Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Byssumaður reyndist vera leikari Sem betur fer eru útköll lögreglu stundum byggð á misskilningi. Þannig var því t.d. farið í gær þegar tilkynning barst um byssumann á ferli á höfuðborgarsvæðinu. 24.5.2012 16:58
Lögmenn Annþórs ósáttir við framgang lögreglu Lögmenn Annþórs Kristjáns Karlssonar, sem grunaður er um að hafa banað Sigurði Hólm Sigurðssyni, samfanga sínum á Litla Hrauni ásamt Berki Birgissyni, segja að ekkert bendi til þess, á þessu stigi, að Annþór eigi hlut að máli. Hann hafi staðfastlega neitað sök. 24.5.2012 16:42
Í aðgerð vegna fótbrots - konan hryggbrotnaði Karlmaðurinn, sem féll niður um 40 metra þegar að brún á Lágey Dyrhólaeyjar gaf sig í dag, er í aðgerð vegna fótbrotsins sem hann hlaut af fallinu. 24.5.2012 16:17
Fellibylurinn Bud færist nær Mexíkó Fellibylurinn Bud færist nú nær ströndum Mexíkó en hann er fyrsti fellibylur ársins á Kyrrahafi. Vindhraðinn mælist á um 170 kílómetrum á klukkustund. Gert er ráð fyrir að hann nái landi í Mexíkó síðdegis á morgun og hefur almenningur verið varaður við. Ekki er búist við að þessi fyrsti bylur tímabilsins valdi miklum skemmdum. 24.5.2012 15:56
Könnuðust ekki við að styðja Ástþór Stikkprufur sem yfirkjörstjórn í Norðausturkjördæmi hefur framkvæmt hefur leitt í ljós að minnsta kosti tíu einstaklingar kannast ekki við að hafa skrifað nafn sitt á undirskriftarlista Ástþórs Magnússonar forsetaframbjóðanda. 24.5.2012 15:36
Þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram um tillögur stjórnlagaráðs Þingmenn samþykktu nú á þriðja tímanum tillögur um þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögu stjórnlagaráðs um stjórnarskrána. 35 þingmenn samþykktu atkvæðagreiðsluna en 15 voru á móti. Því er ljóst að þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram ekki síðar en 20. október næstkomandi. 24.5.2012 14:59
Íbúar kjósa um sameiningu í haust Íbúar Garðabæjar og Álftaness munu í haust greiða atkvæði um það hvort að sameina eigi sveitarfélögin. Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaganna samþykkti þetta samhljóða á fundi sínum fyrr í dag. 24.5.2012 14:56
Næstum helmingur ók of hratt í Sigtúni Brot 46 ökumanna voru mynduð í Sigtúni í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sigtún í austurátt, við Ásmundarsafn. 24.5.2012 14:48
Kannabis í Kópavogi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Kópavogi eftir hádegi í gær. Við húsleit fundust 25 kannabisplöntur og viðurkenndi húsráðandi, karl á fertugsaldri, aðild sína að málinu. 24.5.2012 14:47
Björgunarsveitarmaður: Kraftaverk hvað þau sluppu vel "Þetta er ekkert annað en kraftaverk,“ segir Grétar Einarsson úr björgunarsveitinni Víkverja í Vík, en sveitin kom fyrst á vettvang eftir að brún á Lágey Dyrhólaeyjar gaf sig með þeim afleiðingum að tveir ferðamenn, karl og kona, féllu niður um 40 metra. Eins og sjá má á myndunum er hreint út sagt ótrúlegt að þau hafi sloppið lifandi. 24.5.2012 14:16
Tekur 500 klukkustundir að fara yfir málskjölin Ætla má að það taki verjendur 500 klukkustundir að fara yfir málskjöl í al-Thani málinu gegn fyrrverandi stjórnendum Kaupþings. Þetta sagði Ragnar H. Hall, verjandi eins sakborningsins, við fyrirtöku í morgun. Skjölin eru á 7000 blaðsíðum. 24.5.2012 14:08
Druslugangan haldin í annað sinn "Þetta gekk rosalega vel í fyrra og þátttakan var framar öllum vonum. Þess vegna er ekkert því til fyrirstöðu að endurtaka leikinn í ár,“ segir María Lilja Þrastardóttir, einn af skipuleggjendum Druslugöngunnar sem haldin verður þann 23. júní næstkomandi. 24.5.2012 14:00
Tillaga um að setja ESB í þjóðaratkvæði í haust felld á þingi Tillaga Vigdísar Hauksdóttur þingkonu Framsóknarflokksins um hvort efna skuli til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort stöðva eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið var felld á þingi rétt í þessu með 34 atkvæðum gegn 25. Fjórir þingmenn voru fjarverandi. Stjórnarþingmennirnir Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Jón Bjarnason studdu tillögu Vigdísar. Þingmenn Hreyfingarinnar sögðu hinsvegar nei og það gerðu þau Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Siv Friðleifsdóttir og Guðmundur Steingrímsson líka, auk stjórnarþingmanna. 24.5.2012 12:42
Vill að Alþingi kaupi Landsímahúsið undir skrifstofur Falla á frá byggingaráformum á skrifstofuhúsnæði Alþingis við Austurvöll en kaupa þess í stað gamla Landssímahúsið við Austurvöll. Þá þarf að fara fram á að borgarstjóri geri bragarbót á svæðinu en það hefur verið illa hirt að undanförnu. Þetta kom fram í máli þingmanns í umræðu um störf þingsins í morgun. 24.5.2012 12:25
Nektarmynd af forsetanum harðlega gagnrýnd Afríska þjóðarráðið, stærsti stjórnmálaflokkur Suður Afríku og flokkur forsetans Jakobs Zuma, hefur höfðað mál vegna myndar af forsetanum sem nú er til sýnis í galleríi í Jóhannesarborg. 24.5.2012 11:59
Féllu af syllu í Dyrhólaey Fjórir ferðamenn duttu niður af syllu í Dyrhólaey í dag þegar hún gaf sig og slösuðust þrír þeirra. Einn fótbrotnaði en hinir slösuðust minna. Björgunarsveitamenn og þyrla Landhelgisgæslunnar hafa verið kölluð út vegna slyssins. Töluverður viðbúnaður varð fyrst eftir að tilkynning barst um slysið en nú hefur verið dregið úr honum. 24.5.2012 11:58
Ekki þorandi að flytja Börk í dóminn - úrskurðað um varðhald í fangelsinu Kveða átti upp gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Annþóri Kristjáni Karlssyni og Berki Birgisson í Héraðsdómi Suðurlands klukkan ellefu í morgun. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu var það ekki gert í dómnum heldur kom dómari á Litla Hraun og kvað upp úrskurð þar. Þeir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 13. júní næstkomandi. 24.5.2012 11:21
Viðbrögð Grétu og Jónsa - myndband Gréta Salóme og Jónsi stóðu sig með stakri prýði í forkeppni Eurovision á þriðjudaginn. Þau komust upp úr fyrri riðlinum og keppa fyrir Íslands hönd á laugardaginn í aðalkeppninni sem fer fram í Bakú, höfuðborg Aserbaídjan. 24.5.2012 11:09
Allt að þriggja ára fangelsi liggur við brotum starfsmannanna Fyrrverandi lögreglumennirnir hjá sérstökum saksóknara gætu átt yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi verði þeir fundnir sekir um að hafa rofið þagnarskyldu. Komið hefur fram að mennirnir voru að störfum fyrir þrotabú Milestone á sama tíma og þeir störfuðu fyrir embætti sérstaks saksóknara. Fram hefur komið að þeir unnu skýrslu fyrir þrotabúið sem þeir fengu greiddar 30 milljónir fyrir. 24.5.2012 11:00
Neitaði að fljúga með kvenkyns flugstjóra Karlmanni var vísað út úr flugvél á vegum brasilíska flugfélagsins Trip Airlines eftir að hann lét óánægju sína í ljós með að flugstjórinn var kvenkyns. Flugstýran henti honum sjálf út rétt fyrir flugtak. 24.5.2012 10:28
Björk í samstarfi við bókasafn í New York Björk Guðmundsdóttir er komin í samstarf við bókasafn í New York og aðrar stofnanir. Verkefnið snýst um að hanna námsforrit fyrir börn sem er byggt á iPad appi sem hún gaf út í tengslum við nýjustu plötu sína, Biophilia. 24.5.2012 10:10
Hreindýr trufla ökumenn Hreindýr hafa verið á ferli í kringum Hallormsstaðaskóg undanfarið en um er að ræða hóp tarfa sem eru á leið frá Egilsstöðum að Hallormsstaðaskógi. 24.5.2012 09:17
Dönsk sveitarfélög banna reykingar í vinnunni Starfsmenn hins opinbera í Danmörku sem reykja eiga nú undir högg að sækja. Fjögur sveitarfélög í landinu hafa bannað starfsmönnum sínum alfarið að reykja í vinnunni og svipaðar reglur eru í vinnslu hjá tíu öðrum sveitarstjórnum. Þetta kemur fram á dönsku vefsíðunni avisen.dk í dag. Reykingar í vinnutíma hafa lengi verið viðkvæmt mál hjá hinum frjálslyndum Dönum en sveitarstjórnarmenn sem talað er við segja að framtíðin liggi augljóslega á þann veginn, að innan tíðar verði öllum starfsmönnum hins opinbera bannað að reykja, á vinnutíma. 24.5.2012 08:15
Verkfall í Noregi Um 25 þúsund opinberir starfsmenn í Noregi hófu í morgun verkfallsaðgerðir eftir að samningaviðræður verkalýðsfélaga við stjórnvöld fóru út um þúfur. Verkfallið mun helst bitna á barnafjölskyldum,en áttaþúsund og fimmhundruð kennarar á grunn- og leikskólastigi taka þátt í aðgerðunum í fjórtán sveitarfélögum en þó ekki í höfuðborginni Osló. 24.5.2012 08:01
Barn fann amfetamín í leikskólanum Fimm ára drengur fann í febrúar poka með amfetamíni á leikskólanum Jörfa. Nóg til að valda barni alvarlegum skaða, segir prófessor í eiturefnafræði. Foreldrar fréttu fyrst af málinu í gær og eru ósáttir. 24.5.2012 07:30
Dæmdur í langa fangelsisvist Shakil Afridi, læknir i Pakistan, hefur hlotið þungan fangelsisdóm og fésekt að auki fyrir að hjálpa Bandaríkjamönnum að hafa uppi á Osama bin Laden. 24.5.2012 00:15
Catalina að koma en flugsýningu frestað Catalina-flugbáturinn, sem verður helsti sýningargripur flugdagsins í Reykjavík, er nú á leiðinni til Íslands og áætlar lendingu á Reykjavíkurflugvelli upp úr klukkan hálfsjö í kvöld. Flugmálafélag Íslands hefur hins vegar ákveðið að fresta flugsýningunni fram á mánudag, annan í hvítasunnu, vegna veðurs. 24.5.2012 15:16
Plastpokar bannaðir í Los Angeles Borgarstjórn Los Angeles borgar hefur ákveðið að banna alfarið notkun plastpoka í verslunum þessarar næst stærstu borgar Bandaríkjanna. 45 borgir í Kalíforníu hafa þegar gripið til þessa ráðs en Los Angeles ber þó höfuð og herðar yfir hinar borgirnar þegar kemur að plastpokanotkun. 24.5.2012 12:02
Ólympíuleikar 2020: Þrjár borgir koma til greina Þrjár borgir eru eftir í baráttunni um að fá að halda Ólympíuleikana árið 2020. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið og þótt Ólympíuleikarnir í London hefjist ekki fyrr en í sumar er þegar hafinn undirbúningur að leikunum árið 2020. Leikarnir verða haldnir í Ríó de Janeiro í Brasilíu eftir fjögur ár en í gærkvöldi tilkynnti Alþjóða Ólympíunefndin að leikarnir að átta árum liðnum verði annaðhvort í Istanbúl, Tókíó eða í Madríd. 24.5.2012 11:55
Góð þátttaka í Egyptalandi Forsetakosningarnar í Egyptalandi fara nú fram annan daginn í röð en tvo daga þarf til enda gríðarlegur fjöldi á kjörskrá, eða fimmtíu milljónir manna. Um fyrstu frjálsu kosningarnar í sögu landsins er að ræða og eru tólf í framboði. 24.5.2012 08:06
Þyrla sótti veikan sjómann Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, sótti veikan sjómann í gær af bát sem var að veiðum austur af Hornafirði. Hafði skipstjóri samband við Gæsluna klukkan 03.15 og fór þyrlan í loftið 30 mínútum síðar. 24.5.2012 07:00
Langar biðraðir við kjörstaði „Byltingin hefur breyst mikið. Bæði til hins betra og til hins verra,“ segir Wael Ramadan, fertugur Egypti sem starfar hjá símafyrirtæki og stóð í gær í biðröð eftir því að fá að greiða atkvæði á kjörstað í Kaíró. 24.5.2012 07:00
Vill ekki gefa ungu fólki falsvonir Mögulegt er að lækka þurfi ávöxtunarkröfu lífeyrissjóðanna úr 3,5% vegna efasemda um að svo há ávöxtun geti náðst til langs tíma. Það er mikilvægt er að gefa ekki ungu fólki falskar vonir um lífeyri í framtíðinni, segir Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða. 24.5.2012 07:00
Vill að borgin stöðvi háhýsi úr fortíðinni Íbúi í Vesturbænum vill að borgin hindri að sjö hæða hús rísi við höfnina. Byggingin var samþykkt 2006 en varð ekki meira en húsgrunnur fyrir hrunið. Þótt framkvæmdir séu ekki hafnar að nýju er byrjað að selja íbúðir í húsinu. 24.5.2012 06:30
Sterkt efni getur hæglega verið banvænt Hálft til eitt gramm af amfetamíni getur verið stórhættulegt börnum, til dæmis ef þau myndu gleypa það, að sögn Jakobs Kristinssonar, prófessors í eiturefnafræðum. Fréttablaðið spurði Jakob hvaða áhrif það gæti haft á fimm ára barn að innbyrða hálft til eitt gramm af amfetamíni. 24.5.2012 06:00
Veiðimenn vilja gott sambýli Borgarstjórn hefur samþykkt breytingu á deiliskipulagi sem gerir líkamsræktarfyrirtækinu Boot Camp kleift að hefja starfsemi í húsi Fornbílaklúbbs Íslands í Elliðaárdal. Fjórar vikur eru nú þar til laxveiðitímabilið í Elliðaánum hefst. 24.5.2012 06:00
Samstarf um norðurslóðamál Háskólinn á Akureyri og Háskóli Pierre et Marie Curie skrifuðu undir viljayfirlýsingu um samstarf í rannsóknum á þriðjudag. Áhersla samstarfsins verður á norðurslóðamál. 24.5.2012 05:30
Gamla lánið er enn hagstæðast Stjórn Faxaflóahafna hafnar öllum átta tilboðunum sem bárust í endurfjármögnun á langtímaláni. Að sögn Gísla Gíslasonar hafnarstjóra var umrætt lán tekið árið 2006 til tuttugu ára. Það stendur í dag í um 1.200 milljónum króna. Vextirnir eru 4,6 prósent auk verðtryggingar. 24.5.2012 05:30
Borgin byggir upp skólalóðir Sett verða upp ný boltagerði við tvo grunnskóla í Reykjavík í sumar; Breiðagerðisskóla og Foldaskóla. Stefnt er að því að ljúka framkvæmdum í sumar. Einnig verða gerðar endurbætur á lóðum Hamraskóla, Réttarholtsskóla og Seljaskóla. 24.5.2012 05:30
Frakkar stórir í þorskkaupum Fiskkaupendur í Frakklandi keyptu á fyrsta ársfjórðungi þessa árs 45% meira af ferskum þorski en á sama tíma í fyrra og um 90% meira af ýsu. 24.5.2012 05:30
Eiga 25.000 skópör á lagernum Ný íþróttavöruverslun undir merkjum Sports Direct opnar við Smáratorg í Kópavogi á laugardag. Sports Direct er stærsta íþróttaverslanakeðja Bretlands og er í eigu auðkýfingsins Mikes Ashleys. 24.5.2012 05:00
ESA skýrir samkeppnisreglur sínar ESA, eftirlitsstofnun EFTA, hefur tekið upp nýjar reglur sem skýra eiga hvenær samkeppnisaðilar mega eiga í samstarfi og hvers lags samráð rúmist innan ramma Samningsins um evrópska efnahagssvæðið. 24.5.2012 05:00
Biðin styttist hjá Assange Hæstiréttur Bretlands tilkynnti í gær að á miðvikudaginn í næstu viku verði kveðinn upp úrskurður í framsalsmáli Julians Assange, stofnanda lekasíðunnar Wikileaks. 24.5.2012 05:00
Annþór og Börkur harðneita allri sök Tveir kunnir ofbeldismenn og refsifangar á Litla-Hrauni neita því alfarið að bera ábyrgð á dauða samfanga síns. Dómari kveður upp úr með gæsluvarðhald í dag. Fangelsisstjóri á Litla-Hrauni segir erfitt að taka á hættulegum föngum. 24.5.2012 05:00
Alls eru 94 stjórnarfrumvörp óafgreidd Samkvæmt starfsáætlun verður þingi frestað 31. maí og því aðeins fjórir þingdagar eftir. Fyrir þingi liggja 94 stjórnarfrumvörp og af þeim hafa 27 ekki enn verið tekin til fyrstu umræðu. Umræður um þjóðaratkvæðagreiðslu um drög að stjórnarskrá hafa tekið tæpar 50 klukkustundir og hefur meiri tími farið í andsvör en þingræður. 24.5.2012 04:30
Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent