúið fyrir stóru stundina. Hið svokallaða dómararennsli fór fram í gær sem gekk vel að sögn Gretu Salóme. 22.5.2012 12:59
Morðingi í dómi: Djöfuls viðbjóður - fokkaðu þér Kröfu um að réttarhöld yfir Hlífari Vatnari Stefánssyni yrði lokuð var hafnað í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Það voru lögmenn aðstandenda hinnar látnu sem báru kröfuna fram og tók verjandi Hlífars undir þá kröfu. Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari hafnaði hins vegar kröfunni. 22.5.2012 11:34
Verjandi meints morðingja vill lokað réttarhald Lögmaður fjölskyldu Þóru Eyjalínar Gísladóttur, sem var myrt í Hafnarfirði í febrúar á þessu ári, krefst þess að réttarhöldin yfir meintum morðingja verði lokuð. Þetta kom fram við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. 22.5.2012 10:55
74% brota framin á höfuðborgarsvæðinu Um 74% hegningarlagabrota sem framin voru á fyrstu fjórum mánuðum ársins voru framin á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Ríkislögreglustjóra um afbrotatölfræði. Alls voru framin 3.700 hegningarlagabrot og þar af voru 2.722 brot á höfuðborgarsvæðinu. Næstflest brot voru skráð hjá lögreglunni á Suðurnesjum eða 7% brota og þar á eftir fylgir lögreglan á Akureyri með 5% hegningarlagabrota. Þá voru 4% allra hegningarlagabrota skráð hjá lögreglunni á Selfossi. Fjögur lögregluembætti hafa því sinnt 90% hegningarlagabrota. 22.5.2012 10:18
Sendiherra Þýskalands gagnrýnir „aðalritstjóra“ Morgunblaðsins Sendiherra Þýskalands á Íslandi, Hermann Sausen, segir í opnu bréfi til "aðalritstjóra" Morgunblaðsins í dag, að hann furði sig mjög á þeirri fullyrðingu sem fram hafi komið í ritstjórnargrein í Morgunblaðinu 14. maí, að sendiherra ESB á Íslandi hafi blandað sér í innanríkismál og þannig brotið gegn umboði sínu sem erlendur sendiráðsmaður. „Að slík ásökun skuli koma frá ritstjórn virts dagblaðs í sjálfsöruggu lýðræðisríki eins og Íslandi sem er nátengt ESB, m.a. með aðild sinni að EES, gerir hana þeim mun óskiljanlegri og fjandsamlegri," segir Sausen m.a. í grein sinni. 22.5.2012 09:22
Fór niður Niagara fossa og lifði það af Manni einum í sjálfsmorðshugleiðingum mistókst ætlunarverk sitt þegar hann lifði það af að steypast fram af Niagara fossunum á landamærum Bandaríkjanna og Kanada. Talið er að þetta sé í þriðja sinn sem maður lifir þetta af. 22.5.2012 09:05
Hæsti turn heims opnaður almenningi Hæsti turn í heimi hefur nú verið opnaður almenningi en hann hefur verið fjögur ár í byggingu. Turninn risavaxni er í japönsku borginni Tókíó og heitir Skytree, eða Himnatréð. Hann er um það bil tvisvar sinnum hærri en Eiffel turninn í París, eða 634 metrar á hæð og hann kostaði um 800 milljónir dollara. Þótt turninn hafi verið opnaður fyrir almenningi í dag þá er enginn hægðarleikur að komast upp í hann til að njóta útsýnisins, því uppselt er í turninn fram í miðjan júlí. 22.5.2012 09:03
Regnið dró úr öskuskýinu Ryk- og öskumengun í lofti á Suður- og Suðvesturlandi hefur hríðfallið frá því sem verst var í gærkvöldi, eftir að rigna tók á Suðurlandi í gærkvöldi. 22.5.2012 09:02
Blóð Reagans boðið upp Uppboð þar sem til stendur að selja blóð úr Ronald Reagan fyrrverandi Bandaríkjaforseta hefur sætt mikilli gagnrýni. 22.5.2012 08:52
Ekkert verður af því að Hreyfingin styðji stjórnina Ekkert verður af því að þingmenn Hreyfingarinnar samþykki að verja ríkisstjórnina falli. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá þingflokknum sem barst í morgun en viðræður hafa staðið í nokkra daga. "Því miður náðist ekki samkomulag og er viðræðunum lokið af okkar hálfu. Þar sem samningar hafa ekki tekist liggur ekki fyrir neitt samkomulag um að við verjum ríkisstjórnina vantrausti,“ segir í tilkynningunni en viðræðurnar voru sagðar "óbeint framhald“ funda sem haldnir voru um síðustu áramót og skiluðu ekki heldur niðurstöðu. 22.5.2012 07:07
Umræðu á Alþingi frestað á ný Síðari umræðu um þingsályktunartillögu um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá var frestað skömmu fyrir miðnætti í kvöld. 22.5.2012 00:31
Mikið af fölsuðum malaríulyfjum í umferð Þriðjungur allra malaríulyfja sem notuð eru í heiminum í dag eru fölsuð. Þetta leiðir ný rannsókn í ljós sem fjallað er um í læknablaðinu The Lancet. Í ljós kom að í mörgum tilfellum sé um lélegar eftirlíkingar að ræða en í sumum einfaldlega um gagnslaus efni að ræða. Þetta valdi því að verr gangi að hefta útbreiðslu sjúkdómsins auk þess sem æ erfiðara verði að vinna bug á honum með hefðbundnum lyfjum. Rannsóknin náði aðeins til Afríku og Suðaustur-Asíu en ekki til Kína og Indlands og óttast menn að ástandið þar sé síst betra. 22.5.2012 08:44
Bandaríski herinn notar falsaða varahluti frá Kína Fjölmörg dæmi eru um að falsaðir varahlutir framleiddir í Kína séu notaðir í bandarískum hergögnum. Þetta leiðir viðamikil rannsókn öldungardeildarþingmanna í ljós. Nefndin hefur sýnt fram á að minnsta kosti 1800 tilvik þar sem ólöglegir varahlutir voru notaðir í raftæki um borð í herþotum og skriðdrekum og í rúmlega 70 prósent tilvika var um varahluti frá Kína að ræða. 22.5.2012 08:41
Samstaða vill að ríkisstjórnin víki Stjórn Samstöðu, flokks lýðræðis og velferðar, krefst þess í yfirlýsingu sem flokkurinn sendi frá sér í gærkvöldi að ríkisstjórnin víki hið fyrsta og bvoðað verði til kosninga. 22.5.2012 08:40
Svíar segja að nýtt NATO hafi orðið til NATO einblínir ekki lengur á eigin varnir, segir forsætisráðherra Svíþjóðar sem situr leiðtogafund samtakanna í Chicago. Tekin var ákvörðun um nýtt eldflaugavarnakerfi Bandaríkjanna í Evrópu. Rússar hafa mótmælt kerfinu. 22.5.2012 07:30
Öryggisbúnaður og kunnátta skipta öllu Öryggisbúnaður og kunnátta í því að nota slíkan búnað skipta sköpum þegar óvænt hættuástand skapast á fjöllum. Það segir Smári Sigurðsson, þaulvanur vélsleðamaður, en hann lenti í háska í fjallaferð í síðustu viku. 22.5.2012 06:30
Yfirtaka ÍLS á lánum lífeyrissjóða skoðuð Starfshópur skoðar nú ýmsar útfærslur á því að Íbúðalánasjóður taki yfir lánsveðslán lífeyrissjóðanna. Ráðherra útilokar enga leið sem geti leyst hútinn. Lífeyrissjóðirnir vilja ekki fella niður lánin þar sem lög heimila þeim það ekki. 22.5.2012 06:00
Vísbendingar um sérlausnir Vísbendingar eru um það í opnunarviðmiðum Evrópusambandsins (ESB) fyrir þann hluta aðildarviðræðna sem snýr að landbúnaðarmálum að sérstakt tillit verði tekið til aðstæðna hér á landi í aðildarsamningi við Ísland. 22.5.2012 06:00
Segjast hafa lokað á sölu fisks frá Granda Hvalfriðunarsamtök fullyrða að þau hafi komið í veg fyrir sölu á fiski frá HB Granda á Ólympíuleikunum í London í sumar. Forsvarsmenn HB Granda koma af fjöllum. Samtökin hafa lengi barist gegn Granda vegna tengsla við Hval hf. 22.5.2012 05:30
Hefur ítrekað farið fram úr áætlunum Kostnaður við rekstur Lyfjastofnunar hefur verið umfram áætlanir þrjú af síðustu fjórum árum og stefnir allt í að sama muni gilda um yfirstandandi ár. Þetta kemur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar um rekstur stofnunarinnar. 22.5.2012 05:30
Mega geyma erfðabreytt fræ í Grindavík Líftækni hefur fengið leyfi frá Umhverfisstofnun fyrir geymslu og frævinnslu á erfðabreyttu byggi í húsnæði við Vörðusund 1 í Grindavík. Heimilt er að vinna með bygguppskeru frá ræktunarstöðum ORF Líftækni hf. 22.5.2012 05:30
ASÍ undirbýr málaferli gegn ríkinu vegna fjársýsluskatts Ríkið brýtur gegn jafnræðisreglu með innheimtu fjársýsluskatts frá lífeyrissjóðum segir forseti ASÍ. Hann segir að leysa þurfi vanda vegna lífeyrisskuldbindinga ríkisins eða hækka tekjuskatt um fjögur prósentustig. 22.5.2012 05:00
Eigum sameiginlega norðurslóðahagsmuni Tveir franskir vísindamenn eru staddir hér á landi til að efla samvinnu í vísindarannsóknum á norðurheimskautssvæðinu. Segja Ísland og Frakkland geta boðið hvort öðru upp á margt á hinu mikilvæga sviði loftslagsrannsókna. 22.5.2012 05:00
Uppgjafahermenn mótmæltu stríðsrekstri Um 50 bandarískir uppgjafahermenn fleygðu heiðursorðum sínum í götuna í Chicago í gær. Mennirnir komu saman fyrir utan fundarstað Atlantshafsbandalagsins sem nú kemur saman í borginni. 22.5.2012 00:01
Örkin hans Nóa er í Hong Kong Örk í fullri stærð má nú finna í Hong Kong í Kína. Fleyið er tæpir 140 metrar á lengd og rúmlega 20 metrar á breidd. 21.5.2012 23:31
Drauma dansleikur fatlaðra nemanda í Las Vegas Skóladansleikurinn er stórmál hjá mörgum nemendum í Bandaríkjunum. En þessi rótgróna hefð er þó ekki á allra færi. Þeir sem þjást af andlegri eða líkamlegri fötlun verða oft á tíðum útundan þegar samnemendur þeirra fagna námslokum sínum. 21.5.2012 22:19
Grunaður morðingi fyrir dóm á morgun Ákæra gegn Hlífari Vatnari Stefánssyni verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness á morgun. Hlífar er grunaður um að hafa banað fyrrverandi unnustu sinni í Hafnarfirði í byrjun febrúar á þessu ári. 21.5.2012 20:12
Börðust við sinueld í fjóra tíma Sinueldur kviknaði í svæði við Krýsuvíkurveg á þriðja tímanum í dag. Töluverður fjöldi slökkviliðsmanna barðist við sinuna sem var meðal annars í mosa og því erfið viðureignar. Það tók slökkviliðsmennina um fjóra tíma að ráða niðurlögum eldsins. Slökkviliðið naut aðstoðar Landhelgisgæslunnar við verkið sem hellti vatni úr stórum poka sem hékk úr þyrlu Gæslunnar. 21.5.2012 19:35
Kærleikurinn og nándin sterkari eftir eldgosið Öskumistur sem blásið hefur yfir sunnanvert landið í dag minnti stóran hluta landsmanna á Grímsvatnagosið sem hófst á þessum degi í fyrra. Af Kambabrún mátti sjá að mistrið lá nokkuð þétt yfir Suðurlandsundirlendinu, austur í Vík var skyggnið vart nema um kílómetri, og á veginum milli Víkur og Skaftafells bara nokkrir tugir metra á köflum svo hægja þurfti ferðina. 21.5.2012 19:30
Ekki einfalt að skila undirskriftum - listarnir stundum ógildir Það er ekki einfalt að skila inn meðmælendalistum vegna framboðs til embættis forseta Íslands. Oddviti yfirkjörstjórnar í Reykjavík norður segir það hafa komið fyrir að listi frambjóðanda sé ógildur. 21.5.2012 18:53
Milljónum ríkari í Evrulandi Íslendingur sem tók húsnæðislán árið 2005 - væri fimmtán milljónum ríkari í dag ef honum hefðu boðist meðalvextir á slíkum lánum í Evruríkjunum. Þetta sýnir ný reiknivél Evrópusinna á www.jaisland.is. Ekki eru þó allir á einu máli um hvort reiknivélin gefur rétta mynd. 21.5.2012 18:45
Hælisleitandi neitaði aldursgreiningu - ekki lengur sérmeðferð Hælisleitandi sem hefur haldið því fram að hann sé undir átján ára aldri, neitaði í dag að gangast undir aldursgreiningu. Hann fær því ekki lengur sérmeðferð hjá Útlendingastofnun sem barn. Sex hælisleitendum er gert að gangast undir aldursgreiningu. Tveir þeirra hælisleitenda sem um ræðir voru nýverið dæmdir fyrir að koma hingað til lands með fölsuð skilríki, og dveljast þeir hjá fósturfjölskyldu. Hinir fjórir búa á FIT Hostel í Reykjanesbæ. Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofnunar, segir að fimm hælisleitendum hafi verið tilkynnt í dag um aldursgreininguna. "Fjórir samþykktu hana en einn hafnaði," segir hún. Ekki fæst uppgefið hver það er sem neitaði aldursgreiningu. Aldursgreiningin var kynnt þannig fyrir hælisleitendunum að ef þeir samþykktu ekki að gangast undir hana, jafngilti það viðurkenningu þeirra á því að þeir væru í raun orðnir lögráða. Þannig færi mál þeirra í hefðbundið ferli hælisleitenda og þeir hætta að njóta þeirrar sérmeðferðar sem börn njóta. Eins og fréttastofa hefur greint frá fer aldursgreiningin fram með því að meta þroska endajaxla, sem breytast mikið frá um þrettán ára aldir og til tvítugs. Eftir því sem fréttastofa kemst næst eru allir sem um ræðir ýmist frá Marokkó eða Alsír. Einn þeirra var stoppaður af þegar hann reyndi að gerast laumufarþegi með flutningaskipi Eimskipa nýverið. Hann er einn af þremur sem segjast vera sautján ára. Þá barst nýtt mál ungs hælisleitenda inn á borð Útlendingastofnunar í síðustu viku. Gert er ráð fyrir að honum verði á morgun tilkynnt krafa um aldursgreiningu. 21.5.2012 18:45
Mest tekið af þeim sem minnst hafa Tekjutenging ellilífeyris gerir það að verkum að mest er tekið af þeim sem minnst hafa, að sögn fyrrverandi forseta ASÍ. Hann sér eftir að hafa hvatt fólk til að greiða í lífeyrissjóð og vill sjá breytingu á kerfinu hið fyrsta. Í erindi sínu á ráðstefnu um lífeyrismál í dag sagðist Ásmundur Stefánsson fyrrverandi forseti ASÍ skilja þá sem velta fyrir sér af hverju þeir hafi greitt samviskusamlega í lífeyrissjóð þar sem tekjuskerðingin hafi leikið margan grátt. 21.5.2012 18:30
Vill jafna stöðu manna Réttarstaða þeirra sem hafa verið á leigumarkaði hefur verið mjög veik, segir Lúðvík Geirsson, formaður hóps sem endurskoðaði húsnæðisbætur. Tilgangur vinnunar er að finna leiðir til þess að jafna rétt þeirra sem þiggja húsaleigubætur og þeirra sem þiggja vaxtabætur. 21.5.2012 17:37
Er möguleiki að steypa fleiri götur á Íslandi? "Við erum með bergtegundir sem við höfum aðgang að, það er svo lítil hersla að þau efni duga mun verr en þau efni sem eru í nágrannalöndunum okkar. En klárlega er steypta slitlagið mjög gott. Menn eru að leggja saman og skoða hvað það kosti í upphafi. Þá er aðallega verið að hugsa um hvernig er hægt að setja slitlagið á, á sem ódýrastan hátt," segir Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB. 21.5.2012 17:28
Gríðarlegt öskumistur á Suðurlandi Gríðarlegt öskumistur var yfir fjöllunum austan við Vík í Mýrdal í dag. Á köflum var skyggnið á þjóðveginum ekki nema nokkrir metrar á milli Víkur og Skaftárfells og þurftu ökumenn að hægja á sér til að lenda ekki í ógöngum. 21.5.2012 16:54
Bjölluóður utanbæjarmaður eyddi öllu í vín og villtar meyjar Bjölluónæði er hvimleitt og ekki síst ef það á sér stað að næturlagi. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er stundum kölluð til í slíkum málum, og svo var einmitt raunin þegar íbúum fjölbýlishúss í Kópavogi var nóg boðið á dögunum. 21.5.2012 16:48
Ögmundur: Aldrei vitlausara að ganga í ESB en nú Það hefur aldrei verið vitlausara en nú að ganga í Evrópusambandið, sagði Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. 21.5.2012 16:17
Segir Íslendinga þurfa að undirbúa sig undir hrun evrunnar Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vill að Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, upplýsi um það hvað gert hafi verið til að undirbúa Ísland undir hrun evrunnar. Sagði Illugi á fyrirspurnartíma á Alþingi í dag að veruleg hætta væri á að Grikkir myndu þurfa að yfirgefa evrusamstarfið. 21.5.2012 15:54
Varðstjóri sýknaður - mátti aflífa hreindýr og skera úr því kjöt Varðstjóri lögreglunnar var sýknaður í Héraðsdómi Austurlands í síðustu viku en hann var ákærður fyrir að hafa gerst brotlegur í opinberu starfi með því að hafa misnotað stöðu sína sem aðalvarðstjóri og komið því til leiðar, er hann var á frívakt, að hann sinnti sjálfur aflífun særðs hreindýrs, sem tilkynnt hafði verið um að væri fast í girðingu við, undir því yfirskini að hann væri að sinna verkefni lögreglu, en í þeim tilgangi að komast yfir kjöt af dýrinu til eigin nota, og notfært sér í því skyni lögreglubifreið, skotvopn og annan búnað og aðstöðu lögreglu í eigin þágu. 21.5.2012 15:52
Stendur ekki í vegi fyrir vilja almennings ef óvissunni verður eytt Ólafur Ragnar Grímsson útskýrði orð sín um að hann myndi hugsanlega hverfa til annarra verkefna áður en næsta kjörtímabili lyki, yrði hann endurkosinn. Þannig svaraði hann spurningu Jóhannesar Benediktssonar í Beinni línu á dv.is í dag: 21.5.2012 15:07
Dómsmálaráðherra Breta segir Íslendinga einangraða Ég get ekki ímyndað mér neitt meira óviðeigandi í núverandi aðstæðum, né heldur get ég hugsað mér neitt verra en að Bretar yfirgefi Evrópusambandið og ákveddu að nú væri tími til að einangra sig algerlega með Íslendingum og öðrum," segir Kenneth Clarke, dómsmálaráðherra Breta. 21.5.2012 15:07
Dorrit verður viðstödd skírn sænsku prinsessunnar Dorrit Moussaieff forsetafrú hélt áleiðis til Svíþjóðar í dag til að sækja skírn prinsessunnar Stellu, dóttur Viktoríu krónprinsessu og Daníels prins, í boði sænsku konungshjónanna. Athöfnin fer fram á morgun, klukkan tólf að staðartíma, í kapellu konungshallarinnar í Stokkhólmi. Í kjölfarið sækir forsetafrúin móttöku og situr hádegisverð í konungshöllinni. Sænsku konungshjónin, Karl Gústav XVI og Silvía drottning, buðu íslensku forsetahjónunum til athafnarinnar ásamt þjóðhöfðingjum annarra Norðurlanda. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, gat ekki sótt viðburðinn vegna anna. 21.5.2012 14:25