Fangelsismálastjóri: Reynslulausn fylgja ströng skilyrði 25. maí 2012 12:23 Páll Winkel segir reynslulausn góðan kost til að minnka líkur á endurteknum afbrotum Mynd úr safni
Rúnar Bjarki Ríkharðsson, sem fékk einn þyngsta dóm sem fallið hefur hér á landi, fyrir morð og tvær nauðganir, er kominn á reynslulausn. Þetta kemur fram í DV í dag. Fangelsismálastjóri segir í samtali við fréttastofu að almennt minnki það líkur á endurteknum afbrotum að setja fanga á reynslulausn, með tilheyrandi eftirliti, frekar en að halda þeim lokuðum inni. Rúnar Bjarki var dæmdur árið 2000 og afplánaði hann tólf ár af átján ára dómi sínum. Afbrot Rúnars Bjarka vöktu mikla athygli á sínum tíma. Í forsíðuumfjöllin DV árið 2007 var hann kallaður „hættulegasti maður Íslands" og vildi enginn af viðmælendum blaðsins koma fram undir nafni af ótta við hefndaraðgerðir.. Páll Winkel, fangelsismálastjóri, segist ekki geta tjáð sig sérstaklega um reynslulausn Rúnars Bjarka en svarar þess í stað almennt. „Alltaf séu tveir kostir í stöðunni, að láta fanga sitja inni út dóm sinn „og síðan kveður hann okkur og vitum við ekkert um hann það sem eftir er. Hinn kosturinn er að veita fanganum lausn til reynslu. Þá getum við sett ýmis skilyrði. Við getum sett skilyrði um að viðkomandi mæti til sálfræðings, til geðlæknis, haldi sig á ákveðnum stöðum, umgangist ekki tiltekið fólk, neyti ekki fíkniefna, og svo framvegis. Við teljum einfaldlega, og það hefur sýnt sig, að reynslulausn með miklum skilyrðum sé mun vænlegri til þess að tryggja að viðkomandi brjóti ekki af sér aftur, heldur en einfaldlega að loka hann inni í ákveðin ár og henda honum síðan út." Brjóti fangar skilyrði reynslulausnar fara þeir almennt aftur í fangelsi, og það séu því þeirra hagsmunir að halda sig við skilyrði Fangelsismálastofnunar.
Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent „Ríkið á stóra sök á þessu“ Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Fleiri fréttir Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði Sjá meira