Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fangelsismálastjóri: Reynslulausn fylgja ströng skilyrði Rúnar Bjarki Ríkharðsson, sem fékk einn þyngsta dóm sem fallið hefur hér á landi, fyrir morð og tvær nauðganir, er kominn á reynslulausn. Fangelsismálastjóri segir það almennt minnka líkur á endurteknum afbrotum að setja fanga á reynslulausn, með tilheyrandi eftirliti, en að halda þeim lokuðum inni. Fjallað er um málið í DV í dag. Rúnar Bjarki var dæmdur árið 2000 og afplánaði hann tólf ár af átján ára dómi sínum. Afbrot Rúnars Bjarka vöktu mikla athygli á sínum tíma. Í forsíðuumfjöllin DV árið 2007 var hann kallaður "hættulegasti maður Íslands" og vildi enginn af viðmælendum blaðsins koma fram undir nafni af ótta við hefndaraðgerðir.. Páll Winkel, fangelsismálastjóri, segist ekki geta tjáð sig sérstaklega um reynslulausn Rúnars Bjarka en svarar þess í stað almennt. "Alltaf séu tveir kostir í stöðunni, að láta fanga sitja inni út dóm sinn "og síðan kveður hann okkur og vitum við ekkert um hann það sem eftir er. Hinn kosturinn er að veita fanganum lausn til reynslu. Þá getum við sett ýmis skilyrði. Við getum sett skilyrði um að viðkomandi mæti til sálfræðings, til geðlæknis, haldi sig á ákveðnum stöðum, umgangist ekki tiltekið fólk, neyti ekki fíkniefna, og svo framvegis. Við teljum einfaldlega, og það hefur sýnt sig, að reynslulausn með miklum skilyrðum sé mun vænlegri til þess að tryggja að viðkomandi brjóti ekki af sér aftur, heldur en einfaldlega að loka hann inni í ákveðin ár og henda honum síðan út." Brjóti fangar skilyrði reynslulausnar fara þeir almennt aftur í fangelsi, og það séu því þeirra hagsmunir að halda sig við skilyrði Fangelsismálastofnunar. 25.5.2012 12:23
Geir Haarde kominn í nýja vinnu Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum. Einn af eigendum stofunnar er Borgar Þór Einarsson, stjúpsonur Geirs. 25.5.2012 11:38
Með loftbyssu og skotfæri í Leifsstöð Karlmaður var með loftbyssu og skotfæri í fórum sínum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í fyrradag. Höfðu munirnir komið fram við skimun öryggisgæslu á farangri mannsins. Eigandinn, erlendur ferðamaður, kvaðst hafa komið með skipi frá Noregi og vera á leiðinni til Grænlands með flugi. Honum var gerð grein fyrir að óleyfilegt væri að ferðast með muni af þessu tagi og lagði lögreglan á Suðurnesjum síðan hald á loftbyssuna, tvo kassa af loftþrýstihylkjum og fjögur box af skotfærum. 25.5.2012 11:27
Borgin kaupir dráttarvélar fyrir 160 milljónir Reykjavíkurborg áformar að kaupa dráttarvélar fyrir 160 milljónir króna á næstunni. Bréf frá Hrólfi Jónssyni, sviðsstjóra framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar, var lagt fram á fundi borgarráðs í gær og samþykkt. 25.5.2012 11:16
Ákærður fyrir hættulega líkamsárás Tuttugu og átta ára gamall karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás þann 27 febrúar síðastliðinn í íbúð og í stigagangi við Laugaveg. 25.5.2012 11:10
Bræ'ðralag múslima segist hafa forystu Talning atkvæða er sumstaðar hafin í Egyptalandi en kosið var um nýjan forseta landsins í gær og í fyrradag. Aðeins er þó búið að telja lítið brot atkvæða en Múslimska bræðralagið, flokkur sem mikil áhrif hafði á byltinguna gegn Mubarak fyrrverandi forseta, hefur þegar lýst því yfir að þeirra frambjóðandi sé með forystuna. Það segjast þeir byggja á eigin spám. 25.5.2012 10:40
Þingmenn slógust í þingsal Þingfundur í Úkraínu leystist upp í allsherjar áflogum í gær. Slagsmálin brutust út á milli þingmanna stjórnarflokksins annars vegar og þingmanna minnihlutans hinsvegar. Hitamálið sem varð kveikjan að þeim snýst um hvort leyfa eigi Rússnesku í réttarsölum og á spítölum í þeim héröðum landsins þar sem flestir tala það tungumál í stað úkraínsku. 25.5.2012 10:36
Bjóða upp á nettengingu í háloftunum Þeir sem fljúga með flugfélaginu Norwegian frá Keflavík til Osló í sumar geta verið nettengdir á leiðinni yfir hafið. Þetta verður í fyrsta skipti sem þessi þjónusta er í boði í Íslandsflugi samkvæmt vefsíðunni túristi. 25.5.2012 10:28
Fundu fíkniefni á farþega Lögreglan á Akranesi stöðvaði í gærkvöldi bifreið sem var á ferð við bæinn. Þrír menn reyndust vera í bifreiðinni og þekktu lögreglumenn annan farþegann sem margsinnis hefur verið handtekinn sökum fíkniefnamisferlis. 25.5.2012 09:55
Tæplega fimm ára fangelsi í Straumsvíkurmálinu Sævar Sverrisson, höfuðpaurinn í Straumsvíkurmáinu, var dæmdur í fjögurra og hálfs árs óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur. Geir Hlöðver Ericsson var dæmdur í tveggja ára fangelsi. 25.5.2012 09:30
Getnaðarvarnarpilla fyrir karlmenn í sjónmáli Vísindamenn eygja nú möguleika á því að þróa getnaðarvarnarpillu fyrir karlmenn. Genafræðingar við Edinborgarháskóla uppgötvuðu á dögunum genið Katnal 1 sem þeir segja að sé forsenda þess að líkaminn búi til sæði sem virki. 25.5.2012 09:14
Dómur kveðinn upp í stóru fíkniefnamáli Dómur verður kveðinn upp í einu stærsta fíkniefnamáli síðasta árs klukkan korter yfir níu í dag. Málið snýst um mikið magn fíkniefna sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á fyrr í þessum mánuði í Straumsvík. Það hafði komið hingað til lands um borð í gámaskipinu Franciscu frá hollensku skipafélagi og búið um það í nokkrum pakkningum. Skipið var að koma frá Rotterdam í Hollandi. 25.5.2012 08:59
Mörgæs á flótta handsömuð í Tókíó Yfirvöld í Japan hafa loksins handsamað mörgæs sem flúði úr sædýrasafni í Tókíó fyrir tveimur mánuðum síðan. Mörgæsinni tókst að klifra yfir háan vegg og komast í gegnum girðingu sem umlykur safnið og síðan lét hún sig einfaldlega hverfa í mannhafið í stórborginni. 25.5.2012 08:53
Ólafur Ragnar tekur forystu Stuðningur við áframhaldandi setu Ólafs Ragnars Grímssonar í embætti forseta hefur aukist verulega eftir að hann hóf kosningabaráttu sína í síðustu viku samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Stuðningur við Þóru Arnórsdóttur dalar á sama tíma. Aðrir frambjóðendur njóta lítils stuðnings. 25.5.2012 06:18
Sluppu vel eftir 40 metra fall Tveir ferðamenn, karl og kona, sluppu ótrúlega vel þegar brún á Lágey Dyrhólaeyjar, sem þau stóðu á, gaf sig um hádegisbil í gær. 25.5.2012 11:00
Hollande heimsækir Afganistan Francois Hollande, nýkjörinn forseti Frakka mætti óvænt í heimsókn til Afganistan í morgun og heimsótti þar franska hermenn. Búist er við því að hann hitti einnig Hamid Karzai forseta landsins en Hollande tilkynnti á dögunum um þá ákvörðun að kalla franskt herlið heim frá landinu ári fyrr en áætlað var. 25.5.2012 08:57
Læknast hraðar og síður veikir Karlkyns bavíanar sem eru í ráðandi stöðu í sínum hóp verða sjaldnar veikir og sár þeirra læknast hraðar en sár annarra bavíana, samkvæmt umfangsmikilli rannsókn vísindamanna á heilsufari þessarar apategundar. 25.5.2012 08:00
Vinnuhópur meti afnám hafta Íslensk stjórnvöld og framkvæmdastjórn Evrópu tilkynntu í gær um myndun sameiginlegs vinnuhóps um afnám gjaldeyrishafta á Íslandi. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir: „Frjálst flæði fjármagns er einn meginþátturinn í fjórfrelsinu á sameiginlegum innri markaði Evrópu og því liggur fyrir að ríki með gjaldeyrishöft geta ekki gerst aðilar að Evrópusambandinu.“ 25.5.2012 08:00
Tilraun til hættulegrar árásar Hæstiréttur staðfesti í gær dóm yfir 38 ára gömlum karlmanni, Herði Þráinssyni, fyrir fjölmörg brot. Hann hafði verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í héraðsdómi. 25.5.2012 07:30
Pottur talinn brotinn í skráningu Facebook Kærumál streyma inn vegna vandræðagangs við markaðsskráningu Facebook. Hafin er rannsókn á því hvort fjárfestingarbankinn Morgan Stanley hafi mismunað fjárfestum í hlutafjárútboði og upplýst suma um neikvæða matsskýrslu. 25.5.2012 07:30
Tugir mála á leið til sérstaks saksóknara Skattrannsóknarstjóri hefur sent 66 mál til sérstaks saksóknara og tugir til viðbótar eru á leiðinni. Sakfelling hefur fengist í öllum málum sem lokið hefur með dómi. Stærstu málin sem rannsökuð eru snúast um milljarða undandrátt. 25.5.2012 07:30
Reglur hertar vegna Annþórs og Barkar Öryggisgangur á Litla-Hrauni verður rýmdur fyrir tvo fanga sem grunaðir eru um manndráp áður en þeir losna úr einangrun, samkvæmt fyrirmælum fangelsismálastjóra. Þar verða þeir einir og réttindi þeirra í löglegu lágmarki. 25.5.2012 07:00
Málflutningur í september Munnlegur málflutningur í máli ESA gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum vegna Icesave hefst 18. september næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. 25.5.2012 06:30
Kosið um sameiningu í haust Íbúar Garðabæjar og Álftaness munu greiða atkvæði um það í haust hvort sameina eigi sveitarfélögin. 25.5.2012 06:00
Hefta vind og binda kolefni Vísbendingar eru um að aukinn trjágróður og byggð innan borgarmarka Reykjavíkur hafi dregið úr vindi svo nemi allt að 0,1 metra á sekúndu á hverjum áratug frá því um 1950. Þetta kemur fram í grein sem Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur ritar í fyrsta tölublað Skógræktarritsins á árinu sem nú er komið út. 25.5.2012 06:00
Herferðin kom til af nauðsyn Lækkun á veiðigjaldi frá því sem nú er í frumvarpi ríkisstjórnarinnar skiptir ekki máli. Formaður LÍÚ segir Svavari Hávarðssyni að um lamandi hækkun fyrir fyrirtækin sé að ræða eftir sem áður. Hann segir að völd LÍÚ séu ofmetin og hagkerfið sjái um að kom 25.5.2012 06:00
Brjóstabollan gaf 1,5 milljónir Landssamband bakarameistara, LABAK, safnaði 1,5 milljónum króna til styrktar grunnrannsóknum á brjóstakrabbameini dagana 10. til 13. maí. Átakið var til stuðnings styrktarfélaginu Göngum saman sem styrkir grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini. 25.5.2012 05:30
Mannréttindabrot framin á báða bóga Bæði stjórnarherinn og sveitir uppreisnarmanna stunda manndráp og pyntingar í Sýrlandi. Mest af ofbeldinu má þó rekja til stjórnarhersins. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu rannsókarnefndar SÞ. 25.5.2012 05:30
Boðar skoðun á innra skipulagi embættisins Verklagsreglur hjá sérstökum saksóknara verða endurskoðaðar í kjölfar þess að embættið kærði tvo fyrrum starfsmenn til ríkissaksóknara fyrir brot á þagnarskyldu. Málið hefur ekki áhrif á dómsmál þrotabús Milestone, segir skiptastjóri. 25.5.2012 05:30
50 milljónir gegn glæpastarfsemi Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis beinir þeim tilmælum til innanríkisráðherra að undirbúa aðgerðaáætlun gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Þá vill nefndin að 50 milljónir fari á fjáraukalög í heimild fyrir lögreglu til að starfrækja sérstakt rannsóknar- og aðgerðateymi gegn skipulagðri glæpastarfsemi og mansali. 25.5.2012 05:00
50 missa vinnuna í hagræðingu Starfsmönnum Landsbanka Íslands fækkar um 50 um mánaðamótin vegna hagræðingaraðgerða. Átta útibúum verður lokað eða þau sameinuð öðrum og deildir í höfuðstöðvum bankans verða sameinaðar. 25.5.2012 05:00
Sendu Samkeppniseftirliti kvörtun Wow air hefur kært til Samkeppniseftirlitsins synjun IGS, dótturfélags Icelandair, á því að veita Wow air þjónustu við flugafgreiðslu á Keflavíkurflugvelli. Vallarvinir, annað fyrirtæki sem annast flugafgreiðslu í Keflavík, hefur einnig hafnað því að þjónusta Wow air. 25.5.2012 04:30
Segir jafnréttismál í ólestri Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir ríkisstjórnina ekki hafa staðið við gefin fyrirheit í jafnréttismálum, þrátt fyrir að hafa sett þau í öndvegi. 25.5.2012 04:00
Áhyggjur af afdrifum fjölskyldu Chen Eldri bróðir kínverska flóttamannsins Chen Guangcheng, Chen Guangfu, hefur flúið heimabæ sinn. Hann fór til höfuðborgarinnar Peking til þess að ráðfæra sig við lögfræðinga, en sonur hans hefur verið ákærður fyrir morðtilraun. 25.5.2012 04:00
Loftsteinadrífa skellur á Jörðinni Bandaríski geimfarinn Don Pettit hefur mikið dálæti af því að deila ljósmyndum sínum. Þetta er afar jákvætt enda eru myndirnar hans vægast sagt sérstakar. Pettit tekur nefnilega ljósmyndirnar úr 400 kílómetra hæð og á rúmlega 28 þúsund kílómetra hraða. 24.5.2012 23:55
"Þetta er Nelson. Hann stal símanum mínum" Bandarísk kona sem glataði iPhone snjallsímanum sínum í skemmtisiglingu fyrir nokkru hefur nú haft upp á ræningjanum. Þjófurinn tók nokkrar ljósmyndir með símanum en þær birtust allar í tölvu konunnar. 24.5.2012 22:33
Starfsfólk Heathrow undirbýr sig fyrir Ólympíuleikana Starfsfólk Heathrow flugvallarins í Lundúnum undirbýr sig nú fyrir Ólympíuleikana sem haldnir verða í borginni í sumar. Umferð um flugvöllin kemur til með að aukast um 65 prósent í kringum leikana og hið sama má segja um farangurinn. 24.5.2012 22:05
Verjandi líkti al-Thani málinu við mál Mladic Ragnar H. Hall, verjandi Ólafs Ólafssonar, í al Thani málinu líkti stöðu sakborninga þess máls við stöðu Radko Mladic við fyrirtöku í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 24.5.2012 21:34
Björk fékk Webby verðlaunin Björk Guðmundsdóttur voru veitt Webby verðlaunin í vikunni í flokknum listamaður ársins. Webby verðlaunin er árlegur viðburður og í ár eru 16 ár liðin frá því að Webby verðlaunin voru stofnuð. Verðlaunin eru veitt framúrskarandi árangri tengdum internetinu. Þau eru framsett af The International Academy of Digital Arts and Sciences, en meðlimir eru einstaklingar á sviði tækni og viðskipta og eru einhver helsta viðurkenning sem veitt er í Bandaríkjunum á því sviði. 24.5.2012 21:30
Búinn að skila meðmælendalista „Við erum búin að skila meðmælendalistunum," segir Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi. Alls vantaði 126 undirskriftir á listann svo að hann yrði samþykktur af yfirkjörstjórnum Reykjavíkurkjördæma norðurs og suðurs. 24.5.2012 21:28
Tíu þjóðir komust áfram í Eurovision Mikið var um dýrðir í Bakú í kvöld þegar seinni undankeppni Eurovision fór fram. Tíu þjóðir komust áfram í kvöld. 24.5.2012 21:06
Rætt um lofthelgi Íslands í Finnlandi Forsætisráðherra Finnlands, Jyrki Katainen, neitaði í dag ásökunum stjórnarandstæðinga um að þátttaka Finnlands í loftrýmiseftirliti í íslensku lofthelgi sé tilraun til að koma landinu inn í Atlantshafsbandalagið. 24.5.2012 20:41
Íslendingar duga ekki á Drekasvæðið - gefast upp Útgerðarmaðurinn sem er á leið í olíuleit á Drekasvæðinu segir að ekki þýði lengur að hafa Íslendinga í áhöfn, þeir hafi ekki úthald í langa túra. Við ræddum í gær við eiganda Valbergs VE en skipið fer eftir helgi á Drekasvæðið sem aðstoðarskip í norskum rannsóknarleiðangri að leita merkja um olíu með hljóðbylgjumælingum. 24.5.2012 20:30
"Menntaskólakerfið er undirlagt af kannabisneyslu" Magnús Stefánsson, forvarnarfulltrúi, hefur miklar áhyggjur af aukinni neyslu ungmenna á kannabisefnum. Hann var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag og ræddi við þáttastjórnendur um það mikla framboð fyrir kannabisefnum sem myndast hefur hér á landi. 24.5.2012 20:00
Jóhanna og Füle ræddu gjaldeyrishöftin Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, fundaði í dag með Stefan Füle, framkvæmdastjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, í Stjórnarráðinu. 24.5.2012 19:56